Morgunblaðið - 09.03.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.1972, Blaðsíða 14
14 MORGIXNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR. 9. MARZ 1972 aðra eins fá- þorskastríðið Forðumst sinnu og — sagði Ted Willis lávarður í umræðum iávarðadeildar- innar um iandheigina og hiaut skeleggan stuðning Boothbys Morgunblaðinu hefur bor Ist afrit af brezkum þingftíð- indum með ræðum þeim sem lávarðarnir Willis og: Booth- by héldu i Lávarðadeild brezka þingrsíns 2. marz tit varnar fyrirhugraðri út- færslu íslenzku landhelsrinn- ar og fara aðalatriðin úr ræð um þeirra hér á eftir. Willis lávarður beindi þeirri fyrirspum til riikisstjórnarinn- ar hvað áfram hefði miðað í við * ræðunum við íslendinga um fiskveiðilandhelgina. Hann sagðist ekki vera sérfræðingur í fiskimálum, en í heimsókn ný- lega til Reykjavíkur vegna sýn ingar á leikriti sinu „Hita- bylgja" hefði það vakið sér- ataka athygli sína að við hverja sem hann talaði, þingmenn, rit höfunda, leikara, hreingerning arfólk á hótelum og mynd- höggvara, fólk af öllum stétt- um, hefðu allir spurt: „Hvað ætHð þér að gera og hvert er viðhorf yðar til landhelginn ar?“ Það væri rétt eins og allir Englendingar segðu þegar þeir kæmu á mannamót: „Hvað fínnst yður um hnignun kola- iðnaðarins?" Willis kvaðst Hjótt hafa komizt að raun um að landhelgi og fiskveiðar væru hluti af lifsvenjum ís- lendinga. íslendingar lifðu á fiskveiðum og eftir samræður við ýmsa þingmenn og aðra hefði hann sannfærzt um að ís * lendingar hefðu traustan mál- stað. Ég hét því að bera málið upp í brezka þinginu, sagði Willis. Willis lávarður gerði síðar ít- arlega grein fyrir fiskveiðum Islendinga og sögu landhelgis- málsins. Island væri útvörður Vestur-Evrópu. íbúar landsins væru álíka margir og íbúar Soutíhampton og murwiu fyíla leikvang Tottenham Hotspurs fjórum sinnum. En ibúafjöldi væri ekki sú mælistika sem leggja ætti á þjóðir. Sérkenni Islands, sem hann hefði fyllzt aðdáun á, hefðu mótazt af sögu og hefð annars vegar og efna- hagslegri þörf hins vegar. ís- lendingasögur væru íslending- * um ennþá andleg uppspretta og grundvöl'iur lífspeki sem gerði vissar kröfur um hugrekki og framkomu. Dauðaslys af völd- urn fiskveiða væru meiri en í námugrefti og nokkirum öðrum atvinnuvegi og þess vegna væri lífspekin sem byggðist á Isiendingasögunum nauðsyn. Áköf sjálfstæðisþrá væri þessu skylt og íslendingar ættu langa lýðræðis- og sjálfstæðishefð og mikilvægt væri að skilja núver- andi ástand í ljósi fortíðarinn- ar. • HÁf)IK FISKI Efnahagsmálin væru annar mikilvægur þáttur. Um 85 til 90% landsins væru óræktan- ' leg. Kvikfjárrækt væri eina mikilvæga atvinnugreinin auk fisikveiðanna, en hún væri lítil og möguleikar á að færa út kvi amar litlir á því sviði. Engir málmar eða olia væru í jörðu. Engin þjóð í heimi væri eins háð fiskveiðum og íslendingar. Fískur og fiskafurðir næmu 80—90% útflutnings Islend- tnga en aðeins einum þriðja af einum hundraðshluta af út- fflutningi Breta. Þæssi útflutning ur gerði tslendingum kleift að kaupa það sem þeir gætu ekki rœktað eða fnamleitt sjálfí'r: matvæli, málma, eldsneyti, vél ar o.sfrv. Fiskur væri með öðr um orðum fjöregg fslendinga. Án hans mundi ísland deyja og eina og forseti Alþingis hefði sagt við sig: „Fyrir okkur er um líf og dauða að tefla.“ Og Willis kvaðst hafa sannfærzt um að þetta væri satt og rétt. Willis gerði grein fyrir fisk- auðæfunum í hafinu umhverf- is Island. Miðin væru beztu hrygningarstöðvar Evrópu og jafnvel heimsins. Fiskimenn hvaðanæva að af meginland- inu og jafnvel frá öllum heim- inum drægjust þvi að þessum miðum. Milii 15 og 20% þess fisks sem væri neytt í Evrópu kæmi frá þessu svæði. Þar sem Islendingar séu svo háðir fisk- veiðum hafi þeir að sjálfsögðu haft áhyggjur af magni þess afla sem hafi verið veiddur. Einhvers konar fiskveiðitak- mörk hafi alltaf verið í gildi, stundum allt að 32 mílur, en 1901 hafi þau verið minnkuð í þpjár mfflur. Bftir .sjálfstæði sitt frá Dönunn, árið 1951, hafi þeir sagt upp samningnum um þrjár mílumar. Þá hafi lika ver ið gífurleg hætta á ofveiði. Gíf- urleg fjölgun fiskiskipa hefði átt sér stað, s'kipin hefðu stæk'k að að mun og nýjar veiðiaðferð Baronessa Tweedsmuir. ir verið teknar upp. AUt hefði þetta stuðlað að hættunni á of- veiði. Og enn sé þessi hætta ekki liðin hjá og þetta ástand sé undirrót þeirra erfiðleika sem nú sé við að etja. Áður hafi togaramir verið 300 til 500 lestir, en nýtizku fiskiskip ailt að 1.000 til 1.200 lestir og 4.000 tonna verksmiðjuskip stefni nú á þessi mið — verksmiðjuskip sem geti haldið kyrru fyrir mánuðum saman, búin rafeinda veiðitækjum og öðrum búnaði. Þessi skip hafi fjórfaldað veið- arnar og stundum meira. Þau sjúgi upp aflann eins og ryk- sugur úr sjónum, bæði ungan fisk og gamlan. Ofveiði sé því orðim mjög alvarliegt vandamál. • MINNI VEIOI Árið 1958 færði íslenzka stjórnin landhelgina út í 12 míl ur, sagði Willis, til þess að ryggja þjóðarafkomuna og þá hafði málið verið rætt þjá Sam einuðu þjóðunum í tíu ár. Þetta hafi stuðlað verulega að vernd fiskstofna. En á siðustu árum hafi ástandið enn versnað vegna ofveiði þar sem japönsk verksmiðjuskip, önnur verk- smiðjuskip og 1.000 tonna tog- arar stefni á miðin og afleið- ingin sé rányrkja á landgrunn inu og utan þess. Síldveiðin hafi minnkað úr rúmlega 800.000 lestum 1965 í 50.000 tonn fimm árum síðar og sé nú einn sextándi þess sem hún áð- ur var. Síldin sé farin. Ýsu- veiðin hafi minnkað um helm- ing á árunum 1965 til 1969 og nú þegar sé þorskurinn kominn í hættu, en hann sé mikilvæg- asti fiskurinn frá sjónarmiði ís lendinga og Breta. Þorskstofn- inn minnki árlega um 70%, að- allega vegna ofveiði. Hættan sé mikil, bæði frá sjónarmiði ís lendinga og Breta. Áhrifin segðu ekki aðeins til sin á Is- landi heldur hjá öllum þjóðum sem stunda fiskveiðar. Þetta sé Ted Willis kjarni vandamálsins. Þetta sé baksvið þeirrar ákvörðunar ís- lendinga að færa út landhelg- ina í 50 mílur. Þetta sé vemd- arstefna, stefna sem hann hafi sannfærzt um að verði í þágu allra þjóða sem stundi veiðar á þessum miðum. Þetta sé eina leiðin sem Islendingar geti far- ið til þess að vernda hrygning- arstöðvarnar fyrir sig sjálfa og alla aðra og koma i veg fyrir að þessi fengsælu fiskimið verði eins og örfokasvæðin miikiliu í Aimeríku. Þetta sé að gerast. • ENGIN LÖG Því hefur verið haldið fram og er enn haldið fram, sagði Willis að íslenzika stjórnin hafi á röngu að standa, að þessi ráðagerð brjóti í bága við al- þjóðalög og að visa ætti henni til Alþjóðadómstólsins í Haag. En eins og þingmenn lávarða- deildarinnar viti séu engin grundvallarlög til á þessu sviði. Sameinuðu þjóðirnar reyni enn að samþykkja slík lög og alþjóðleg hafréttarráð- stefna verði haldin á næsta ári. En íslenzka stjórnin sé ekki á því að halda áfram viðræðum með reynsluna frá 1948 og 1958 í huga og eins og sé ástatt sé ekki hægt að lá henni það. 1 þessu sambandi verður einnig að taka fram, sagði WiU is lávarður, að margar þjóðir hafa stærri landhelgi. Suður- Ameríkuríki hafi 200 mílna fiskveiðilandhelgi, Kanada 100 mílna mengunarlögsögu og allt að 80 mílna fiskveiðilögsögu. Ghana og Indland hafi rúm- tega 100 miilna fiskveiðitak- mörk .Svo það sé ekki stórkost legt að Islendingar hyggist færa landhelgina út í 50 mílur. Það sem meira sé: 50 mílumar nái nsestum þvi yfir landgrunn ið sem ísland hvili á og land- grunnið fylgi næstum þvi lög- un strandlínu ísiands. Þess vegna mæli mjög sterk rök með því að þetta sé í raun og veru hiuti af landhélgi Islands. Willis benti á að því hefði verið haldið fram að rangt hefði verið af íslendingum að taka þessa einhliða ákvörðun, en hann kvaðst telja að ef þeir hefðu haidið áfram viðræðum öllu lengur hefði kannski farið svo að samkomulag næðist, en þá væri enginh þorskur, ýsa, koli eða síld eftir til að veiða, því að fiskurinn hefði dáið út meðan viðræðurnar hefðu farið fram. Íslendingar hafi gefið í skyn að þeir viðurkenni að inn an 50 mílnanna gegni sérstöku máli með veiðar vestur-þýzkra fiskimanna og umfram allt brezkra og þeir séu reiðubúnir að ræða um áþreifanlegt sam- komulag við brezka fiskimenn og vestur-þýzka um sérstök réttindi innan 50 mílna mark- anna á hefðbundnum miðum Breta. Willis kvaðst telja að treysta mætti þessari fullviss- un og að halda ætti viðræðun- um áfram. Ég varð ekki var við neina andúð á Bretum á Is- landi, þvert á móti varð ég var við mikla virðingu og velvild í garð lands okkar, sagði Willis. • TRAIJSTUK MÁLSTAÐUB Willis lávarður sagði að lok- um: Hæstvirtu lávarðar. Ég lýsti yfir því að ég mundi kynna mál stað íslands í brezka þinginu og það hef ég nú gert. Ég hef reynt að fara fljótt yfir sögu, ég hef ekfki gert málinu nógu Boothby. góð skil en ég gerði það sem í mínu valdi stóð. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að málstaður inn sé mjög traustur og ég mundi styðja hann. Ég vona bara að jafnframt því sem þess um viðræðum verður haldið áfram takist okkur að forðast aðra eins fásinnu og „þorska stríðið“ 1958. Eins og ég hef tekið fram, eigum við í höggi við 200.000 manna þjóð. Hún hefur engan her, hún hefur eng an flota, hún hefur engan flug her. Ég held að hún hafi 200 lögreglumenn og fimm gæzlu skip. Þessi varðskip eru vopn- uð fallbyssum, en aldrei hefur verið hleypt af þeim í reiði. Ég hef áreiðanlegar heimildir fyr- ir því að afar vafasamt sé hvort nokkur um borð kunni i raun og veru að skjóta af þess um byssum. Þess vegna vona ég að ekki skapist sama ástand og 1958 þegar brezki sjóherinn veitti skipum okkar vernd í íslenzkri landhelgi. Ástæðan er sú að þega'r öllu er á botnin hvolft og þegar allt kemur til alls eru úthafsveiðar, sem eru mjög hættulegur atvinnuvegur eins og ég hef tekið fram, mjög háð- ar stuðnín.gi vinveittra þjóða. Hvert það skip okkar sem lend ir í erfiðleikum, hvort heldur 51 mílu frá íslenzku ströndinni eða 20 mílur frá íslenzku ströndinni, þarf að komast til hafnar á íslandi. Það þajrf þjón ustu íslenzkra sjúkrahúsa við þá sem veikjast. Það þarf stundum á stuðningi íslendinga að halda til þess að fá mat eða viðgerðir. Ekkert land getur gert sér vonir um að geta veitt óendanlega og ólöglega við ann að land án hjálpar þess lands í einhverri mynd. ísland treystir því ekki á vopnavald í þessari deilu heldur fyrst og fremst á tvo þætti: siðferðilegan rétt, sem ég tel að sé fyrir hendi í mjög ríkum mæli, og heilbrigða skynsemi til þess að koma mát- inu í höfn. Hæstvirtu lávarðar, ég gerí mér grein fyrir því að fiski menn okkar hafa mjög traust- an málstað þvi að þeir hafa veitt kynslóð eftir kynslóð á þessum hefðbundnu fiskimið- um. Ég tel að það sé ekki tll í dæminu að þeim verði stíað burtu frá þessum miðum, ár-eið- anlega ekki í bráð. Sterkuir grundvöllur er fyrir viðræðum um verndun þessara miða, en ég held að viðræðumar verði að fara fram á þeim grundvelli að íslenzka stjómin geri það sem hún vill sem vörður þess- ara afar fengsælu fiskimiða. Og þegar við erum orðnir sam- mála um að hún sé vörðurinn, þá skulum við tala um önnur réttindi. Hæstvirtu lávarðar, á þessum grundvelli ber ég fram fyrirspurn mína. • NAUÐSYN VERNUNAK Boothhy lávarður kvaddi sér hljóðs þegar Willis lávarður hafði lokið máli sínu og sagði m.a. „Leyfist mér að segja nokkur orð til þess að lýsa yf- ir eindregnum stuðningi við það sem hæstvirtur lávarður Willis hefur sagt í þessu. Ég held að málstaður íslendinga sé mjög traustur. Aðeins eitfc svar er við fiskveiðivandamál- inu eins og sakir stánda og það gildir um öll Norðurhöif og alangt út fyrir þau, og það er verndun. Ég vona að áður en næstu 10 ár eru liðin hafi okk- ur tekizt að finna upp viðtæk- ar vernduniairráðstafanir í Evn- ópu, minni m'skva, veiðiaðferð ir sem eru ekki eins harkaieg- ar og skaðlegar og svo fram- vegis. Þessu næst ræddi Booth- by landhelgismál Breta og lét í ljós þá skoðun að brezka stjórnin hefði átt að vera harð ari í hom að taka í viðræðun- um við Efnahagsbandalagið um þau mál. Boothby lagði áherzlu á nia'uð syn verndunar ráðstafana til að koma í veg fyrir útrýmingu fiskstofna vegna skaðlegra nú- tímaveiðiaðferða. Þessar aðferð ir væru vissu'lega skaðlegar, togararnir sem stunduðu veið- arnar væru stórir, möskva stærðin lítil og skuttogarar skröpuðu hafsbotninn og myrtu fiskstofnana. Ef þessum aðferðum verður ekki breytt óttast ég að á næsta árabug verði fiskveiðivandamálið orð- ið því sem næst óleysanlegt. Mér finnst, að íslendingar séu í fullum rétti þegar þeir krefj- ast þessara fiskveiðimarka um leið og þeir hjóða togurum Frauih, á bla. Z9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.