Morgunblaðið - 28.07.1972, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚLl 1972
SAI GAI N | ífrjálsuriki eftir VS. Naipaul
iget látið fara vel um mig hér.
Hér er rúmbetra en í litla skápn
um mínum undir stiganum. Og
loftið er slétt. Ég rek mig ekki
upp undir."
„Þú skilur þetta ekki, Sant-
osh. Bombay er Bombay. Fólk
fær rangar hugmyndir um okk-
ur hér, ef við förum að búa í
skápum. Það heldur þá, að allir
búi i skápum í Bombay.“
„En, sahib, fólk lltur bara á
mig og sér strax, að ég er ekki
neitt.“
„Þú ert góður, Santosh. En
þetta fólk er iilkvittið. Og þó
segi ég: sért þú ánægður, þá get
ég verið það.“
„Ég er ánægður, sahib."
Ég var það líka. Eftir eld-
raunina. Ég var feginn að
skríða inn i skápinn um kvöld-
ið, breiða úr sængurfötunum og
leggjast út af, öruggur og fal-
inn. Ég svaf vel.
Um morguninn sagði húsbóndi
minn: „Við verðum að ræða pen-
ingamálin, Santosh. Þú færð
hundrað rúpíur á mánuði. En
Washington er ekki Bombay.
Allt er svolitlu miklu dýrara
hér. Ég ætla að hækka kaup
þitt vegna dýrtíðari-nnar. Frá
deginum i dag færðu 150 rúpí-
ur.“
„Sahib.“
„Og ég greiði þér hálfsmánað-
Verksmiðjusalo
Nýlendugötu 10
Síðustu dagar verksmiðjusölunnar eru
miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Seldur verður margskonar prjónafatnaður.
Lækkað verð. Opið kl. 9—6.
PRJÓNASTOFAN Nýlendugötu 10.
arlaun fyrirfram. 1 erlendum
gjaideyri. 75 rúpíur. Tíu sent í
rúpíunni. Það gera 750 sent.
750 bandarisk sent. Gerðu svo
vel, Santosh. f dag skaltu fara
í gönguferð og njóta lifsins. En
gættu þin.Við erum ekki meðal
vina. Mundu það.“
Og loks fór ég út, vel sofinn
og með peninga í vasanum. Auð
vitað var þessi borg ekki eins
ógnvekjandi og ég hafði haldið.
Húsin voru ekki sérlega stór,
manníjöldinn var ekki eins mik
ill á öllum götunum og þarna
voru mörg falleg tré. Margi.r
hubshi-ar voru á kreiki, mjög
villimannlegir sumir með dökk
gleraugu og hárið í allar átt-
ir, en mér sýndust þeir mein-
lausir, ef þeir voru látnir í friði.
Ég var að leita að kaffihúsi
eða tesölu, þar sem heimilisþjón
ar ættu sér samastað. En ég sá
enga heimilisþjóna og ég var
rekinn út á einum stað, þar sem
ég freistaði inngöngu. Þegar ég
hafði beðið þar góða stund,
sagði stúlkan: „Kanntu ekki að
lesa? Hér er hvorki hippum eða
berfættu fólki veitt þjónusta."
Ó, faðir. Ég hafði farið skó-
laus út. Þetta er vissulega furðu
legt land, hugsaði ég um leið og
ég hiraðaði mér út. Hér
leyfist íólki ekki að klæðast á
hispurslausan hátt, en verður
alltaf að vera í sparifötunum sin
um. Hvers vegna var fólk skyld-
ugt til að 'sJita skóm og fínum
fötum að ástæðulausu? Hvert
var tiiefni hátiðahaldanna ? Hvi-
likt óhóf. Hvilíkt tildur. Hélt
þetta fólk, að það væri undiir
stöðugu eftirliti annarra?
Og um leið og þessar hugsan
ir flugu um huga minn, sá ég fy-
ir mér opið svæði með trjám og
gosbru nnum — og það var engu
likara en draumur minn hefði
rætzt — þarna var margt fú’k
svipað mér að útliti og mínu
fólki. Ég girti beltið fastar, hélt
flagsandi skyrtulöfunum niður
og hljóp i gegnum umferðina
inn á igræna svæðið.
Surnir hubshi-anna vo r u
þarna. Þeir léku á einhver hljóð
í þýðingu
Huldu Valtýsdóttur.
færi og virtust glaðir á svipinn.
Amerikanar sátu lika í grasinu,
á gosbrunninum og á gangstétt
arbrúninni. Sumir voru í
grófgerðum, viðkunnanlegum
fötum. Og sumir voru skólausir.
Mér fannst ég hafa verið full-
fljótur að fella dórna. Þó var
ekki þetta fólk, sem hafði dreg-
ið mig að græna hringnum. Það
var dansfóikið. Mennimir voru
skeggjaðir, berfættir og í siðum
safrangulum skikkjum. Stúlk
umar voiru klæddar sari og i
fléttu-skóm, eins og Bata-skón-
um okkar. Dansararnir hristu
litlar skálabumbur og sungu,
lyftu höfðinu og létu það siga á
víxl og snerust í hringi. Þetta
Iðnuðurhúsnæði óskusf
Óska eftir að taka á leigu iðnaðarhúsnæði 200—300 ferm.
fyrir trésmiðaverkstæði.
Tilboð merkt: „Iðnaðerhúsnæði — 1962" sendist Mbl.
velvakandi
0 Áfengisvarnir
Steinar Guðmundsson,
skrifar:
„Velvakandi minn, heill og
sæll.
Nú er gott að eiga þig að.
Ég þarf nauðsynlega að koma
svolitlu áfengismálaspjalli á
framfæri, þ. á m. orðsendingu
til þeirra er áhuga hafa á of-
drykkjuvarnastarfinu — á
virku ofdrykkjuvarnastarfi.
Ég þarf að koma orðsendingu
til þeirra, sem löngun hafa til
að stuðla að bættri áfengis-
menningu okkar íslendinga, en
vita ekki hvernig þeir eiga að
fara að því. Mig langar til að
aðstoða þá til að veita aðstoð-
ina.
Ég er hættur að gagnrýna
a.m.k. i bili. Ég get ekki séð,
að neitt jákvætt hafi leitt af
öllu gagnrýnisrausi minu und-
anfarin ár — áfengismenning-
in hefir a.m.k. ekki braggazt
við það. Ég læt því alla gagn-
rýni lönd og strönd.
0 Leiðbeiningastöð
Tómstundirnar í vetur og
vor hefi ég notað til að undir-
búa starfs'emd „leiðbeininga-
stöðvar í áfengismálum“ og má
heita að allt sé nú klappað og
klárt, nema fjárhagshliðin.
Eins og þú veizt þá er atvinna
undirstaða framfærslu — at-
vinnan verður því að launast.
Ráðgjafastörf í áfengismálum
eru þar engin undantekning.
Opinberir aðilar telja enn ekki
tímabært að veita fé til þess-
ara mála og verðum við því að
reyna að bjargast án þeirra
enn um stund.
Fjármagna þarf fyrirtækið,
svo hægt sé að greiða laun,
húsaleigu, póstgjöld, sima og
annan undlrstöðukositnað.
Með það fyrir augum, m.a. hefi
ég útbúið nokkur fræðslugögn
er líkleg væru til að vekja
eftirtekt og seljast málefninu
til styrktar. Or handraðanum
hefi ég valið 7 gögn (spjöld og
bæklinga) og ætla að arka með
það veganesti út i þjóðlífið
núna fyrir mánaðamótin í von
um að geta þannig hafið söfn-
Daninn Wilhelm Hellesen
fann upp og framleiddi fyrstu
nothæfu þurrrafhlöðuna fyrir
85 árum.
í dag streyma HELLESENS
rafhlöður hingað beint frá
Kóngsins (Drottningarinnar)
Kaupmannahöfn, hlaðnar
orku.
Hringið eða komið og tryggið
yður þessa afbragðsvöru.
Við önnumst bæði heildsölu-
og smásöludreifingu.
ífuiiu
steel power
12 VOLT IEC P2Z
y j /Tsrj 3 yyrA< '<y <k jl - /i //.
RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVlK • SlMI 18395 • SÍMNEFNI ICETRACTORS
un sjóðs er tryggt getur rekst-
ur leiöbeiningastöðvar fyrsta
veturinn. Pésar mínir og spjöld
verða að meðaltali seld á
hundrað krónur stykkið. Hið
veigaminnsta verður að vísu
gefið, eða selt á tíkall ef ti-
kall liggur á lausu, en það
dýrasta fer á 150 krónur.
Eitt þessara gagna (100.-) er
ætlað saklausum, fræðslufúsum
almenningi, annað (100.)
þroskuðum drykkjumönnum,
sem ætla má að viti nokkurn
veginn hvar Davíð keypti ölið.
Þriðja er „ölvunarmælir"
(100.-), haglega búin samfella,
sem menn geta stillt eins og
reiknistokk ef þá langar til að
átta sig á þvi hversu fullir þeir
voru kvöldið áður, þ.e.a.s. ef þá
á annað borð rámar í að þar
hafi verið nökkurt kvöld.
Fjórða heitir „Látum hjólin
snúast" (100. ) og er vel brúk-
legt við útreikninga á því
hvernig verjast megi árásum
Bakkusar úr launsátri (hvort
heldur það er Bakkus, sem er
í felum eða hin hugsanlega
bytta). Fimmta (100.-) færir
sterkar líkur að því, að fleira
geti verið gruggugt en brenni-
vinið — í heimilislífinu. Sjötta
(150. ) er myndskreytt ádeila
með ábendingum og sjöunda
(10,- eða gefins) barnagæla
handa íullorðnum.
0 Stafrófskver gegn
ofdrykkju
í leiðinni iangar mig til að
koma þvi að, að þessa dagana
er ég að ljúka við kver, sem
koma á út með haustinu og
heitir „Stafrófskver gegn of-
drykkju". I framhaldi af því
er ég farinn að raða öðru sam-
an og á það að heita „Stafrófs-
kver frá ofdrykkju."
Fleira var það ekki Velvak-
andi minn — ekki að sinni. Og
þó. Ef einhver kynni að vilja
aðstoða mig við að koma þess-
um fræðslugögnum í verð þá
segðu þeim að símanúmerið mitt
sé 21063 og segðu þeim lika, að
ég sendi þetta hvert á land sem
er jafnt upp á krít sem gegn
kröfu eða kontöntum.
Þótt leiðbeiminigastöð í
áfengismálum sé aðgengilegri
þeim er í nágrenni hennar búa
heldur en hinum er kúra í f jar-
lægð, getur hún samt verið
ómetanleg fólkinu í strjálbýl-
inu því leiðbeinandi í áfengis-
málum skiptir sér ekki
af hreppapólitík — hann ein-
blínir bara á verkefnið, —
bölvaða ofdrykkjuna, sem
vissulega gerir sér ekki manna
mun og kitlar skynsemina jafnt
hjá gáfnaljósinu sem moð-
hausnum og skellir fátækum og
ríkum á sama fletið.
Með beztu kveðjum.
Steinar Guðmundsson.“
Tvær einbýlishúsulóðir
til sölu ú Seltjnrnurnesi
Nánari upplýsingar á skrifstofu minni
Strandgötu 25 í dag milli kl. 11—12.
Sími 5 25 76.
Matthías Á. Mathiesen, hvl.