Morgunblaðið - 18.07.1972, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLl 1972
Valdadeilan leyst:
Gaddafi er
áfram forseti
Beirút, 17. júlí — AP
YALDADEILAN í byltingarráð-
mn, sem farið hefur með völdin
í Líbýu, hefur verið leyst þann-
ig, að forseti þess, Moammai
Gaddafi, býður sig: fram til for-
seta í þjóðaratkvæðagreiðslu,
Bem haldin verður fyrir þriggja
ára afmæli byltingarinnar 1. sept
ember. Gaddafi tók í gær emb-
ættiseiða af ráðherrum hinnar
nýju stjórnar næstráðanda síns,
Abdul Salam JaUoud majórs, og
þar með var kveðinn niður sá
orðrómur, að Gaddafi hefði sagt
af sér eða verið sviptur völdum
eftir skipun Jallouds í embætti
forsætisráðherra í síðustu viku.
Þegar Gaddafi hefur verið
formlega gerður forseti kemst á
í Líbýu svipað stjórnkerfi og í
, Egyptalandi, en þau eru í rikja-
sambandi ásamt Sýrlandi. Talið
er, að stjórn Jallouds muni flýta
fyrirætlunum um að sameina
eina stjórnmálaflokk landsins,
Arabíska sósíalistasambandið,
samnefndum stjómmálaflokki
Egypta.
Aðeins einn hermaður á sæti
I nýju stjórninni auk Jallouds,
Abdul Monim Huni majór, sem
er innanríkisráðherra, en sér-
fræðingar gegna öðrum embætt-
um. Þar með hefur verið geng-
ið til móts við kröfur Gaddafis
um að fækka liðsforingjum í
stjórninni. Landvarnaráðherra
hefur ekki verið skipaður, en því
embætti hefur Gaddafi gegnt síð-
an 1970 og talið er að hann gegni
því áfram.
Egypzka fréttastofan hermdi
í gær að herréttur í Líbýu hefði
dæmt fjóra menn til dauða, þar
af þrjá fjarverandi, og 40 í eins
árs til ævilangs fangelsis, en
sýknað 102. Sakborningarnir
voru ákærðir fyrir að koma á
fót vopnuðum samtökum til þess
að kollvarpa stjórninni.
í Washington sögðu talsmenn
Framhald á bls. 23.
Þeir verða í framboði fyrir demókrata í forsetakosningunum í
McGovern og Thomas Eagleton gefa sigurmerkið á iokafundi
Barizt um hvern þunilung;
Flokkar fallhlífaliða
einangrast í Quang Tri
Þegnskylduvinna í N-Vietnam
Saigon, 17. júlí. AP.
SUÐUR VÍETNAMSKT heriið
reyndi í dag að bjarga leifum
tveggja herflokka fallhlífaiiða,
sem hafa fengið ilia útreið og
einangrazt í suðurjaðri borginn-
ar Quang Tri. Herflokkarnir, alls
80 menn, voru umkringdir af
Norðiir-Víetnömum í gær, og síð
an hefur ekkert til þeirra spurzt.
Aðrir suður-víetnamskir her-
flokkar hafa sótt til staðar í tæp-
lega 200 metra fjarlægð frá vest-
urmúrum virkisbæjarins í Quang
Tri að sögn herstjórnarinnar í
Saigon. Enn aðrar sveitir sækja
að virkisbænum úr suðri og norð-
austri að sögn herstjórnarinnar.
Suður-vietnömsku hermennirn-
ir hafa orðið að berjast um hvern
þumlung lands, en þeir hafa not-
ið öflu,gs stuðnings bandarískra
flugvéla sem hafa gert harða
hríð að stöðvum Norður-Víet-
nama beggja vegna vopnalausa
beltisins. Farnar voru 240 árásar-
ferðir í gær, en árásir á Hanoi
hafa legið niðri í fimm daga,
hvort sem það er af þvi að París-
arviðræðurnar eru hafnar eða
ekki. Rúmlega 100 flugvélar frá
rúmlega tíu flugvélaskipum hafa
stutt gagnsóknina í Quang Tri.
ÞEGNSKYLIHJVINNA
í Hanoi var skýrt frá því í dag
að fyrirskipað hefði verið alls-
Framhald á bls. 23.
Enn einn mafíu
maður skotinn
Siindurskotið lík enn eins mafíii-
foringja fannst á götu i
Brooklyn á sunnudagsmorgiin.
Skammsýni og óver j-
andi ákvörðun
segja brezk blöð
BKEZKIR fjölmiólar hafa að
vonum töluvert fjallað um
landhelgismálið eftir að slitn-
aði upp úr samningaviðræð-
unum i siðustu viku.
Blaðið Glasgow Herald seg- ,
ir í forystugrein i dag:
— Kannski hafa kenjar
Bobby Fischers orðið þeim of-
viða, kannski er skapið verra
hinar stuttu ísienzku nætur.
Hvernig sem það er hefur
skap Islendinga ekki verið
gott undanfama daga og nýtt
þorskastríð á að hefjast 1.
september.
— Þetta leiðir ekki aðeins
til óheppilegra átaka milli
bandamanna, heldur stefnir
og brezkum fiskimönnum í
hættu heilsufarslega og fjár-
hagslega. Þar sem þeir eiga á
hættu að vera hrjáðir af Ls-
lenzkum eftirlitsskipum,
verða brezk skip og skip ann-
arra Evrópuþjóða annað
hvort að yfirgefa svæði, sem
er þeim mikilvægt forðabúr,
eða vera kyrr og taka áhætt-
una, sem er veruleg.
— Flotamir, sem veiða í
kringum ísland, treysta á
hafnir þar til að fá vistir, við-
gerðir og læknishjálp. Skip,
sem sézt hefði fyrir innan
50 mílurnar, ætti á hættu að
vera tekið i landhelgi, ef það
þyrfti að leita hafnar.
— Fiskveiðieftirlit ætti að
vera alþjóðlegt mál og það er
alveg rétt hjá brezku stjórn-
inni að vísa málinu til Al-
þjóðadómstólsins.
The Financial Times segir í
sínum leiðara:
— Einhliða ákvörðun is-
lenzku rikisstjómarinnar um
að lýsa yfir stækkun fisk-
veiðilögsögunnar úr 12 í 50
sjómílur án þess að bíða eftir
nokkru nýju samkomulagi
við Bretland og Þýzkaland,
Franihald á bls. 23.
Líkið var af Tbomas Elioli, seni
uni niargra ára skeið var luegri
hönd niafiuforingjans Vito Geno-
veses. Þegar Genoveses lézt í
fangelsi 1969, var talið að Eboli
væri sjáifskipaður eftirniaður
lians. Eboli þjáðist hins vegar af
hjartasjiíkdómi og hafði sig lítið
í franimi síðustu árin.
Eboli hefur komið mjög við
sögu undanfarin ár. Hann hefur
oft verið handtekinn eða kvadd-
ur til yfirheyrslu en aldrei hlotið
neinn teljandi fangelsisdóm.
Lögreglan leitar nú að ein-
hverju, sem gæti gefið til kynna,
að þetta morð sé tengt valda-
stríðinu, sem geisaði innan mafi-
unnar í vor, þegar sex mafíu-
leiðtogar voru skotnir til bana
á tólf dögum. Sjónarvottar segja
að flutningabifreið hafi ekið á
mikilli ferð framhjá Eboli, og
blossar úr vélbyssu staðið aftur
úr henni.
Lögreglan fann flutningabif-
reiðina skammt frá líkinu og
var hreyfill hennar í gangi.
í henni var ekkert vopn, en lög-
reglan fann einnig stolna bifreið
skammt frá og í aftursæti henn-
ar var vélbyssa. Ekki hafði þó
Bandaríkjunum í haust. George
flokksþingsins í Miami Beach.
Teknir
með 15
kíló af
heróíni
Marseilles, 17. júli, NTB.
FRANSKA lögreglan lagði á
laugardag hald á 15 kíló af
hreinu heróíni og handtók
fjóra menn sem voru að
flytja það. Þrir mannanna
voru bræður. I einbýlishúsi
skammt frá fann lögreglan
fullkomna efnaverksmiðju
þar sem morfíni var breytt
í heróin. Þetta er þriðja verk
smiðjan af þessu tagi sem
franska lögreglan hefur fund
ið í nágrenni Marseilles.
Samsæri
í Ghana
STJÖRNIN í Ghana tilkynnti í
gær að koniizt hefði upp um
samsæri um að steypa henni af
stóll og koma Kofi Busia fyrr-
verandi forsætisráðherra, aftur
til valda. Busia á sjálfur að hafa
stjórnað samsærinu og notið
stuðnings óánægðra kaupsýslu-
manna og starfsmanna Fram-
faraflokksins, sem hefur verið
hannaður.
Samkvæmt tilkynningunni átti
að gera byltinguna á föstudag,
og Busia átti að koma til Ghana
frá London, þar sem hann dvelst
nú, á laugardaginn. Stjórnin
segir, að Busia hafi haft í
hyggju að kalla á hjálp erlends
herliðs, ef Ghanaher veitti við-
nám. Stjórnin segir, að allir sam-
særismennimir i Ghana hafiverið
handteknir og verði leiddir fyrir
rétt.
Herinn í Ghana steypti Busia
af stóli i janúar, þegar hann var
í London að leita sér lækninga.
Hann hafði verið forsætisráð-
herra síðan í október í fyrra.
Nýtt lif
Spred Satin og Úti- Spred
í yfir 2800 tónum
Valin efni * Vandaóar vörur «Vel liirt eign er verómætari