Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 20

Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 20
20 MORGUXBLAÐÍÐ, EÖSTUDAGUR 1. SEP’TEMBER 1972 Á þessari mynd, sem tckin ejr úr Rán, flugrvél landhelg-isg-æzlunnar, sést hvar hradbáturinn Elding liggur utan á brezka togacanum Northern Queen í septesmix'r 1960. Varðskipið í»ór liggur skammt frá. Myndin e.r tekin skömmu eftir að varðskipsmenn fóru um borð í togarann. enda var ég sá eini, sem mundi miðið fyrir utan Sigurð, seim skrifaði það strax hjá sér. Skipstjórinn og stýrimaður- inn voru nú mjög dasaðir og bærðu ekki á sér. Þeirra var samt vel gætt. Skipshöfnin var farin undir dekk. Við vorum búnir að fara illa með margan manninn, en þeir fundu, að við höfðum yfirhöndina og vorum harðir og illvígir, enda sáum við það strax, að annað þýddi ekki. Ein-u sinni, þegar bardaginn stóð sem hæst, þóttist einn ætla ! að fara að skjóta. Ég rauk á | hann niðri á dekki og sneri byss j una af honum og henti henni 1 svo langt sem ég gat út í sjó. ! Ekki vissi ég hvort byssan var ! að gagni eða hvort nokkuð var í henni, en það var byssa, svo mikið var víst. Sigurður ráðgast nú við okk- ur um, hvort ekki sé réft að senda vélbátinn heim, sem hafði komið í humátt á eftir okkur, til að sækja vélamann, svo að við gætum komið skipinu heim, og taka sýslumanninn með, ef hann vildi koma. Báturinn fór svo heim. Engin týra var enn á skipínu og við með skipstjór- ann og stýrimanninn í ha'ldi. Skipið lá undir flötu. Við áttum von á árás í myrkrinu þá og þegar og bjuggumsit eins vel við að þeir væru að taka sig samán nm þriðju árásína, en hún kom aldrei. SVO KOMU ÞEIR EOKS AO HEIMAN Svo komu þeir loks að heim- an á tveimur bátum, og þá voru með þeim margir menn og meðal þeirra sýslumaðurinn, Alexand- er Jóhannesson og Hannes lóðs. Sýslumaður biður okkur fjóra að koma með sér inn í korta- klefann til skipstjórans. Þess þurfti auðvitað ekki, þótt við færum með, það dugði alveg elns, að Sigurður færi elnn. I»á stendur skipstjórinn upp, stapp ar niður fótunum og verður al- veg hamslaus af bræði og segir, að hann hafi þar ekkert að gera og ber hnefanuim niður 1 borðið, og segir að við megum fara svo sem hann ákveður. — Sýslumað- urinn segir, að búið sé að kæra hann aftur og aftur fyrir land- helgisbrot og það þýðl enginn mótþrói. „Ég er hér með mann, sem getur farið með vélina, og lóðs til að stýra skipinu, og ef þú vilt ekki vera góður, læt ég binda þig, þvi að ég er kom- inn hér með marga menn." Þá gaf hann sig og gaf fyrirskip- un niður í vélarrúmið um að halda af stað, og stýrimaðurinn stýrði skipinu heim, en skipstjór inn Eeygði sér niður á bekkinn. Nú loks voru ljósin kveikt. Þegar á Víkina kom, voru skip stjóri og stýrimaður tieknir í land, en við vorum fjórir skild- ir eftir um borð í skipinu tii að vakta það. Við höfðum ekki fengið vott né þurrt, frá þvi að við lögð- um af stað, og fór ég niður, þar sem skipshöfnin var að drekka te. Ég tók tveggja króna silfur- pening upp úr vasa mínum og ætlaði að vita, hvort þeir vildu ekki selja mér brauðbita og te sopa, en þeir hundsuðu mig. Ég mátti líka vita það, þvi að það gat verið einn af þeim, sem ég hafði lent í. Siigurður fór í land og var nókkuð lengi í burtu. Hann kom svo um borð aftur, og hafði hann þá verið í réttarhö!dun- um. S’kipstjórinn þrætti lengi og sagðiist ekki hafa verið í land hedgi. Sigurður ságði, að við hefðum tekið miðin og að þeir væru tílibúnir að sverja. Sigurður tók mig með sér i land og sagði, að ég yrði að mæta fyrir réttinum og sagðí, að ég skyMi ekkert vera hrædd ur við innbrotið, hann skyldi sjá um það. Skipstjórinn þræfti svo og þrætti fyrir, að hann hefði ver- ið þar, sem við sögðum, og hélt því fram, að hann hefði verið dýpra. Sigurður sagði, að það væri rétt, að þeir færu þangað aftur, sem þeir tóku skipið, og bentu honum á miðin, því að hann þóttist ekkert vita um þau. En þegar til kom og við vorum komnir alskinnklæddir niður á hryggju, gaf hann sig og játaði, að það myndi allt vera satt, sem við sögðum. Svo var öllum fiskinum skip- að upp úr skipinu, en það var fuiit af fiski og öllum veiðar- færuntim, að haldið var. En Jít- íð kom fram af veiðarfærum. Þá kemur Sigurður og segir: „Eig- um við ekki að leita neðar?“ "En þar fundum við svo spón- húsaný veiðarfæri. Þeir voru ekki viljugir að rétta okkur krókinn til aS hala þetta upp, sem þeiir ætluðu að stinga und- an. f>eir urðu þó að gera það og hlfa það upp sjálfir. Sigurður var stífur að taka af þeim hverja einustu vitund. Og rétt- ast hefði verið að taka af þeim skipið líka, þvi að þeir voru búnir að eyðileggja svo mikið og settu í blöðin á eftir, að við hefðum verið sjórændngjar," bætti Magnús við. SJÖORUSTAN VI» VESTM A N N AEYJAR Þorsteinn Gíslason skáld og ritisitjóri orti um þennan togara siag gamanbrag, sem hann nefndi Sjóorustu við Vestmanna eyjar: Þeir Eyjaimenn, þeir eru sagðir knáir, og eru lika' að vexti fæstir smáir, en flestir eins og risar sterkir og stórir, en sterkastur er þó hreppstjórinn því honum velta engir f jórir. Or Eyjum eru sagðar margar sögur. Og svo er líka náttúran þar fðgur, að Ásgrímur með alla sdna liti fær aMrei sýnt þá litardýrð er morgungeislinn á Mettaþiljurrum leikur i IugladritL En sjóræningjar sjást þar oft I Eyjum á sótspúaaidi, harðbrunandi fleyj uim, versta safn af svolurn úr öllum löndum, og sýslumönnum hafa þeir rænt og gert svo margan óskunda hér meö okkar ströndum. Á þessu vori segir frá þvi saga, einn svalan morgun, þegar för að daga, Eyjamenn einn sjóræningja sáu. Þeir söfnuðu liði, kyntu vélbátana, vopnuðust og flögguðu með bláu. Og yf irvaldið steig upp á háa þúfu og af sér tók þar borðalagða húfu og setti hana' á Sigurð þann hinn stóra, sjógarp mikinn, hreppstjórann, sem leggur hverja fjóra. Og yfirvaldið til orða tók og sagði: Lögtaksúrskurður í dag var kveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir eftirtöldum gjaldföllnum og ógreiddum gjöldum ársins 1972 o. fl.: Tekjuskattur, eignarskattur, slysatryggingargjald vegna heimilisstarfa, kirkju- gjald, kírkjugarðsgjald, slysatrygginga- og lífeyris- tryggingagjöld atvinnurekenda samkvæmit 36. og 25. gr. almenna tryggingalaga nmer 67/1971, at- vinnuleysistryggingaiðgjald, launa&kattur, almenn- ur og sérstakur, iðnaðargjald, iðnlánasjóðsgjald, skemmtanaskattur, miðagjald, bifreiðaskattur, skoðunargjald ökutækja, skipaskoðunargjald, lesta- og vitagjöld, vörugjald af inmlendri framleiðfe'lu, matvælaeftirlitsgi ald, gjaldfallinn söluskattur og söluskattshækkanir, skipulagsgjald, vélaeftirlits- gjald, rafmagnseftirlitsgjald, skattsektir til ríkis- sjóðs og tekjuskattshækkanir. Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamit dráttarvöxtum og lögtakskostnaði verða látin fara fram að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, án frekari fyrirvara verði þáu eigi greidd innan þess tíma. Bæjarfógetiiin í Keflavík 30. ágúst 1972. Alfreð Gíslason. Fiskiskip til sölu Hef til sölu stálfiskiskip 100—300—305 brt., einnig 6—7%—10—15—29—30—35—39—45—50—75 brt. tréfiskiskip. ÞORFINNUR EGILSSON, héraðsd óm slögniaðu r, Austurstræti 14, sími 21920—22628.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.