Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1973, Blaðsíða 2
2 MORGU'NBLAEMÐ, LAUGARDAGUR 6. JAfNÚAR 1973 Háskólabókasafn: Bókakostur 167 þús. bindi Lestraraðstaða fyrir 800 manns 1 SUMAE fóru fram nokkrar fyrírkomulagsbreyting'ar i II á- skóiabókasafninu. Inngangi í að- alsal var breytt þannig að safn- ið er gert aðgengilegra. Jafn- framt hefur opnunartími aðal- safnsins verið lengdur, þannig að nú er opið að vetrinum til kl. 7 á kvöldin alla virka daga nema laugardaga, þegar opið er 9—13. 1 leiðarvísi um safnið, sem er nýkominn út, og er ókeypis til dreifingar í Háskólabókasafninu, kemur m.a. fram að á vegum Háskólans eru nú um 800 sæti til lestraraðstöðu I dreifðum les- sölum. Þannig eru 16 sæti í að- alsal Háskólans, sérlestrarstofa með 13 sætum er á 1. hæð, 70 sæti eru í hátíðarsal, 40 sæti í tveimur herbergjum sálfræði- nema á 2. hæð, 155 sæti í Áma- garði, fyrir sagnfræði-, málfræði-, bókmenntasögunema o.fl., 108 í Lögbergi fyrir laganema, 63 fyrir viðskiptanema i Bjarkargötu 6, 12 í Raunvisindastofnun, 80 fyrir læknanema í Tjarnargötu 39, 70 fyrir læknanema í Ármúla 30, 26 í atvinnudeildarhúsinu fyrir jarð- og landafræðinema, 50 fyr- ir líffræðinema á Grensásvegi 12, 50 fyrir tannlæknanema o.fl. í Aragötu 9 og 23 i 2 herbergj- um í Landspítala fyrir lækna- nema. Þrettándagleði á ísafirði ísafirði, 5 janúar. SKÁTAFÉLÖGIN á ísafirði, Ein herjar og Valkyrjan, og Kvenfé- Iagið Hlíf efna til þrettándagleði á Eyrartúni í kvöld. Farið verður í blysiför frá skátahieimilinu kl. 6 e. h. og geaigið fylktu liði upp á Eyrar- itúin, Fyrir fylkiinigurmi fara álfa- 'kómgur og d'rottnimg hans ern í fylgd með þeim hirðfólk þeirra, prinsar og prinsessur, biskup, stallari og hirðmeyjar ásamt mikl um fjölöa álfa. Á Eyrartúni verður kveikt í bálkesti og sitiginm dans, en síð- an gemgið fylktu liði niður í bæ afifcur. — Fréttaritari. Þar kemur einnig fram, að bókakostur Háskólabókasafnsins er alls um 167 þúsund bindi og er honum komið fyrir á þrem- ur hæðum í safninu, sem er í aðalbyggingu Háskólans og hef- ur til umráða mestalla bakálmu hússins, Nokkru er þó komið fyrir í öðrum húsum á vegum Háskóians, þ.e. í útibúum og les stofum einstakra deilda eða s ofnana. Aðallestrarsal er skipt í tvo hluta. 1 öðrum hluta hans er lestraraðstaða fyrir notendur safnbóka, en i hinum hlutanum eru spjaldskrár safnsins, helztu uppsláttarrit og nýkomin tíma- ritsheíti. Við safnið starfa há- skólabókavörður, fyrsti bóka- vörður og 4 aðrir bókaverðir, aðstoðarmaður og 3 lausráðnir starfsmenn. Settur háskólabóka- vörður er Einar Sigurðsson cand. mag. Á vegum Háskólabókasafns hef ur verið komið upp útibúum eða sérsöfnum á nokkrum stöðum fyrir tilteknar deildir eða stofn- anir Háskólans. Þessi söfn eru: Ámagarður. Enskustofnun, Framhald á bls. 20. Dýr hola í Sóleyjargötu IVIIKIL hola myndaðist í mal- bikslaglð á Sóleyjargötu í fyrrakvöld á móts við hús nr. 15. Er einn af starfsmönnum Mbl. átti þar leið hjá um kvöld ið fann hann 4 hjólkoppa við holuna. 1 gærmorgun átti hann aftur leið hjá og lágu þá enn aðrir 4 hjólkoppar við holuna. Um hádegisbil hafði bíll bilað við að fara ofan í holuna og voru menn að bjástra við bilinn og höfðu skrúfað imdan honum eitt hjólið. Nú var Ijósmyndari Mbl. sendur út til þess að taka mynd af þessari miklu tor- færu. Þegar hann kom á stað- inn iá við holuna níundi kopp- urinn, en skömmu síðar komu menn frá gatnamálastjóra og fylltu holuna með malbiki, Morgunblaðið spurði Inga O. Magnússon, gatnamála- stjóra, hvort mikil brögð væru að því að göturnar væru illa leiknar. Ingi sagði aðþað væri ekki tiltakanlega, en heldur færu göturnar illa í slikri umhleypingatíð, sem nú hefði verið hér að undan- förnu. Var þetta raunar fyrsta skiptið, sem Ingi heyrði um óhöpp vegna þessa nú, en síð- ustu sólarhringa kvað hann vel hafa gengið að lagfæra það, sem illa hefði farið, enda hefðu viðhaldsflokkar gatna- gerðarinnar ekki sinnt öðrum störfum en bæta í holur. Nýtt leiðakerfi stræt- isvagna Kópavogs Tekið upp skiptimiðakerfi bæði innanbæjar og við Reykjavík BÆJARSTJÓRN Kópavogs hef ur nú samþykkt nýtt leiðakerfi fyrir Strætisvagna Kópavogs og leitar nú samninga við Reykja- víkurborg um samvinnu og teng ingu við leiðakerfi SVR. í þessu nýja leiðakerfi StrætiSvagna Kópavogs er stefnt að einfald- ara en hagkvæmara kerfi fyrir bæjarbúa. Að sögn Ingimars Hanssonar, rekstrarstjóra Kópavogsbæjar er í þessu nýja kerfi gert ráð fyrir skiptimiðum, sem eiga að gilda bæði innanbæjar í Kópavogi og í Reykjavílk. Leiðum Strætis- vagna Kópavogs verður nú öll- um beint á miðstöð SVR — Hlemm, nema snemma á morgm- ana, þá verður farið niður á Lækjartorg. Gert er ráð fyrir því að vagnarnir fari af Hlemmi á 12 min. fresti alla daga nema á kvöldin og um helgar, þá á 20 min fresti. Þetta nýja leiðakerfi gefur bæjarbúum nú kost á innanbæj arferðum i Kópavogi, sem áður var ekki fyrir hendi. Komið verð 12 skuttogarar á nýju skipaskránni Heildarskipastóll landsmanna rúmlega 148 þúsund lestir HEILDARSKIPASTÓLL lands- manna var liinn 15. desemÍK'r orðinn samtals 148.633 lestir, þar af voru fiskisldp alls 83.355 lest- ir. Krýningarpeningurinn nýi. Krýningarpeningur Fischers að koma út BÁRÐUR Jóhannesson, gullsmið- ur er nú að ljúka við að smíða 3. gullpening Skáksamhands Is- lands, en áður liafa verið gerðir tveir peningar, sem uppseldir eru í settum og er peningur nr. 2 enn fáanlegur í einstökum ein tökum. Þessi þriðji peningur er sérstaklega helgaður sigri Fiscli ers og er á honum mynd af Fiseh er og hefur hann verið kallaður „krýningarpeningur". | Fyrirhugað er að gefa aðeins ! út 400 sett af þessum nýja pen- j ing, sem sleginn verður í gull, I silfur og eir. Verða peningamir ! allir númeraðir sjálfir, en pen- ingar úr T. og 2. útgáfu voru ! ónúmeraðir, en þeim fylgdi sér- stakur ábyrgðarseðill, sem var númeraður. Sala á þessum nýja skákpening mun hefjast bráð- . lega. Enginn fundur enn FJÖLMARGAR óiskir uim haíkk- ainir á vöruverði vara, sem háð- ar eru hámarksverði, liggja fyrír verðlagsráði eins og áður hefur margoft komið frarn í fréttum og eins hefu r verið sótt um hækkun álagninigar. í gær haifði enn ekki verið haidinn fiundiur í ráðimu frá áramóitium og er ekki fyrirsjáanlegt að fiundur verði boðaður fyrr en í fyrsta lagi á þriðjutíag. INNLENT Fiskiskipin flokkast þannig: Skip undir 100 rúml. eru 616 að fcölu og samfcals 19.259 lestir. Fiskisikip yfir 100 rúml. eru 215 og samita'ls 41.625 iestir. Síðiutog- arar eru 20 og alls 14.672 lestir, skiuifctogarar eru 12 og saimiba'.s 5.826 lestir og hvalveiðiSkip eru fjögur og alls 1.973. ur á staði í Kópavogi á 12 mín. fresti og fer vagnin ja.fnan í sömiu átt. í hverri.ferð fer hver vagn þrisvar sinnum um miðbæ- inn, fyrst þegar hann kemur úr Reykjavík, aftur þegar hann kem ur úr Austurbænum og í þriðja skipti þegar hann kemur úr Vesturbænum, og á þetta að vera farþegium mjög til hagræðis sem þurfa að komast í opinberar stofnanir eða verzlanir á mið- bæjarsvæðinu. Vonazt er til að þetta nýja leiðakerfi Strætisvagna Kópa- vogs geti komið til framkvæmda með vorinu. Lenti út fyrir flugbrautina FLUGVÉL frá vamarliðinu á Kefilaviikurfliugvelli af gerðinni C 117, sem er breytt útgáfa a>f C 47, hlekktist á í lendingu á fl'Ug- vellinum í Hornafirði um hádeg- i-sbil í gasr. Va-r fl'Ugvélin að koma imieð vaimimg til vamairstöðv- ariinmiar á Stoikksnesi, er hún fór út asf bra'uitinni og sökk alldjúpt í mýri. Saimikvæmt upplýsimgum EMasar Jónissoniar fréttaritara Mbl. á Höfn er bnaiutin oif mjó og stuibt, Skrúifublöð vélarinnar komiu við jörðu, þótt sikemmdir á fiugvél'inni hiaifi ekki orðið miiklar. Fliuigvélin náðisit upp á brauitina aftur um kaiffi'leytið í gær. Leiðrétting: Olíukostnaður úr 15 þús. í 19 þús. kr. miðað við meðalíbúð um 100 ferm 1 FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um hækkiun hitakostnaðar rugl- uðust tölur sem voru lagðar til grundvallar á útreikningi hita- kostnaðar á ári með olíu og var miðað við meðalí'búð. Það er rétt eins og segir í fréttinni að hita- kostnaður hefur hækkað um 19% við síðustu oliuhaíkkun nú um áramótin, en í útreikningi á heildarkosfcnaði við oflíiuhitun meðaiíbúðar, um 100 fierm., á ári ruigtuðuist tölur þanniig að 16.000 kr., sem reiknað hefur verið með sem kostnaði á þessa húsnæðisstærð voru gerðar að oliiulitrum og þegar það var síð- an margfaldiað mieð 4,70 kr. varð talan ískyggilega há. En við hötf- uim að sjálfsögðu það sem sann- ara reynist oig hækkunin er þvi ekki 12.000 kr. á ári eins oig sagt var, heldiur 3000—4000 kr. Ileild arkostnaðurinn hækkar því úr u.þ.b. 15.000 kr. i 18—19 þús. kr. á árín. Eru lesend'ur oig oliunot endur beðnir velviirðiingiar á þess' um mistöikuim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.