Morgunblaðið - 29.11.1972, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
273. tbl. 59. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Landhelglsviðræðurnar fóru í biös
íslendingar buðu 6 veiðihólf,
hvert opið í 6 mánuði á ári
Engin ákvörðun tekin um áfram-
haldandi samningaviðræður
FRÁ sanming-afundinuni í
gær, er setzt var niður í síð-
asta sinn í þessari samninga-
lotu. — Hægrra meg-in við
borðið er íslenzka sanminga-
nefndin. Frá vinstri sjást
Magnús Torfi Ólafsson, I.úð-
vik Jósepsson, Einar Ágústs-
son, Hans G. Andersen og
Niels P. Sigurðsson. Vinstra
megin sitja brezku samninga-
mennirnir.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR Breta
og íslendinga strönduðu i gær
og hefur framhald þeirra ekki
verið ákveðið. Þó vill hvorugur
deiluaðili segja að samningaum-
ieitunum sé lokið. Á blaða-
mannafundi, sem íslenzku ráð-
herrarnir, Einar Ágústsson, Lúð
vík Jósepsson og Magnús Torfi
Ólafsson héldu eftir samninga-
fundinn í gær, kom m.a. fram
að í síðustu tillögum íslendinga
hai'a þeir boðið að opin verði 3
hólf innan 50 milnanna í senn og
3 önnur verði lokuð á sama tíma.
Ails eru hólfin 6 og spanna alí i
fiskveiðilögsöguna miili 12 og 50
mílna, nema fyrir Vestfjörðum,
á svæði fyrir Norðurlandi og fyr
ir Austfjörðum, þar eru hólfin
frá 20 og i 50 mílur. Þetta boð
þýðir að hvert hólf er opið að
ja.fnaði í 6 mánuði á ári. Bretar
sæt.tu sig ekki við þetta og þær
kröfur um skipastærð, sem ís-
lendingar gerðu, en kröfðust
þess að 4 hólf yrðu opin í senn
©g 2 lokuð.
í upphafi blaðarnannafundar ís
lenzku ráðherranna, eftir samn
ingafundinn með Breturn, las
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra upp fréttatilkynningu, sem
samkomulag, varð um milli samn
inganefndanna, að gefa út. —
Fréttatilkynningin er svohtjóð-
andi:
„Dagana 27. og 28. nóvember
1972 fóru fram viðræður milli rik
iisstjórna íslands og Bretlands
2 ræningjar
yfirbugaðir
Fengu bíl og 40.000 mörk
Bonn, 28. nóv. — NTB/AP
TVEIR vopnaðir mannræningjar
voru handteknir i kvöld skömmu
eftir að lögreglan hafði greitt
þeim 40.000 mörk í lausnargjald
fyrir gísl og látið þeim í té bif
reið til að flýja í eftir samninga
viðræður sem stóðu tæpan sólar
hring.
Annar mannræninginn særðist
á fæti og lögreglunni tókst að ná
aft.ur lausnargjaldinu. Mannræn
ingjarnir eru 23 ára gamall Lux
emborgari, Alfonse Folscheid, og
22 ára gamall Vestur-Þjóðverji,
Harald Ehrig.
Þeir frömdu rán í skotvopna-
verzlun i Trier við fljótið Mosel
í gær og tóku fyrst konu búðar
eigandans í gíslingu og síðan
blaðamann. Búðareigandinn, Her
mann Weber, særðist og lögreglu
maður særðist þegar hann
reyndi að fara inn í búðina rétt
eftir ránið.
Fjölimennt lögregluhð tók sér
stöðu við verziunma og var á
varðbergi. Frú Káthe Weber var
á valdii ræninigjainna í 15 tiíma en
var látiin laus þegar blaðamaður
inn Horst Reber bauðst til að
vera gi®l ræningjanna í stað
hennar. Hann var á valdi ræn-
ingjanna í átta tíma.
Þegar ræninigjamir höfðu femg
ið lausnargjaklið og Mercedes
bifreið óku þeir frá Trier í átt
til Koblenz. Skammt frá bæmum
fór annar þedrra úr bílnum og
ætilaði að flýja fótgangandi en
var fljótlega handtekimn. Ræn-
iniginn í bílnum náðist hins veg-
ar eklki fyrr en eftir skotbardaga
og varð að flytja hann í hjúkra-
hús.
Washington, 28. nóv. —
AP/NTB
NIXON forseti gerði í dag fyrstu
breytingarnar á stjórn sinni eft-
ir sigurinn i forsetakosningun-
um og- skipaði Elliot L. Richard
son, félagsmála- og menntamála-
ráðherra í embætti landvarnaráð
irtækisins Litton Induistries.
Þar sem bæði Nelson Rocke-
feller, rikisstjóri New Yorkríkis
og John Connally fyrrum fjár-
málaráðherra hafa borið til baka
fréttir um að þeir hafi áhuga á
utanríkisráðherraembættinu er
talið víst að William P. Rogers
gegni því embætti áfram.
Breytingarnar munu verða
mjög víðtækar og Nixon hefur
skýrt frá því að hann muni einn
ig endurskipuleggja starfslið sitt
í Hvíta húsinu og allt stjórnsýslu
kerfi ríkisins. Þegar breytingun
Framhald á bls. 13.
Casper Weinberger.
herra í stað Melvin Lairds sem
hefur tilkynnt að hann niuni láta
af störfum þegar Nixon verður
settur í forsetaembættið öðru
sinni til næstu fjögurra ára.
Við starfi Richardsons tekur
Caspar W. Weinberger fjárlaga
ráðherra, en við því embætti tek
ur Roy Ash, sem er forstjóri fyr
Eiliott Ric.hardson
16 komust af:
Fltigslys við
Moskvuflugvöll
Moskvu, 27. nóv. — AP/NTB
DC8-flugvél japanska flugfélags
ins (JAL) fórst í kvöld í flug-
taki frá Moskvu-flugvelli og 60
sem nieð henni voru, en 16 kom
ust lifs af.
Talsmaður JAL í Moskvu
sagði að flugvélin hefði sprungið
í loft upp skömmu eftir flugtak-
ið. Annar sjónarvottur kvaðst
hafa séð mikla eldsúlu skömmu
eftir að flugvélin hóf sig á loft.
Fyrr í dag lenti fiugvélin á
Kastrup-fiugvelli við Kaup-
mannahöfn og tók 38 farþega.
Ritzau-fréttastofan hermir að all
margir Danir hafi verið meðal
farþeganna. Fjórtán manna á-
höfn var i vélinni og 62 farþeg
ar og hún vár á leið til Tokyo.
Sovézkir embættismenn segj-
Framhald á bls. 20.
um landihelgismálið í Reykjavík.
Málið var itarlega rætt frá báð-
um hliiðum, en ekki tókst að
finna lausn á þvi.
Samkomulag varð uim að báð-
ir aðilar muni athuga hinar ýms>u
tillögur nánar og hafa samráð
um möguleika á frekari viðræð-
um.“ Einar bætti þvi svo við að
frekari viðræður væru ekki á-
kveðnar.
Ráðherrarnir voru þvi næst
spurðir um það, hvort deil'uaðil
ar hefðu nálgazt í þessum viðræð
um. Lúðvík Jósepsson varð fyrir
svörum og sagði að erfitt væri
að svara því ákveðið, en hann
sagðist telja rétt að gera grein
fyrir þvi, hvaða tillöguir komu
fram frá báðum aðilum og telja
má til nýrra tillagna.
Síðan sagði ráðherrann:
— Það er þá fyrst að víkja að
tillögum ok'kar. Við gerðum nú
tiilögu uim það að í giidi yrðu við
landið sex sérstök veiðisvæði og
yrðu þrjú þeirra opin hverjiu
sinni en hin þrjú svæðin lokuð,
brezkum skipum. (Svæðin ná
allt í kninigum liaindið).
— Við gerðum í þessum tillög
um einnig ráð fyrir því að á
þrem stöðum við landið, fyrir
Vestfjörðum, Norðurlandi og
Austurlandi, yrðu nokkuir viðbót
ar friðunarsvæði, til viðbótar vi8
þau sem frá' er greimt í ok'kar
liandhelgisreglugerð og þessi frið
unarsvæði væru ætliuð til vernd
Framhald á bls. 20.
Fyrstu breytingar Nixons:
Richardson tekur við
sem landvamaráðherra
Weinberger félagsmála- og
menntamálaráðherra
Fréttir 1, 2, 3, 10 og 13
Spurt og svarað 4
Þing 11
Hús dagsins 12
Ræða formanns LÍL,
Kristjáns Ragnars-
sonar, á aðaifundi
samtakanna 14 og 15
Bókmenntir og listir 16 og 17
Iþróttir 30 og 31