Morgunblaðið - 06.07.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.07.1972, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1972 JtÍLA LKtL < V uum 14444 *++ 25555 [V mifioifi BILALEIGA-HVíFISGOTIi 103 14444 S*25555 0 BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 SKODA EYÐJR MINNA. Skodh LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍM! 42600. Hópierðir ”il leigu í lengri og skemmri ferðir 8—TO farþega bílar. Kjartan ingímarsson sími 32716. Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar Aðalstræti 6, III. hæð. Sáni 26200 (3 línur). Opnum í dag fiskbúð (Gamli sjólaxinn) að Njálsgötu 26. „Skattastefnan er hrollvekja“ Fróðlegrt hefur verið að fylgjast með skrifum stuðn- ingsblaða ríkisstjórnarinnar að undanförnu. Þau sýna fram á, að stjórnin er á und- anhaldi og óánægjan meðal stuðningsmanna hennar fer ört vaxandi. Málgagn Hannibals Valdi- marssonar hefur haldið uppi harðri gagnrýni á Lúðvík Jós- epsson að undanförnu. Nýtt land virðist hins vegar ekki vera algjörlega andvigt fast- eignasköttum ríkisstjórnar- innar. Siðastliðinn fimmtudag sagði Nýtt Iand: „Stjórnar- andstæðingar hamra á hækk- un fasteignaskattsins og vatna músum yfir meðferð- inni á fátæka fólkinu, sem nú á að greiða hærri fasteigna- skatt en áður.“ Það hlýtur að vera mikill léttir fyrir Nýtt land að þurfa ekki að vatna músum yfir málefnum af þessu tagi. Lkki eru þó allir aðilar á vinstra kanti stjórnmálanna jafn hamingjusamir og Nýtt land vegna þessara hækkana á fasteignasköttum. Ný dags- brún, málgagn islenzkra sósí- alista, segir sl. laugardag: „Samkvæmt hinum nýju lög- um um fasteignaskatt hækka fasteignaskattar af ibúðar- húsnæði almennings þrefalt til fjórfalt, þannig að fast- eignaskattar, sem áður voru kr. 3 þúsund hækka nú í kr. 9 þús. til 12 þús. Þannig hækka útgjöld fátæks alþýðu- fólks á þessum eina lið um kl. 6 þús. til 9 þús. Þessi skattlagning veldur þvi að fólk, sem hefur mjög lágar tekjur, en gat framfært sig vegna þess, að það bjó við lág- an húsnæðiskostnað, getur það ekki lengur. Við þessu fólki blasa nú hrein vandræði og vonleysi með afkomu sina. Þetta er ein afleiðing hinnar glæfralegu skattlagningar á íbúðarhúsnæði. Önnur afleiðing er sú, sem snýr að leiguhúsnæði. Hinn fjölmenni hópur leigutaka verður að sætta sig við að leigusalar hækki húsaleigu svo skiptir þúsundum króna á mánuði vegna hækkaðs reksturskostnaðar húseigna með hækkun fasteigna- skatta." Ný dagsbrún segir enn- fremur: „Þetta er eitt af mörgum dæmum um það, hvernig ríkisstjórnin færir skattabyrðarnar yfir á bök þess fólks, sem minnsta hefur möguleikana til að standa undir þeim, og reyndar oft og tíðum enga getu til þess. Skattastefna og skattalög- gjöf ríkisstjórnarinnar er orð- in sannkölluð hrollvekja fyrir láglaunafólkið í landinu með- an hún býður húsaleiguokr- urum til veizlu á kostnað hinna fátæku." Verra en að lesa Mogga Ný dagsbrún segir þetta um aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar vegna eUilauna: „Eitt af loforðum núverandi rikis- stjórnar var að bæta verulega hag aldraðs fólks og öryrkja, þ.e. að hækka eUi- og örorku- lífeyri. Þessi lífeyrir er þeir einu fjármunir, sem fjöldi fólks verður að láta sér nægja tU framfærslu. Þegar núver- andi ríkisstjórn kom tU valda var það eitt af hennar fyrstu verkum að flýta hækkun þessara bóta þannig að þær áætlanir, sem fyrrverandi ríkisstjórn hafði gert um hækkun bótanna skyldu konia til framkvæmda nokkr- um mánuðum fyrr, en ákveð- ið hafði verið. Þetta var að sjálfsögðu góð ráðstöfun svo langt sem hún náði, en bóta- fjárhæðin hækkaði ekki frá því sem ákveðið var í lögum- um frá 6. apríl 1971. Hún var eftir sem áður kr. 70.560.00 á ári í grunn og er það enn, eða sem svarar hálfsmánaðar laiinum ráðherra í núverandi ríkisstjórn.“ Þetta er bara verra en að lesa Moggann!!! Sr. Bragi Benediktsson skrifar frá Bandaríkjunum: Eftirminnileg heim- sókn i Karamu House Karamu House, sem er sér- stök tegund af Leiklistarsikóla var stofnað árið 1915 í Cleve land j Ohio. Það hóf starf- semi sí'na með því að stjórna leikjum bama, en laust eftir fyrri heimsstyrjöfdma byrj- aði það einnig að stjóma leikjum fyrir unglinga á tán- ingaaldri. Þessi stofnun er í senn skóli og leikhús, sem hef ur mjög þjálfað starfs'lið í þjónustu siínmi. Að morgni þriðjudagsins 23. maí var þessi stofniun heimsótt af þátt takendum í „The council of intemational programs for youth leaders and social wortoers", sem eru við nám við ýmsa hásiköLa í Amer- íku, eins og fyrr hefur verið frá sagt. Verður þetta mér og sjáif sagt öHum þeirn, er þarna voru, mjög eftirminnilegur dagur. Hann hófst með því, að skólastjórinn, herra Kenn eth Snipes, ávarpaði hóptrwi utan skólans á skólalóðinni sólríkan og fagran dag og kvaðst telja lBdegt, að menn vildu dveljast sem lengst utan dyra í þessu yndislega veðri, sem fékk góðar undirtektir. Bauð hann síðan þátttakend- ur hjartanlega vetkomna í Karamu House og bar fram óskir um, að þeir mættu njóta þessa dags sem bezt á allan hátt. Eftir að skólastjórinn, sem i alla staði er hinn yndis legasti maður, hafði flutt niokkur orð um stofnunina og tilgang henmar, var haldið inn í húsið og það skoðað undir leiðsögm þriggja leið- sögumanna, sem sikipfcu okkur niður í þrjá svipaða hópa. Var farið úr einni deildinni í aðra og þeim lýst vandlega fyrir okkur. Vakti þessi stafmun mikla hrifningu og ekki siður þeir úr starfsliði hennar, sem síðar komu fram, sem nánar verður frá sagt hér á eftir. Starfslið við Karamu House er um 90 marms, þar af helmingurinn opinberir listamenn. 1 Karamu House er samfélag margra kyn- fk>kka i blökkiimannahverfi, sem leitast við að rná til allra manna i túlkun sinni. Það á fyigi og aðdáendum að fagna um allt Cleveland í Ohio, sem einkum er svæði í stórborgar umhverfi. 1 húsinu eru salir, þar sem leikrit eru æfð og sviðsett áisamt sérstökum sýn- ingarsal, auk fjölda annarra salarkynna. Karamu leikhúsið er þekkt I Cleveland fyrir töfrandi leiksýningar, dansa, hljómlist og dags'krárþætti ungs fólks. Starfsfólk og aðrir þeir, sem halda tryggð við stofn- unina frá fyrstu dögum hennar og námsárum sínum þar, eru allt til gamals aldurs tengdir hemni og styðja hana á ýmsan hátt. Margir merkir listamenn hafa léð henni lið og stuðlað að framgamgi hennar. Stundum eru þama samsettir dagskrárþættir sam einaðra afla í menningarlegri list, þættir skólamemenda og margt fleira. Þannig er þessi stofnun í senn skóli og leik- hús. Eftir að leikhúsið hafði ver ið skoðað, hófst skemmtiieg og fræðandi dagskrá. Fluttt skólastjórinn, sem ég kalla svo hér, nokkur immgamgsorð, en gaf síðan ræöumönnum orðið einum af öðrum. Ungur blökkumaður las upp ljóð, sem hann flutti á mjög hrif- andi hátt, leikhússtjórimn, dr. Ruben Silver, sagði í stuttu máli sögu hússins, frá fyrstu tið þess og dansmæriin, Joan Hartshome sýmdi listrænan dans, sem túlkaði ferðalag ungrar stúlku í New Yorfk, i leit að húsi vinkonu sinnar, sem erfitt var að finna. Voru . tvær stúikur henni til aðstoð- ar við dansinn. Komu þær öðru hvoru dansaindi inn á sviðið með ýmis vegmerki, sem bönnuðu flestar leiðir. Ljóðskáldið og rithöfund'ur inm, Norman Jordan, las upp nokkur ljóð úr verkum siin- um og færði síðan öllum þátt takendum í námskeiðinu að gjöf ljóðabókina, „Above Maya“. Ritaði hamn með eig- inhandar áletrun á bækur þeirra, er náðu ttl hans. Á uradan nafnirau sinu ritaði hann orðið „Peace“ sem merkir „friðuri*. Norman Jordan hefur vak- ið þjóðarathyg'li bæði með Ijóðum síinium og leikritum. Af öðrum ljóðabókum hans má nefina „Black Fire“, og „The Black Poetry“ auk fjölda annarra. Leikrit hans hafa verið sýnd á leiksviði í San Framhald á bls. 11 ísíma 251001

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.