Morgunblaðið - 06.01.1973, Síða 17
MORGU'NHLAÐIÐ, LAUGARDAGÖR 6. JANÚAR 1973
17
„Misskilningur
Stefáns
Gunnlaugssonaru
1 tMefmi þess, að í gredn
Sfcefáns Gu nn 1 a u gss on a r í
Morgunblaðinu og Alþýðu-
blaðinu þ. 4. þ.m. birtist sér-
stök bókun, er hann lét gera
á fundi islenzku sendinefndar
innar þ. 16. nóv. s.l. varðandi
afstöðu sendinefndarinnar til
vissra mála, æskja undirritað
ir sendinefndarmenn, er sátu
þingið á þessum tkna að birta
sv&r meirihluta nefndarinnar
við greinargerð Stefáns. Enn-
fremur viljum við birta fyrir-
vara þann, sem fastafulltrúi
Islands, Haraldur Kröyer,
hafði um atkvæðagreiðslu Is-
lands og um getur í svarbók-
un ofekar. Bæði svarið og fyr-
irvarinn er biirt með sam-
þykki utanrikisráðuneytisins.
Bnda þótt undirrituð hafi
ýmdslegt við grein Stefáns að
athuiga að öðru leyti, verður
ekki um það fjallað hér.
Hannes Pálsson,
Alfreð Gíslason,
Svava Jakobsdóttir,
Pétur Sigurðsson.
SVAR VIÐ GREINARGERÐ
STEFÁNS
GUNNLAUGSSONAR
Sendinefhd Islands á 27.
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna hefur kynnt sér
greinargerð, sem Stefán Gunn
laugsson hefur samið, dags.
16. nóvember, viðvikjandi af-
stöðu íslenzku sendinefndar-
innar til efnisafgreiðslu mála
á yfirstandandi þingi.
Greinargerð þessi virðist
bygigð á misskiiningi eða van-
þekkingu á efni þeirra mála,
sem þar er um fjatlað. Skal
það nú hér nánar rakið.
1. Þ&ð er misskilningur að á
utanríkisráðherrafundinum í
Helsingfors 1. og 2. september
1972 hafi verið ákveðið hvern-
ig greitt skyldi atkvæði um
tillögur í kynþáttamálum Suð-
ur-Afriku á þingi S.þ., enda
lágu á þeim tima engar slík-
ar tillögur fyrir.
1 atkvæðagreiðslu um apart-
heidtillögu i hinni sérstöku
pólitísku nefnd þann 1. nóv-
ember greiddi islenzka sendi-
nefndin atkvæði á nákvæm-
lega sama hátt og á 26. alls-
herjarþinginu. Þá skal það og
undirstrikað, að í leiðbeining-
um um afstöðu Norðurlanda
til Afrikuimála er ekkert að
finna, sem mælir gegi. því að
riki taki þá afstöðu i apart-
heidmálum, sem islenzk&
sendinefndin stóð að á 26. og
27. allsherjarþinginu.
Það er misskilningur hjá
höfundi, að í tillögunni hafi
vefið m.a. gert ráð fyrir vald-
beitingu með vopnum gegn
þjóðskipulagi Suður-Afríku.
Undirstrikað v&r i tillögunni,
að þær aðgerðir, sem þar er
um rætt, skuli miða að lausn
málsins með friðsamlegu
móti. Fráleit er þvi sú skoðun
höfundar, að í tillögunni fel-
ist „brot á stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna". Er vandséð
hvaðan honum kemur sú lög-
vísi.
1 7. mgr., sem fjallar um
aðgerðir skv. VII. kafla stofn-
skrárinn&r, kemur skýrt fram,
að eingöngu er átt við frið-
samlegar aðgerðir.
10. málsgredn fjaliar um
rétt nýlenduþjóða Suður-
Afriku til að neyta allra til-
tækra ráða til að ná rétti sln-
uim. Um þá málsgrein var
gerður fyrirvari &f Islands
hálfu.
Að lokinni atkvæðagreiðslu
um tillöguna gerði fastafull-
trúinn grein fyrir atkvæði Is-
lands. Undirstrikaði hann
skilning sendinefndarinnar á
ofangreindum atriðum, og
lýsti fyrirvara um einstakar
málsgreinar.
2. I greinargerð Stefáns
Gunnlaugssonar uim afstöðu
sendinefndarinnar til staðsetn
ingar Umhverfisstofnunar S.
Þ. og afgreiðslu þess máls i
2. nefnd þingsins gætir og mik
illa missagna.
Varðandi staðsetningu stofn
unarinnar fylgdi sendinefndin
tveimur brey tinga rtil lögu-m
við tillögu þróunarlandanna
um að stofnuninni yrði val-
inn staður í Nairobi. Báðar
þessar breytingartillögur mið
uðu að því að fresta málinu
til frekari athuigunar.
Tillögur þessar voru hins
vegar báðar felldar. Að þeim
felldum hafði sendinefndin
fyrirmæli um að sitja hjá um
aðaltillöguna, nema nefndin
teldi ákveðin rök eð& hags-
rnuni Islands mæla með sam-
þykkt tillögunnar. Þau rök
taldi nefndin þessi helzt:
1. Dreifing stofnana S.þ. væri
æskileg.
2. Beinir hagsmuniir Islands i
umhverfismálum hnigu að
nánara samstarfi með þeirn
þjóðum, sem fyrirbyggja
vildu mengun en háþróuð-
um iðn&ðarrikj'um.
3. Nauðsyn að halda vináttu
og fylgi þróunarianda í lífs-
hagsmunamáli Islendinga.
Firra er það hjá höfundi, að
Island hafi eitt þróaðra landa
greitt atkvæði með Nairobi.
Það gerðu ýmis önnur riki
utan þiöunarianda, svo sem
Júgóslavia, Rúmenía, Israel
og Kína.
3. Loks skal vikið &ð vanga-
veltum höfundar um að Is-
land hafi í atkvæðagreiðslum
skorið siig úr hópi Norður-
landa og hafi með þvi dregið
úr „þeirfi jákvæðu samvinnu,
sem tekizt hefur að byggja
Aipp á liðnum áruim.“
Höfundi virðist ókunnugt
um það að á þessu þingi, sem
öðrum, kemur það iðulega fyr
ir, að Norðurlönd greiði at-
kvæði á mismunandi hátt. Is-
lenzka nefndin hefur nú sem
fyrr haft náið samstarf við
Norðurlandaþjóðirnar, en mót
ar auðvitað afstöðu sína fyrst
og fremst i s&mræmi við ís-
lenzka hagsmuni. Er ekki vit-
að til að fulltrúar Norður-
landa á allsherjarþinginu hafi
kvartað undan skorti á sam-
vinnuvilja íslenzku sendinefnd
arinn&r, þótt Stefán Gunn-
laugsson telji hann vera áber
andi og til hneisu.
Að lokum vilja undirritaðir
sendinefndarmenn á 27. alls-
herjarþingi lýsa undrun sinni
á þvi, að Stefán Gunnlaugs-
son skuli ekki hafa lagt fr&m
rökstutt sératkvasði á þeim
fundum, sem afgreiðsla ofan-
greindra mála var ákveðin, í
stað þess að bera fram löngu
eftir á órökstudda gagnrýni í
því formi, sem að ofan grein-
ir.
Framh. á bls. 23
Ingólfur Jónsson:
Tollfrelsi iðnaðarvara er
landhelgismáli óviðkomandi
Islendingar gerðu samning
við Efnahagsbandalag
Evrópu s.l. sumar. Var samn-
ingurinn undirritaður 22. júlí
í Briissel. Ekki hefur verið
mikið að þvi gert að kynna
þennan samning fyrir al-
menningi. Má þó fullyrða, að
hann er mjög þýðingarm'ikill
fyrir útflutningsatvinnuveg-
ina.
Samningurinn er mjög við-
tækur og getur haft mikil
áhrif til frambúðar á þjóðar-
búskap Islendinga.
Árið 1970 byrjuðu viöræð-
ur Islands og hinna EFTA-
l&ndanna við Efnahags-
bandalagið. Augljóst var, að
stækkun Efnahagsbandalags-
ins og brottför Danmerkur,
Noregs og Bretlands úr
EFTA hefðu í för með sér
mikil vandamál fyrir þau
lönd friverzlunarbandalags-
ins, EFTA, sem ekki vildu
gerast aðilar að Efnahags-
bandalaginu.
Islenzku samningamennirn
ir, undir forystu Þórhalls Ás-
geirssonar, hafa unnið goft
st&rf, og náð mjög hagstæð-
um samningi fyrir íslands
hönd. Samningurinn er um
friverzlun með iðnaðarvörur
og sjávarafurðir. Tekur hann
til 70% af útflutningnum til
landa Efnahagsbandalagsins.
Það hefur euðvitað mjög
mikla þýðingu fyrir útflutn-
ing iðnaðarvara og sjávaraf-
urða frá íslandi, hversu hér
verður um stóran markað að
ræða. Efnahagsbandalagið
mun afnema fcolla á vörum
frá íslandi i fimm áföngum frá
1. apríl 1973 til 1. júlí 1977.
Á móti þessum fríðindum
hafa Islendingar fallizt á, að
fella niður verndartolla á
sömu vörum frá band&lags-
löndunum, miðað við sömu
tímaáætiun og gildir um
EFTA-löndin.
Samningurinn nær ekki til
landbúnaðarafurða. Var
reynt að fá fríðindi fyrir ís-
lenzkt lambakjöt, en það
tókst ekki. Má segja, að það
h&fi verið heppilegt fyrir Is-
land að Noregur gekk ekki í
Efnahagsbandalagið. Það
hefði getað spillt fyrir þeim
ágæta markaði, sem nú er fyr
ir íslenzkt dilkakjöt í Noregi.
Ytri tollur Efnahagsbanda
l&gsins mun vera 20% á
kindakjöti, sem selt er til
landa bandalagsins. Við
samningsgerðina, var ráð fyr
ir þvi gert að samningurinn
gengi í gildi 1. janúar 1973,
eftir að hann hefði verið full
giltur af samningsEðilum. Þó
er heimiilt að fresta löggild-
ingu hans til 30. nóvember
1973. Tæki hann þá gildi 1.
janúar 1974. Samningurinn
hefur ekki enn verið lagður
fram á Alþingi til sa-mþykkt
ar. Er þvi borið við, að Efna-
hagsband&lagið hafi áskilið
sér rétt til þess að láta toll-
fríðindi fyrir sjávarafurðir
ekki taka gildi nema viðun-
andi lausn fyrir bandalags
rikin næðist í landhelgismál-
inu. Islendingar áskildu sér á
sama hábt rétt til ákvörðun-
ar með tilliti til þess, hvort
fyrirvara Efnahagsbandalags
ins yrði beitt. Þessir fyrirvar-
ar eiga ekki að vera því til
hindrunar, að samningurinn
verði fullgiltur áður en l&nd
helgisdeilan er leyst. Samn-
ingurinn tryggir örugglega
strax tollfríðindi fyrir iðnað-
arvörur og áframhaldandi fri
verzlun fyrir íslenzkar vör-
ur i Englandi og Danmörku.
Þó er engan veginn víst, að
fyrirvari Efnahagsb&ndalags
ins kæmi til framkvæmda. En
ef svo færi, tækju tollfríð-
indi fyrir sjávarafurðir ekki
gildi fyrr en lausn er fund-
in á land'helgisdeilunni.
SAMNINGINN BER A»
LÖGGILDA STRAX
Samkeppnisaðstaða útflutn
ingsiðnaðar hefur versnað á
síðustu mánuðum og horfir
nú þunglega í málum iðnað-
arins. Til þess að samningur
inn geti tekið giidi 1. apríl
n.k. þegar fyrsta tollalækkun-
in á að koma til framkvæimda,
þarf að ganga frá fullgild-
ingu hans fyrir febrúariok.
Ríkisstjórnin verður því að
leggja samninginn fram á Al-
þingi strax þegar það kemur
sarnan, svo að málið frestist
ekki og stórtjón hljótist af.
Allir vona, að landhelgismál-
ið leysist áður en iangur tími
liður, á farsælan hátt. Njóta
lslending&r örugglega þá
sömu fríð'nda um útflutning
á sjávarafurðum, og þeir fá
strax á iðnaðarvöirum. Eftir
að Island gerðist aðili að
EFTA, vaknaði mikill áhugi
fyrir útflutningi íslenzkra
iðnaðarvara. Menn gerðu sér
grein fyrir stór&uknum mögu
leikum á nýjum markaði. Ár
angurinn hefur ekki látið á
sér standa. Útflutningur ís-
lenzkra iðnaðarvara hefur
aukizt ótrúlega mikið, við
batnandi skilyrði, m.a. vegna
EFTA-aðild&r. En samningur
inn við Efnahagsbandalagið
skapar enn meiri möguleika,
Ingólfur Jónsson
sem nauðsyn ber til að nofa
án tafar. Landhelgisdeilan á
ekki að tefja fyrir því, að við
notum þann þátt samningsins
sem örugglega getur komið
strax til framkvæmda, og
yrði okkur til stórávinnings.
íslenzka samninganefndin
tók skýrt fram í samningun-
,um. að fiskveiðiréttindi og
viðskiptafríðindi va?ru að
öllu leyti óskyld mál og kæmi
ekki til mála að semj& um
fiskveiðiréttindi fyrir Efna-
hagsbandalagslöndin í skipt-
um fyrir viðskiptafríðindi.
Fullgilding samn'ngsins af
íslands hálfu er því rökrétt
ft'amhald af yfiriýsingum
nefndarinnar og yrði ekki
misskilin af neinum. Vegna
verðbólgunnar á atvinnu-
reksturinn við mikla erfið-
leika að etja. Fullgilding
samningsins við Efnahags-
bandalagið gæti orðið til mik
ils hagnaðar fyrir atvinnuveg
ina og þjóðarbúið. Þeir sem
við atvinnurekstur fást, hafa
kynnt sér umræddan samn-
ing, og gert sér grein fyjár
gildi hans. Það sýna með-
fylgjandi ályktanir: „Aðal-
fundur Verzlunarráðs Islands
1972 fagnar þvi að vel hefur
tekizt gerð viðskiptasamn-
ings við EBE og væntir þess
&ð fullgilding samningsins
geti farið frám á tilsettum
tíma."
„Fundur fulltrúaráðs sölu-
stofnunar lagmetisiðnaðarins
haldinn á Hótel Esju, 2. ágúst
1972 samþykkir að bera fram
þakk'r til samninganefndar
íslands hjá Efnahagsbanda-
lagi Evrópu fyrir þann ágæta
árangur, sem þar hefur
náðst. Er það von fundarins,
að þau aðgengilegu tollakjör,
sem Islandi hafa boðizt hjá
Efnahagsbandalaginu hljóti
f&rsæJa staðfestingu." „Fram
kvæmdastjórn Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga lýsir
þeirri -'koðun sinn*. að samn-
ingur sá um friverzlun og
toHamá' tpiv undirritaður
var í Brussel 22. júlí sl. milli
íslands og Efnahags-
banda'&ns Fvírnrni hafi mikla
þýðingu fyrir íslenzkan út-
flutning í framtíðinni. Á
fundi framkvarmdastjórnar
innar 20. des. 1972 var sam-
þvkkt að beina þeim tilmæl-
um til ríkisstjórnarinnar að
samn'ngur þessi verði stað-
festur sem fyrst."
FÉI.AG ÍSI.ENZKRA
FDNREKENDA 7. des. 1972
„Ef s&mningurinn við Efna
hagsbandalagið verður ekki
fuligiltur vofir sú hætta yfir
að ísland einangrist efnahags
lega )g menningarlega .frá
helztu viðskipta og nágranna-
löndum sínum. Einnig er lík-
legt, að seinn& yrði erfitt að
ná jafn hagkvæmum samning
um og nú hefir tekizt."