Morgunblaðið - 29.11.1972, Blaðsíða 18
18
MOBGUWBLAÐIÐ, MIDVJKlJDAOmi 29. NÖVEMUKR 1972
ATVIKNA
Verhstjóri - Klæðskeri
Vér leitum eftir verkstjóra í fataiðnaði fyrir einn
af viðskiptavinum vorum utan höfuðborgar-
svæðisins. — Æskilegt er að viðkomandi sé
klæðskeri og geti jafnframt unnið við model-
gerð.
í BOÐI ERU:
GÓÐ VINNUSKILYRÐI,
GÓÐ LAUN,
AÐSTOÐ VIÐ ÚTVEGUN HÚSNÆÐIS.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í skrifstofu
vorri að Höfðabakka 9.
BENEDIKT GUNNARSSON
tæknifræðingur
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA
Höfðabakka 9, Reykjavík
Sími 3-81-30.
Vel lounað kvöldstarf
Óskum að ráða mann nú þegar við kynningar-
og sölustörf í Reykjavík og nágrenni. — Góð
sala og góð laun.
Umsóknum fylgi upplýsingar um aldur, mennt-
un og fyrri störf og sendist afgreiðslu Morg-
unblaðsins, merkt: „Sölustarf — 9302“ fyrir
1. desember.
Nokkrir verkamenn
óskast
Upplýsingar í skrifstofunni og í símum 23059
og 17454.
BÖÐVAR S. BJARNASON SF.,
Laugavegi 20 B
(Klapparstígsmegin).
Verkamenn
Verkamenn óskast í byggingarvinnu.
Mikil vinna.
Upplýsingar í skrifstofu okkar, Grettisgötu 56,
í dag klukkan 9—5.
Byggingarfélagið ÁRMANNSFELL HF.,
Grettisgötu 56.
Atvinnurekendur
Ungur maður með Verzlunarskólapróf, óskar
eftir atvinnu. Nokkurra ára reynsla í verzlun-
ar- og skrifstofustörfum.
Tilboð, merkt: „Stundvís — 9401" sendist afgr.
Morgunblaðsins.
Afgreiðslustarf
Vantar karlmann til afgreiðslustarfa nú þegar
í kjörbúð.
Upplýsingar í síma 23457.
Lyftunppsetningor
Vélvirki og/eða rafvirki óskast frá næstu ára-
mótum. Föst vinna. — Frekari upplýsingar hjá
Júlíusi Friðrikssyni í síma 1-4038 og Hafsteini
Magnússyni í síma 4-1357.
Aðstoðormnður óskast
BRAUÐ HF.,
simi 41400.
Sjnkrokns Skagfirðinga
Sauðárkróki, óskar að ráða sjúkraþjálfara.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist til varaformanns stjórnar
sjúkrahússins, Friðriks J. Friðrikssonar, hér-
aðslæknis, Sauðárkróki.
Ræstingakona óskast
nú þegar.
Upplýsingar milli kl. 5—6 í dag.
EGILL JACOBSEN,
Austurstræti 9.
Atvinnuiekendui
Ungur maður óskar eftir vel launaðri atvinnu*
hefur stúdentspróf, góð ensku- og dönsku-
kunnátta.
Tilboð, merkt: „9402“ leggist inn á afgr. Mbl.
Afgieiðsiustúlka
helzt vön, óskast í verzlun vora að Laugavegi
33. Starfið er fólgið í að afgreiða saumavélar
og smávörur til sauma, svo og útvarpstæki og
rafmagnsvörur.
Upplýsingar gefur Stefán Valur Pálsson, deild-
arstjóri, Suðurlandsbraut 16 (ekki í síma) kl.
10—12 í dag og á morgun.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Reglosöm stúlka
um tvítugt, óskar eftir atvinnu strax. Er hand-
lagin og vön afgreiðslu. Get sýnt meðmæli.
Upplýsingar í síma 17371.
Skiifstofustúlka
Iðnfyrirtæki í Kópavogi óskar eftir að ráða
stúlku hálfan daginn við vélritun og bókhalds-
störf.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf óskast
sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 2. des.4
merkt: „Reglusöm — 9404”.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa.
S.S., Brekkulæk 1.
Atvinno
Trésmiðir óskast til starfa.
GL.UGGASMIÐJAN,
Siðumúla 20.
Afkoma útgerðar
innar erfið
Framhald aí bls. 15.
fram hjá þeim, að nemendum í
Háskóla Islands fjölg-
aði um nær eitt þúsund á þessu
hausti á sama tima og erfið-
leikar eru á að fá menn til
starfa á sjó og við fiskvinnslu.
1 skólanum voru þó ekki nema
um 1.200 nemendur fyrir. Það
hefur heldur ekki farið fram
hjá útvegsmönnum, að opnaðar
hafa verið nýjar námsleiðir i
þjóðfélagsfræðum og skyldum
greinum og í heimspekideild og
i þjóðfélagsfræði sitja um 800
nemendur. Ekki gera þeir sér
miklar vonir um að þetta nám
komi atvinnulifinu að gagni.
Þetta efnalitla fólk nýtur svo
námslána og styrkja, sem nema
mörg hundruð milljónum króna
og fá þeir hæst lánin,
sem ekki þurfa eða vilja vinna
fyrir sér með þátttöku i at-
vinnulifinu. Á sama tíma hef-
ur Háskólinn ekki séð sér fært
að hefja kennslu i fiskiðnfræði
eða skipaverkfræði eða öðrum
hagnýtum greinum fyrir sjávar
útveginn.
í hinum dreifðu sjávarþorp-
um þessa lands vinnur fólkið,
sem þar býr, hörðum höndum
að því að framleiða útflutnings
vöru, sem seld er fyrir gjald-
eyri, sem lífsnauðsynjar eru
keyptar fyrir og ríkið tekur
toll- og söluskattstekjur af til
að standa undir rekstri þjóð-
arbúsins og menntastofnana.
Það hefur þótt skylda þjóð-
félagsins áð sjá hverju byggð-
arlagi fyrir læknisþjónustu.
Nú heyrum við í fréttum sagt
frá hverju sjávarþorpinu á
fætur öðru, þar sem ekki er
læknisþjónustu að fá. 1 sumum
þessara þorpa hagar þannig til,
að um einangrun getur verið
að ræða í marga mánuði
á landi og marga daga á sjó.
Á sama tima flytja læknar til
útlanda í hópum, þakklátir fyr
ir hina frábæru námsaðstöðu,
sem þeim er sköpuð hér heima,
og fyrir það, að aflétt hafi ver
ið af þeim þeirri þungu kvöð,
að þurfa að þjóna því fólki,
sem léti þeim í té þessa frá-
bæru aðstöðu.
Ástæðan til þess, að ég er
að gera þetta að umtalsefni
hér, er sú, að ég vil vekja at-
hygli á, að áhættusöm störf
við atvinnurekstur og læknis-
þjónusta eru óaðskiljanleg
ir þættir. Ef við ætlum
að halda áfram og efla atvinnu
lifið út um land verður að sjá
fólkinu, sem við það á að
vinna, fyrir svo sjálfsagðri
þjónustu sem læknisþjónustu,
að öðrum kosti flýr fólkið þessa
staði og það ekki að ástæðu-
lausu.
Enginn má skilja orð mín
svo, að ég sé andvlgur þvi að
fólk fái tækifæri til þess að
mennta sig sem bezt, enda er
þekking og menntun und-
irstaða framfara. En óhjá-
kvæmilegt er, að þeir, sem
menntunar njóta með öll-
um þeim kostnaði, sem henni
fylgir, eigi ríkar skyldur við
þjóðféiagið og að meira hlýtur
að verða krafist af þeim
en öðrum. Ætlast verður til,
þegar ungt fóik velur
sér menntabraut, að það hafi 1
huga, að þekking þess verði
þvi sjálfu og þjóðfélaginu i
heild að sem mestu gagni, en
ég tel að mikið skorti á að svo
sé, þegar litið er til þeirrar
þróunar sem átt hefur sér stað
á skömmum tíma, þegar hundr
uð stúdenta leggja út i nám 1
heimspeki og þjóðfélagsfræði.
Ég hef þessi ávarpsorð
mín þá ekki fleiri og þakka
meðstjórnarmönnum mínum I
stjórn L.l.Ú. gott samstarf á
liðnu starfsári. Samstarfsfólki
á skrifstofu samtakanna þakka
ég vel unnin störf. Ég færi
Gunnari I. Hafsteinssyni sér-
stakar þakkir, en hann lét af
störfum á árinu, eftir langt og
farsælt starf hjá samtökunum.
Við hans starfi tók Jónas Har-
aldsson, lögfræðingur og býð
ég hann velkominn til starfa.
Að svo mæltu segi ég 33. aðal-
fund L.l.Ú. settan.
I VtNNIHOU*:
I 'VOtVO 1« Onmi U« s:-
VOtVO 1« Ormi Ux
| im
I •