Morgunblaðið - 23.08.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.08.1972, Blaðsíða 14
1 4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1972 0*g«f«-n dt hf ÁtV'akw, Rfcytojavík Frö'irvtwawmdaMj'óri HwaWw Svamsaon. RJtayÁrw Matihfa* JoHarmosjan, EyfóSfur KonráO Jónason ASatoðarrftstfón StyTmir QiHvnaras'on. RHfftlór'norfuirtrúi twrbfðm Gutfrmtncteaon. Fréttaatióri Björn Jóharm**on Augiýaingaa^Örf Am< Garöar Krlatinason Ritstjórn 09 aifgreiðafa Aðalatraati 6, a*mi 1Ó-100. Ausflýaingar AOafstreati 6, aími 22-4-00 ÁskrrftargjaW 225,00 kr á fnénuði innaniarWs I tauaaadfu 15,00 Ikr oirvtakið l^ullyrða má, að atvinnuveg- 4 irnir í heild hafi sjaldan eða aldrei staðið betur en við stjórnarskiptin á miðju síð- asta sumri. Tekizt hafði að koma jafnvægi á í efnahags- málum og þótt kaupmáttur launa hefði aukizt um 20% frá 1970 til 1971, var frekari kaupmáttaraukning möguleg. Því olli ekki hvað sízt hin hagstæða útkoma hraðfrysti- iðnaðarins á árunum frá 1969 til 1971. Um síðustu áramót var hins vegar sýnilegt, að mjög myndi bregða til hins verra um afkomu hraðfrystiiðnað- arins. Fulltrúar fiskkaup- enda í yfirnefnd Verðlags- ráðs sjávarútvegarins vöruðu sterklega við því ástandi, sem fyrirsjáanlegt var og bentu á, að fiskiðnaðurinn í heild yrði skilinn eftir á núlli, sem jafngilti því að helmingur frystihúsanna yrði í tap- rekstri, en ef gengið væri út frá afkomumarki ársins, yrðu rúmlega % þeirra í mismun- andi miklu tapi. Aukafundur Félags Sam- bandsfrystihúsa, haldinn 10. janúar sl., „harmaði, að frystihúsiðnaðinum skyldi ekki hafa verið séð fyrir eðlilegum afkomugrundvelli nú, þar sem allar ytri að- stæður væru eins hagstæðar og verða mætti og benti á, að grundvellinum hefði verið kippt undan þeirri endur- byggingu frystiiðnaðarins, sem nauðsynleg er til þess að standast markaðskröfur.“ Aukafundur Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna var haldinn ellefu dögum síðar eða 21. jan. sl. og í ályktun hans sagði m.a. svo: „Þrátt fyrir hagstæð skilyrði og hátt verðlag á erlendum mörkuðum, hefur rekstrar- aðstaðan versnað svo að fyr- irsjáanlegur er mikill halla- rekstur við óbreyttar að- stæður.“ Það hefur nú komið í ljós, að þessi ótti var ekki ástæðu- laus. Takmarkaðar verð- hækkanir hafa að vísu orðið á einstaka framleiðsluteg- undum, en rekstrarkostnað- urinn hefur hækkað mun meir og lagzt með fullum þunga á fiskiðnaðinn. Á sama tíma hefur fiskaflinn minnk- að og mun framleiðsla hrað- frystiiðnaðarins hafa dregizt saman miðað við sama tíma í fyrra. Sérstaklega hefur það komið illa út, að þorsk- aflinn hefur minnkað, en vinnsla hans hefur komið bezt út rekstrarlega fyrir frystihúsin. Þá er vinnsla á karfa orðin svo óhagkvæm, að frystihúsin hafa ekki séð sér fært að taka á móti hon- um og óskað eftir því, að ríkisstjórnin tryggði eðlileg- an rekstrargrundvöll fyrir vinnslu hans. Ríkisstjórnin hefur ekki komið til móts við þessar þarfir frystihúsanna nema að litlu leyti, svo að karfavinnslan er enn rekin með miklu tapi og stenzt ekki til frambúðar. Á það má og benda, að sú aðstoð, sem sjávarútvegsráð- herra beitti sér fyrir til þess að rétta hlut karfavinnsl- unnar verður að teljast mjög hæpin, þar sem verið er að ráðstafa fjármagni frá Vá- trygginarsjóði fiskiskipa, sem stendur mjög höllum fæti og vantar marga tugi milljóna til þess að endar nái saman. Það er ekkert launungar- mál, að frysihúsamenn víðs vegar um landið eru nú mjög uggandi um rekstrarmögu- leika hraðfrystihúsanna og hafa margir þeirra viðhaft þau orð, að verði rekstrar- grundvöllurinn ekki bættur hið skjótasta, sé ekki annað fyrirsjáanlegt en að rekstur fjölda hraðfrystihúsa um land allt muni stöðvast nú í haust. Eru það vissulega al- varleg tíðindi fyrir íslenzku þjóðina, ef svo er komið eft- ir rúmlega eins árs setu vinstri stjórnar, að stefna hennar í efnahagsmálum hef- ur leitt til hruns í höfuðat- vinnugrein landsmanna, hrað frystiiðnaðinum, á sama tíma og markaðsverðið erlendis er í algjöru hámarki. Afleiðing- ar slíkt ástands eru atvinnu- leysi og stórversnandi af- koma allrar þjóðarinnar. Það ástand, sem fyrirsjáan- legt virðist í fiskiðnaðinum, er þeim mun alvarlegra þeg- ar þess er gætt, að frystihús- in standa nú frammi fyrir þúsund milljón króna út- gjöldum á næstu árum í sambandi við margvíslegar endurbætur og lagfæringar til þess að mæta ströngustu kröfum um aðbúnað og holl- ustuhætti við framleiðsluma. Loks má á það benda, að í sambandi við útfærslu land- helginnar verða íslendingar í æ ríkara mæli að treysta á hraðfrystiiðnaðinn og þá markaði, sem hann selur einkum afurðir sínar til, sem eru Bandaríkin og Sovétrík- in. Eins og fyrr segir hefur mjög breytt til hins verra um afkomuhorfur atvinnu- rekstrarins eftir stjórnar- skiptin á sl. sumri. Má í þvt sambandi minna á niðurlags- orð ársskýrslu Kaupfélags Eyfirðinga, en þar segir: „Útlit er fyrir, að nú eigi að mæta Hrunadansi kostnaðar- verðbólgu með taprekstri fyr irtækja, sem því miður hlýt- ur að leiða til atvinnusam- dráttar, þegar til lengdar lætur.“ Þessi orð eru enn í fullu gildi. STÖÐVAST FRYSTIHUSIN? EFTIR ELÍNU PÁEMADÓTTUR UM DAGINN kom fram tiltaga á fundi borgarstjómar um að skák yrði gerð að kennslugrein í skól'Utm landsins. Og borgarfulltrúar virtust sammála um að það yrði Reykvíking um, ef ekki ailri þjóðinni, til bless- unar og var málinu vísað til fræðsliu- ráðs tii frekari athuigunar og fram- kvæmda. Ég reikna með að kveikjan að þess ari hiu.gmynd sé heimsmeistaraeinvíg- ið í skák. En ekki er mér fyllilaga ljóst hvaða fyrirmynd menn hafa í hiuga varðandi uppeldisgildi kennsl- unnar. Hvort menn telja að ialenzkt þjóðfélag hefði gott af nokkrum Fischerum? — Eða kannski bara Spasskýum? Og þá sé keppt af þeím sökum að því að framLeiða nokkra slíika. í Fischer höfum við dæmi um hvernig fóik skákiistin getur alið upp, ef hún verður aðalþáttiurinn í uppvexti þess, og þyrjað er á mótuin- inni nógiu snemma. Ef til vill er það einmitt þetta, sem okkur vantar — svolítið rneira af „Ég-vil-fá“-mönnum eða „Ég-krefst“-fólki til viðþótar. Kannski er heldur enginn að velta fyrir sér hvers konar fólk við viljum alia upp í skólunum eða í þjóðfélaig- inu. Mér datt þetta bara rétt sí svona í hug, vegnia þess að þetta er önnur aðfierð en sú, sem við að jafnaði við- höfum, þegar við innleiðum eitthvað á voru landi. Ef til vi'l! á aðeins eftir að tilnefna fulltrúann eða skipa nefnd ina, sem fer í kynnisferð til Norður- landa. Þessia, sem fer milli skólanna og fær upplýsingar um hve marga fermetna þurfi af húsrými á nemanda til að kienna skák, hve margir nem- endur komi á hvern kennara í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð, hve mikliu fjármaigni sé veitt á nemanda í hverju landa fyrir sig, hve mörgum þvottakoniuim sé þar bætt í skólana o. s. frv. Svo er bara reiknað út með- altaiið í hverjum þætti í öl'lum þesis- um löndum, sem er að sjálísögðu það sem krefjast ber hér. Það er auðvit- að hið rétfca. Svona förum við yfir- ieitt að, þegar við ætlum að fá barna heimili, skóla, ieikvelli og hvað sem er. Þetta er góð og einföld aðferð. — Norðurlöndin eru nærri okkur, nefnd armenn kunna venjufegia skandinav isku, sem veitir meira svigrúm um fuiltrúaval (þó málakumnátta sé ekk ert skilyrði) og þá þarf ekkert að vera að velta fyrir sér markmiðinu. Bara að elta Skandinavíu, hvert sem hún fer. Komist norrænu löndin i ó- göngur á einhverju sviði, þá fylgjumn við bara á eftir nokkrum árum síðar. Og snúuim svo við löngu á eftir þeim. Nú, smúi þær ekki við blaðinu, þurf- um við þess auðvitað ekki heldur. — Viljum við ekki einmitt fá hér ná- kvæma eftirlíkimgu af skandinavísk um iifniaðarháttum og módel af Norð uirliamdafólki — eða hvað? Eitthvað er nú farið að bóla á þvi að þessi lifsmáti með sinum Mfsþæg indakröfum, sem við hér á norður- hveli höfum að leiðarljósi, sé ekki ör- uggasta Iieiðin til lífshamingju fyrir eínstaklinginn eða fyrir heiminn í heild. Kannski mætti stöku sinnum staldra við og velta fyrir sér hverju við eruim að keppa að. Byrja að gera sér grein fyrir markmiðimu áður en tarið er að líkja eftir. Spyrja t.d. hvort það sé nákvæmtoga svona fólk, sem við viljum aia upp, áður en við kópíerum í smáatriðum barnaheimáli, skóla og lífsmáta á heimiliunum. — Heimtufreku velmeigunarþjóðfélögin eru kannski ekki eftir allt saman það, siem við sækj'umst meot eftir? Ef til vilil mætti lita í krimgum sig í heimin um ölium og athuga hvort ekki er ein hvers staðar nýtitog'uir þáttuir, sem mundi líkia henta okkar eigin mark- miði. Betra er að spyrja tvisvar en villiaist einu sinni, seigir enskt mál- tæki. En það flækir l'íklega bara mál- in. Svona er það á Norðurlöndum, svona þiurfum við að fá, er óneitan- lega einfaldarí leið. Og meðan við Mtum ekki eftir neinu öðru, verður þetta líka bezt. Það er það lika sjálf saigt að mörgu leyti. En öðru hverju læðist að manni grunur um að við gæt um kanmski fundið eitthvað nýtileigt fýrir okkur annars staðar eða sett okkur stöku sinnum svolítið annað markmið. Jafnvel orðið á undan að snúa við frá ýmsum þáttum, sem far ið er að bera*á að ekki veita mesta Mfshamingju á þeissum stöðuim. Eða kanmski trúum við því, að við séum eins og fuglinn í dæmisögiunni hans James Thurbers: „Stolt flæmingjamamma, sem þegar haifði komið upp tveimur ungum og gert þá fteyga, varð i fyrstu alveg miður sín en síðan mjög ánægð, þeg ar annar drengiurinn henniar neitaði að yfirgefa hreiðrið og fljúga brott eins og hinir. „Ég hef alið upp stór- kostlegan flæmingja, sem er allt öðru vísi en ailir hinir," sagði mamman. Hann verður mikill söngfugl, fræg- ari en næturgailinn." Svo réð hún næturgala til að kennia syni sínum að syngja, síðan kattfuigi og loks hermikráku. En ungi flæminginn gat ekki lært að syngja meitt annað en „or-honk, or- honk“. Svo mamman sendi eftir fuiglasálfræðinignum dr. Hegra, sem rannsakaði unga flæmingjann ná- kvæmlega. „Þessi flæmingi er flæm- ingi,“ saigði hann við mömmuna. — „Hann kemiur ekki til með að syngja neitt annað en „or-honk, or-honk". Metorðaigjarna miamman trúði ekki þessuim úrsburði dr. Hegra. „Hann verður kannski ekki frægur sömgvari, en hann verðuir frægur eitthvað," saigði hún með festu. „Hann mun koma i stað arnarins á bandarisikia dolilarnuim eða kanarífuiglsins í gyllta búrimu eða kúkúfuigisins í kúkúkliukk ummi. Bíðið bara við!“ „Ég get svo sem beðið eftir því,“ saigði dr. Heigri og beið. En ekkert gerðist. Flæminginn hélt áfram að vera fliæmingi og syngja „or-honk“, eins og hver annar flæmingi. Það var aöt og suimt. Mórallinn í söSunni: Það er eltki hægt að gera neitt úr kökudeigi ann- að en baka köku." Svona er siaigan hans Jamies Thur- bers. Kannski er ekkiert hægt að gera úr mianninuim annað en miann, íslend ingi annað en Isiending eða mannlíf- inu annað en mannlíf. En ætli við ætt- um nú sarnt ekki að reyma að velja markmiðið á undan leiðuinum? Og skoða árangurinn áður en farið er að Mikja eftir aðferðunum? Og ætli það skipti svo mikliu máli að líkt sé ná- kvæmlega eftir í öJtam smáatriðuim, þótt meginstefna sé tekin? Nú er ég víst farin að prédika. Ein hvers sfaðar stendur: Gefið hvorki góð ráð né salt fyrr en um er beðið. Og enginn hefur vist beðið mig um að leysa þennan vanda. Það vair bara tilhugsunin um að við ættaðuim að fara að reyna að aia upp Fischera, sem kom þessum huigleiðinguim af stað. Ég sá sinögigvast í huigiamuim allla litta íslienzku Fischerana í skólanium sagja við við kennarann: — Ég kem ekkert í tíma fyrr en skipt er um lýs- ingú í skólahú.sinu! Og við skólastjór ann: — Ég vil ekki neinn hávaða á leikvellinium fyrir utan meðam ég er að hugsa uim skákina. B'Uirt með alla krakka! Og við borgarstjórann: — Éig vil fá sundliauigarnar í Laugiardail fyr ir mig einan. Og við forsætisráðherr- ann: — Ég tefli ekki í kennslustund nema fá prósentu af freðfiskútflutn- inigi landsins. Og við fjármálaráð- herra: — Það verður að lieggja skák Frarnh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.