Morgunblaðið - 28.04.1972, Síða 32
IGMS
ÞVOITAVELAR
RAFIÐJAN — VESTURGÖTU11
SrMI: 19294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL
SfMI: 26660
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1972
Ekkert aðhafzt
f yrr en að rann-
sókn lokinni
UNNIÐ er nú að nánari rann-
sókn á því hvort rússneska olíu-
skipið, sem greint var frá i blað-
inu í gær, hafi dælt olíu í sjóinn
innan 100 mílna meng-unarlög-
sögu íslands og brotið þar með
alþjóöasamþykkt um það efni.
Sem kunnugt er tók varðskip
sýni úr sjónum á þeim stað, sem
flugvél Landhelgisgæzliinnar
taldi sig hafa séð skipið dæla
olíu i sjóinn. Verður það nú rann-
sakað, en niðurstaðan síðan send
til viðkomandi ráðuneytis ásamt
öðrum gögnum til frekari ákvörð
unar.
Að sögn Hjálmars Bárðarson-
ar, forstöðumanns Siglingamála-
stofnunarinniar, hefur þetta mál
enn ekki borizt stofnuninni, en
undk það heyra mál af þessu
tagi. Hann sagði þó, að áður en
Framhald á bls. 31
Ábyrgðartrygging
bifreiða hækkar
Hér sést olíuskipið rússn-
eska, seim grimur leikur á að
liafi dælt olíu í sjéinn innan
mengunarlögsögu Islands, og
stefnir }>að tU hafs undan ís-
lenzka varðskipinu, sem nálg-
ast óðum (litli depillinn á
miðri myndinni, ef liún prent-
ast vel). (Ljósm. H. Hall.).
— í formi lækkunar á bónus
RÍKISSTJÓRNIN mun á fundi
sínum í gærmorgun hafa tekið
tU afgreiðslu beiðni frá trygg-
ingafélögunum um hækkun á
ábyrgðartryggingum þifreiða og
Jóhannes skáld
úr Kötlum látinn
JÓHANNES skáld úr Kötlum
lézt i Landspitalanum i gærmorg-
wn, 72 ára að aldri.
Jóhannes fæddist 1899 að
Goddaistöðum í Dölum og voru
foreldrar hans Jónas Jóhannes-
son, lengst af bóndi í Ljárskóga-
seM í Laxárdal og kona hans
Halldóra Guðbrandsdóttir. Hann
lauk kennaraprófi 1921 og var
síðan við kennslu næstu 12 árin,
bæði í Dölum og Reykjavík.
Fyrsta Ijóðabók hans, Bi bí og
blaka, kom út 1926 en al'ls hafa
komið út um 15 ljóðabækur eftir
Jóhannes, 5 Skáldsögur auk
fjölda Ijóða og sagna fyrir börn.
Ennfremur þýddi Jóhannes úr
Kötlum nokkrar erlendar skáld-
sögur, m.a. Salamöndrustríðið
1946, Vegurinn til lífsins 1957—
’58 og Frú Lúna í snörunmi 1958.
Hann hlaut 2. verðlaun fyrir
Alþingishátíðarljóð 1930 og 1.
verðlaun fyrir lýðveldishátiðar-
Ijóð 1944.
Jóhannes stundaði ritstörf í
Reykjavík frá 1933—’40 og aiftur
eftir 1959, en árin þama á milli
var hann búsettur í Hveragerði.
Hann tók virkan þátt í félags-
máiíum rithöfunda, átti sæti í
stjónnium Rithöfundafélags ís-
lands og Rithöíundaisambands
íslands og Bandalags ísl. iista-
manna. Hann var einnig formað-
ur Félags byltingarskunaðra rit-
höfunda og átti sæti á Alþingi
1941 sem þingmaður Reykvík-
inga. Ennfremur starfaði hann
fyrir Ferðafélag fslands og ann-
aðist umsjónarstörf í Þórsmörk
á sumrum frá 1955—’62.
Jóhannes úr Kötlum var
kvæntur Hróðnýju Einarsdóttur.
heimilað hana í formi lækkunar
á bónus — mismunandi mikið
eftir flokkum — en allt að 10%
lækkun í einum flokknum.
Ráðuneytisstjórinn í trygginga-
ráðumeytinu hafði ekki haft frétt-
iir af þeasari hækikuin í gærdag,
en samkvæmt upplýsingum Gísila
Ólafssomar hjá Tryggiingamið-
stöðinni, sem esr formaður heild-
arsamtaka tryggingafélaganma,
hafði tryggingafélögunum ekki
borizt neitt skiriflegt um þessa
ákvörðun rikistjóimarinnar í gær.
Gísli sagði þó, að eftir því sem
frétzt hefði, yrði grumniðgjaldið
óbreytt og sér virtist sem hér
væri um vissa tilfærslu að ræða
til eðiilegrar samræmingar við
sjálfsábyrgðarlögin frá 11. apríl
sl. Með þeim var bifreiðaeigend-
um geirt að greiða 7.500 krónur
í sjálfsábyrgð á tjónum. Gísli
kvað bónusreglumar eðlilega
breytast með þessu, en sagði að
sér fymdisit þetta of lítil úrlausn
á þeim vandamálum, sem þau
ættu við að stríða varðandi trygg
ingar á þessiu sviði.
Laun unglinga
ÁKVEÐIÐ hefur verið að launa-
greiðslur í Vinnuskóla Reykja-
víkur í sumar verði kr. 40.00 á
klst. fyrir unglinga fædda árið
1957 og kr. 35.00 á. klst. fyrir
unglinga fædda 1958.
Þá hefur borgarráð fallizt á
tiliögu fræðsluráðs um rekstur
námskeiða fyrir 10—12 ára böm
í sumar með sama hætti og verið
hefur undanfarin sumur.
Amerísku læknasamtökin veita:
3 milljónir lir. I styrk
til rannsókna á áhrifum reykinga á hjarta
BANDARÍSKU læknasamtök
in hafa veitt 38.200 dollara
eða um 3 millj. ísl. kr. styrk
til dr. Sigmundar Guðbjarn-
arsonar, prófessors, til rann-
sókna hans við Raunvísinda-
stofnun Háskólans á áhrif
langvarandi reykinga á hjart-
að. Hafa bandarísku lækna-
samtökin stutt þessar rann-
KRAFA SOVEZKA SKÁKSAMBANDSINS:
EINVÍGIÐ VERÐI
HALDIÐ Á ÍSLANDI
Moskvu, 27. apríl — AP
Einkaskeyti til Mbl.
SOVÉZKA skáksamband-
ið hefur krafizt þess, að
heimsmeistaraeinvígið í
skák milli Bobby Fischers
og Boris Spasskýs verði
haldið á íslandi. Skýrði
sovézka fréttastofan TASS
frá þessu í dag og var þar
tekið fram, að sovézka
skáksambandið hefði fyr-
ir hönd Spasskýs, sent
FIDE, Alþjóðaskáksam-
bandinu, símskeyti þessa
efnis í gær.
Símskeytið var svohljóð-
andi: „Skáksamband Sovét-
ríkjanna varar við því, að
það mun ekki ljá stuðning
fyrirætlunum forseta FIDE
(Hollendingsins Max Euwe)
um að láta fara fram viðræð-
ur að nýju til þess að finna
vettvang fyrir einvígið."
Samkvæmt áður gerðu sam-
komulagi átti fyrri helming-
urinn af 24 skáka einvíginu
um heimsmeistaratitiUnn að
fara fram í Belgrad, en síð-
ari helmingurinn í Reykjavík.
Belgrad hætti við að standa
Framhald á bls. 14
sóknir Sigmundar í 6 ár í
Bandaríkjunum og nú síðast
hér á íslandi, og hafa nú veitt
aftur 3 millj. kr. til þeirra.
Er það þeim mun merkilegra
að bandarísku læknasamtök-
in skuli styðja þessar rann-
sóknir hér nú, að þau eru al-
mennt að draga mjög úr
fjárveitingum til rannsókna
og hafa tilkynnt það stefnu
sína.
Virðast rarmsóknir þessar hér
vekja mikla athygli erlendis, því
dr. Sigmundur hefur verið beð-
inn um að halda fyrirlestra um
þær á fiimm alþjóðlegum þingum
á þessu ári, en hann hefur þó að-
eins tíma til að fara á tvo staði.
í maílok flytur hann fyrirlestur
um þetta á ráðstefnu um áhrif
súrefnisskorts á hjartastarfsem-
ina og í september á Evrópuráð-
stefnu hjartasérfræðinga í
Madrid. Hann hefur áður skrifað
Framhald á bls. 31
Heildarlöggjöf um
vátryggingastarfsemi
lögd fram á Alþingi í gær
I GÆR var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp tii nýrrar heild-
arlöggjafar um vátryggingastarf-
semi, sem rekin er á viðskipta-
gTimdvelli. Þar segir m. a., að
setja skuli á stofn tryggingaeftir-
lit, er hafi eftirlit með starfsemi
vátryggingafélaga og rekstri
þeirra samkvæmt ákvæðum lag-
anna og reglugerðiim settum sam
kvæmt þeim.
Það er meðal nýmæla í frum-
varpinu, að líftryggingar eru
teknar út úr, þarunig að þær er
einungis heimilt að reka af sjálf-
stæðum félöguim, er elgi haö
aðra starfsemi með höndum. Þá
eru og ákvæði um, að vátrygg-
ingafélögum sé bannað að taka
á sig ábyrgð eða skuldbiindingar,
sem ekki eru vátryggðar, nema
slíkt leiði af eðlilegum retestri fé-
lagsina Samtevæmit þessu er vá-
tryggingafélöguim t. d. bannað
að ganga í ábyrgðir fyrir við-
skiptaaðila sína, sem nú mun
nokkuð tíðkast, samþykkja fyrir
þá víxla eða ábeteja eða annað
alíkt, einis og segir í reglugerð
frumvarpsins.