Morgunblaðið - 29.11.1972, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.11.1972, Blaðsíða 15
MORjGUBSMBiLAÐ'H), MIÐVlKUDAGXm 29. NÓVEMBER 1972 15 Frá aðalfundi L.í.tj. að Hótel Sögu. ið mætit með mikilM tiislökun frá <«kl<ar málstað, sem ég vil J»ó ekki áíellast, þegax liaft er 1 h'Uga rikjandi ástand og að eesnja á aðeins til tveggja ára. Miðað við óbreytt afflaomagn é naesta ári og að sóikn báta- fflotans muni aukast um 3—4%, uriiun verða um halla að «feða á rehstri bátaflotans um 450 Boiiljónir króna m.v. það fisk- verð, sem er í gildi í dag, eins ■og áður segir. AFKOMA TOGAKAtJTGERÐARINNAR Ertitt er að spá um afkomu borfur göimlu togaranna á næsta ári. Þar utm ráða aflia- brögðin að sjálfsögðu mjög mikiu. Ég hefi hér áður leyft mér að spá þvi að afii bátanna sninnki efcki á næsta ári frá þvi, sem verið hefir á þéssu árá. Hið sama leyfi ég mér að vona að raunin verði á hjá tog- uruiium. En hvað sem því líð- •ur verða meðalársútgjöld tog- araútgerðarinnar eins og ann- arrar útgerðar 6hj ákvaam ileg a hærri á næsta ári en á þessu ári, enða þótt takast mætti að viðhalda óbreyttri kaupgjalds- vísitölu allt næsta ár. Kemur þar til bæði sú verðhækfcunar- þróun, sem dreifðist fram yfir mitt þetta ár, og umsamd- ar kauphækkanir, sem koma til framkvæmda á næsta ári. Halia ó rekstri gömlu togaanna má því áætla um 130 miMjónir króna á næsta ári m.v. að um sama opinberan stuðning verði að ræða og fengizt hefur á þessu ári. Aflaaukning togaranna 1967 tfl 1969 og hinar miíkflu verð- hækkanir á fiskafurðum er- Sendis 1969 tii 1971, sköpuðu þá bjartsýni, sem leitt hefir til samninga um kaup á 37 nýjuim skuttoguruim. Síðan þessi kaup voru ráðin hefir það svo gerzt, að stórfellduir samdráttur hefir orðið á togaraaflanum samhliða dýrtíðarskriðu hér innanlands og miklum verðhækkunum á innfluttum nauðsynjuim bæði vegna aukinnar dýrtíðar er- lendis og gengisbreytinga. Veigaimesti þátturinn nú í af- fcomuspá íyrír hina nýju tog- ara er aflinn. Við ísHendimgar hörfum ennþá sáralitla reynslu af útgerð stórra skuttogara. En ef svo fer að afli glæðist efcki á næsta ári og ef skuttogarar sýna ekki verudega mikla yfir- burði yfir síðutogara, stöndum við frammi fyrir stórfelldu vandamMi við útgerð þessara rftipa. Ég mun efeki reyna að nefna hér tölur í þessu sam- bandd, en ef þær yrðu nefndar, yrðu þær áreiðanlega mjög há- ar. Það verður þvi að vona að himir nýju skuttogarar verði tfengsælir, enda þurfa þeir mik Ms með. En ef þessi von bregzt, mun eigendum þeirra reynast öðrugt viðfangs að greiða 20 hundraðshluta af brúttótekjum sem afborgun og vexti af stofn Sánum, en undir slíka skidmála hafa eigendur hinna nýju skipa þurft að skrifa. TILLÖGIJR HAFRANNSÓKN ARSTOFNUNARINNAR I M VEIÐITAKMARKANIR Verulega athygli hafa vakið tillögur, sem nýlega voru birt- ar, og bomar voru fram i nafni Hafrannsóknarstofnunarinnar um nýtingu íslenzkra fiski- stofna. í tilefni þessara til- lagna hefur mér borizt bréf frá stjóm Hafrannsóknastofnunar- innar, þar sem hún tilkynnir að hún hafi ekki fjallað um þessar tillögur og hún sé í mörgum veigamiklum atriðum ósammála þeim, enda sé í þeim vikið frá þeim kröfum, sem gera verði til vísindalegs álits. Hvernig má það vera, að birt ar séu tillögur stofnunar, sem lýtur sérstakri stjóm, að lög- »m, án samþykkis viðkomandi stjómar? . 1 áliti þessu er sagt, að það sé álit sérfræðinga um ástand þorskstofna i N—Atlantshafi, að islenzki þorskstofninn sé nú íullnýttur og að áliti sérfræð- inganna þyrfti veiðidánartalan að minnka um heiming til að nýting stofnsins sé hagkvæm. í álitsgerð frá Fiskifélagi ís- lands um þetta efni er bent á, að fu'llnýttur fiskstofn merki ekki að fiskstofninn sé ofveidd ur og æskileg minnkun á sókn um helming hljóti að eiga við um aðra þorskstofna í N—At- lantshafi. Eðlileg notkun orðsins „full- nttur“ i þessu sambandi merk ir, að tekið sé úr stofninum hámark þess, sem stofninn gef- ur af sér, án þess að stofnin- um sé stefnt i hættu .1 umræð- um um hagntingu þorskstofns ins virðist eðlilegt að ganga út frá þvi, að um verulega minnk- un sóknar erlendra veiðiskipa verði að ræða vegna útfærslu landhelginnar i 50 sjómilur. Tillögur starfsmanna Haf- rannsóknastofnunarinnar um að allar veiðar, aðrar en með línu og handfærum, verði háð- ar leyfum, falla útvegsmönnum ekki i geð, því nægileg er nú skriffinnskan fyrir, þótt þessu verði ekki bætt við. Starfs- mennirnir telja, að með leyfa- fyrirkomulagi sé hægt að auka aðhald að veiðunu.m, með þvi að svipta fiskiskip leyfi, ef það brýtur settar reglur. Misskiln- ingur þeirra byggist á því, að það eru þeir, sem stjórna skip- inu, sem reglurnar brjóta, en ekki skipið sjálft. Hvað á að gera við skip, sem svipt hefur verið leyfi? 1 íslenzkri loggjöf er gert ráð fyrir, að skipstjórn armenn sæti ábyrgð fyrir brot á settum reglum og um slík mál sé fjaliað af dómstólum. Með tillögu sinni leggja starfs menn Hafrannsóknarstofnunar innar til, að dómsvaldið sé flutt inn í viðkomandi ráðu- neyti. Fleira er athugunarvert í um ræddum tillögum, og vil ég þar sérstaklega nefna tillögu um, að bátum, sem veiðar stunda með netum, skuli skylt að koma ávallt með veiðarfæri að landi. Tillaga þessi, ef til fram- kvæmda kæmi, myndi draga svo stórlega úr aflamöguleik- um þessara skipa, að enginn möguleiki værl til útgerðar þeirra, en þau hafa aflað um 60% af vetrarvertíðaraflanum. Þetta myndi einnig auka stór- lega vinnuálag á sjómenn og valda því, að mjög fáir sjó- menn fengjust til að vinna við þessi störf. Síðast en ekki sizt myndi það fyrirkomulag stór- auka slysahættu, ef skip ættu að flytja öll veiðarfæri að landi I hverri veiðiferð. Tillög- ur eins og þær, sem hér hefur verið lýst, eru svo f jarri öllum raunveruleika, að menn undr- ast það sambandsleysi, sem virðist vera milli starfsmanna Hafrannsóknastofnunarinnar og þeirra aðiia, sem að sjávar- útvegi starfa. Á undanfömum árum hafa útvegsmeiin og samtök þeirra margoft gert tillögur um auk- ið eftirlit, að koma í veg fyr- ir seiða- og ungfiskadráp i ein stöku veiðarfæri, eins og t.d. humar- og rækjuvörpur,en litl ar undirtekir fengið. Einnig hafa þeir lagt til að friðuð verði ákveðin hrygningarsvæði fyrir öllum veiðarfærum á hrygningartimanum. Þær til- lögur hafa engar undirtektir fengið hjá starfsmönnum Haf- rannsóknastofnunarinnar og þeim jafnvel verið sýnd and staða, eins og friðun innan- verðs Breiðafjarðar fyrir þorskanetum. ENDIJRNÝJUN FISKISKIPAFLOTANS Veruleg endurnýjun fer nú fram á fiskiskipastólnum og ber þar hæst endurnýjun tog- araflotans, eins.og ég hefi áður vikið að. Fyrsti skuttogarinn, sem smiðaður er fyrir okkur ís lendinga, kom til landsins i sið- asta mánuði og er farinn til veiða. 1 smíðum eru 6 togarar- sem eru um 1.000 rúmlestir að stærð, 6 togarar uim 800 rúml. að stærð og 24 minni togarar, sem verða milli 400—500 rúiml. Ails eru þetta 37 skip, sem ætla má að verði um 22 þús. rúml. Á árinu hafa verið keypt til landsins 7 notuð fiskiskip og er eitt af þeim 800 lesta skut- togari og tveir aðrir 400 og 460 rúmlestir. Alls hafa 59 ný þiljuð fiskiskip verið skráð á árinu, og skiptast þau þannig eftir stærð: Undir 15 rúml. 32 skip 16—50 — 14 — 51—100 — 2 — 100—160 — 11 — Innanlands eru 48 þiljuð fiskiskip í smiðum, og skiptast þau þannig eftir stærð: Undir 15 rúml. 15 skip 16—50 — 20 — 51—100 — 5 — 100—160 — 8 — Auk þess eru tveir 400—500 rúml. togarar í smiðum innan- lands, en þeir voru taldir með þeim 24 minni togurum, sem ég gat um fyrr. Alls hafa 10 þiljuð fiskiskip verið strikuð út af skipaskrá það sem af er árinu og voru þau 642 rúml. að stærð. Af þessari upptalningu er ljóst, að endurnýjun fiski- skipaflotans er nú meiri en nokkru sinni fyrr, nema ef til vill á nýsköpunarárunum fyrir 1950. Ég tel vafasama þá miklu f jölgun lítilla báta, sem nú á sér stað, eins og sést á þvi, að í smíðum eru 81 bátur, sem er mirmi ei.; 50 rúml. Flest- um þessara báia er ekki hald ið til veiða nema takmarkaðan hluta úr ári, og það fjármagn, sem í þá er lagt, skilar ekki þjóðarbúinu nema hluta af því, sem hin stærri skip gera. Þess ir bátar veita heldur ekki sjó- mönnum það öryggi, sem ætlast verður til, og þeir draga að sér mannafla, sem afkastar að með altali mun minna en sjómenn á hinum stærri skipum. VÁTRÝGGINGASJÓÐUR FISKISKIPA Mjög alvarlega horfir um af- komu Vátryggingasjóðs fiski- skipa, en hann greiðir að veru legu leyti vátryggingariðgjöld fiskiskipanna. Fjár til hans er aflað með útflutningsgjaldi og fær sjóðurinn 82% af þvi fé, sem útflutningsgjöldin gefa. Frá því sjóðurinn var stofnaður á árinu 1969 hefur hann ávallt verið nokkrum mánuðum á eft ir með greiðslu iðgjaldanna vegna fjárskorts. Afkomu sjóðs ins er nú þannig háttað, að um 54 milljón króna halli varð á sjóðnum á árinu 1971 og horf- ur eru á, að halli þessa árs verði 96 milljónir króna, eða samtals á tveimur árum 150 milljónir króna. Tekjur sjóðsins á þessu ári eru áætlaðar um 334 milljónir en útgjöld um 430 milljónir. Hefur þessi fjárskortur leitt til þess, að bilið milli gjald- falilinna iðgjalda og greiðsina sjóðsins lengist og er nú um 10 mánuðum á eftir, þrátt fyrir að fullnotuð er um 60 milljón króna yfirdráttarheimild. Má af þessu ljóst vera, að auka verður verulega tekjur sjóðsins þvi ekki Ieyfir rekstrargrund völlur fiskiskipaflotans, að á hann verði lögð ný útgjöld. I stað þess að auka tekjur sjóðs- ins hafa tekjur hans verið skertar tvivegis á þessu ári. Á ég þar við ákvörðun um, að útflutningsgjöld af niðurlögð- um sjávarafurðum og söltuðum grásleppuhrognum skuli renna til Sölustofnunar lagmetisiðnað arins og ákvörðun um að inn- heimta ekki útflutningsgjöld af karfaflökum á timabilinu frá 1. júni til 30. september á þessu ári. Skerðing þessi nemur um 15 milijónum króna. Ég tel, að þessi fundui verði að krefjast þess, að fá ákveðið svar við þvi á hvern hátt þessi vandi verður leystur fyrir næsta ár svo og hvernig halla þessa og siðasta árs verði mætt. HLUTLÆG ÁBYRG® ÚTVEGSMANNA Á LÍFS- OG LÍKAMSTJÓNI Hinn 1. október i haust tóku gildi lög, sem samþykkt höfðu verið á Alþingi í vor um hlut læga ábyrgð útgerðarmanna á mönnum, sem starfa i þeirra þágu. Með þessari breytingu verður nánast um takmarka- lausa skaðabótaábyrgð með ótakmakaðri greiðsluskyldu fyrir útgerðarmenn að ræða vegna lífs- eða líkamstjóns skipverja eða annarra, er starfa í þeirra þágu. Það er óþekkt að leggja slika ábyrgð á vinnuveitendur og fordæmi fyrir þessari laga- setningu mun hvergi vera finnanlegt hjá öðrum þjóðum, enda nefndi prófessor við Há- skóla Islands grein, sem hann ritaði um þetta mál, „Byltingu í bótarétti." Það er torskilið venjulegu fólki, hvernig það megi vera, að Alþingi samþykki með samhljóða atkvæðum lög um þetta efni, án nokkurrar undangenginnar athugunar um áhrif og framkvæmd þeirra, þegar fyrir liggja ákveðin mót- mæli þeirra, sem við þau eiga að búa. Með því að leggja hlutlæga ábyrgð á útgerðarmenn á lífs- og líkamstjóni skipverja, er sjó mönnum stórlega mismunað, eft ir þvi hvort þeir eru eigendur að skipi eða ekki. Farist skip i óveðri, sem skipstjóri á skip- inu er eigandi að, ber ekkja hans, ef hann er kvæntur mað- ur, skaðabótaábyrgð, þar sem hún er sameigandi bátsins og þar með útgerðaraðili. Yrði hún væntanlega að greiða millj ónir króna I skaðabætur vegna dauða manns sins, þar sem hún er útgerðarmaður bátsins og ber ábyrgð á dauða hans. Þessi ólög verður að afnema, þvi engar tryggingar er hægt að viðhafa til að tryggja fyr- ir sKku ranglæti. Stjóm L.Í.O. féllst á að draga til baka við- vörun, sem i sjálfu sér er 1 fullu gildi, meðan þessi ólög gilda, um að menn hMdi skip- um til veiða, meðan kannað er hvort hægt sé að hækka bæt- ur til sjómanna i slysatilfelÞ um. Meðan sú athugun fer fram, hafa útvegsmenn keypt slysa- tryggingu, sem minnkar ábyrgð þeirra, ef slys ber að höndum. Þessi bráðabirgðatrygging kost ar að meðaltali á mánuði um 6,7 milljónii króna fyrir fiski- skipaflotann, eða um 80 millj- ónir á ársgrundvelli, Rikis- stjórnin lofaði því að tillögur til lausnar þessu vanda- máli kæmu fram i haust og þær lögfestar fyrir áramót, en ekki er enn fram komið hverj- ar þær tillögur eru, og mun- um við á þessum fundi ganga eftir vitneskju um það. ENDURMAT Á SKIPUM — HEIMILD AFNUMIN Á síðasta Alþingi var skatt- lagingu atvinnurekstrar breytt til verulegrar íþyngingar frá áður gildandi skattalögum að tillögu núverandi ríkisstjórnar. Einni af þeim breytingum var sérstaklega beint gegn útgerð inni. Var þar afnumin heim- ild til útgerðarmanna um end- urmat á skipum til nýs verðs eftir ákveðnum reglum, er gilda áttu á árunum 1971 og, 1972. Heimild þessi miðáði að því, að leyfilegt væri að bók- færa nýtt verð á skipuim, er væri í samræmi við raunveru- legt verðmæti þeirra, og af- skrifa mætti skipin í framtið- inni af því verði. Ákvæði þetta var sett í eldri skattalög vegna þeirra mdklu verðmætabreyt- inga, seim átt hafa sér stað við géngisbreytingar og verðrýrn- un peninga. Athyglisverðast 1 þessu sambandi er, að sams kon ar heimild gilti einnig um fast- eignir og fékk hún að standa óbreytt, en heimildin um endur mat á skipum var felld úr gildi, eða svo gott sem. Vert er að útvegsmenn minnist þessa, þeg ar stjórnmálamenn eru að tjá þeim skilning sinn á mikilvægi atvinnurekstrar þeirra. MENNTUN — ÁBYRGÐ Ekki hefur farið fram hjá út vegsmönnum sú umræða, sem átt hefur sér stað um nauðsyn á aukinni menntun, og þá sér- staklega á gildi æðri menntun- ar, og eflingu Háskóla Islands. Það hefur heldur ekki farið FramhaJd á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.