Morgunblaðið - 28.07.1972, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.07.1972, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1972 a/ Kristján Ebenezersson beykir — Minning SUNNUDAGINN 23. júlí síðast- liðiinn lézt á Hrafnistu Kristján Ebenezersson beykir eftir lang- varandi veikindi. Kristján var fæddur í Þernu- vík við Isafjarðardjúp 27. apríl 1893, sonur hjónanna Valgerðar Guðmundsdóttur hreppstjóra Guðmundssonar á Eyri í Mjóa- firði og Ebenezers Ebenezers- sonar frá Reykjarfirði við Djúp. Þau hjón bjuggu um nær þrjá- tiu ára skeið i Þernuvík eða til ársins 1908, að þau fluttust að Hvítanesi og voru þar i hús- mennsku til 1923, er þau flutt- ust búferlum til Reykjavikur. I Þernuvík var tvíbýli, en jörðin leyfði ekki, að stórt bú væri rek- ið og stundaði Ebenezer því sjó- sókn jafnframt búskapnum alla tíð, eins og algengt var á þeim árum um marga bændur við Djúp. Hann var talinn sjómað- ur af lífi og sái, fjörmaður hinn mesti og spaugsamur. Valgerður var óvenju heilsteyptur persónu- leiki og kurteis með afbrigðum. Haft er eftir séra Stefáni Steph- ensen í Vatnsfirði, að Valgerður hafi í æsku verið allra kvenna vænst við Djúp. Þeim Þernuvíkurhjónum varð fi-mm barna auðið, sem upp komust. Af þeim lifa tvær syst- ur, Kristjana og Salvör, ti-1 heim- ilis hér í borg. Tveir bræður, Guðmundur og Ágúst, voru um margra ára skeið kunnir togara- skipstjórar í Grimsby, miklir aflamenn. Kristján tók ungur að stunda sjóróðra í Bolungarvík, en flutt- ist til Reykjavíkur árið 1913 og nam þar beykisiðn hjá Jóni Jónssyni beyki. Rak hann um sex ára skeið á árunum 1927— 1932 fyrirtæki í þeirri iðn i féla,gi við Bjarna Jón-sson beyki. Áður hafði hann verið nokkur ár á brezkum og íslenzkum togurum. Síðar var hann verkstjóri við t Móðir okkar ÞÓRDÍS BOGADÓTTIR, lézt í Borgarspítalanum 26. júlí. Margrét Ólafsdóttir Thorlacius, Bogi Ólafsson. t BENÓNÝ SALOMÓNSSON, andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 26. júlí. Fyrir hönd braeðra, ættingja og vina Anton Salomónsson. t Faðir okkar VALDIMAR JÓNSSON, Kirkjuvegi 20, Selfossi, andaðist í sjúkrahúsi Selfoss 26. júlí. Bömin. t Eiginmaður minn RAGNAR B. SVEINBJÖRNSSON, bryti, Stóragerði 4, verður jarðsunginn mánudaginn 31. júlí kl. 1.30 frá Fossvogs- kirkju. Fyrir hönd sona okkar og barnabarna Lilja Guðmundsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR frá Gerðum. verður jarðsungin laugardaginn 29. júlí frá Útskálakirkju. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minna6t hinnar látnu er bent á Ifknarstofnanir. Biörg Amadóttir, Jónas Guðmundsson, Ami Amason, Krístin Jónsdóttir Friðrik Amason, og bamaböm. síWarsaltun á Ingólfsfirði, Skagaströnd og Siglufirði, sam- tails fimm sumur. Ednnig vann hann við lifrarbræðslu í Sand- gerði á árunum 1937—1940, en um það leyti réðst hann til Bern- hards Petersen-s, þar sem hann vann að beykisstörfum og mati á hrognum og lifur um hart nær þrjátíu ára skeið. Er mér kunn- ugt um, að forstjórar þess fyrir- tækis höfðu á honum miklar mætur fyrir dugnað og vöndug- lelk í starfi, enda hefur vart getið áreiðanlegri og húsbónda- hollari mann. Sagði Kristján mér sjálfur, að það hefði ekki alitaf verið vinsælt, þegar hann fann skemmd hrogn í tunnum í ýms- um verstöðvum, þegar hann var í matsferðum, og synjaði hann vitaskuld slíkum viðskiptum, enda talidi hanin að skemmd vara gæti ekki orðið til þess að auka traust erlendis á verkunaraðferð- um Islandinga. Sú saga er sögð um Ebenezer, föður Kristjáns, að eitt sinn, ef hann var kominn yfir áttrætt, hafi kunningi komið til hans í heimsókn snemma morguns og haft orð á þvi, þar sem Ebenez- er var við vinnu sína, að hann gengi árla að verki. Gamli mað- urinn! er þá sagður hafa svarað: „Ég er löngu hættur að fara snemma á fætur, hreyfi mig aldrefc fyrr en á sjötta tímanum og undir sex.“ Því er þessi saga rifjuð upp hér, að Kristján reis manna fyrst úr rekkju og var mjög verk- lundaður maður. Hinn 26. maí 1917 kvæntist Krístján Sigríði Einarsdóttur múrara Jónssonar á Blómstur- völium hér í borg. Hún var mik- il myndar- og rausnarkona, enda heimili þeirra hjóna rómað fyrir höfðingaskap. Sigiáður lézt 1D. júií 1970 og voru þau hjón þá nýflutt á Hrafnistu, en höfðu áður búið nær þrjátíu ár á Hringbraut 37. Þau hjón eignuðust fimm börn, sem öll eru á Mfi, og eru þau þessi, talin í aldursröð: Guðmundur, kvæntur Rakel Maimquist, Valur, kvæntur Guð- riði Júiíusdóttur, Ásta, gift Ein- ari Stefánssyni, Einar kvæntur Guðbjörgu Kristjónsdóttur og Vatgerður, gift Brynjólfi Krist- inssyni. Kristján var hið mesta glæsi- menni, fríður, sviphreinn og mikill að vallarsýn. Rosknir menn við Djúp sögðu um Guð- mumd á Eyri, afa Kristjáns, að ekki hefði sézt þar kempulegri né svipmeiri maður. Þar sem t Eiginmaður minn, faðír okkar, tengdafaðir og afi MAGNÚS JÓNSSON, húsvörður, Krókatúni 5, Akranesi, andaðist að sjúkrahúsi Akraness 24. júlí. Jarðarförin fer fram laugardaginn 29. júlí kl. 2 s.d. frá Akraneskirkju. Blóm og kransar vinsamlega afbeðið. Laufey Jónsdóttir, Svanberg Ólafsson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Magnúsdóttir, Ingibergur Þór Jónsson og dætur. Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu og vinarhug við fráfall ÞORSTEINS SVEINBJÖRNSSONAR, kaupmanns. Fyrir hönd aðstandenda Laufey Sveinbjörnsson. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför konunnar minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ODDNÝJAR MARlú KRISTINSDÓTTUR, Vesturgötu 7, Keflavík. Erlendur Jónsson, böm, tengdaböm, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför VILHJALMS jónssonar. húsasmíðameistara. Drápuhlíð 2. Marta Ólafsdóttir, Steinunn Vilhjáimsdóttir, Karen Vilhjálmsdóttir, Þorvaldur Óskarsson, Manfreð Vilhjálmsson, Erla Sigurjónsdóttir, Vilmar Þór Krístinsson, Erla Ólafsdóttir, og barnaböm. t Þökkum auðsýnda samúð og föður okkar, tengdaföður og afa vináttu við andlát og útför JÓNS HAFLIÐASONAR, Hverfisgötu 32 B. Stefán Jónsson, Gyða Grímsdóttir, Borgþór H. Jónsson, Rannveig Amadóttir. Margré tJónsdóttir, Bjami Jónsson og bamaböm. Kristján fór duldist engflm að þar var höfðingi á feirð. Hann var grandvax maður, mildur og góðgjam í dómum sínum um aðra menn. Krisitján var áhugasamur um félagsmál. Hann var um margra ára sikeið félagi í OddfeUow-regl- unni og naut þar trúnaðar, að því er kunnugir segja mér, og er mér nær að halda, að hann hafi sótt þar flesta eða alla fundi meðan heilsa leyfði. Þá var hann og heiðursfélagi í Félagi Djúp- manna. Höfundi þessara minninigar- orða var tíðum boðið til þeirra hjóna, Sigriðar og Kristjáns, á Hringbraut 37. Þangað var hverj um manni gott að koma, enda voru þau hjón samhent um gest- risni og boðin og búin til þess að leysa hvers manns vanda. En það var alltaf gert á þann háitt, að ekki voru mörg, orð um það höfð. Slákt er aðai þeirra, sem eru sannir höfðirrgjar í lund. Nú þegar Kristján, frændi minn, er horfinn sjónum, eru mér þak'kir efst í huga fyrix? langa og ljúfa vináttu hins vammlausa manns. Bömuim og öðrum vandamönn- um flyt ég hlýjar samúðarkveðj- ur. Runólfur Þórarinsson. MARG FALRAR Alililll llii POTjg [UttMftfcffr MARG FALDAR fflli fferí Élll jnnbTabib MARG FALMAR W Epa t Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, Þórunnar Friðriksdóttur. Ingvar Þórólfsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför sonar okkar, Eiríks Halldórssonar frá Húsavík. Halldóra Gunnarsdóttir, Ilalldór Jónsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Páls Sveinssonar, landgræðslustjóra. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.