Morgunblaðið - 18.07.1972, Side 8
8
MQRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 19T2
2,6 milljónir kr. á ári
í styrk frá Bandaríkjunum
BANDARÍSKUR sjódur, er nefn
ist Independence Foundation,
tófe á síðasta ári þá ákvörðun
að veita 150 þúsund dollara, eða
jafnglldi rúmlega 13 millj. króna,
tií styrkja til íslendinga undir
nafininu Iceland/United States
Program. Styrkirnir skyldu veitt
ir á árunum 1971—1975, og
munu þvi nema 30 þús. dollur-
um, eða um 2,6 millj. kr., að
meðaltali á ári.
Independence Foundation er
sjálfseignarstofnun, er starfar í
Philadelphiu og hefur það meg-
inhlutverk að veita styrki til vís
inda og skólamála. Hefur fof-
stjóri hennar, mr. Robert A. Ma-
es, komið nokkrum sinnum til
Islands, eignazt hér vini og tek-
ið ástfóstri við land og þjóð.
Tilgangur þeirra styrkja, er
Independence Foundation veitir
samkvœmt þessari ákvörðun er
sá, að gefa íslendingum kost á
að kynnast því hvað Bandarík-
in hafa bezt að bjóða i ýmsum
greinum, svo sem stjómsýslu,
skólamálum, verkfræði, raunvís-
indum, hagfiræði, lögfiræði, Iækn-
isfræði, he il brigðismálum, Iand-
búnaði og síðast en ekki sízt
stjórnun og rekstri fyrirtækja.
Hér er ekki um venjulega náms-
styrki að ræða, heldur er ætiazt
til þess, að styrkþegar séu kornn-
ir til ábyrgðarstarfa í grein sinni
svo að tryggt sé, að kynnisför
og dvöl í Bandaríkjunum geti
orðið þeim þegar að gagni í
starfi. Styrktartimabil geta ver-
ið mjög mislöng, t.d. allt frá ein-
um upp í sex mánuði, og mun
dvöl hvers styrkþega sérstaklega
skipulögð með það fyrir augum,
að hann fái sem beztan aðgang
að helztu stofnunum og forvígis-
mönnum í grein sinni og geti
notað tíma sinn sem bezt. Eisen-
hower Exchange Fellowship
stofnunin hefiur tekið að sér að
sjá um að skipuleggja dvöl styrk
Öræfin:
Selveiðum
að ljúka
SELVEIDI fer nú senn að
ljúka hér í sveitinní, en hún
hefur nú verið með lakara
lagi hjá þeim bændum, sem
stunda hana mest, Skaftafells
bændunum. Þeir hafa nú veitt
um 150 kópa, en venjulega
hafa þeir verið um 200. Skaft-
fellingar hafa þó ekki gefið
upp alla von ennþá, og fóru
á fjöruna í morgun. Veiðivon
fer þó dvínandi með hverjum
deginum sem líður.
Svínfellingar hafa nú veitt
nær 80 kópa, sem þykir nokk
uð gott á Svínafellsfjöru. —
I>að er þó ekki að undra þar
sem Skeiðará rennur nú að
mestu leyti til sjávar á þeirra
fjöru, í stað Skaftafellsfjöru
eins og venja er til. Svínfell-
ingar bíða nú bara eftir sæmi-
legu veðri til að fara i siðustu
selveiðiferðina.
Kvískerjabændur hafa nú
veitt 108 kópa, sem er nokkuð
svipað því sem verið hefur
undanfarin ár. IVIér er þð ekki
kunnugt um það, hvort þeir
ætla aftiu- á f jöruna.
Annars bíðum við nú eftir
þurrki hér I sveitinni, því
okkur þykir mál til komið að
heyannir hefjist, enda víða
komið kafgras. Nóg er þó að
starfa hér við vegagerð, bæði
á Breiðamerkursandi og á
þjóðveginum framan við
Svínafell. Brátt verður svo
farið að vinna einhverja und
irbúningsvinnu fyrir fram-
kvæmdimar á Skeiðarársandi.
— Sigurgeir.
Til sölu glussagrafa
á beltum
Vélin er í góðu lagi.
Upplýsingar í síma 51732.
Sumarbúðum
þjóðkirkjunnar
Vegna forfalla býðst nokkrum stúlkum 9—12
ára tækifæri á að dvelja í sumarbúðunum að
Staðarfelli í Dölum. 21. júlí — 28. júlí.
Athugið, að sumarbúðirnar að Staðarfelli
eru einhverjar hinar skemmtilegustu að
öllum aðstæðum, sem við höfum upp á að
bjóða.
Allar nánari upplýsingar í síma 12236.
þega í Bandarikjumum.
Tilnefnd hefur verið sérstöik
nefnd til að gera tillögur til Inde
pendence Foundation um styrk-
þega, en í henni sitja fimim
menn, þeir prófessoraimir Ár-
mann Snævarr, Ólafur Bjarnason
ög Sigurður Þórarinsson, Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri og
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, sem er formaður nefnd-
arinnar. Ritari nefndarinnar er
Ágústa Johnson.
Veittir hafa verið til þessa
styrkir til tveggja kynnisferða í
Bandarikjiunum, og töku þrír
menn þátt í hvorri ferð. Fyrri
ferðin var farim í október og
nóvember sl., en þátt í henni
tóku Snæbjörn Jónasson, yfir-
verkfræðingur Vegagerðar rík-
isins, Sveinn Jakobsson, forstöðu
maður jarðfræðideildar Náttúru-
gripasafnsins og Hjörleifur Gutt
ormsson, líffræðingur. Var verk-
efni þeirra að kynnast þjóðigörð
um í Bandaríkjunum og starf-
semi þeirra. Skiluðu þrímenming-
arnir rækilegri skýrslu um ferð
sína og skipulag þjóðgarða í
Bandarikjunum, og var skýrsla
þessi lögð fram á Náttúruvernd-
arþingi, sem haldið var í vor.
Síðari kynnisferðin var farin
nú i maí og júní sl. og voru þátt-
takendur arkitektarnir Gestur
Ólafsson og Hilmar Ól'afsson og
Sigfinnur Sigurðsson, hagfræð-
ingur. Verkefni þeirra var að
kynnast borga- og svæðaskipu-
lagi í Bandaríkjunum, og ferð-
HLUSTAVERND
- HEYRNASKJÓL
uðust þeir víða um landið í þvl
Skyni. Mumu þeiir ganga frá
skýrslu um för sína, sem dreift
miun verða til þeirra, sem áhuga
hafá á skipuiagsnxáiu m.
Ráðgerðar eru ýmsar fieiri
kyinnisferðir á vegurn Indiepsnd-
ence Foundation á næstu mán-
uðurn, og m/unu bæði einstaiki-
ingar og hópar taka þátt í þeim.
N orðurlandaskákmót
í Reykjavík
Mánudaginn 17. júlí hefst í
Norræna húsimu í Reykjavík
Norðurlandaskákimót, er það 12.
einmenningskeppnl Nordisk
sporveis sjakk Union (N.S.U.)
sem Tóiflfélag Hreyfils er aðili
að.
Mót þessi eru haldin á hverju
ári í einhverri af þeim borgum
er á aðila að sambandinu. Fyrir-
komulag skákmótainna er þann-
iig að annað árið er sveitakeppni,
en hitt árið einmennimgs. Þau
ár sem sveitakeppni fer fram
er keppt í nafni þeirrar þorgar
sem sveitin er frá.
Það var árið 1957 sem Taflfé-
lag Hreyfils gerðist meðiimur
N.S.U. og hefur félagið tekið
þátt í flestum mótuim síðan. Á
STURLAUGUR JON6SON & CO.
Vesturgö'u 16, Reykjavík.
Símar 13280 og 1468U
1 62 60
TIL SÖLU
Húseign
við eina fallegustu götu í
Austurborgínni, er alls 6 her.b.
Raðhús í Fossvogi
á 2 hæðum, er að mestu full-
búið, selst í því ástandi, sem
það er í.
Einbýlishús í Kópavogi
með stóru vinnuplássi, sér-
lega hentugt fyrir mann, sem
vill skapa sér aðstöðu við
einkarekstur.
3ja herbergja íbúðir
í Austurbænum. Útborganir
frá 700 þús.
Höfum kaupendur
að öllum stærðum og gerðum
íbúða og húsa.
Fosleignasalnn
Eiríksgötu 19
Simi 16260.
Jón Þórhallsson sölustjóri.
heimasimi 25847.
Hörður Einarsson hdl.
óttar Yngvason hdl.
Hórgreiðslusloia Veslurbæjar
GRENiMEL 9 — SÍNSI 19218.
Eigandaskipti hafa orðið. Núverandi eigandi er
LÁRA DAVÍÐSDÓTTIR,
Reynið viðskiptin.
Verksmiðjusalo
Nýlendugðlu 10
Selduir verður næstu daga margs konar
prjónafatnaður á börn og unglinga. Buxna-
sett, peysur, vesti, buxur stuttar og síðar og
margt fleiri. Lágt verð.
Opið kl. 9—6.
2ja herb. ný lbúð 1 Fossvogi. Ibúðin
er tullfrágengin meO fullfrágeng-
Inni lóð. MalbikuO gata,
3ja herb. ibúO viO Hraunbæ. IbúOin
er 1 stofa, 2 svefnherb., eldhús og
baO, auk herbergis I kjallara.
3ja herb. IbúO viO RauOalæk. fbúOin
er 2 stofur, 1 svefnherb., eldhús og
nýtt bað. Sérhiti, sérinngangur.
Vélar 1 þvottahúsi.
ÍBÚÐA-
SALAN
GfSLl ÓLAFSS.
ARNAR SIGURBSS.
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BÍÓl
SÍMI 12180.
HEIMASfMAR
20178.
36319.
4ra herfo. ibúö viö Ljósheima. 3 svefn
herb., 1 stofa, eldhús og baO. IbúO
í sérflokki.
4ra herfo. íbúO i Vesturbergi I Breiö-
holti. Ein stofa, 3 svefnherb., eld-
hús og baö. Ný IbúO.
Sérhæð viö Álfhólsveg. Ibúðin er
2 stofur, 3 svefnherb., eldhús og
baö. Sérþvottahús. Giæsilegt út-
sýni.
Kaðhús I smíðum 1 GarOahreppi,
BreiOholti og Kópavogi.
síðasta ári fór fram sveitakepptni
í Bergen og varð Reykjavlk þá
Norðurlandameistari N.S.U. i 3ja
sinn í röð og vann til eiignar
vandaðan farandigrip, gefinn af
Loftleiðum. Alls hefur Reykja-
vík orðið Norðurlandameistari 6
siinnum.
Einmenningskeppni sú er nú
fer fram stendur yfir frá 17.-23.
júlí, teflt verður í tveim flokk-
um og eru þátttakendur 41, frá
eftirtöldum borgum: Reykjavík,
Kaupmannahöfn, Osló, Bergen,
Stokkhólmi, Gautaborg og
Malmö.
Núverandi Norðurlandameist-
ari N.S.U. er Georg Kildetofft frá
Kaupmannahöfn.
SÍMAR 21150 21370
TIL SOLU
Glæsilegt einbýlishús í smíðum
í Norðurbænum í Hafnarfirði.
Húsið er 150 fm, á einni hæð,
með 7 herb. glæsilegri íbúð.
Ennfremur 30 fm bilskúr. Frá-
gengið þak og fullfrágengin mið-
stöð. VerS aðeins 2,3 milijónir.
3ja herbergja
íbúðir við
við Bergstaðastræti, Grettisgötu,
Hraunbæ, Hverfisgötu, Lauga-
veg, Skúlagötu.
í Vogunum
5 herb. hæð um 130 fm. Nýleg
eldhúsinnrétting, trjágarður, bíl-
skúr 45 fm (verkstæði). Verð
aðeins 2,8 milljónir kr., útb.
1700 þús. kr. Skipti á 4ra herb.
íbúð í nágrenninu æskileg.
Úrvals sérhœð
5 herb. neðrí hæð, 130 fm, í þrí-
býlishúsi við Miðbraut. 5 ára,
mjög glæsileg. Bílsk. um 30 fm.
Raðhus
á tveimur hœðum
á Teigunum, 70x2 fm, með 6
herb. glæsilegri íbúð (Kjallara-
íbuð fylgir ekki.) Bílskúr.
Urvals einbýlishús
á einum bezta stað á Flötunum
í Garðahreppi. Húsið er í smíð-
um, múrhúðað að utan, með
miðstöð — ofnar fylgja. Stærð
íbúðar um 260 fm. Kjallari um
150 fm og bílskúr um 50 fm.
Lóð 1160 fm. Verð aðeins 3,5
milljónir króna.
4ra herbergja
góð íbúð
á 1. hæð víð Ásbraut. VerS að-
eins 2,1 milljón. Mikið úfsýni,
vélaþvottahús.
3 ja herbergja
íbúð með bilskúr
3ja herb. glæsileg íbúð í smíð-
um á fegursta stað í Breiðholts-
hverfi. Sérþvottahús á hæðinni.
Bíiskúr, frábært útsýni.
Höfum kaupendur
að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúð-
um, hæðum og einbýlishúsum.
Komið og skoðið
35sm :væ
ÍBHH.F.ÍDI.i:
LINDAB6ATA > SlMAt