Morgunblaðið - 01.09.1972, Síða 10

Morgunblaðið - 01.09.1972, Síða 10
MORUUWBÍ,A£>iÐ, FOSTUDAUUK 1. SUK'i'UMBKK 1972 1U Jón Jónsson, Davið Ól- afsson og Hans G. And- ersen ræðast við í Genf 1958. Þeir sátu báðar ráðstefnurnar. Ráðstefnurnar í Genf styrktu aðstöðu íslands Hans G. Andersen flytur ræðu á fundi iandhelgisnefndarinnar á ráðstefnunni 1958. ÍSLENDINGAR hafa jafnan reynt að efla skilning ann- arra þjóða á mikilvægi fisk- veiðilandhelginnar. Á al- þjóðaráðstefmmum í Genf 1958 og 1960 unnu íslend- ingar að því að fá rétt sinn viðurkenndan. Á hvorugri ráðstefnunni tókst þó að setja ákveðnar reglur um víðáttu landhefginnar. Engu að síður voru þessar ráð- stefnur mikilvægar í bar áttu íslands og hafa styrkt stöðu okkar á alþjóðavett- vangi. Á aUsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1949 var samþvkkt að fela aiþjóða laganefndinni, sem þá var nýstofnuð, að framkvæma heildarathugun á réttarreglum, sem gilda skyldu á úthafinu. tslendingar lögðu til, að þessi könnun næði einn- ig til réttarreglna um land- helgi. Þessi tillaga íslands náði fram að ganga, þrátt fyrir kröftuga andstöðu margra þjóða. Skýrsla alþjóða laganefndar- innar var lögð fyrir allsherjar þingið 1956. Málið þótti þá svo umfangsmikið og flókið, að ákveðið var að kalla saman sér staka alþjóðaráðstefnu, sem tæki til meðferðar réttarregl- urnar á hafinu O'g víðáttu land helginnar. Island greiddi eitt ríkja atkvæði gegn því, að þesssi ráðstefna yrði haldin. ís lendingar vildu hins vegar, að allsherjarþingið fjallaði sjálft um málið. Sú málaleitan fékk ekki hljómgrunn. Alþjóðaráðstefnan um rétt- arreglur á hafinu kom síðan saman í Genf 24. febrúar 1958 og stóð til aprílioka. Ráðstefn- una sóttu fulltrúar 87 ríkja. Tillögur alþjóðalaganefndar- arinnar um réttarreglur á höf- unum voru lagðar fyrir Genfar ráðstefnuna. Tillögur nefndar- innar skiptust i fimm megin- þætti og voru kosnar fimm nefndir á ráðstefnunni til þess að fjalla um hvern þessara þátta. Fyrsta nefndin fjallaði um landhelgina og stærð hennar. ö.. ur nefndin fjallaði um sigl- ingafrelsi og réttarreglur á út- höfunum. Þriðja nefndin tók til meðferðar fiskveiðar og frið unaraðgerð'r. Störf þessarar nefndar voru mikilvæg fyrir ís land, þar sem hún fjallaði um friðunarráðstafanir utan fisk- veiðilögsögu ríkja. Fjórða nefndin fékk til athugunar landgrunnið og réttindi yfir auðæfum þess. Fiimmita nefnd- in fjallaði síðan um reglur um aðgamg að hafinu fyrir þau ríki, sem ekki eiga land að sjó. Fulltrúar íslands á ráðstefn- unni voru Hans G. Andersen, sem var formaður sendinefnd- arinnar, og Davið Ólafsson, þá- verandi fiskimálastjóri, og Jón Jónsson, fiskifræðingur. Ráð- herrarnir Guðmundur 1 Guð- mundsson og Lúðvík Jósefs son sátu ráðstefnuna fyrstu dagana. Islendingar lögðu megin- áherzlu á þrjá þætti: réttinn yfir landgrunninu, stærð land- helginnar og friðunarráðstafan ir utan landhelginnar. AIJÐÆFI LANDGRUNNSINS Íslendingar lögðu áherzlu á að fiskurinn yrði talinn til auð æfa landgrunnsins, og studdu þeir tiíllögu Burma um það efni. Þessi sjónarmið nutu þó lítils fylgis á ráðstefnunmi. Jón Jónsson var aðal talismaður ís- lands um þessi efni og rök- studdi hann, að fiskurinn væri mjög háður botninum um öll lifsskiíyrði sín og veiðar færu að mestu leyti fram við botn- inn eða á honum. Ráðstefnan féllst ekki á þessa skýringu en samþykkti, að strandriki hefði rétt til vinnslu á oldu og kolum á land grunnssvæðinu, svo og til skel fisiks, er lægi á botninum. FRIÐUNARRÁÐSTAFANIR UTAN LANDIIELUI Davíð Ólafsison var helzti talsmaður íslands í þeirri nefnd, er tck fiskifr i ðumarmál- in til meðferðar. Islendingar lögðu mikla áherzlu á viðtæk- an rétt strandrikja til friðunar aðgerða utan landhelginnar. Nefndin samþykkti í upphafi breytingartillögu Daviðs Ólafs sonar um all víðtækan rétt strandríkja í þessum efnum. Þessi tiltaga mætti mikilli and- spymu fulltrúa Breta. Siðar var fellt inn í hana ákvæði um gerðardóm, ef til ágreinings kæmi. Á allsherjiarfundi ráðstefn- unnar fékk þessi tillaga Is- lands meirihluta atkvæða, en fékk þó ekki tilskilinn meiri- hluta, 2/3 hluta, þannig að hún náði ekki fram að ganga. Ráðstefnan samþykkti hins vegar mótatkvæðalaust mála miðlunartillögu frá Suður-Afr- iku, sem ekki var eins víðtæk og ísilenzlka til'Jagan. En með þeirri samþykkt fékkst við urkenning á forgangsrétti strandrlkja til friðunaraðgerða á svæðum utan landhelginnar sjálfrar. Samþykktin var talin mjög þýðingarmikil fyrir mál- stað Islendinga. VÍÐÁTTA LANDHELGINNAR Island átti vitaskuld mestra hagsmuna að gæta varðandi viðáttu landhelginnar. Um það efni urðu einnig mestar umræð ur og deilur á ráðstefnunni. Fjölmargar og flóknar tillögur komu fram um víðáttu land helginnar auk þeirra tillagna, sem alþjóða laganefndin setti fram, en þær fólu í sér reglur um 3ja til 12 milna fiskveiðilög- sögu. I lok marz bar fulltrúi Kan- ada fram tillögu um 3 sjómilna landhelgi og 12 sjómílna fisk- veiðilögsögu. Bretar breyttu þá fyrri afstöðu sinni og lögðu til, að landhetgin skyldi miðast við 6 mílur. Sagt var, að þá hafi Manningham Buller, fulltrúi Útgerðarmenn - skipstjórar LOÐNU FLOT TROLL 0G LODNUNÆTUR getum við afgreitt enn fyrir næstu vertíð. Fiski-, humar- og rækjutroll, ætíð með stuttum fyrirvara. ATHUGIÐ flot-troll eru framtíðin. Netogerðin INGÓLFUR, Vestmnnnaeyjum sími 98-1235 og 1309, heima 1230, símar verkstjóra 2335 og 2355. Vélsmiðjan MAGNI Vestmannaeyjum Önnumst allar véla- og stáiskipaviðgerðir. Ennfreniur allskonar járn- og málmsmíðavinnu. Nær 40 ára reynsla. VÉLSMIÐJA PLÖTUSMIÐJA JÁRNVÖRUVERZLUN Vélsmiðjan MAGNI, pósthólf 136, Vestmannaeyjum. Einkaskrifstofa, sínii 2288. Skrifstofa, sími 2238. Vélaverkstæði, sími 2235. Plötusmiðja, sími 2236. Verzlun ,sími 1488.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.