Morgunblaðið - 15.09.1972, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.09.1972, Blaðsíða 5
Gólftex Athugið hvað hægt er að ná langt með efnum frá Bayer. Létt að leggja - varir lengi. Eruð þér að hugsa um efni á gólfið? Lausnin er Gólftex,byggt á Desmodur/Desmophen. Stöðugt eru gerðar meiri og meiri krdfur til endingar gólfefna í verksmiðjur og vöru- afgreiðslur, sömuleiðis heima í þvotttahús- inu, ganginum eða bílskúrnum. Það er ekki einungis ániðsla- farartaekja, sem gólfin þurfa að þola, heldur alls-konar kemisk efni, sem eyðileggja gólfin á örs- kömmum tíma ef ekkert er að gert. Venju- leg óvarin steingólf þola litla áníðslu og venjuleg málning er skammgóður vermir. Oft verða framleiðslutafir og óþægindi ( sambandi við viðhald á gólfum. bað er þess vegna peningana virði að gan- ga vel frá gólfunum í upphafi. Efnaverksmiðjan Sjöfn, á Akureyri, hefir nú tekið þetta vandamál fyrir, og hefir eftir ótal tilraunir komið fram með efni sem uppfyllir þær kröfur sem gera verður til slikra gólfa í dag. Þetta efni nefnist GÖLFTEX, og er að mestu byggt á Polyurethan- efninu DESMODUR/DESMOPHEN, sem er frábært að slitþoli og þolir flest upplaus- narmeðul, lút og sýrur. Úr efunum DESMODUR og DESMOPHEN, frá BAYER, hefir Efnaverksmiðjan Sjöfn nú í tæp 3 ár framteitt gólflagningarefnið GÓLFTEX, sem hefir verið notað ( verks- miðjum með mjög góðum árangri, en auk þess í heimahúsum og víðar þar sem GÓLFTEX skreytt með plastflögum í ótal litum prýðir gólf í baðherbergjum, þvotta- húsum, göngum, bílskúrum, já jafnval á skurðstofum sjúkrahúsanna. Ef þið þurfið slitsterkt efni á gólf í verk- smiðju, vörulager eða heima hjá yður, þá hafið samband við okkur. Athugið að GÓLFTEX-lagninguna er hægt að framkvæma yfir eina helgi. GÓLFTEX þolir: Þrýsting 1000 kp/cm2 - - Beygju 350 kp/cm2 - Fjöðrunarstöðull 85000 kp/cm2 Efnaverksmiðjan Sjöfn, Akureyri, sími (96)21400, Vörulager í Reykjavik, Hringbraut 119, sími (91)17045. polyu nolhan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.