Morgunblaðið - 25.08.1972, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1972
"...— 1 11 " ■ ....■ .. - .. "T ' 1 11
23
Jón Arnason
skipstjóri -
Fæddiir 15. september 1886.
Dáinn 21. ágúst 1972.
1 dag verðuir gerð frá Foss-
vog'Skapelílu útför Jóns Árna-
sonar, skipstjóra, Nesvegi 50
hér í bong. Þófct Jón væri bor-
inm og barnfæddur Vestfírðinig-
iuir, liTði hann þó fflest sín mann-
dómsár austur á Seyðisfirði og
var aetíð af Austfirðingum tal-
inn Seyðtfirðingur. Heima á
Seyðisfirði mumiu og mangir nú
sakna vinar í stað. Jón Árnasor.
var maður vörpuilegur, irjáls
mannlegur í framkomu, hýr í
fortaigði og aíúðlegur við alia,
jaifrnt háa sem ilá-ga, enda vin-
mmangur og vinfasfcur um ævina.
Á margra áratuiga farsœi-
iuim ferli hans sem skipstjóra
nutu hinir prýðilegu eðiiskostir
hans sin til fullnustu: Hann var
maður réttsýnn en stjórnsamur
vel, þrautseigur og dugandi sjð-
maðuir, en þó var hugur hans
alla tíð bundinn við heill og hag
áhafna þeinra, sem hann bar
aMa ábyrgð á. Alidrei vildi hann
tefla á tæpasta vaðið á
sijómannaferli siínum, ef öryggi
wndirmianna hans var ann-
ars vegar. Boðorð hans var að
sigla heim heilliu skipi.
Honmm var alla tíð frá unga
aldri niikt í buiga að bjarga sér
áifram í lífinu af eigin duignaði
og eigin ramimleik, en ekki með
uitanaðkomandi hjálp. Þetta var
hinsn gamli íslenzki arfur, sem
hann hafði tekið með sér úr föð
uirhúsum. Hann var trúmaður
aflllla ævi, en fcreysti en/gu að síð-
ur á sjálfs sín rammleik í lifs-
- Minning
baráttunni. Hann var vart kom-
inn af barnsaldri, er hann tók
að vinna fyrir sér hjá vanda-
lausuim, og þá þegar sá hanm
ekki einunigis sjálfum sér far
borða, heldiur styirikti hag fjöl-
skyldu sinmar mieð þvi, sem
hann þanniig vann sér inn hörð-
utm hönduim. Á þessum árum
vann hamn hjá mörgum hús-
bænduim og reyndist þá og æ síð
ar trúr til aíflra starfa og holl-
ur þeim, sem hann vann hverju
sinni. En er hann svo hátt á ní-
ræðisaldri leit að loknum löag-
um vinnudiegi yfir raðir hinna
mörgu, sem hann hafði unnið
með og unnið fyrir, kvað hann
þó Halllgrim Benediktsson, stór-
kaiupmainn, veria sér einna miain
isstæðastan alllira sinna hús-
bænda, sakir sérstaks dreng-
skapar Hallgríms, hjá’.ipsemi
hans og ljúfmennsku alila tíð
meðan þeirra kynni entust.
Rúmiega tvltugur að aldri
kvæhtist Jón Ámason ungri og
glæsilegri stúlku á Seyðisfirði,
Guðfojörgu Guðmundsdóttur, og
stofinuðu þau hjónin heimili þar
í foænum. Alla ævi áleit hann
mieð réttu, að sú kona hefði verið
sú miesta hamingja, sem hann
nokku.rn tímia öðlaðisít, enda
unni hann henni mjöig og virti.
Þótt efnin væru aldrei mikil,
varð heimili þeirra hjóna, jafnt
á Seyðisifflrði og siíðar í Reykja
vík, frá uipphaifd miðdepidil
hinna fjölmörgu viina þeirra
hjóna, sem ætíð voru boðnir vel
komnir með hinni sérstöku ein-
lægu Mýju og þeim rausnar-
skap, sem þeim hjónunum var
Martin Bartels
fyrrv, bankafulltrúi
báðum í bllóð borið. Og bæði
voru þau hjónin boðin og búin
að hjálpa og aðstoða náumga
sina, ef eitthvað bjátaði á, og
þeir eru harla margir orðn
ir, sem standa í mi'kitli ógold-
inni þakkarskuld við þau sæmd
arhjón, Jón Árnason og Guð-
björgu Guðmundsdóttur.
Dlkt og svo marguir, sem á iang
an og striðan starfsdag að bafci,
naut Jón Ámason al'góðmr
heilsu á efri árum, er hann hafði
dregið sig í hié, en um áttræfct
tók heillisu hans þó mjög að
hnigaia, og annaðist þá eigdn-
konia hatis hann af þe'rri elsfcu
legu umhyggju og alúð, sem
henni einni er lagið.
Nú er Jón Arnason skipstjón
farinin á fund feðra sinna,
frænda og vina yflr móðuna
miklu og torræðu, en á endur-
fundi við genigna ástvini sína
trúði hann sfcaðfastlega. Eft
ir stenduir í huigum >g hjörtum
fjöilmargra vina hans um land
afflt óbrotgjöm minning um mæt
an drenigskaparmann.
Einar J. Vilh.jáhnsson.
MARTIN Bartels, fyrrv. banka-
fuliitrúi í Privatbanken í Kaup-
mannahöfn, andaðist að heimili
sinu þar í borg í fyrradag.
Martin Bartels var fæddur i
Keflavík 31. ágúst 1888, sonur
hjónainna H. J. Bartels, verzlun-
arstjóra og síðar kaupmanns í
Reykjavík, og konu hans, Söru f.
Clausen.
Martin Barfcels lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavik 1909 og gerðist þá að-
stoðarmaður í Islandsbanka þar
til 1916, að hamn fór utan til
Kaupmannahafnar og starfaði
sem fulltrúi í Privatbanken til
ársins 1953, að harun lauk starfi
vegna aldurs.
Bartels vann mikið að málum
Islendinga í Dammörku og var
formaður íslendimgafélagsins í
Kaupmannahöfn árin 1926—1945
og einnig formaður byggingar-
íélags íslendimga árin 1945—1955.
Þá var hann og í stjórn Dansk-
Isilandsk-Samfumd og heiðurs-
félagi íslendmga félagsins og
Karlakörs Reykjavíkur.
Martin Bartels var sæmdur ís-
lenzku fálkaorðunni fyrir hin
margvíslegu störf hans í þágu
Islendinga í Danmörku um lanigt
árabil.
Þann 6. ágúst 1918 kvæntist
Martin Bartels eftirlifandi konu
sinni, Elísabetu Arnórsdóttur
(presfcs Árnaisonar i Hvammi í
Laxárdal), og áttu þau eina dótt-
ur barna, Söru, sem gift er og
búsett í Washington D.C.
Hafnarfjörður
Vantar litla íbúð fyrir einhleypa konu. — Upplýsingar í síma
51488 eða 50062.
tnnilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu mér vinsemd og
hlýhug á sjötugsafmæli mínu 12. ágúst sl.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
ÉG var að Iesa bók um sálfræði. Þar rakst ég á þessa skil-
greiningu á þroska: „Það er fúsleikinn til að bíða eftir
launnni.“ Er þetta í samræmi við kristna kenningu?
ÞROSKAÐUR, kristinn maður vinnur ekki verk sin
til þess að hljóta sjálfur laun eða upphefð. Jesús sagði:
„Sérhver sá, er vill verða mikill yðar á meðal, hann
skal vera þjónn yðar“ (Matt. 20,26). Óeigingjöm þjón-
usta við Guð og náungann felur í sér laun og krefst
einskis frekair.
í hinni ágætu bók, Magnificent Obsession, eftir
Lloyd Douglas, segir frá lækni, sem finnur mikla umb-
un í því að gera öðrum gott, og þegar honum eru boð-
in laun, segir hann: „Mér hefur þegar verið launað.“
Ástríkir foreldrar æskja ekki annarra launa en þakk-
lætis af hálfu bama sinna, og jafnvel þótt þeir njóti
þess ekki, halda þau áfram að veita börnunum ást og
umhyggju. Því æðra sem lífið er, því dýpri verður
löngunin til að þjóna. Dýrin lifa í sjálfshyggju. Þau
afla fæðu handa sjáifum sór og lifa fyrir sjálf sig.
Sumir menn lifa á sviði dýranna. Eina hvöt þeirra er
að varðveita sjálfan sig. En sumir menn hefjast upp
fyrir svið dýranna, fyrir trú á Guð og vegna hugar-
farsbreytingar, og þeir bera umhyggju fyrir öðrum.
Þetta er merki um sálarlegan og andlegan þroska,
kristilegan þroska. Lesið ævisögur kristinna mikil-
menna, og þér sjáið þessa siðfræði óeigingirninnar
verða að veruleika. Að sjálfsögðu var Kristur hið
mikla dæmi fullkomnunarinnar. „Þér þekkið náð
Drottins vors Jesús Krists, að hann, þótt ríkur væri,
gjörðist yðar vegna fátækur, til þess að þér auðguð-
uzt af fátækt hans“ (2. Kor. 8,9). Starfið með Kristi,
með elsku og umhyggju gagnvart öðram, og yður mun
verða umbunað. Og þér skuluð ekki þurfa að bíða þess.
Bændur á Norðurlandi
I samvinnu við Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri, og Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósi, efnum við til kynningar á MUELLER mjólkurkæligeymum, sem
hér segir:
AKUREYRI
Sýningarstaður: Véladeild K.E.A. v/Glerárgötu.
Sýningartími: Laugardaginn 26/8. kl. 14—22.
Sunnudaginn 27/8. kl. 9—22.
Mánudaginn 28/8. kl. 9—22.
BLÖNDUÓSI
Sýningarstaður:
Sláturhús K.H., Blönduósi.
Sýningartími: Miðvikudaginn 30/8. kl. 9—22.
Fimmtudaginn 31/8. kl. 8—22.
Föstudaginn 1/9. kl. 9—12.
Sýndar verða tvær gerðir Mueller mjólkurkæligeyma, sem fáanlegir em í mis-
munandi stærðum. Ennfremur Mueller-Matic alsjálfvirka þvottakerfið til
hreinsunar á mjólkurkæligeymum.
Nú þegar eru fleiri hundmð Mueller m jólkurkæligeyma í notkun hjá íslenzk-
um bændum, aðallega á Suður- og Vesturlandi, og víðtæk reynsla er fengin af
notkun þeirra við hérlendar aðstæður.
Sölustjóri okkar verður á sýningunum og veitir hann ítarlegar upplýsingar
um Mueller mjólkurkæligeyma þeim, s em þess óska.
NOTIÐ ÞETTA TÆKIFÆRI TIL ÞESS AÐ KYNNA YÐUR KOSTI MUELLER
MJÓLKURKÆLIGEYMANNA.
DRÁTTARVÉLAR HF.
Suðurlandsbraut 32. — Sími 86 500. Reykjavík.