Morgunblaðið - 28.12.1972, Page 16

Morgunblaðið - 28.12.1972, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÐESEMBER 1972 0*g«fdndi h/f Árvekuc, R&yfcjavfk Frflmifcvæmda stjón HaraWur Sv«ína«on. Rit»^6rar M-at6h!as Johannassan, Eyjólifur Konráð Jónsson. Styrmir Gurmarsson. RftsrtíémaríuWtrúi Þorbijönn Guðrrnundston Eróttastjóri Björn Jóihannoson. Aug.lýsingnstjðri Ámi Garðar Kriatinsscm. Ritstjórn og afgreiðsla Aðaistræti 6, sími 1Ö-100. Augfýsingar Aðafstreati 9, sírm 22-4-80 Áskrrftargja-fd 225,00 kr á rrnónuði innanlaods I teusasöfu 15,00 Ikr eintakið innar til lausnar þeirra erfið- leika, sem að steðjuðu og að verzluninni bæri að taka á sig nokkrar byrðar til jafns við aðra. En í tengslum við þá geng- isbreytingu, sem nú hefur verið framkvæmd við allt aðrar ’ aðstæður hafa verið teknar verðlagsákvarðanir, sem koma mjög misjafnlega út fyrir einstakar greinar verzlunarinnar. Þannig er ljóst, að smákaupmenn eru óánægðir með þær verðlags- ákvarðanir, sem teknar hafa greina, að þótt hægt sé að leggja auknar byrðar á þess- ar atvinnugreinar úm stund- arsakir án þess að verulegt tjón hljótist af, kann það ekki góðri lukku að stýra til lengdar. Jafnvel í stjórnar- herbúðunum eru menn að vakna upp við þá staðreynd, að núverandi verðlagskerfi er búið að ganga sér til húð- ar og lét einn helzti efnahags- sérfræðingur Alþýðubanda- lagsins í ljósi mjög ákveðnar skoðanir á því fyrir nokkr- um vikum. Sannleikurinn er sá, að núgildandi verðlags- kerfi stuðlar að mismunun innan verzlunarinnar og hærra verðlagi en ella. Það er vafalaust til of mikils mælst, að núverandi ríkis- stjórn beiti sér fyrir skyn- samlegum umbótum á verð- lagskerfinu, en hins er hægt að krefjast í því góðæri, sem nú ríkir, að kjör einstakra stétta eins og smákaup- manna verði ekki beinlínis skert eins og hætt er við vegna þeirra verðlagsákvarð- anna, sem teknar hafa verið í tengslum við þessa gengis- breytingu. HAGUR VERZLUNAR RAFMAGNS- SKÖMMTUNIN að kann aldrei góðri lukku að stýra að þrengja svo hag atvinnurekandans, að hann geti hvorki borið þær byrðar, sem á hann eru lagð- ar, né staðið undir batnandi lífskjörum starfsmanna. Af þessu höfum við íslendingar langa reynslu, en föllum þó jafnan í sömu gryfjuna á nýj- an leik. Á undanförnum miss- erum' hafa meiri útgjöld ver- ið lögð á atvinnuvegina, en þeir hafa borið, m.a. vegna vaxandi kostnaðarverðbólgu í landinu og gengisbreytingin, sem vinstri stjórnin neydd- ist til að ákveða er afleiðing af þeirrí óstjórn. Gengisbreytingunni er ætl- að að rétta hag atvinnuveg- anna. Nú er það raunar mik- ið álitamál, hvort gengis- breytingin nær þessum til- gangi. Það kemur t.d. í ljós næstu daga hvaða skoðun út- vegsmenn víðs vegar um landið hafa á því. En fleiri atvinnugreinar koma hér við sögu þ.á m. verzlunin. Nú er það vel kunnugt, að á undan- förnum árum hefur verzlun- in orðið að sætta sig við veru- lega skerta álagningu. í sam- bandi við gengisbreytingarn- ar 1967 og 1968 var litið svo á, að þar væri um að ræða framlag af hálfu verzlunar- verið, og í viðtali við Morg- unblaðið sl. sunnudag sagði Hjörtur Jónsson, formaður Kaupmannasamtakanna, að hann teldi að skerðing á verzlunarálagningu yfir alla álagningartaxta væri ekki réttlætanleg vegna þessarar gengisfellingar. Vafalaust er það svo, að hagur einstakra greina verzlunarinnar er mis- jafn, góð afkoma hjá sum- um verzlunargreinum en verri hjá öðrum. En kjarni málsins er sá í sambandi við álagningu verzlunarinnar eins og rekstr argrundvöll annarra atvinnu- fT'nn eru ekki öll kurl komin ^ til grafar vegna þeirra skemmda, sem urðu í óveðr- inu skömmu fyrir jól á há- spennulínunni frá Búrfelli og ollu víðtækum rafmagns- truflunum á höfuðborgar- svæðinu. Þessar rafmagns- truflanir á mesta þéttbýlis- svæði landsins svo og þær skemmdir, sem urðu á álver- inu í Straumsvík eru þess eðl is, að gera verður kröfu til þess, að þegar í stað verði kannað, hvort ofsaveðrið eitt er orsök óhappsins eða hvort einhverjir gallar hafa komið fram í stálturninum við Hvítá, en slíkur turn brotnar nú í annað skipti. Rafmagnsskömmtunin, þá daga sem hún stóð, olli ekki einungis vandræðum í heirna- húsum heldur stórfelldum truflunum á atvinnurekstri á höfuðborgarsvæðinu og er vafalaust erfitt að meta það óbeina og beina tjón, sem orðið hefur. X ’T \y 'vV___ forum world f eatures Hvað gerist eftir Jomo Kenyatta Eftir Sam Uba London. — Konyamönnum er ekk- ert um það gefið að ræða það sem gerast muni þegar Jomo Keny- atta forseti hverfur frá og forðast aliar umræður um arftaka hans, en flestir játa að þeir séu uggandi um framtíðina. Almennt er viðurkennt, að þróun mála i Austur-Afriku, bæði i samskiptum kvnþátta og á sviðum stjómmáia og efnahagsmála, muni í rikum mæli mótast af þeim atburð- um, sem gerast muni í Kenya þegar Kenyatta hverfur af sjónarsviðinu. Kenya er auðugra land og lengra á veg komið en nágrannalönd- in Uganda og Tanzanía, en þessi ríki gerðu með sér efnahags- bandalag 1967. Kenya er líka eina ríki svertingja í Afríku (að Suður-Afríku og Rhódesíu und- anskildum), þar sem Evrópumenn hafa setzt að í stórum stíl. Sam- kvæmt manntalinu 1969 eru íbúar landsins um 11 milljónir, og þar af eru 40.593 Evrópumenn, 137.037 Asíu menn og 27.886 Arabar. Evrópumenn og Asíumenn ráða mestu í efnahags- málunum, og mikill hagvöxtur, 6,5% á ári, stafar að miklu leyti af því. Ráðherrar og flokksforingjar hafa hvatt Kenyatta til þess að hraða þeirri þróun að Afríkumenn taki í sínar hendur stjórn atvinnumálanna til þess að landið verði ekki eins háð útlendingum og nú er. En hann hefur að engu haft slík tilmæli og haldið fast við þá stefnu sína að fólk af óiíkum kynþáttum verði að vinna saman og efnahagslifið verði að grundvallast á frjálsu framtaki. Ástæðan er augljóslega sú, að hann veit að Afríkumenn geta ekki stað- ið á eigin fótum fyrr en eftir að minnsta kosti einn mannsaldur eða svo. Tom heitinn Mboya (sem var myrt ur) var eitt sinn álitinn líklegasti arftaki Kenyatta, og hann trúði mér fyrir því að „gamli maðurinn" hefði oft haft áhyggjur af því að sambúð Evrópumanna og Asíumanna yrði erf ið þegar hann hyrfi af sjónarsvið- inu. Hann var sagður hafa orðið mjög gramur þegar hann neyddist til að beygja sig fyrir þvingunum ungra öfgamanna úr flokki sínum KANU 1967 og visaði úr landi nokkur þús- und Asíumönnum og gerði þeim sem eftir voru að sækja um sérstök leyfi til þess að stunda verzlun. Sama ár voru Evrópumenn varaðir við þvi, að ef þeir vildu dveljast áfram í land- inu, yrðu þeir að sýna óskum og von um Afríkumanna aukinn skilning. Enginn veit með vissu hvað Keny- atta er gamall, og hann hefur ver- ið talinn allt að níræður, en ekki yngri en sjötugur. Áreiðanleg- asta heimildin, nýútkomin ævisaga Kenyatta eftir Jeremy Murray- Brown, hermir að hann sé fæddur 1897 eða 1898. Hvað sem því líður er vist, að nú fer að halla undan fæti fyrir Kenyatta. Hann hefur veikzt allhastarlega nokkrum sinnum á síð- ari árum af sjúkdómi, sem hefur ekki verið látinn uppi, og af þess- um sökum hefur hann orðið að draga allverulega úr öllum skyldustörfum. Síðan Kenya hlaut sjálfstæði fyrir níu árum hefur Kenyatta hvað eftir annað komið þeim mönnum á óvart, sem sökuðu hann um að hafa skipu- lagt fjöldamorð Mau Mau á árunum daga eftir 1950, og sýnt í verki að hann sagði satt þegar hann hélt því fram að hann hefði aldrei hatað hvíta menn. Fyrr á árum var hann af mörgum álitinn „foringinn, sem mundi leiða Afríkumenn út i myrk- ur og dauða“ eins og Sir Patrick Renison, landstjóri Breta í Kenya, lýsti honum 1960. Nú er hann af mörgum talinn stjórnvitringur, sem hafi tryggt jafnvægi og innanlands- frið í Kenya. Þessi breyting er ef til vill með því markverðasta, sem hefur gerzt í Afríku síðan nýlendu- öldinni lauk. DULABFULLUR Kenyatta hefur ótrúlega sterk tök á löndum sínum, og skýringin er kannski sú að hann hefur aldrei ver ið kreddufastur stjórnmálamaður. Að visu er hann enn í hjarta sínu Kikuymaður, en samt hefur honum tekizt að sveipa um sig dularhjúp og gert persónuleg völd sín og áhrif að leyndardómi, sem ljómi stafar frá. „Hann er öllum allt, maður leyndar- dóms og hulins valds,“ segir Murray Brown, sem er fyrrverandi sjón varpsframleiðandi hjá BBC. Ekki fer hjá þvi að margt veki óánægju í Kenya, og þar eru líka margir óánægðir ungir menn, sem bölsótast yfir einstökum ráðherrum og flokksbroddum, en reiði þeirra beinist ekki gegn stjórninni í heild, því þá gæti virzt sem þeir væru að gagnrýna „Mzee“ — föður þjóðar- innar, Kenyatta. Meira að segja hvít ir landnemar, sem ennþá muna verstu daga Mau Mau-morðanna við urkenna að „allt verði í lagi meðan gamli maðurinn stjórnar málunum." Afleiðing þessarar lotningar er sú, að í Kenya er mörgum vandamálum ýtt til hliðar og látið eins og þau séu ekki til, en eftir daga Kenyatta Kenyatta. geta þau valdið heilmikilli spreng- ingu. Kenyamenn forðast ekki að gagnrýna Kenyatta eða ræða um val ið á arftaka hans vegna þess að þeir séu fyllilega ánægðir með frammi- stöðu hans og stjórnar hans heldur vegna þess að það er orðin hefð- bundin skoðun að bezt sé að láta forsjónina sjá um slika hluti. Kenyatta er orðin þjóðsaga í lifanda lífi, en hann er ekki ódauðlegur og fyrr eða síðar verða Kenyamenn að horfast i augu við kaldan veruleik- ann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.