Morgunblaðið - 06.01.1973, Side 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1973
Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins:
Stuðningur við ný viðhorf
í geðheilbrigðismálum
Frekari byggingarleyfi ekki
veitt fyrr en heildar-
skipulag hefur verid samþykkt
EINS og skýrt var frá í
Morgunblaðinu í gær var
á fundi borgarstjórnar á
finimtudaginn veitt leyfi
til byggingar húss fyrir
geðdeild Landspítalans á
lóð hans.
Verður nú skýrt frá
þeim umræðmn, er um
málið urðu, á fundi borg-
arstjórnar.
Birgir ísleifur Gmmarsson,
borgarstjóri las bréf frá rekt-
ör Háskóla íslands, Jónatan
Þórmundssyni. í bréfi þessu
mótmælir rektorinn því, að á
ætlun um byggingu geðdeild
arhúss verði tekin fyrir og
samþykkt án þess að nokkuð
samráð hafi verið haft við
Háskólann. Bongarstjóri fór
síðan örfáum orðum um mál
ið og kvaðst telja að deilur
ýmissa sérfræðinga um gerð
og fyrirkomulag hússins væru
ekki á verksviði borgarstjórn
ar. Hennar væri fyrst og
frernst að heimila eða synja
um byggingarleyfi.
Birgir ísleifur óskaði síðan
eftir þvi, að eftirfarandi bók
uai væri gerð og höfðu allir
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins undirritað hana:
„Bygging geðdeildar á lóð
Landspítalans er framkvæmd
þeirrar stefnu, sem fyrri rík
isstjórhir höfðu mótað, þar
sem þvi var yfir lýst, að næsti
áfangi byggingarfram-
kvæmda á lóð Landspítalans,
eftir að bygging kvensjúk-
dómadeildar lyki, væri bygg
ing geðdeildar. Við lýsum ein
dregnum stuðningi við þau
viðhorf, sem ryðja sér æ
meira til rúms, að lækninga
stofnanir geðsjúkra beri ekki
að einangra svo sem tíðkazt
hefur til skamms tíma. Vegna
brýnnar þarfar á sjúkrarými
fyrir geðsjúklinga viijum við
ekki fresta veitingu bygging
arleyfis eða neita um það,
enda er það ríkisvaldsins sem
byggingaraðil'a að bera á-
byrgð á ákvörðunum um bygg
ingaframkvæmdir á lóðinni
og fyrirkomulagi deilda. Við
teljum, að það hefði verið
eðlilegra, að heildarskipulag
lóðarinnar lægi fyrir, áður en
ákveðið væri um byggingu
þessa húss. Leggjum við á-
herzlu á, að' lokið verði við
heildarskipulag lóðarinnar
sem fyrst og teljum ekki
koma til greina að veita
byggingaleyfi fyrir frekari
mannvirkjum á lóðinni én
geðdeildarhúsi, fyrr en heild
arskipulag hefur verið sam-
þykkt.“
Sigurliiiig Bjarnadóttir (S)
kvaðst telja byggingu geð-
deildar aðkallandi nauðsyn og
jafnframt væri með bygginga
áformunum farið eftir þeirri
meginstefnu að ekki beri að
einangra geðsjúka frá öðru
fól'ki hvorki heilbrigðu né
sjúku. En aftur á móti sýndist
henni sem með umræddri
byggingu, er rísa ætti við hlið
Hjúkrunarskólans yrði hann
mjög aðkrepptur og kvaðst
hún vona, að tekið yrði fullt
tillit til þarfa skólans í þessu
sambandi.
Borgarfulltrúinn sagðist
hafa heyrt, að áform væru
uppi um að taka húsnæði
Hjúkrunarskólans undir
sjúkrarúm fyrir langlegu-
sjúklinga en er hún hefði leit
að staðfestingar á þessu í heil
brigðisráðuneytinu hefði þvi
verið neitað. Sigurlaug varp
aði fram þeirri spurningu
hver vera mundu áform
stjórnvalda um byggingu
langlegudeildar og hvort
bygging geðdeildar gæti
seinna meir með staðsetningu
sinni tálmað slíkum fram-
kvæmdum eða annarri þróun
lóðarinnar þar sem heildar-
skipulag hennar frá rikis-
valdsins hendi iægi ekki fyrir
enn.
Að lokum kvaðst hún telja,
að forðast bæri að líta á er-
lenda sérfræðinga þeim aug-
um, að þeir væru óskeikulir
og alvitrir. En þá agnúa er
hún sæi á þessum fyrirhug-
uðu framikvæmdum teldi hún
ekki það stóra, að þeir ættu
að nægja til frekari frestun-
ar á afgreiðslu leyfisins og
kvaðst hún ætla að sitja hjá
við atkvæðagreiðslu um mál-
ið.
Albert Guðnmndsson (S)
sagðist hafa óskað eftir frest
un á afgreiðslu þessa máls á
síðasta fundi til þess að hann
gæti aflað sér frekari gagna
um það. Hann kvað gagna-
söfnun hafa verið erfiða nú
yfir nýliðna hátiðisdaga og
hann hefði fengið mikið af
þeim gögnum er hann hafði
óskað eftir nú rétt fyrir fund
inn og ekki haft tima til þess
að kynna sér þau og kvaðst
hann leggja það í dóm borg-
arfulltrúa hvort þeir teldu að
þessi frestur yfir jólin hefði
verði nægjanlegur.
Borgarfulltrúinn taldi
byggingu geðdeildar nauðsyn
og vera rétt framhald í mál-
efnum Landspítalans eftir að
byggingu kvensjúkdómadeild
arinnar væri lokið og sagði
hann að raunverulega væru
mál sem þessi hafin yfir
stjórnmálaágreining.
Albert benti borgarfulltrú
um á bréf Háskólarektors sem
sér hefði borizt í dag þar sem
rektor kvaðst óska þess að
sameiginlegar umræður færu
fram milli ríkisins og Háskóí-
ans áður en ákvörðun yrði tek
in og að jafnframt yrði beðið
eftir áliti sérfræðings frá Eng
landi sem vinnur nú að loka-
tillögu í málinu.
Að lokum óskaði Albert eft
ir því að borgarstjóra yrði fal
ið að sjá til þess, að rikisvald
ið stæði við gerða samninga
er það fengi til afnota lóð
Sumargjafar á horni Snorra-
brautar og Hringbrautar. En
í samningi þessum er kveðið
á um að ríkið afhendi Sumar-
gjöf hús af ákveðinni stærð á
lóð sem Reykjavík láti félaig
inu í té.
Steinunn Finnbogadóttir
(Sfv) kvaðst gleðjast yfir því
að þetta mál muni nú ná fram
að ganga en í mál'efnum geð
sjúkra, og langlegusjúklinga
sé nú brýnust þörf úrbóta,
eftir að Kvensjúkdómadeild-
in sé risin af grunni.
Borgarfulltrúinn sagði að
enginn ágreiniingur væri um
nauðsyn húss fyrir geðdeild
heldur aðeins um stærð þess
og kvaðst hún vona að smá-
smuguleg togstreita innan
Landsþítalans og hjá ýmsum
sérfræðingum mundi ekki ná
að tefja eða stöðva málið.
Björgvin Guðniundsson (A)
lýsti yfir samþykki sínu við
bóbun borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. En sagði
jafnframt að stærð umrædds
húss hefði vakið nokkra furðu
sína er sér hefði verið sýnt
líkan af því. Aftur á móti
væri það ótvírætt, að geðdeild
ætti heima við Landspítalann
og mundi hann greiða atkv.
með samþykkt byggingaleyfis
iins.
Giiðniundiir G. Þórarinsson
(F) taldi að samþykkt bygg-
ingaleyfisins verði umdeild
og ámælisvert sé, að þetta sé
gert án þess að heildarskipu-
lag lóðarinnar liggi fyrir. —
Reykjavikurborg beri auðvit-
að ábyrgð á því hvemig borg
in byggist upp og því sé það
skylda hennar að ýta á eftir
heildarskipulagi stórra lóða
og vilji hann í þvi sambandi
benda á lóð Borgarsjúkrahúss
ins og lóð Háskólans. ,
Adda Bára Sigfúsdóttir (K)
taldi það vera rangt sem fram
kæmi i bréfi rektors Háskól-
ans að „starfshópur" um geð
heilbrigðismál stæði að vænt
anlegri byggingu. Það væri
að sjálfsögðu heilbrigðisráðu
neytið sem það gerði og hún
hefði aldrei hey-rt það fyrr
að Háskóli íslands þurfi að
samþykkja byggingar sjúkra
húsa. Borgarfulltrúinn kvaðst
telja að Albert Guðmundsson
mundi halda áfram að fá frek
ari gögn frá þeim er fresta
vilji málinu og muni þau jafn
an berast á síðasta degi ef
frekari frestun verði sam-
þykkt. Hún sagðist ekki geta
samiþykkt að hlutur borgar-
stjórnar ætti í þessu máli að
vera annar en sá, að annað
hvort að leyfa eða banna
byggingu ákveðins húss á á-
kveðnum stað. Adda Bára
sagðist gjarnan vilja að það
kæmi fram hér að öll sérfræði
þekking hnigi að þvi, að tekn
ar hefðu verið réttar ákvarð-
anir um stærð hússins og bún
að og vissu.lega væri skemmti
legra að vera nú gagnrýndur
fyrir að byggja of stórt held
ur en að fá innan fárra ára
ádrepu fyrir smásálarskap.
Hún benti einnig á að bygg-
inganefnd Landspítalans sem
fylgzt hefði með þessu máli
alla tíð hefði í engu lýst yfir
óánægju sinni. Að síðustu
kvaðst hún vona að málinu
yrði ekki frestað af því áríð
andi væri að framkvæmdir
gætu hafizt næsta haust.
Albort Guðmundsson (S)
ikvaðst vilja leiðrétta þann
misskilning Öddu Báru að
hann hefði óskað efttr frekari
frestun, það hefði hann ekki
gert. Hann hefði aðeins spurt
hvort jólin væru eðlilegasti
tíminn til gagnasöfnunar í
máli þessu. Þá ítrekaði hann
að rektor Háskólans hefði
mótmœlt afgreiðslu málsins
og jafnframt kvaðst hann
hafa heyrt því fleygt að álit
enska sérfræðingsins væri
neikvætt fyrir úmrædda til-
lögu.
Adda Bára Sigfúsdóttir (K)
svaraði Albert nokkrum orð
um og sagði að hér stæði til
að byggja geðdeiid við starf-
andi spítala en ekki nýtt geð-
sjúkrahús.
Kristján Benediktsson (F)
sagðist telja að faglegar um
ræður um geðdeildina ættu
ekkert erindi í borgarstjórn
en harmaði að Reykjavíkur-
borg skyldi hafa afsalað sér
yfirráðum yfir lóð Landspítal
ans. Hann las síðan upp bók-
lun sem borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins óskuðu
eftir að gera:
„í sambandi við afgreiðslu
á 5. lið í fundargerð bygginga
nefndar frá 14. desember sl„
þar sem fjallað er um bygg
ingu fyrir geðsjúklinga á lóð
Landspítalans, viljum við
taka eftirfarandi fram:
Ríkisvaldið hefur fengið
Landspitalasvæðið til umráða
og skipulagningar fyrir
sjúkrastofnanir með þeim skil
málurn, að nýtingarhlutfall á
svæðinu í heild fari ekki yfir
0,6.
Þar sem bæði skipulags-
nsfnd og byggingarnefnd-
hafa fyrir sitt leyti samþykkt
staðsetningu og byggingu um
rædds geðsjúkrahúss og mik
il þörf er á slíkum stofnun-
um, teljum við ekki rétt að
leggjast gegn málinu, þótt
við hiins vegar hljótum að
láta í ljós nokkrar efasemdir,
að þvi er varðar stærð og stað
setningu byggingarinnar.
Þá teljum við ámælisvert,
að ekki skuli liggja fyrir
heildarskipulag af Landspát
alalóðinni, þegar um er að
ræða svo mikilvæga ákvörð
un sem bygging geðsjúkra-
hússins vissulega er.“
Að síðustu tók Birgir ísleif
Framliald á bis. 23
UMBOOSMENN
■QÍIltíj fREVKJMUÍK
OC NÁGRENN!
Aðalumboð, Austurstræti 6
Skrifstofa S.Í.B.S., Bræðraborgarstíg 9
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26
Hreyfill, Fellsmúla 24
Verzl. Straumnes, Vesturbergi 76
Félagið Berklavörn, Hafnarfirði
Styrktarsjóður sjúklinga, Vífilsstöðum
Litaskálinn, Kópavogi
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16—18, Garðahr.
SEÐILL FYRIR ÞÁ SEM ENN HAFA EKKI TEKIÐ
ÞÁTT í GETRAUNINNI
I
| NAFN:1
HEIMILISFANG:
SlMI:
L
f
2
3
HVAR ERU AUKAVINNINGARNIR?
SETJIÐ KROSS i ÞÁ REITI SEM VIÐ Á
□ VIÐ LAGARFLJÓT
□ i BORGARFiRÐI
□ l MÝVATNSSVEIT
□ I SURfSEY
□ Á SPRENGISANDI
□ VIÐ KLEIFARVATN
□ VIÐ HJÁLPARFOSS
□ VIÐ GULLFOSS
n VIÐ GLANNA
SKILIST TIL NÆSTA UMBOÐSMANNS,
EÐA I PÓSTI TIL SKRIFSTOFU SÍBS,
BRÆÐRABORGARSTlG 9, REYKJAVÍK
SKILAFRESTUR ER TIL 10. JANUAR