Morgunblaðið - 26.07.1972, Page 4

Morgunblaðið - 26.07.1972, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1972 ® 22-0*22- RAUÐARÁRSTÍG 31 V______r„_______ 14444 S 25555 fflfliím B1LALE1GA - HVEFISGOTU 103 14444 ** 25555 BÍLALEIGA STAKSTEINAR Skattpíning ellilífeyrisþega Mesti smánarbletturinn á nýju skattalögunum er tvi- mælalaust sá, hvernig' ellilíf- eyrisþegar eru leiknir, — eins og sýnt hefur verið fram á í Morgunblaðinu. Ástæðurnar eru fyrst og fremst hin geig- vænlega hækkun tekjuskatts- ins, sem nú er allt upp í 45% á móti 27% áður. En eins og kunnugt er hafa flest sveitar- félögin undanþegið ellilífeyri við álagningu útsvars, þar á meðal Reykjavík, svo að um- mæli Þjóðviljans í gær um hið gagnstæða eru fleipur eitt af ókunnugleika eða af ráðnum hug. Við skattalagauinræðurnar bentu sjálfstæðismenn á þess- ar staðreyndir og fhittu um það sérstakar breytingartil- lögur, að ekki yrði nær ellilíf- eyrisþegum gengið en þágild- andi skattalög gerðu ráð fyr- ir. Allar slíkar tillögur voru felldar. Um það var stjórnar- meirihlutinn sammála, að fyrrverandi ríkisstjórn hefði búið of vel að elztu borgurun- um að þessti leyti og því voru þau hlunnindi ,sem þeim hafði verið veitt, úr gildi num- in. Hið sama er um fasteigna- gjöldin að segja. Þingmenn- irnir Ragnhildur Helgadóttir og Ólafur G. Einarsson fluttu um það sérstaka þingsálykt- unartillögu, að sú breyting yrði gerð á lögum um tekju- stofna sveitarfélaga, að sveit- arstjórnum yrði heimilt að fella niður fasteignaskatt af eigin ibúðttm þeirra, sem náð heíðu 67 ára aldri, en slík heimild væri fyrst og fremst nauðsynleg til þess að tryggja hag þeirra, sem takmarkaðar tekjur hafa vegna aldurs og skertrar starfsgetu. Enn- frentur var á það bent, að það væri vafalaust hagkvæmara fyrir sveitarfélögin að stuðla að því með þessum hætti, að hinir öldruðu gætu áfram búið í eigin híbýlum fremur en að verja ntiklti fé til byggingar elliheimila. Fyrir harðfylgi sjálfstæðismanna náði þessi breyting fram að ganga, en þó þannig, að hin- ir öldruðu verða að sækja sérstaklega um undanþágu frá fasteignasköttunum. En að sjálfsögðu hefði verið hreinlegra að leggja ekki fast- eignaskattana á ellilífeyris- þegana, auk þess sem það hefði komið réttlátar út, þar sem margir þeirra vita ekki uni undanþáguheimildina og bera þannig að ófyrirsynju gjöld, sem þeir eiga ekki að greiða. En um það er við lög- gjafann að sakast en ekki sveitarfélögin. Þjóðviljinn minntist á það í gær, að ellilífeyrisþegar „virtust koma fremur illa út úr sköttunum“. Þetta er vægt til orða tekið um þá þjóðar- smán, sem nýju skattalögin eru að þessu leyti. En með því er ekki öll sagan sögð, þar sem Þjóðviljamenn virð- ast hreinlega gera ráð fyrir því, að engin leiðrétting fáist á skattpiningu ellilifeyrisþeg- anna á þessu ári. Þannig gefur Þjóðviljinn ótvirætt í skyn, að þessi smánarblettur verði ekki af- niáður fyrr en eftir endurskoð un skattalaganna, sem sam- þykkt voru fyrir nokkrum mánuðum. Ef að líkum lætur, verður þeirri endurskoðun ef- laust ekki lokið i bráð. En í þessu máli eins og öðrum mun Alþýðubandaiagið ugg- laust freista þess að konia ábyrgðinni af sínum herðum og kenna samstarfsflokkun- um í rikisstjórninni um að- gerðarleysið. CAR RENTAL © 21190 21188 frá kl. 9—22 al'a virka daga nema laugardaga frá kl. 9—19. Bílasalinn við Vitatorg Sími 12500 og 12600. SKODA EYÐIR MfNNA. Shoo n LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600: ‘: í • ■’Í&jíísÍ- ■■ FERÐABlLAR HF. Tveggja manna Citroen Mehary. Bitaleíga — s'imi 81260. Rmm manna Citroen G. S. 8—22 manna Mercedes-Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). Skuldabrél Seljum ríkistryggð skuldabréf. Seijum fasteignatryggð skulda- bréf. Hjá okkut er miðstöð verðbréfa- viðskiptanna. FYRIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN fasteigna- og verðbréfasala Austurstræti 14, sími 16223. Þorieifur Guðmundsson heimasími 12469. ORÐ í EYRA Kolskaran EINN merkasti listviðburður ársins er loksins um garð genginn, og kannski hefur enginn tekið eftir honum, því ekki var nú sosum verið að auglýsa hann upp. Kolllekar mínir dunduðu sér semsagt við það í öldurhúsi nokkru, kenndu við búkarla, að greiða atkvæði um, hver fá skyldi svokallaðan silfurlampa I ár. Atkvæði félhi á ýmsa vegu, en þó engin jafnréttvís- lega og þau, sem Atli tón- meistari Heimir fékk fyrir verk sem Magnús ku hafa sett saman. Varla fer milli mála, að slíka viðurkenningu eiga fleiri skilið en Atli Heimir, því hvers vegna skyldi ekki einkum og sérilagi verðlauna séníin fyrir að láta vera að skapa listaverk, svo aðrir sniMingar geti komizt að með sínar hugsmíðir og andlegar afurðir. Jakobi fyndist tilaðmynda alveg sjálfsagt að veita ójoð viðurkenningu fyrir að leyfa nóbelsskáldinu að skrifa Kristnihaldið og þá ekki síður Þorvarði skáldi fyrir að láta vera að semja Dómínó. Eins mætti gjarnan þakka sam það með smáverðlaunum að hafa ekki reynt að yrkja kvæði Tómasar, og seint fáum við menníngarvitar og óvitar fullsþakkað, að Árni Berg- mann skyldi ekki komast í að semja Passíusálmana á undan Hallgrimi. Og fyrst gvuð- bergur eymínginn hefur ekki fengið nein verðlaun í ár, mætti kannski gauka ein- hverju að honum sem viður- kenningu fyrir Ænstænsteó- rruna. En semsagt: Allir þess- ir listrænu vitmenn og snill- íngar hefðu átt skilið að fá nokkur atkvæði aunigvu síður en Atli garmurinn. Jakob var nú aldeilis í ess- inu sínu við úthlutunina. Sjaldan hafa skémenn menn- íngarinnar verið klárari á hanabjálkanum og glaðari í andanuim en í musteri ís- lenzkra búandkarla þá stund- ina. Þair var nú sveimér ekki drukkur sparaður. Og hann Steinþór var svo sali, þegar hann fékk lampann, og sagði, að við ættum hann nú eilega öll. Spursmálið er bara, hvern- ig logar á lampanum í fram- tíðinni. Einhvern veginn finnst Jakobi, að kolskaran hæfi ljóstýrum okkar betur en lampinn. Og var það ekki líka þrautalendirng gamals sveitunga Steinþórs málara, þegar hvorki kviknaði á gull- hjálmi né silfurstjaka, að hrópa til kellingarinnar, móð- ur sinnar: Æ, kveiktu þá á helvízkri kolskörunni! Vanþróun og þ j óðar r embingur Það hefur mikið verið rætt og ritað um stórbokkaskap skáksnill ingsins Bobby Fischers og oft í niðrandi tón, en ég held að við Islendingar ættum að hafa hljótt um okkur eftir fréttatilkynning- una frá LaugardalshöIIinni í gær, þar sem því var haldið fram að fátækrahverfi fyndust ekki í Reykjavík, og að fátækasta fjöl- skyldan eyddi sumarleyfinu um þessar mundir með barnahóp sín um á Mallorca. Eitthvað af svip- uðu tæi hefur áður heyrzt í fjöl- miðlum, og er þá eingöngu mið- að við millistéttirnar en fátæka fólkinu gleymt. Ég hef orðið vör við sams konar hugsunarhátt í Osló, því þar er aldrei eða sjaldan minnzt á aumustu þegna þjóð- félagsins, hina svokölluðu úti- Mggjara, þegar þróun mála í vel- ferðarríkinu berst í tal. Það hefði ekki verið nema mátulegt á skrumarana, ef ein- hver hefði tekið að sér að sýna erlendum fréttariturum, er á- huga hafa á að kynna sér stétta- mismuninn á Islandi, kjallara- íbúðir sem löngu hefðu átt að vera dæmdar úr leik sem manna bústaðir, en þar búa oftast nær barnmargar fjölskyldur vegna húsnæðisvandræða, þegar okr- að er þannig á húsaleigu að 2ja herbergja íbúð (sæmileg) er leigð á allt að 10.000 krónur á mámuði. Og hvernig ætti venju- legur verkamaður með um það bil 20.000 krónur í mánaðarlaun að geta veitt sér og fjölskyldu sinni sumarleyfisdvöl á Mail- orca? Annað mál er það að lítið er um einangruð fátækrahverfi hér í borg, svo fólk á mishá- um þrepum þjóðfélagsstigans býr oftlega hlið við hlið, og dreg- ur það ef til vill athyglina frá skuggahliðinni. Ætli það færi ekki betur á að lægja rostann og taka ofan millistéttargleraugun. Afnám fátæktar á sér langt í land í veiferðarríkjunum á Norð- urlöndum, því launamismunur láglauna- og hátekjustétta fer sívaxandi. Enda . virðast aliar hugsjónir dauðadæmdar, þegar læknastéttin er komin í farar- brodd fylkingar samvizkuiausra gróðabrallara. Skrifað 24. 7. Gréta Sigfúsdóttir. Stokkhólmur mánudaga föstudaga Osló mánudaga mióvikudaga föstudaga Kaupmannahöfn \ þriójudaga / V^mióvikudaga/^ 1 fimmtudaga | .I sunnudaga I 1.maí-31.okt L0FTLEI0IR Farpantanir ísíma 25100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.