Morgunblaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÓLÍ iS/2 11 Frá Seyöisfirði — Síöari grein: „Eins gott að hafa skipulagið í lagi66 Þegar við komum á bryggj- una við hraðfrystihúsið Norð- ursíld h.f. var verið að landa til hússins úr Ólafi Magnús- syni og einnig úr Auðbjörgu NS 200, en þar voru þeir með 7 tonn af þorski í nót eftir einn sólarhring. Auðbjörgin er 11 tonna skip og þrir menn eru á. Þetta er því rokafli, en fremur var þorskurinn smár. Auk Ólafs Magnússonar leggja Þórður Jónasson, sem er á grálúðu, og Akraborg, sem er á færum, upp hjá Norðursíldinni. S.L ár vann Norðursild tæplega 2000 tonn af fiski í frost, en hjá fyrir- tækinu vinna yfir sumartím- Starfsmenn Stáls eru um 30. Eitt af verkefnum fyrir- tækisins um þessar mundir auk alls konar vélaviðgerða og nýsmíða er smíði á öllum lokuútbúnaði fyrir Laxár- virkjun, en það er 10 millj. kr. fyrirtæki. Á síldarárunum unnu starfsmenn Stáls mikið við síldarverksmiðjur á Austur- landi, þá hafa þeir einnig byggt marga olíugeyma, og auk bílaverkstæðis reka þeir talsverða bílaútgerð í sam- bandi við ferðir upp á Egils- staði, en þeir eru umboðs- menn fyrir þær ferðir og nota til þeirra rútur, smærri bíla og snjóbíla. Þá hafa þeir einnig umboð fyrir Flugfélag íslands og Loftleiðir. Pétur kvað nóga vinnu vera á staðnum og til dæmis vantaði þá iðnaðarmenn. Benti hann á að fyrirtækin Ólafur M. Ólafsson útgerðarmaður á leið til skrifstofu — spjallad við athafnamenn á Seyðisfirði — 3 skipasmíðastöðvar þar með 150 - 200 milljón króna samninga Pétur Blöndal við einn nýja stálbátinn frá Stáli sf. Þær eru vaskar stúlkurnar hjá Fiskvinnslunni h.f. ann um 50 manns og að sjálf sögðu eru konur þar í meiri- hluta. 1 Vélsmiðjunni Stál s.f. hittum við Pétur Blöndal framkvæmdastjóra. Þeir hafa margt í takinu hjá Stál, skipa smíðar, viðgerðir, verzlun, ferðir á landi og i lofti og rnargt margt fleira. Siðasta stórmálið hjá þeim var að þeir keyptu Gissur hvíta, sem mikið yar í fréttum s.l. vetur þegar skipalyftan í Skipa- smíðastöðinni á Akranesi brotnaði með Giss- ur hyita og skipið valt og fylltist af sjó. Skemmdist það mikið, en nú er byrjað á full um krafti á því að gera skip- ið klárt aftur, og síðan ætlar Stál s.f. að selja það. Taldi Pétur að það myndi kosta 20- 25 millj. kr. að gera við skip- ið. Pétur sagði að þeir væru ! að ljúka við að smíða þriðja litla bátinn, þ.e. 18 tonna stál hát fyrir menn á Djúpavogi. Verður báturinn klár í næsta mánuði, en hann mun kosta um 6 millj. kr. þrjú á staðnum, sem byggja báta eru stór þáttur í at- vinnulífi bæjarins, þvi að hjá Stáli sf., Vélsmiðju Seyðisf jarð ar og Skipasmíðastöð Austur lands, starfa um 100 manns eða allt að því eins margir og í frystihúsum bæjarins. Skipa smíðastöð Austurlands bygg- ir aðallega 12 lesta eikarbáta. Benti Pétur á að þessi þrjú fyrirtæki hefðu nú samn- inga upp á 150—200 millj. kr. og sýndi það hve mikilvægur Þorskinum landað lon og don. þáttur þessi iðngrein væri á Seyðisfirði. Helzta mál byggðarlagsins taldi Pétur vera samgöngu- málin, að á Fjarðarheiði yrði lokið við nýbyggingu vegar til Seyðisfjarðar og að hafizt yrði handa um byggingu flugvallar úti við fjörð. „Þeg ar þessir þættir verða komn- ir í lag“, sagði Pétur, „þá er um við nokkuð vel sett í sam- göngum." Ólaf M. Ólafsson stórút- gerðarmann á Seyðisfirði hitt um við i skrifstofu hans á staðnum. Hann gerir út ásamt fleirum bátana Gullver, Gull berg og Hannes Hafstein. Gullver er 336 tonn að stærð, 3 mánaða gamall og hefur fiskað 800 tonn á þeim þrem- ur mánuðum sem liðnir eru síðan skipið kom til landsins. Allir bátarnir leggja upp hjá Fiskvinnslunni h.f. „Við reiknum með“, sagði Ólafur, „að framleiða fyrir 100 milljónir kr. í ár, en í dag er búið að framleiða fyrir um 50 millj. kr.“ „Er það ekki rétt?“, kallaði hann til Gísla, sem sér um bókhaldið. „Jú það liggur þar um,“ svaraði Gísli. „Já, það munar ekki um eina eða tvær milljónir", hélt Ólafur áfram. Ólafur sagði að vikulaunin í síðustu viku hefðu verið um Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.