Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 4
%■
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLl 1972
■eSMKKIKiltíCTfr
Auðmýkja
utanríkis-
ráðherra
Andstæðingrar aðildar Is-
lands að varnarsamstarfi
þjóða Vestnr-Evrópu hafa
enn á ný stofnað tii samtaka
í þeim tilgangri að knýja á
um breytta stefnn gagrnvart
bandalagsþjóðnm okkar. Sam
tök af þessu tagi hafa áður
verið mynduð, en jafnan fjar
að út og orðið að engru, enda
hefur málstaðurinn ekki byr
meðal fólksins í landinu.
Svonefnd miðnefnd her-
stöðvaandstæðinga stýrir nti
aðgrerðum þessa lióps. Eitt
fyrsta verkið var að koma
starfseminni fyrir i húsnæði
ríkisins, sem leigt hefur verið
stúdentum og námsmönnum,
er stundað hafa nám erlendis.
I þessu húsnæði var opnuð
skrifstofa, án þess að sam-
band væri haft við umsjón-
arniann hússins fyrir hönd
ríktssjóðs.
I síðustu viku gerðist svo
sá einstæði atburður, að sam-
tök lierstöðvaandstæðinga
freistuðu þess að leggja und-
ir sig embættisskrifstofu utan
rikisráðlierra í stjórnarráðs-
liúsinu til þess að lialda opin-
beran fund með fréttamönn-
um.
Á föstudagsmorgun í s.l.
viku boðuðu talsmenn samtak
anna fréttamenn á sinn fund
kl. tvö eftir hádegi í embætt-
isskrifstofu utanríkisráð-
herra. I fitndarboðinu sagði,
að Einar Ágústsson, utanrík-
isráðherra, yrði á fundinum
og auk þess tveir aðrir ráð-
herrar. Sennilega hefur þar
verið átt við þá tvo ráðherra,
sem settir voru til höfuðs
Einari Ágústssyni í vamar-
máhinum á sl. vetri. Þeir
voru þó ekki nafngreindir í
fundarboðinu.
Sennilega hefur aldrei ver-
ið gerð jafn ósvifinn tilraun
til þess að auðmýkja og lítil-
lækka islenzkan ráðherra
eins og i þetta sinn. Og at-
hyglisvert er, að tveir ráð-
herrar virðast hafa verið
reiðubúnir til þess að taka
þátt í þessari aðför herstöðva-
andstæðinga að utanríkisráð-
herranum.
Einar Ágústsson gat á síð-
ustu stundu komið í veg fyrir
áform herstiiðvaandstæðing-
anna með þvi að meina þeim
að halda blaðamannafundinn
i skrifstofu sinni. Blaðamenn
voru þá mættir í stjórnarráðs
húsinu og miðnefndin hafði
þegar byrjað að dreifa fjöl-
rituðu ávarpi sinu.
Þótt herstöðvaandstæðing-
um hafi ekki tekizt að niður-
lægja utanríkisráðlierrann
eins og tiiraun var gerð til,
sýna þessi vinnubrögð þó
einkar vel innræti hópsins og
gefa vísbendingu um, hvern-
ig vænta má að staðið verði
að málum.
Á hinn bóginn væri fróð-
legt að fá upplýst, hvaða
tveir ráðlierrar það voru, sem
samtökin höfðu fengið sér til
liðsinnis við aðförina að ut-
anrikisráðherranum. Þessi at-
burður bendir til þess, að ein
staka ráðherrar a.m.k. noti
hvert tækifæri, sem gefst, til
þess að auðmýkja meðráð-
herra sína. Þeir virðast jafn-
vel leggjast svo lágt að ganga
í lið með hóp eins og sam-
tökum herstöðvaandstæðinga.
Léleg
blaðamennska
í ritstjórnargrein dagblaðs
ins Tímans s.l. sunnudag er
því haldið fram, að Morgun-
blaðið og borgarstjórinn í
Reykjavík hafi lýst þeirri
skoðun, að ræða ætti um
störf borgarstjóra í einkasam
tölum, en ekki á fiindum borg
arstjórnar. Þessar vísvitandi
falsanir eru settar fram í sam
bandi við órökstuddar árásir
Kristjáns Benediktssonar á
störf borgarstjóra fyrir
skömmu og fólk brosir nú
góðlátlega að rétt eins og
þegar krummi krunkar í vél-
sinið j 11 por tin u.
Kristján Benediktsson hef-
ur ekki orðið við margítrek-
uðum áskorunum og nefnt
dæmi fullyrðingiim sínum til
stuðnings; getsakimar orna
honum og hans líkum. Tals-
menn Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn lýstu á sínum
tíma yfir þvi, að rétt værl
að ræða slík máiefni í borg-
arstjórn, og Morgunblaðið
hefur tekið undir þessa skoð-
xm. Á hitt var bent, að Krist-
ján Benediktsson hefði með
réttu átt að óska þess, að
málið yrði tekið á dagskrá
borgarstjórnarfundar með
venjulegum fyrirvara, ef
hugur hefði fylgt máli.
Þessar falsanir eru aðeins
eitt dæmi um lélega blaða-
mennsku Timans. Enn er
mönnxim í minni, þegar rit-
stjóri Tíinans hvarf út hlaða-
mannastúkunni í borgar-
stjórn, eftir árásir Kristjáns
Benediktssonar og kærði sig
kollóttan um reikninga
Reykjavikurborgar og umræð
ur um málefni borgarinnar.
Sinnuleysi dómsvalds
- máttlaust
almenningsálit
Áfengisneyzla unglinga
til umræðu í borgarstjórn
® 22-0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
____________-J
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
SKODA EYÐIR MINNA.
SHODH
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
FEHÐABlLAR HF.
Tveggja manna Citroen Mehary.
Bílaleiga — sími 81260.
Fimm manna Citroen G. S.
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (m. bilstjórum).
Hópíerðir
“'il lelgu í lengri og skemmri
ferðir 8—20 farþega bilar.
Kjartan ingimarsson
simi 32716.
Á BORGARSTJÓBNARFUNDI
sl. fimmtudag gerði Slgurlaug
Bjarnadóttir áfengisvandamálin
að umtalsefni vegna umræðna,
sem fram höfðu farið í borgar-
ráði um framkvæmd þjóðhátíð-
ar í Reykjavík. Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, upplýsti m.a.
í þessu tilefni, að borgin hefði
leitað eftir samstarfi við dóms-
málaráðuneytið, menntamáia-
ráðuneytið og heilbrigðismála-
ráðuneytið um könnun og aðgerð
ir í þessum efnum.
Sigurlaug Bjarnadóttir sagði,
að áfengisvandamálið hefði
sennilega aldrei verið jafn
hörroulegt eins og á 17. júní sl.
Sigurlaug minnti á, að hún hefði
fiutt tillögu í bongarstjóm á liðn
um vetri, sem miðað hefði að um
bótum á þessu sviði. Það væri
á hinn bóginn litil uppörvun fyr
ir borgarstjórn að horfa á þá
þróun, sem nú virtist eiga sér
stað. Þetta mái væri nú alls stað
ar á viðræðustigi.
Sigurlaug sagði, að veikasti
hlekkurinr, í þessum efnum væri
sú hlið, er sneri að dómsvald-
inu. Lögreglan yrði að aðhlát-
ursefni vegrra þess, að kærum
hennar væri ekki sinnt. Sigur-
laug sagðisit vilja vekja athygli
á, að um þessi mál væri huigsað
í borgarstjóm, og hún vænti
þess, að viðræður bongaryfir-
valda og ráðuneytanna myndu
leiða til framkvæmda á þessu
sviði. Sinnuleysi dómsvaldsins
væri óviðunandi; þvi yrði að
kippa í lag. Sigurlaug minnti
ennfremur á, að máttlaust al-
menningsálit væri þó ekki síður
þrándur í götu umbóta á þessu
sviði.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagðist
vera nákvæmlega jafn óánægð
með þróun mála eins og Sigur-
laug Bjarnadóttir. Þeim gengi
báðum jafn illa að grípa á þess-
um vanda. Kjarni vandamál.sins
væri sá, að allur almenningur
vildi ekki athafnir á þessu sviði;
fóikið vildi hafa vin um hönd.
Það væri í raun og veru þetta
almenningsálit, sem yrði að verj
ast. Koma yrði i veg fyrir vín-
sölu til barna og unglinga. Bong-
arfulltrúinn nefndi m.a. þá hug
mynd, að ekki mætti afgreiða
áfengi nema gegn framvísun sér
staks skilrikis.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, skýrði frá því, að hann
hefði eftir borgarráðsfund 20.
júní sl. skrifað dómsmálaráð-
herra og heilbrigðisráðherra
bréf i samræmi við þær umræð-
ur, sem fram hefðu farið á fund
inum. Hann sagðist hafa farið
þess á leit við þessa aðila, að
þeir áisamt borgaryfirvöldum
könnuðu þá atburði, er áttu sér
stað 17. júní sl. Borgarstjóri
sagði ennfremur, að hér væri á
ferðinni mjög djúpstætt vanda-
mál. Það væri til staðar allan
ársins hring, en hefði brotizt á-
berandi út á þjóðhátíðardaginn.
Þeim tiimælum hefði verið beint
til þjóðhátiðarnefndar oig æsku-
lýðsráðs, að þessir aðilar gerðu
sér grein fyrir með hvaða hætti
koma mætti í veg fyrir, að sag-
an endurtæki sig.
Árni Gxinnarsson sagði, að
ekki yrði hoggið að rótum meins
ins, nema breyta tízkunni. Leyni
vínsalar ættu ekki alla sök á
drykkj uskapn u m 17. júní. Söku-
dölgurinn væri tízkan hverju
sinni og lausnin væri fólgin í
æskulýðsstarfiinu. Skapa yrði
nýja tízku.
Sigurlaug Bjarnadóttir tók umd
ir þau orð Áma, að stöðvum leyni
vínsölu væri alls ekki öll lausn-
in. Það væri þó atriði, sem unnt
væri að ráða bót á. Enda væri
það stór þáttur vandamálsins,
þvi að börn og unglingar ættu
greiðan aðgang að leynivínsölun
um. Hitt væri rétt, að ekki væri
unnt að komast fyrir rætur meins
ins með þessu móti. Æsikulýðs-
starfið og uppeldið skipti þar
sköpum.
Ólafur Ragnarsson benti einn-
ig á, að áfengisvandamálið væri
til staðar hjá uppalendum, sem
sköpuðu fordæmin. Leynivínsal-
arnir hefðu ugglaust átt sinn
þátt i þessum Ijóta bletti á 17.
júní. Hann sagðist taka umdir
óskir Sigurlaugar um áminningu
eða beiðmi til dómsmálaráðu'neyt
isins vegna leynivínsalanna.
Markús Örn Antonsson greindi
frá því, að þjóðhátíðarnefnd
hefði rætt og yfirfarið þjóðhátíð-
Framhald á bls. 23