Morgunblaðið - 26.07.1972, Síða 17

Morgunblaðið - 26.07.1972, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1972 ■ I 17 Eftir Andres Kung Um misrétti það, sem Baltar búa við í Svíþjóð Andres Kiing'. Þetta er ]>rið.ja grein hans, seni MorgunblaiHð birtir, en hann dvelst nú hér- lendis við npptökn á s.jónvarps- þætti fyrir sænska s.jónvarpið nm landhelgismálið ank þess sem hann safnar efni í bók nm landið. Á alþjóðavettvangi gagnrýna Svíar gjarnan kúgun minnihluta hópa í fjarlægum löndum. Gott er það, því brot á mannréttind- um eiga aUa að varða. Bn við skulum lika athuga, hvernig sænsk yfirvöld koma fram i garð minnihlutahópa hér x landi. Ég hef á öðrum vett- vangi reynt að benda á rang- indin i stefnu Svia gagnvart Sömum og Finnum frá Tornedai (sjá bækurnar Samemakt og Jordens förtryckta). 1 þessari grein ætla ég að varpa ljósi á hvernig stefna Svíþjóðar gagn- vart minnihlutahópum stríðir í raun gegn þeim hugsjónum, sem við heiðrum á 1. maí og á alþjóð leg'um ráðstefnum. Ég skýri fyrst með sönrnum dæmum af hinum u.þ.b. tuttugu þúsund Eis'tlemdingum sem eru stærsti hópur inn.flytjenda hér á eftir Finnum. SVARI SEINKAÐ 1 'lok mai 1970 lagði fulltrúa- ráð Eistlendinga í Svíþjóð inn umsókn til innanrikisráðuneyt- isims um styrk til starfsemi sinn- ar. (Fulltrúaráðinu var komið upp 1956 og í því eru 100 kjörn- ir fuUtrúar Eistlendinga i Svi- þjóð. Segja má að það sé þing Eistlendinga í Svíþjóð). Sumarið 1970 voru lagðar inn fleiri fram- lagsumsóknir til inn.flytj- endastofnunar rtkisins (statems indvandrarverk, SIV) frá ýms- um samtökum Eistlendinga. 1 desember 1970 ákvað SIV að ráðstafa ekki fé til framkom- inna umsókna án þess að senda þær fyrst stjómimni til úrskuið- ar. Stofnunin byggði ákvörðun sina á þvi, að lita yrði á Balt- ana núna sem „mi'nnihlutahópa, sem búnir væru að koma sér fyrir“ („etablerade minori- tetsgrupper"), en ekki innflytj- endahópa. Þar með var málið, skv. skilningi SIV, ekki í þess verkahrinig. t>ó var mælt með því við stjórnina, að hún féllist á umsóknina. UMDEILANIÆGT. Innflytjendastofnunin gerir sem sé greinarmun á hópum inn- flytjenda, sem hafa komið sér fyrir og þeim, sem það hafa ekki gert. En í öllum innflytjenda- samtökum hér i landi er kjarn- inn fóllk, sem hefur komið sér fyrir. Starfsemi samtakanna hef ur eirnnig vanalega verið að hluta, það sem kaliað er „að- lögunarvinna" fyrir nýkomna innflytjendur. Skiptiing inn- flytjendastofnunarinnar ei- því bæði erfið í framkvæmd og um- deilanleg og við munum sjá, að stofnunin sjálf notar hana ekki alltaf. Frá innflytjendastofnuninni voru umsóknirnar sendar innan- ríkisráðuneytinu, sem sendi þær áfram til menntamálaráðuneyti's- ins, en þaðan voru þær send- ar aftur til innanríkisr'áðuneyt- isins. I>ar 'lágu þær, þar til u.þ.b. ári síðar, 28. janúar 1972, að þær voru sendar hjálparstofn- un innflytjenda (invandrar- utredningen). Til annarra áhrifa meiri aðgerða var ekki gripið á árinu hjá innanrí'kisráðumeyt- inu. Ef ekki væri vegna þess, að hér er um að ræða mikilvægar kröfur minnihiutahóps, mætti semja eftir þessu stutta yfirliti gamanleik í fimm þáttum um óstarfhæfni skriffinnanna. Eða semja mætti leiðbeiningar fyrir embættismenn ríkisins um hvern ig leysa ætti úr erfiðum erindum án þess að reyna á sig. FBUMVARP 1971? Tillögu hjálparstofnunar inn- flytjenda um styrk til mennimg- arstarfsemi kynþáttabrotanna er i bezta falli að vænta í lok ársins, en sennilega ekki fyrr en í byrjun næsta árs. Það þýð- ir, að frumvarp verður hægt að leggja fyrir þingið í fyrsta lagi á árimu 1974. Það leiddi af sér, að núverandi ástand, þ.e.a.s. þegar enginn er ábyrgur gagnvart menningarspurning- um minmihlutanna, héldi áfram, þessum hópum til verulegra óþæginda. Fullltrúaráð Eistlendinga gerði á fumdi sínum í Stokk- hólmi 11. og 12. marz einróma samþykkt, þar sem segir m.a. að „þjóðfélaginu beri skylda til þess að styrkja menningarstarf- semi kynþáttabrota og innflytj- endahópa bæði skipulagsléga og fjárhagslega. Við teljum, að slík ur stuðningur falli á eðldlegan hátt undir það form á stuðn- ingi við samtök og hreyfingar almennings, sem byggt hef- ur verið upp í Svíþjóð.“ Fulltrúaráðið ki'efst þess einnig, að sérstakri stofmun verði komið upp á vegum menntamálaráðuneytisims, sem hafi það hilutverk, að styðja þessa menningarstarfsemi og að stuðningurinn verði „að eins miklu leyti og hægt er veittur i samráði við eigin samtök minnihlutahópamna til að tryggja þeim raunveruleg áhrif.“ EESTI PÁEVALEHT. Við skulum nú líta á eitt dæmá um menningarstarf- semi minnihlutahóps, starfsemi, sem á á hættu að leggjast nið- ur af f járhagslegum ástæðum á meðan hjálparkvörn ríkisims malar. Besti Paevaleht (Eistlenzka dagblaðið) er blað á eistlenzkri tungu, sem gefið er út í Stokk- hóimi tvisvar í viku, 8-12 síður hvert tölublað. Frá 1958 til 1970 kom blaðið út sem sérútgáfa af Eskilstuna-Kuriren og voru þá nokkrar síður á eistlemzku dag- lega. Frá því 1971 hefur blaðið staðið algerlega á eigin fótum. Það er stærsta blað, sem ekki kemur út á sænsku fyrir les- endur hér í landi. Blaðið upptfyfflir skilyrðin um útgáfustyrk, samikvæmt tilikynn- ingunni um stuðning tili blaða (stærð upplags, hlutur aug- lýsinga o.s.firv.) Á fundi 4. febr. 1972 ákvað saimt nefnd sú, sem sér um stuðning til blaða að hafna umsókn blaðsins um styrk. Nefndin rökstuddi hina mjög svo furðuilegu ákvörðun síma með því annars vegar, að Pae- valeht væri ekki aknennt frétta blað og hims vegar með því að það ætti ekki í sömu erfiðleik- um og önnur blöð. Tveir nefnd- armanna lögðust gegn ákvörð- un henmiar, þeir C. Nettelbrandt og H. Winberg. ÓMÖGULEGT? Aðeins er hægt að túfflca ákvörðun nefndarinnar svo, að hún telji það raunverulega ómögulegt, að hér í landi sé gef- ið út Venjulegt fréttablað á eist- lenzku og að slikt blað, korni það þá út geti átt í sömu erfiðleikum og örunur blöð. Aug- sýnilega hefði Eesti Páevaleht hlotið stuðning kæmi það út á sæmsku. I ákvörðun nefndar þessarar kemur þvi fram greinilegt mis rétti í garð menningarstarfsemi hér í landi, sem ekki fer fram á sæmstku. Ákvörðunin er ekki í samræmi við yfiriýsimgur við meðferð þinigsins 1968 um al- menmar útlímur utanrikisstefn- unnar né í samrærni við fyrir- mæli, sem hjálparstofnum inn- flytjenda fékk á því sama ári. Ákvörðum mefndarimmar er sérlegt áhyggjuefmi, þar sem hér er um að ræða fyrsta hreina dæmið um að mimmihlutahópar með menmingarstarfsemi séu mis rétti beittir. Áður hefur aðeins verið um að ræða, að yfirvöid- im hafa ekki viljað veita styrki í sérstakri röð. Nú var um að ræða venjuleg sænsk lög, sem túlikuð voru þanmiig að miklu mis rétti var beiitt. Samkvæmt tiilkynninigummi um stuðnimg tii dagblaða er ekki hægt að áfrýja ákvörðun nefnd arinnar. Eina lausm málsims er þvi sú, að þinigið failist á upp- haflegar tillögur um stuðning við Eesti Páevaleht. Annaxs yrði því miðu-r ekki annað fyrir full- trúaráð Eistlendinganna að gera en að kæra Sviþjóð fyrir dóm- stóli. Upp á þessu var stungið á síðasta fundi fuffltrúaráðsins. BALTNESKAR KIRKJUR. f frumvarpinu til þingsins 1971 var lagt tili, að styrkur skyldi veittur himurn svóköill- uðu imnflytjemdakirkjum. Með hliðsjón £uf þeim tillögum veitti þingið aukafjárveitimigu til „aðlögunarráðstafana" á vegum innflytjendastofnunarinmar að upphæð 325.000 s.kr. sem skipt ast skyldu milli kirknanma. Með- al þeirra umsókna, sem á eftir bárust stofmunimni voru einnig nokkrar frá eistlenzkum og lett- lenzkum kirkjufélögum. 28. oktober 1971 ákvað stjóm stofnunarinnar almenna stefnu i sambamdi við úthiutun viðbótar- fjárins. Þá var ákveðið að hóp- ar, sem „nú þegar hefðu komið sér fyrir" skyld-u verða síðastir í röðimni. Þetta þýðir raunveru- lega, að baltnesku kirkjufélög- in átitu ekki að fá neitt. Á móti þessari ákvörðun voru tveir stjómarmamna, Diesem og Popov. Eftir samráð við SIV ákvað hjálpairstafinun innflytj- enda að hafa ekki heldur af- skipti af ákvörðum stofnunar- inmar varðandi baltnesku kirkju félögim. ALÞJÓÐLEGT. Sérstaklega athyglisvert er, að umsókn frá eistilenzku apost- olisku ortodox kirkjunmi var hafnað. Greinilegt var af um- sókn henmar, að kirkjan er i raun og veru alþjóðleg stofnun og að stór hluti starfseminnar fer fram á særnsku. Kirkjan þjónar stórum hópum trúarvina, sem hafa nýlega flutzt til lands- ins frá ýmsum löndum. Fulltrúa- ráð Eistlendinga í Sviþjóð seg- ir í áðurniefndri samþykkt sinni; „Sú ákvörðun inmflytjendastofn unarinmar, að vilja ekki styrkja þessa kirkju á þeim forsendum, að um sé að ræða fólk, „sem komið hafi sér fyrir" er óskilj- anleg og sýmir að fólk þetta er misrétti beitt." Bn ákvörðunin er samt ekki alveg óskýranleg. Að öilum lík- indum hefur viðkomandi embætt ismaður skrifað orðið „eist- lenzk't" efst á styrkum- sókn kirkjunnar og síðan lagt hana til hliðar án þess að lesa hana. En á svo veikum grund- velli á ekki að taka ókvörðun, jafnvel þótt „aðeins“ sé um að ræða vaida'lausa minnihluta- hópa. Við framhaldsmeðferð um- sóknarinnar hefur innflytjenda- stofnunin naumast farið eftir hinurn til'búna greinarmun á þeim innflytjendum, sem „búnir væru að koma sér fyrir“ og hinum, sem það hafa ekki gert. Þannig vonu til dæmis rúmensku ortodox kirkjunni hér á landi veittar 15.000 s.kr. Rúmenar í Svíþjóð voru skv. mannitali árs- ins 1970 um 1200 talsinis. Af þeim voru um 70 prósent sænskir ríkisborgarar, en inniflutningur fól'ks frá Rúmeníu hefur á síð- ustu árum verið sáralítili. Þvi hefði verið saningjarnt að lita á Rúmena eins og Eistlending- ana sem fóik, sem þegar hefði komið sér fyrir. Að sjálfsögðu leggst ég ekki gegn þeim ánægjulega styrk, sem þesisi kirkja fékk. Ég vil að- eins, að misrétti sem er beint beimlínis gegn Böltum sé kallað sírnu rétta nafni í stað þess að reynt sé að fela það með •almennu orðaliagi um að hópar, sem komið hafi sér fyrir eiigi ekki að hljóta stuðning. SKÓLAR EISTLENDINGA. 1967 eftir sjö ára bið ákváðu yfirvöld að viðurkenna eina af ályktunum ráðstefnu UNESCO frá 1960 varðandi menntunannis rétti. 1 ályktuninni er fyrst og fremst leitazt við að vinna gegn hvers kyns sérmeðhöndl- un við kennslu vegna kyn- þáttar, litarháttar, kynferð- is, tungumáls o.s.frv. Auk þess er í grein 5 tryggður réttur minnihlutahópa til að hafa sína eigin skóla. í grein 3 segir, að ekki megi „í neinu formi stuðnings, sem frá yfir- völdum kemur ti.1 menntastofn- ana leyfa neins konar takmark- anir eða fríðindi, sem grund- vallist einvörðungu á að nemend urnir tilheyri sérstökum hópi." Aðeins hálfu ári siðar neitaði þingið, að lögfesta stöðu eist- lenzku skólanna. Áframhaldandi stuðningur var aðeins veittur til bráðabirgða. Ákvörðunin felur í sér, að horfið verði frá kennslu Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.