Morgunblaðið - 06.07.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.07.1972, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1972 Eftirmaður Satos: 55 Japanska jarðýtan u KAKUEI TANAKA, hinn nýi forsætisráðherra Japans, er yngsti maðurinn sem hefur geg-nt því embætti síðan síð- ari heimsstyrjöldinni lauk þótt hann sé 54 ára að aldri. Hann hefur ekki notið neinna þeirra forréttinda sem tryggðu fyrirrennurum hans auðveldlega frama í japönsk- um stjórnmálum. Hann er ai- ger andstæða helzta keppi- nautar síns, Takoo Fukuda, sem hefur lengi starfað í skrifstofukerfinu, átti auðuga foreldra, stundaði nám í góð- um skólum og hlaut auðveid- an frama. Tanaka hefur brotizt áfram af eigin rammieik. Hann er fátækur bóndasonur frá Niigata í miðhluta Japans og hefur aðeins gagnfræðaskóla- menntun. Hæfileikar hans og ákveðni tryggðu honuim þó skjótan frama i bygginga- iðnaðinum og 39 ára gamall varð hann póstmálaráðherra, þá yngsti maðurinn sem gegnt hafði ráðherraembætti í sögu Japana á síðari tímum. Hann hefur einnig verið fjármála- ráðherra, aðalritari Frjáls- lynda demókrataflokksins og áður en hann var valinn for- sætisráðherra gogndi hann starfi ráðherra utanríkisvið- skipta og iðnaðar. Val Tanaka markar þannig á ýmsan hátt þáttaskil í jap- önskum stjómmálum, þar sem hann er tiltölulega ung- ur ef tillit er tekið til þess að aidur og virðuleiki skipta miklu máli í japanskri menn- ingu og þar sem hann getur þakkað pólitískan frama sinn áhrifum á þingi en ekki embættiskerfinu. Hinn nýi Tanaka forsætisráðherra er fylgjandi örum hagvexti og alþjóðlegri samvinnu. 1 innanrikismálum hefur hann heitið landsmönn- um bættum lifskjörum og auknium ráðstöfunum til að berjast gegn of mikilli fólks- fjölgun, mengun og umferðar- öngþveiti. Tanaka hefur gert grein fyrir skoðunum sínum og hugmyndum um framtíð Japans í efnahagsmálum i bók sem hann sendi frá sér í síð- asta mánuði. Þar hvetur hann til víðtækrar baráttu gegn mengun og bættrar skipulagn- ingar til þess að umhverfi í borgum verði heilbrigðara. Hann telur að leggja verði mikla áherzlu á að auka lagn- ingu vega og tryggja á annan hátt bættar samgöngur og segir að Japanir ættu að geta náð 10% hagvexti á ári. Hins vegar bendir hann á að Jap- anir geti ekki vænzt þess að þeir geti au'kið útflutning sinn í eins miklum mæli og hingað til þar sem margt bendi til þess að önnur ríki muni setja hömlur á innflutning frá Japan. Tanaka telur þó að leysa megi hagsmunaárekstra Japana og annarra þjóða í efnahagsmálum með samn- ingaviðræðum. Viðumefnið „jarðýtan" hef- ur hann ekki fengið að ástæðulausu því hann er skjótur að taka ákvarðanir og gengur beint til verks. Hann er vellauðugur en berst ekki mikið á þótt orð sé á því haft að hann búi í glæsi'legri villu. Það er engin tilviljun að hann er valinn forsætisráðherra einmitt þegar Japanir hafa gerzt eirðarlausir og vilja láta meira til sín taka í utanrikis- málum. Sambúðin við Banda- rikin hefur verið stirð að und- anförnu, ekki sízt síðan Nixon fór til Moskvu og Peking, og heima fyrir eiga Japanir við að stríða öll þau vandamál sem hrjá nútímaiðnaðarþjóð- félög. Almenningsálitið réð ekki vali Tanaka, en vist er að hann er talinn manna Mk- legastur til þess að geta fram- fylgt sjálfstæðri utanríkis- stefnu, bætt sambúðina við Bandaríkin og Kínverja og ráðið fram úr vandamálunum heima fyrir. Skyndileg afsögn Chaban-Delmas — Pierre Messmer á að mynda nýja stjórn París, 5. júlí — AP-NTB GEORGES Pompidou, forseti Frakklands, fól í dag Gaull- istanum Pierre Messmer, nýlendumálaráðherra, að mynda nýja ríkisstjórn, eftir að hafa tekið til greina lausnarbeiðni Jacques Chab- an-Delmas. Kom afsögn Chaban-Delmas mjög á óvart og þykir fréttaskýr- endum einsýnt, að Pompidou hafi krafizt þess, að hann segði af sér. Chaban Delmas sætti mi'killi gagnrýni fyrr í vetur, er líkur bemtu til að hann heifði gerzt sekur um skattsvik, en það var ekki sannað. Hin.s vegar höfðu raddir um að hann myndi hætta hljóðnað upp á síðkastið. Fæstir bjuggust þó við, að hann gæfi kost á sér við næstu kosningar í Frakklandi að ári. Hann hefur verið forsætisráðherra í 3 ár. Messmer, hinn nýi forsætisráð- herra, er 56 ára garnall. Hann var varnarmálaráðherra í níu ár i stjórn de Gaulle, en dró sig Chaban-Delmas, fráfarandi forsætisráðherra. í hlé, þegar Pompidou var kjör- inn forseti. í febrúar sl. var hann skipaður nýlendumálaráðtherra. Ekki er búizt við að umtals- verðar breytingar verði gerðar á rí'kissitjórninni, en Messmier mun Framhald á bls. 21 Lithái brenndi sig til bana Moskvu, 5. júlí — AP ROSKINN litháískur verkamað- ur hrenndi sig til bana til að mótmæla sovézkum yfirráðum í Litháen fyrir stuttu. Bárust þess- ar fréttir til Moskvn í dag. Er þetta þriðja slíka sjálfsmorðið í Lit.háen. sem vitað er um, nú á nokkrum sl. vikum. Óstaðfestar ERLENT Tanaka sigradi: írland: Bræður myrtir Belfast, 5. júli — NTB AP TVEIR nngir menn, mótniæl- endatrúar, fundust í morgun myrtir í úthverfi Belfast og hafa þá tíu manns verið drepnir allra síðustu daga, eða siðan vopnahlé átti að ganga í gildi þar. Ungu mennimir, sem voru bræður, fóru að heiman frá sér í gærkvöldi og var ekkert vitað um ferðir þeirra fyrr en þeir fundust látnir í morgun. Talið er fullvist að kaþólikkar hafi drepið bræðurna. Ekki hefur fengizt staðfest hvört þeir voru virkir þátttakendur í samtökum mótmælenda, UDA, á Norður- Irlandi. Eftirmaður Satos boðar nýja utanríkisstefnu Vill bætta sambúð við Kínverja og Rússa Tokíó, 5. júlí. NTB, AP. KAKUEI Tanaka, sem Frjáls- lyndi demókrataflokkurinn valdi í dag forsætisráðherra Japans í stað Eisaku Satos, lýsti því yfir eftir að flokkurinn kaus hann i embættið, að hann mtindi færa sambúðina við Kina í eðlilegt horf og undirrita friðarsamning við Sovétrikin. Hann liét því einn ig að bæta sambúðina við Banda- ríkin sem hefur verið stirð und- anfarin tvö til þrjú ár vegna ágreinings í efnahagsmáliim. Stjórnmálafréttaritarar í Tokió telja val Tanaka ósiigur fyvrir Sato sem hafði lýst sdg fylgjandi því að eftirmaður hans yrði Tak- Schumann til Peking París 5. júlí NTB. MAURICE Schumann, utanríkis- ráðherra Frakklands, hélt í dag áleiðis til Pcking í opinbera heimsókn og mun hann dvelja þar í fimm daga. Hann mun vita- skuld hitta að máli alla helztu forystumenn Kínverska alþýðu- lýðveldisins og stjórnmálasér- fræðingar í París eru þeirrar skoðunar, að aukin verði efna- hagsleg og stjórnmálaleg sam- skipt.i landanna, að heimsókn Schumanns lokinni. Sambúð Frakklainds og Kína hefur verið með ágætum síðan de Gaulle viðurkenindi það fyrir u.þ.b. átta árum. Geirt er ráð fyrir, að Schumann eigi einnig að undirbúa heinnsókn Pompi- dous forseta til Kína á næsta ári. eo Fukuda, aðalkeppinautur Tan aka í kosningunni um eftirmann- inn. Sagt er að Sato hafi hugsað sér að hann gæti áfram haft tals verð áhrif á bak við tjöldin ef Fukuda yrði valinn, en óliklegt er talið að Tanaka vilji hafa nokkurn slíkan ráðunaut sér við hlið. Tanaka ságraði Fukuda í ann- arri atkvæðagreiðsliu með 282 at- kvæðum gegn 190 á þingi ftokks ins en þurfti atkvæði 239 fulitrúa af 476 á flokksþinginu til þess að ná kosningu. í fyrstu atkvæða- Framhald á bls. 21 fregnir herma og að einn mað- nr til viðbótar hafi hellt yfir sig bensíni á götu úti í Kaunas S Litháen og kveikt í fötum sín- um, en lögrogla hafi slökkt í snarlega og maðurinn liggi i s.júkrahúsi. Maðurinn, sem lézt, hét Andru- shukavichus og var sextugur að aldri. Hann er sagður hafa brennt sig til bana þann 3. júní. Það gerðist einndg í Kaunas. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum hefur verið mjög mikil ólga í borginnd síðustu sjö vik- ur, eða síðan tvttugur stúdent, Kalanta að nafni, brenndi sig til bana af stjómmálaástæðum á þeim stað, þar sem Sovétmenn lýstu yfir innlimun Litháen í Sovétríkin í júni 1940. Gromyko í Hollandi Haag 5. júlí NTB. UTANRÍKISRÁÐHERRA Sovét- ríkjanna Andrei Gromyko kom í dag til Hollands í þriggja daga opinbera heimsókn. Er þctta í fyrsta skipti að sovézknr utan- ríkisráðherra kemur þangað, síðan Holland viðurkenndi Sovét- ríkin fyrir 30 ámm. Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar á flugvellinum, þegar Gromyko kom og þyrlur flugu yfir bílalestina, sem flutti Gromyko og gestgjafa hans inn í Haag. Suður-Víetnamar hafa undir- tökin í Quang Tri Saigon 5. júií NTB. AP. SUÐUR-víetnamskar hersveitir eru komnar inn í miðborg Quang Tri og virðast hafa undirtökin í baráttu við N-Víetnama og skæruliða þar. Aðeins fáeinir herflokkar N-Víetnama em enn í borglnni, sem er að mestum hlnta í rústum, eftir hina gífur- legu bardaga, sem um hana hafa staðið í tvo mánuði. Bandarísíkar sprengjuvélar fóru í allmargar árásarferðir á Norður Víetnam í dag og vörp- uðu sprengjum á útjaðar Hanoi. Talsmenn Bandaríkjahers hafa hins vegar neitað þeim áburðí N-Víetnama að þeir hafi kastað sprengjum á íbúðahverfi. Norður Víetnamar halda því fram að þeir hafi skotið niður fjórar bandarískar flugvélar, en því neitar talsmaður hers.tjómar- innar í Saigon AUharðir bardagar hafa verið í dag í grennd við gömilu keis- araborgina Hue og hafa Norður- Víetnamar skotið eldflaugum á borgina vestanverða. Medvedev rekinn frá — fékk ekki ad sitja ráðstefnu erfðafræðinga Kænugarði, 5. júlí —- AP ZHORES Medvedev, hinn þekkti sovézki erfðafræðing- ur, sem hvarf á sunnudaginn var, eftir að honum hafði ver- ið meinaður aðgangur að al- þjóðlegri ráðstefnu, sem stendur yfir i Kænugarði, sagði bandarískum visinda- manni frá þvi í dag, að yfir- völd hefðu neyfct hann til að halda heim á leið. Medvedev ræddi við Banda- ríkjamanninn í síma og sagði, að lögreglan hefði sett hann í varðhald eftir að honum hafði verið efcið á brott frá byggingunni, þar sem erfða- fræðiragar irá mörgum lönd- um þinga. Var honum sagt, að hann hefði truflað ráð- stefnuna og síðar um kvöldið var hann sendur með lest til Moskvu. Medvedev er í hópi kunn- ustu baráttumanna í Sovét- ríkjunum fyrir auknu and legu frelsL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.