Morgunblaðið - 31.08.1972, Blaðsíða 4
4
4----
14444S'2555B
BÍLALEIGA
CAR REIMTAL
Tf 21190 21188
RUCLVSinCIIR
£Í*-»22480
HÓPFERÐIR
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—20 farþega bílar.
Kjartan Inginr.a.sson
sími 32716.
FERÐABlLAR HF.
Btlaieiga — sími 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citnoen G. S.
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1972
STAKSTEINAR
Er hann tals-
maður ríkis-
stjórnarinnar?
Blaðaftilltrúi ríkisstjómar-
innar hefur enn einu sinni
vakið á sér athygli með vafa-
sömum og í sumum tilvikum
næsta broslegum yfirlýsing-
um, sem hann hefur síðustu
daga komið á framfæri við
erlenda fjölmiðla. Engum
blöðum þarf um það að fletta,
að slíkar yfirlýsingar eru
mjög óheppilegar og skaðleg-
ar einmitt nú, þegar útfærsla
landhelginnar tekur giidi.
Fréttastofurnar NTB og
Beuter liafa eftir blaðafulltrú
anum, að ríkisstjórnin hafi
metið efni síðustu orðsend-
ingar ríkisstjórnar Bretlands
og komizt að þeirri niður-
stöðu, að Bretar hafi í raun-
inni ekki frekari áliuga á
samningaviðræðum. Blaða-
fiilltrúinn sagði eimiig við
þetta tækifæri að ríkisstjórn-
in liti svo á, að Bretar liefðu
sýnt ókurteisi í svari sínu.
Fréttamaður danska hlaðs-
ins Jyllands-Posten segir m.
a. svo frá í blaði sinu sl.
sunnudag: „„Bandarikjamenn
hafa 126 hermenn á fslandi
— aðrir úr varnarliðinu, sem
skipta þúsiindum, eru njósn-
arar, sem ekki eru hér fs-
lands vegna,“ segir blaðafull-
trúi forsætisráðlierrans,
Hannes Jónsson.“
Blaðafulltrúinn staðliæfir
ennfremur í viðtali við þetta
sama blao, að ákvéðið hafi
verið, að varnarliðið verði
farið héðan 1975, og þá taki
íslendingar sjáifir við rekstri
radar-loranstöðvanna.
Fróðlegt væri að vita hver
afstaða ntanríkisráðherra er
til þeirra málefna, sem bíaða-
fulltrúinn kemur á framfæri
um þessar mundir við erlend-
ar fréttastofnanir. E,- það t. a.
m. skoðun ntanrikisráðherra,
að orðsending Breta tákni, að
þeir liafi ekki frekari áhuga
á viðræðum? Er utanríkisráð
lierrann sömu skoðunar og
blaðafuHtrúinn varðandi dvöl
þúsunda bandarískra njósn-
ara hér á landi? Hefur utan-
ríkisráðherra tekið ákvörðun
um, að varnarliðið verði far-
ið héðan 1975? Hefur utanrík-
isráðlierra ákveðið, að tslend
ingar sjálfir taki við rekstri
radar-loranstöðva varnarliðs-
ins?
1 fyrradag kom blaðafull-
trúinn svo fram í eigin per-
sónu í sænska sjónvarpinu
og sagði, að ríkisstjórnin
myndi leita til Atlantshafs-
bandalagsins. Én ef það yrði
ekki Við óskum fslendinga,
yrði afstaðan til þess endur-
skoðuð. ef brezk lierskip
tefðu gæzlustörf varðskip-
anna innan 50 mílna landhelg
innar. Þetta segir blaðafull-
trúinn, þó að utanríkisráð-
herra hafi margsinnis ítrek-
að, að þetta yrði ekki gert
og hefði raunar aldrei komið
til tals.
Blaðafulltrúinn
stöðvaður af
Fá gerðist það sl. þriðju-
dag, að klaðafuHtirúiiin
skýrði fréttamönnum brezku
sjónvarpsstöðvarinnar BBC
frá afstöðu íslenzku ríkis-
stjörnarinnar í landheigismát
inu. Fessar skýringar blaða-
fulitrúans voru svo rangar og
villandi, að utanríkisráðiineyt
ið varð að stöðva þær. Þó að
það hafi nánast verið tilvilj-
un, að ráðuneytið komst á
snoðir um þetta, tókst þó að
forða enn einu hneykslinu.
Betur væri, að ríkisstjórn-
in tæki þessi mál föstum tök
um og kæmi með öllu í veg
fyrir, að talsmaður hemiar
komi hvað eftir annað villandt
upplýsingum á framfæri við
erlenda fjölmiðla.
Um friðun innfjarða gegn
ofveiði og eyðingu ungfisks
Er það mikilmennska fróðra manna að vilja
ekki fara að ráðum þeirra er af reynslu
hafa hent á staðreyndir
VIÐ, sem komnir erum til efri
ára, erum satt að segja furðu
lostnir á þeim breytingum, sem
orðið hafa á aflabrögðum og
fiskgengd á innfjörðum norðan-
lands. Að nokkru leyti teljum
við þetta af mannavöldum gert,
og segjum svokallaða dragnóta-
veiði aðalskaðvald, af því að nú
fæst ekki lengur bein úr sjó, fyrr
en úti í hafsauga, eins og trillu-
og smábátasjómenn segja.
Skagafjörður og Eyjafjörður
voru fullir af uppvaxandi smá-
fisiki og smásiild, jafnvel var
smáýsa og smáfiskur í torfum
upp í landsteinum. Hann eftir-
sótti koli var mikill, og þeir
sem vitrir voru töldu hann í
mörgum lögurn. „Sumir töldu að
öll þessi verðmæti þyrfti að
nytja sjómönnum til bjargar, og
því var skorin upp herör og mik-
ill áróður hafður uppi til að
leyfa dragnótaveiðd á innfjörðum
og smásiildarveiði hvar sem til
náðist. Jú þetta var auðvitað
leyft og vissulega fengu nokkrir
menn af þessu góðar tekjur
fyrst í stað.
En Adam var elcki lengi i
Paradís. Eftir stuttan tíma fór
að draga úr veiði. Línu- og faera-
bátar þurftu að mestu að hætta
veiðum, triillubátaútgerð lagðist
að mestu niður, en af þeirri út-
gerð hafði margur fengið góðar
nytjar. Það varð ördeyða á inn-
fjörðum. Þá fóru menm að hugsa.
Dragnótaveiði var bönnuð nokk-
ur ár, og eftir nokkurn tima fór
fiskur aftur að sækja og hafa
viðdvöl á gömlum slóðum. Allt
virtist vera að færast í sama
horf og áður með handfæra- og
línuveiði á innfjarðamiðum.
Sýnilega voru þar uppeldis-
stöðvar.
Nú byrjaði sarni hamagangur
og áður um að opna fyriir drag-
nótaveiði. Þær voru aftur leyfð-
ar, að ráði fiskifræðinga, að sagt
var og til að bjarga útgerðiinni.
Og ennþá er þessi veiðiaðferð
leyfð frá 15. júlí sumar hvert,
einmitt þegar mest von er til að
fiskur gangi á inmfirði.
Orðið hefir vart við fiskgöng-
ur irm á fiirði, en bæði er að
aliur fiskur er uppurinn um leið
og hans verður vart og kanmski
eins mikið fælt burtu, — botninn
er skafinn, svo að fiskur tollir
þar eklci á, alveg eins og fénaður
sem hleypur yfir gjörónýtt land.
Varðandi eyðimgu smáfiska er
sannanlegt, að femgizt hafa full-
ar vörpur af smáýsu og þorsk-
seiðurn, sem sleppt hefir verið
dauðu og hálfdauðu. Stundum
hefur verið veitt á svo grunnum
sjó, að bátar hafa næstum tekið
ndðri. Glöggir menn á Dalvík
hafa sagt mér, að þar hafi sézt
hrannir a*f smáseiðum á fjömum
eftir að dragnótahátar hafa verið
þar að verki. Hvað mætti ekki
segja um smásíldveiðima á inn-
hluta Eyjafjarðar og víða, þegar
hún var leyfð. Nú hafa augu
mararn opnazt fyrir, að þar voru
uppeldiisstöðvar, sem ekki mátti
eyðiileggja, en bara of seint at-
hugað. Og hvað um mörgu kola-
lögin sem áttu að vera í botnd
og nauðsyn þótti að minnka, nú
verður varla vart við kola þó net
séu lögð. Allt er uppurið.
Einstaklingshagnaður á stutt-
um tíma hefir oft orðið dýr-
keyptur þjóðinni, og er í þessu
tilviki reynsla fengin. Við erum
að jafrtaði sofandi á verði. Þó
nóg sé skrafað marina á millum
um eyðiileggimgu fiskstofna og
þjóðin sé nú einhuga um liand-
helgisvarnir gegrn ofveiði, þá er
ekki nógu mikill samhugur urn
RÆS RÆS heitir blað, sem Sam-
band bindindisfélaga í skólum
hefur gefið út í tilefni 40 ára af-
mælis sambandsins. Blaðið er
gefið út í 30,00 eintökum og
verður dreift i hús út um allt
Iand. Samtökin sjáif kosta útgáf-
nna, ank þess sem ýmis fyrir-
tæki og stofnanir hafa veitt
þeim fjárhagsaðstoð.
Blaðið er 16 síður otg fjalilar
um áfenigisvandamáj} ungs fólks
og ýmsa æstouilýð'sstairfseimi.
Meðal anmars má nefna „Skugga
verndun þess, sem upp eir að
vaxa við okkar eigið nef. Jafnvel
að ráði fiski'fræðiinga er mér
sagt að dragnótaveiði sé leyfð.
Þessir lærðu menm geta stund-
um alls ekki viðurkennt vegna
sinis miikla lærdóms þau ráð og
reynslu, sem ólærðir menn með
reynslu og kunnugleika ráða
yfir. Á þessu sviði og mörgum
öðrunri í athafnalifi okkiar stang-
ast á reynsla, kunnugleiki, at-
hygli og bóklegur fróðleikur
sérfræðinga, sem vitanlega eru
margra góðra hluta makiegir og
gera vitarnlega margt vel.
Ég veit að krafa eins man.ns
um að ennþá sé gerð ein ti’iraun
með að loka algjörlega innfjörð-
um hér norðamlands fyrir of-
veiði ungviða yrði studd undiir-
skriftum og áskorum almenn-
ings. Ef kannað yrði kæmi i ljós
að þar stæði fjöldshm að baki
þessum orðum. en eins og fyrr
segir erum við oft sofandi og
framtaksMtil jafnvel þó um stór-
hliðar næturinnar í Reykjaviík“,
„6000 ofdrykkjumenn á íslandi“,
„Lífið var vonlaust, því fyrsti
sjússinn vatt stöðugt upp á
sig“, sem óneíndur alkóhólisti
skrifar, „í Hrönn gera allir eitt-
hvað“ og „Hvað er Æskulýðs-
ráð“.
Efni biaösins er að langmestu
leyti unnið af sitjórnarmönn.um
samibanidsins sjálfum, en ritstjóri
blaðisins er, Tryggvi Gunnarsson,
17 ára igamalll og formiaður sam-,
bandsins, Einar Jónsson, sem er
15 ára.
mál sé að ræða.
B.jörn 1 Bæ.
RÆS RÆS
Riti um áfengismál dreift
Kaupmannahðfn
þriðjudaga
miðvikudaga
. fimmtudaga
| sunnudaga i
Glasgowi
laugardaga
Stokkhólmur
mánudaga
föstudaga
Luxemborg
alla daga
Osló
mánudaga
miðvlkudaga
föstudaga
Beinn sími í farskrárdeild 25100
Einnig farpantanir og upplýsingar hjá ferðaskrifstofunum
Landsýn simi 22890 - Ferðaskrifstofa rikisins simi 11540 - Sunna simi 25060 - Feróaskrifstota
Úlfars Jacoþsen sími I3499 - Úrvat stmi 26900 - Útsýn simi 20100 - Zoéga simi 25544
Ferðaskrifstofa Akureyrar stmi 11475
Auk þess hjá umboðsmönnum
um altt land
10FTIEIÐIR