Morgunblaðið - 26.11.1972, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2G. NÓVEMBER 1972
47
Austfirðir
svell og
vélsleðar
Það or bið öð viti togbrautína fyrir austan oins og annars staðar.
» « • »»
■
L.....rv. .......................
Vélslrðar oru vinsælir á Austurlandi og á Egilsstöðum fór frani fyrsta vélsleðakcppnin á íslandi
Á Egilsstöðum er útilíf nokk-
uð stundað og má þar fyrst telja
hestamennsku sem færist í vöxt
með hverju árinu og má oft sjá
hestamenn fjölmenna á útreiðar-
túrum á kvöldin eftir vinnu.
Jafnt karla sem konur.
Trimm er ekki stundað áber-
andi en þó má sjá menn spretta
úr spori snemma á morgnana og
fá sér hreint loft í lungun áður
en setzt er á skrifsitofuna. Oti-
íþróttir eru stundaðar á sumrin
svo sem knattspyrna o.fi. en það
hefur háð Egilsstöðum að iþrótta
völlur hefur ekki verið tekinn
í notkun ennþá, en hann má heita
fullgerður og verður hann mikil
lyftistönig fyrir iþróttirnar
þegar hann verður tekinn i notk-
un. Skíðaáhugi hefur verið mik-
ill síðustu árin, enda skíðabrekk
ur góðar, bæði inni á Fagradal
þar sem skíðafélagið á skála, og
í Fjarðarheiði og hafa stundum
verið tva?r skíðalyftur í gangi
fyrir Earilsistaðaibúa. Síðaistl'iðinn
vetur brást þö snjórinn okkur
svo minna varð úr skiðaiðkun-
um en efni stóðu til.
Fyrir skömmu voru keypt-
ar nokkrar skíðalyftur hér á
Austurlandi og eru flest þéttbýl-
issvæði búin að koma sér upp
einhverri aðstöðu til skíðaiðk-
ana.
Þorvaldur Jóhannsson iþrótta-
kennari á Seyðisfirði tjáði frétta
manni Mbl. að fyrir lægi hjá
Seyöfirðingum að flytja upp að
að skíðaskálanum þar dieselraf-
stöð sem nægja mundi til að lýsa
upp skálann, knýjia skíðalyftuna
og lýsa upp alla skíðabrekkuna
en þar sem skiðaskáli Seyðfirð-
inga stendur er mjög ákjósanlegt
skíðaland, og sagði Þorvaldur
að Seyðfirðingar væru farnir að
þurrka sumarrykið af skíðaút-
búnaðinum.
Nokkuð er af vélsleðum
á Héraði og ber þess að geta
að á vegum skíðafélags Egils-
staða mun hafa farið fram eina
keppni á véls'leðum hér á landi
þar sem veittir voru verðlauna-
peningar fyrir beztan árangur i
aksiturshæfni á vélsleðum.
Einnig haifa ævintýramenn tek
ið sig til og farið á vélsleðum
inn um öll öræfi á vetrum og
g’st í sæ'.fuihúsum inni við jökla
en þá er betra að vera vei og
hlýlega klæddur því gustað get-
ur hryssingslega um ferðamenn
þegar vindur stendur af jöklum.
Annars er almenningur orðinn
svo háður bifreiðum að fáir
leggja það á sig að ganga á milli
húsa innan þéttbýlisstaða og
þegar farið er að ferðast út um
landið liggur yfirleitt svo mikið
á að komast áfram að helztu
minningarnar úr sumarleyfunum
eru bensínnótur og slitin dekk.
Það má enginn vera að þvi leng-
ur að skoða land ð, hvað þá að
ganga um það.
Rjúpnaveiðitímann má að sjálf
sögðu kalla útilif og eru rjúpna-
skyttur á fullri ferð um heið-
arnar og hefur allt gengið slysa
laust, að vísu týndist ein skytla
fyrir nokkrum dögum hér suður
á heiðum en um það vissi eng-
inn fyrr en maðurinn kom sjálf
ur niður í fjarlægan fjörð og
sagðist vera búinn að vera týnd
ur heilan dag.
Á Reyðarfirði er útilíf heldur
lítið. Þar er þó knattspyrnulið
og er nú i athugun hjá Lions-
klúbbi Reyðarfjarðar að útbúa
skautasvell rétt vestan við kaup
túnið og glæða áhuga barna og
fuMorðinna á þessari íþrótt.
Formaður Ungmenna og og
íþróttasambands Austurlands er
Elma Guðmundsdóttir Neskaup-
stað. Hún sagði að mikill áhugi
væri á útLlífi þar og bæri
þar mest á knattspyrnu á sumr-
in og sikíðaiðkun á veturna.
Skíðatogbraut er í fjallinu fyr
ir ofan bæinn rétt ofan við
efstu húsin svo stutt er að fara
til að renna sér. Er nú þegar
kominn nægur skíðasnjór og tog
brautin komin í gang.
Handbolti kvenna hefur verið
mikið stundaður undanfarin ár
en þó misstu Þróttarstúlk-
ur Austurla'ndisimeistara.titil'iinin
yfir til Seyðfirðinga í sumar eft-
ir að hafa haldið honum í sjö ár.
Sund er mikið iðkað, en i Nes-
kaupstað er útisundlaug mjög
góð og sagði Elma að það hefði
aldrei verið eins mikil aðsókn að
sundlauginni og síðastiliðið
sumar. Þar var haldið Austur-
landsmót i sundi í suraar, en þá
mættu engir aðrir til keppni en
Norðfirðingar.
í knattspyrnunni hafa Norð-
firðingar verið sigursælir enda
hefur undanfarin ár verið unnið
mikið að bættri aðstöðu fyrir
knattspyrnumenn.
Golfvö'l eiga Norðfirðingar
einnig og er það sá eini hér á
Austurlandi, og stunda marg-
ir golf sér til hei'lsubótar.
Eskfirðingar hafa komið sér
upp skíðatogbraut i fjallinu við
Oddskarðsveginn og einnig
hafa þeir átt góða knattspyrnu-
menn. Hestamennska hefur auk-
izt hjá þeim naeð ári hverju.
Eftir því sem ég kemst næst
rnunu Austfirðingar stunda útilií
á við hvern sem er, en brauð-
stritið tekur s'nn tíma og þeir
sem sinna erfiðisvinnu þurfa á
sinni hvild að halda, þó mun
útiliíf og áhugi á því tvímæla-
laust vera að aukast hér um
slóðir.
H.A.
Það er hressandi fyrir nienn og hesta að skreppa út í vetrarveðrið.
Óstandsett
2 ungir smiðir óska eftir lítilli ibúð.
Má þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar i sima 92-7011 milli kl. 7—8.
Rauöarárstígur
Til sölu 3ja herb. íbúö á 2. hæð við Rauðarárstíg.
Utb. 750 — 800 þús., sem má skipta.
Einnig 3ja herb. 90 fm íbúð í Vesturbæ.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN, Austurstræti 12
Sími 20424 og 14120, heima 85798.