Morgunblaðið - 28.04.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.04.1972, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1972 JVITIJG .STULKA OSKAST. 1 þýðingu Huldu Valtýsdóttur. „Ég hef hér uppkast að grein um yður, sem ég mun birta í blaði mínu, ef ég kemst að þvi, að þér hafið nokkuð saman við dóttur mína að sælda 48 klukku stundum eftir þetta samtal okk- ar hér.“ Harold braut sundur blaðið. „Greinin ber fyrirsögn- ina: Kynslóðabilið." „Ó, hamingjan góða,“ sagði Roy og tróð humarnum upp í sig. „Synir frægra manna segja álit sitt á feðrum sínum." Roy hætti að tyggja. „Ég elska mig. Það er slag- orð pabba, segir Kristófer Van- dervane, tvítugur sonur, já við vitum það allt. Síðan stutt yfir- lit um framlag yðar á hljómlist- arsviðinu og afskipti af stjórn- málum. Aðeins nokkrar stað- reyndir, sem reyndar eru óþarf- ar með tilliti til þess, sem á eft- ir kemur. Þó er lögð nokkur áherzla á áhuga yðar á málefn- um unga fólksins og samúð yð- ar með því. Það mundu þér kjósa sjálfur. Áður en lengra er haldið, ætla ég að benda yður á, að lögfræðingar hafa farið yf- ir greinina. Þeir höfðu ekkert við hana að athuga, nema þrjár setningar, en þetta er líka bara fyrsta uppkast. Lokahandritið verður alveg tryggt. Það skuluð þér vita. Jæja, siðan snúum við okkur að heimili yðar og núver andi heimilisfólki. Penny Vand- ervane, 23 ára, sem þar er í sam- býli við rithöfund frá Vestur- Indíum, Godfrey Alexander, 24 ára . . .“ „Gilbert," sagði Roy. „Gæti ég fengið koníak?" Harold leiðrétti handritið. „Þakka yður fyrir. Koníak? Já, vitanlega. Með kaffinu í setu- stofunni. Má ekki bjóða yður ost eða búðing?" „Nei, takk. Bara koniak." Við Roy biðum við dyrnar á meðan Harold borgaði matinn og taldi smámyntina, sem hann fékk til baka. „Hann hefur bara i hótunum," sagði Roy. „Hann þorir ekki að gera alvöru úr þessu." „Ég veit ekki. Satt að segja held ég, að hann þori það.“ „Tómt bull og kjaftæði." „Sem við verðum þó að hlusta á.“ „Þetta er rakinn sMthæiH." I setustofunni var strjálingur af fólki. Nóg til þess að Roy mundi stilla sig. Ekkert benti heldur til þess, að hann gæti það ekki. Við fengum okk- ur sæti í einu horninu og í þetta sinn gnæfði yfir okkur stytta í fullri líkamsstærð af einhverj- MB. ÞERNEY sem nýr 80 tonna bátur, til sölu eða leigu. Einar Sigurðsson. um löngu dauðum forsætisráð- herra. Styttan var úr steini, en steinninn þannig að engu var líkara en hann væri smurð- ur kalkblöndu. Okkur var borið kaffi og stórt koníaksglas með svolítilli koníakslögg í. Roy hvolfdi því i sig í snatri. „Jæja,“ sagði Harold, kveikti sér í stuttum digrum vindli dró handritið upp aftur og las: „Reyndar er það engin furða þótt faðir minn sækist eftir sam neyti við ungt fólk, þvi sjálfur getur hann ekki talizt fullorð- inn. Hann er eins og tiu ára barn eða þaðan af yngra. Ég veit ekki, hvort tónlistarþroski hans er á sama stigi, og kæri mig heldur ekki um að vita það. En á öllum öðrum sviðum hugs- £ir hann um það eitt að fá vilja sinum framgengt. Hann er eins og Ashley litli, hálfbróðir minn, sem er sex ára og alveg bandóð- ur. Ef hann fær ekki umsviía- LEIKHÚSKJALLARINN velvakandi 0 Um nöfn og auðkenni bréfritara Það hefir margoft verið tekið fram hér í dáikum Vel- vakanda, að þeir, sem bréf senda, verði að láta getið nafns sins og heimilisfangs, eða síma- númers, svo hægt sé að hafa samband við þá, ef Velvakanda þykir við þurfa. Ennfremur skal það fram tekið að þeir, sem rita bréf sín undir fuliu nafni og heimila birtingu á því, gánga ávallt fyrir um að fá þau birt. Það er von Velvak- anda að þessir dálkar, sem telj- ast vera raddir fólksins, radd- ir lesendanna, þróist upp í það, að öll bréf verði birt undir fullu nafni. Hitt er frumskilyrði að þeir, sem senda okkur bréf geri fulla grein fyrir sér. Annars eru bréf þeirra ekki tekin til greina, en hafna i glatkistunni, eða ruslakörfunni. Við höfum_ t.d. fengið bréf um þjóðhátíð- armerkið, sem fyrirhugað er að nota 1974. Þessu bréfi fylgir að vísu nafn, en ekkert frek- ar, ekkert heimilisfaLng, enginn sími. Þetta er ádeilubréf og verður ekki birt nema nánari grein sé gerð fyrir bréfritara. Þá höfum við fengið skamma- bréf um greinarhöfund, sem nýlega ritaði hér í blaðið. Þvi fylgir einnig nafn og við höf- um reynt að hafa upp á bréf- ritara, en hann (kona) finnst ekki einu sinni á manntals- skýrslum. Heiðruðu bréfritar- ar! Látið nöfn yðar og heim- ilisfang eða símanúmer fylgja bréfum yðar, ef þér óskið ekki eftir að fullt nafn fylgi grein- unum. Sé um að ræða ádeil- ur á menn, sem birt hafa bréf sin hér undir fullu nafni, verða þau svarbréf einnig að vera undir fullu nafni. £ Skolthúfa — Islandskynning Kæri Velvakandi! Nýlega birtust í dönsk- um blöðum frásagnir með myndum af kynningu á íslenzk um mat i Kaupmannahöfn. Er vissulega mjög ánægjulegt, þegar slik kynning er vel gerð og vekur verðskuldaða athygli. Ein myndanna, sem birt var hefur þó vakið athygli þeirra, sem unna ísienzkum þjóðbún- ingum og er hún tilefni þess- ara skrifa. Þar er stúlka klædd upphlut og er vissuiega bæði viðeigandi og skemmti- legt að það sé gert við slík tækifæri, en stúlkan ber ekki skotthúfu á höfði. Skotthúfan er eitt af sérkennum islenzkra þjóðbúninga og á sér ekki neinn líka meðal þjóðbúninga annarra þjóða. Skotthúfan til- heyrir búningnum á sama hátt og svuntan, bolurinn og allir aðrir hlutar búningsins. Upp- hlut er þvi ekki hægt að klæð- ast og koma fram i opinber- lega, án þess að hafa skott- húfu, frekar en t.d. að vera svuntulaus. Sama gildir um fald (höfuðbúnað) við kyrtil og skautbúning, enginn er fylli- lega klæddur þjóðbúning, nema bera allt, sem honum tilheyrir. Meðal annarra þjóða eru til búningar, sem ekki hafa höfuð- búnað, en ef fólk klæðist þeim þjóðbúningum, sem höfuðbún- aður tilheyrir, er hann að sjálf- sögðu notaður. Þetta ætti fólk að aithuga og varast að rugla saman. Stundum hefur þess orðið vart að stúlkur, sem óvanar eru að bera íslenzkan búning, eigi erfitt með að láta höfuð búnaðinn tolla. Skotthúfu er hægt að festa með ýmsu móti, þó fyrst og fremst haldist sú hefð að festa húfuna með svörtum prjónum. Hægt er t.d. að festa lítinn hárkamb i innri brún húfunnar á móti skúf. Þetta gefur stuðning og jafn- vægi, því það er þyngd skúfs- ins, sem vill toga húfuna nið- ur, sé henni ekki nægilega vel fest. Annað ráð er að nota t.d. tvær svartar hárspennur og renna þeim upp á húfuna und- ir skottinu, sem slkúfurinn hangir í (hárspennur mega ekki sjást á húfunni). 1 þriðja lagi er hægt að setja spennur eða kamba í hárið á því svæði, sem fer umdir húfuna og næla svo prjónunum í kring og hafa þeir þá betra hald. Sé húfan rétt og vel fest beint ofan á hvirfilinn, þá ætti hún að tolla vel. 1 nýjasta blaði heimiiisiðnað- arfélagsins „Hugur og hönd" er lýst upphlut og því, sem honum tilheyrir og er það mjög aðgengilegt fyrir þá, sem vilja kynna sér búninginm, þvi nú er greinilega vaxandi áhugi fyrir islenzkum þjóðbúningum og er það vel, þegar fram undan er að. halda svo mikia hátíð, sem þjóðhátíðin 1974 ætlar að verða. Dóra G. Jónsdóttir. ALLIR KRAKKAR EICA AÐ LESA ÞETTA ! ANDRES ÖND OC FELACAR halda barnaskemmtun í Háskólabíói nk. sunnudag, 30. apríl, kl. 1,15 eftir hádegi. — Fyrst spilar skólahljómsveit Kópavogs þá verður kvik myndasýning — teiknimyndasyrpa. — Ómar Ragnarsson skemmtir með gamanvísum o. fl. — Þá stjórnar Svavar Gests ýmsum leikjum og hefur spurningakeppni, þar sem mörg góð verölaun verða veitt. UM LEIÐ OG SKEMMTUNINNI LÝKUR FÁ ÖLL BÖRNIN AFIIENTA SÉRSTAKA GJAFAPAKKA FRÁ ANDRÉSI ÖND. Verð aðgöngumiða er kr. 100— og verður forsala aðgöngumiða á eftirtöldum stöðum í dag og á morgun: Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri Bókabúð Jónasar Egg- ertssonar, Rofabæ 7. Bókabúðinni Vedu, Álfhólsvegi 5, Kópavogi. Bókabúðinni Grímu, Garða- hreppi. Bókabúð Olivers, Hafnarfirði og í Háskólabíói. Allur ágóði rennur til barnaheimilisins að Tjaldanesi og líknarsjóðs Þórs. Lionsklúbburinn ÞÓR. Allra síðasta Andrésar andar skemmtunin Allra siðasta Andrésar andar skemmtunin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.