Morgunblaðið - 26.11.1972, Síða 13
MOPU3UNBL.AÐJÐ, SUNINUDAGUíR 26. NÓVEMBER 1972
41
Um aldamótin var leikin
hornamúsik og haldin flug-
eldasýning skautafólki til
skemmtunar á Tjörninni
Aðstaða til iðkunar skauta-
íþróttar er að batna í borginni
Tjörnin um aldamótin.
laun voru veitt og afhenti þau
íormaður félagsins dr. Björn
Bjarnason. Var þó nokkur við-
höfn við afhendinguna og síð-
an var dansað á skautum um
ikvöldið, „tvenn friggjara-
spor og þaðan farin armganga
hringinn í kring um skeiðsvell-
ið“.
Upp frá þessu efndi félagið
allreglulega til keppni á Tjöm-
inni, og voru skautafarir iðkað-
ar talsvert. Þegar félagið flyt-
ur sivo starfsemi sína upp á
gamia Melavöllinn árið 1911, er
enn mikil gróska í skautaferð-
um almennings, en keppnir
faltla þá að mestu niður um hríð.
Geta má þess að á þeim árum
sem starfsemi Skautafélags
Reykjavíkur stóð með hvað
mestum blóma voru ýmsdr þekkt
ir menn þar í fararbroddi. Dr.
Bjöm Bjarnason hefur verið
nefndur, síðan tók Ólafur
Björnsson, ritstjóri við for-
mennsku, HaMigrímur Benedikts
son var lengi i stjóm þess, Ingi
björg Brands gegndi svo for-
mennsku um hríð, en eftir að
hún hætti árið 1927 má segja að
starfsemi félagsins legðist al-
veg niður um hríð.
Reynt var að endurvekja fé
lagið fimm árurn síðar fyrir for-
göngu Benedikts G. Waage, en
reyndar var það ekki fyrr en
sex árum síðar, að sú endur-
vakning tökst fyrir alvöru. Þá
varð Kristján Árnason formað-
ur, en síðan Katrin Viðar í fjór-
tán ár og dafnaði félagið ágæt-
lega undir forystu hennar.
Nokkur lægð kom síðan i starf-
semi þess, en hún hefur verið
að lifna við að nýju og tók sér-
stakiega fjörkipp við tilkomu
Skautahall'arinnar, meðan hún
var og hét. Formaður nú er
Ágúst B. Karlsson og ræddum
við lítiiiega við hann um stavf-
ið.
— Við erum í rauninni mál-
svarar hins almenna borgara,
og einkum og sér í lagi barn-
anna, sem mest iðka skauta-
iþróttina, sagði Ágúst. Iþróttin
hefur þvi miður um nokkur ár
ekki fengið hljómigrunn hjá for-
svarsmönnum, en ánægjuleg
breyting hefur á orðið á síðari ár
um. Nú hefur Gislí Halldórsson,
forseti ISl tjáð okkur, að við
getum vænzt þess, að vélfryst
skautasvell verði tekið í notk-
un við hláð Laugardalsh'allllar-
innar næsta haust. Tjömin hef-
ur um áratuga skeið verið
helzta athvarf áhugamanna um
þessa iþrótt, en hún er um sumt
óheppileg, m.a. vegna þess hve
miklu heitu vatni er veitt í
hana vegna andanna blessaðra.
Svell hefur verið á Melaveliin-
um árum saman, en það hefur
ekki verið jafn mikið sótt og
Tjörnin. Þar hefur þó dáiítið
verið æft íshokkí og nefna má
að erlendur sölumaður, sem
dvaldi á Hótel' Sögu í fyrra og
varð litið út um gluggann sinn,
kom þá auga á Ishokkívölilinn
okkar og ákvað samstundis að
beita sér fyrir því að fyrirtæki
hans gæfi bikar til að keppa um
í íshokkí. Af því hefur ekki orð
ið enn, því miður, en verðiauna-
gripurinn er hinn veglegasti.
Við gengum á sínum tíma á
fund borgarstjóra og í samráði
við borgina og íþróttafélögin
er verið að leggja síðustu hönd
á sveM í Efra Breiðholti. Þá höf
um við og hug á að koma upp
svelli sunrian Álftamýrarskóla.
—• En nú er skautaiðkun ekki
í tizku meðal fullorðinna eins
og í gamla skautafélaginu.
Hvecni’g ætli standi nú á því,
Ágúst?
— Ekki get ég gert mér fulla
grein fyrir því. Gæti verið um
einhverja spéhræðslu að ræða?
Ég heyrði um eina erlenda
sendiherrafrú, sem hafði gaman
af þvi að bregða sér á skauta
og eftir það sáust margar frúr
á skautum uim hríð. En annars
er þetta einhvers konar áhuga-
leysi fullorðna fólksins. Aftur á
móti dregur aldrei úr áhuganum
hjá börnunum og og fyrst og
fremst reynir féliagið að vinna
fyrir þau, þar sem þau hafa
engan málsvara. Yfirvöldin hafa
stuðlað að útilífi fjarri bænum,
sem bílaeigendur geta stundað,
en sikautaíþróttin hefur orðið
dálítið út undan. En vonandi er
að rsetast úr þessu núna.
Við ætlum lika að reyna að
halda upp kennslu á þeim svæð
um, sem ég hef nefnt. Kennsla
hefur engdn verið síðan við vor-
um i Skautahöllinni. Við reyn-
um að auglýsa þetta upp og
geta má þess, að aðstaðan á
Melavellinum er ágæt og fyrir-
greiðsla vaMarstjóra Baldurs
Jónssonar hefur jafnan verið til
fyrirmyndar.
Skautaiðkun er áreiðaniega
með hoilari ' iþróttum. Það er
gott að börn og unglingar hafi
áhuga á henni, en það þyrfti
einnig að hvetja fullorðna fólk-
ið til að taka þátt í þeirri
hollustu, sem iðkun skauta-
iþróttar býður upp á.
h.k.
Þátttakendur i fyrsta kappmóti á skautnm í Reykjavík í janúar
1909.
Hópmynd úr afmælishófi Skaut ifélagsins árið 1911.
Breiðfirðingur - Rongæingar
Skemmtun verður haldin í Lindarbæ föstudaginn 1.
desember kl. 21.
Sýndar verða myndir og að bví loknu stiginn dans.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefndin.
Rýmingarsala
VERZLUNIN HÆTTIR -
ALLT Á AD SELJAST
30-60% afsláttur á öllum vörum
Tízkuverzlunin HÉLA
Laugavegi 31.
PANTIÐ JÓLAKORTIN SEM FYRST.
LJÓSMYN DASTOFAN /%
Laugavegi 13, sími 17707./'!.—
4