Morgunblaðið - 06.01.1973, Qupperneq 23
MORGU'NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANOAR 1973
23
— Listasafn
Framhald af bls. 11
með bílastæðum undir. I gömlu
byggingunni er gluggalaus sal-
ur, sem t.d. einvörðungu virðist
nýtanlegur til sýningar á grafik
og er það vel, því sú listgrein
hefur verið hálfgerð hornreka
hjá okkur.
Fleiri atriði mætti benda á, en
ekki er ástæða til að svo stöddu
að fara út í þá sálma. Aðeins
skal áréttað, að svo virðist, sem
Uúsafriðunarnefnd líti á húsið
Fríkirkjuveg 7 sem teiknaða
mynd á fleti en ekki byggingu,
sem hefur hlutverki að gegna.
Þetta eru nú orðin æði löng
skrif, en þau hafa dregizt af
ástæðum, sem yður munu kunn-
ar, og þætti mér leitt til afspurn
ar, ef Húsafriðunamefnd getur
ekki séð, að húsinu Fríkirkju-
vegi 7 væri í engu spillt, þótt
mænir þess yrði hækkaður
jafnt til beggja enda, (en þann-
ig er húsið nú), en notagildi
þess hins vegar stórum betra.
Virðingarfyllst,
Gunnlaugur Þórðarson.
Bréf dr. Gunnlaugs til
ríkisstjórnar íslands -
Landsbyggðargjöfin:
Listasafnsbygging
Reykjavík, 20. des. 1972.
Undirrituðum þykir eftir at-
vikum rétt og skylt að senda
hæstvirtri ríkisstjórn Islands
Ijósrit af bréfaskiptum, sem far-
ið hafa fram varðandi húsið Frí-
kirkjuvegur 7 hér í borg, sem
nú er eign Listasafns Islands.
Leyfi ég mér í þvi sambandi
að setja fram þá hugmynd, sem
ég vék lauslega að við mennta-
málaráðherra Magnús Torfa
Ólafsson á s.l. sumri, að 1100 ára
afmælis íslandsbyggðar verði
m.a. minnzt með því að taka hús
ið Fríkirkjuvegur 7 formlega í
notkun sem listasafn eða vígja
það sem slíkt á árinu 1974.
Segja má að landnám mynd-
listar og raunar fleiri listgreina
hafi átt sér stað á yfirstandandi
öld, og þvi færi vel á því að
tengja afmæli landnámsins um-
ræddu landnámi myndlistar.
Þetta ætti og sérstaklega vel
við, þar sem afmælisgjöfin bein-
ist fyrst og fremst að Reykvík-
ingum, en vagga landnámsins
stóð þar, bæði hin sögulega og
listræna. Þvi fer vel á því að
Reykvikingar séu heiðraðir á
þann hátt. Um leið myndu verk
landnámsmanna „myndlistar"
eins og Jóns Stefánssonar, Ás-
gríms Jónssonar, Jóh. S. Kjarval,
Jóns Engilberts og Gunnlaugs
Scheving, svo að nokkrir séu
nefndir, fá verðuga umgerð.
Slík gjöf sæmir islenzku þjóð-
inni betur en byggimg gervi-
sögualdarbæjar, sigling á
gervi-víkingaskipi umhverfis
landið eða brennur á fjallatind-
um, svo ekki sé fleira álíka
spaugilegt tilgreint.
Einn höfuðkostur við þessa
hugmynd er þó ónefndur, en
hann er sá að fé það, sem varið
skal til þess að fullgera húsið
Fríkirkjuvegur 7 sem listasafn,
þarf ríkissjóður fyrr eða síðar
að reiða fram, að svo miklu leyti
sem brunabótafé og byggingar-
sjóður listasafnsins hrökkva
ekki til. Þannig að þarna er um
tvöfaldan ávinning að ræða.
Slikt hið sama verður ekki sagt
um margar hugmyndir hátíðar-
nefndarinnar.
Yfir slíkri gjöf sem byggingu
listasafns hvilir blær alvöru,
virðingar og menningar, sem hæf
ir þeim atburði, sem hún á að
minna á.
Samrit bréfs þessa er sent
húsaf riðunar nef nd.
Með sérstakri virðingu,
dr. Gunnlaugur Þórðarson,
hrl.
Eftirmáli:
Ahrif gengisfellingar
Þess skal getlð að lokum, að
eigi hefur enn verið geng-
ið formlega frá umræddum
makaskiptum, þ.e. með afsölum.
Mun það tvímælalaust vera
vegna áhrifa yfirvofandi gengis-
fellingar. Því ég tel mér óhætt
að fullyrða, að þeir Framsókn-
armenn, sem að samningagerð-
inni stóðu, hafi ekki viljað láta
flokk sinn hagnast vegna geng-
isfalls á kostnað Listasafns ís-
lands. Það er augljóst mál, að
fasteignin Austurstræti 12 hef-
ur hækkað í verði vegna geng-
isfellingar ísl. kr., og endur-
byggingarkostnaður Fríkirkju-
vegar 7 aukizt að sama skapi.
Væntanlega mun þessi hlið máls-
ins leyst með mati eða á annan
viðunandi hátt, þannig að hag-
ur Listasafns Islands verði virt-
ur að þessu leyti.
Millifyrirsagnir eru mínar.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 5
ur Gunnarsson, borgarstjóri
aftur til máls. Hann kvaðst
vilja leiðrétta það hjá Krist-
jáni að borgin hefði afsalað
sér yfirráðum yfir lóð Land-
spítalans. Allt skipulag lóðar
innar væri háð samþykki
borgaryfirvalda en eðlilegt
þætti, þar eð um lóð undir sér
hæfða starfsemi væri að
ræða, að lóðarhafi hefði sjálf
ur f.rumkvæðið í skipulagn-
iingu hennar.
Umræðum um fundargerð
bygginganefndarinnar var nú
lokið og hún samþykkt með
12 samhljóða atkvæðum en
Al'bert Guðmundsson (S),
Silgurlaug Bjarnadóttir (S)
og Guðmiundur G. Þórarins-
son sátu hjá.
1971:
Skráðir 9 brun-
ar og 7 slys
vegna rafmagns
í ÁRSSKÝRSLU Raifmagnseftir-
lits rikisins fyrir árið 1971 eru
skráðir 9 brunar, sem víst er tal-
ið eða sennilegt að hafi orðið af
völdum rafmagns. Skýrstur um
tvo þeirra hefur Rafmanigs-
eftirlit ríkisins tekið saman að
lokinni skoðun, um 6 þeirra hef-
ur koimið skýrsla frá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur og um einn
frá Rafveitu Selfoss. Alls eru í
s'kjalasafni Rafmagnseftirlits rík
isins skýrslur um 41 bruna á áir-
inu.
Er í skýrslunini birtur úrdrátt-
ur úr einstökum brunaskýrslum
og lýst orsökum brunanna. M. a.
er þar ikvikmun í lestrarsal
L andsbó ka.s a fns Islands, sem
ekki varð þó af tjón, en orsök
reyndist ólöglegur frágantgur
flúrlampa í ljósaröð. Straum-
festur voru settar beint á
brennanlegt undirlag og við
skammhlaup í einni þeirra kvikn
aði í.
Þá eru í skýrslunmi skráð slys
af völd'um rafmagns og eru þau
7 talsins á árinu 1971.
- Misskilningur
Framhald af bls. 17
Vilja undirritaðir lýsa því
yfir, að góð samvinna hefur
ríkt innan sendinefndarirtnar,
ekki aðeins um afstöðu til
þeirra mála, sem að ofan er
fjallað, heldur og til annarra
þingmála, sem á dagskrá hafa
verið.
New York, 17. nóv. 1972
Haraldur Kröyer,
Gunnar G. Schram,
Alfreð Gíslason,
Hannes Pálsson,
Svava Jakobsdóttir,
Pétur Sigurðsson.
Greinargerð Haralds Kröy-
er, sendiherra, fyriP atkvæði
íslenzku sendinefndarinnar
um tillögu varðandi aðskilnað
arstefnu rikisstjórnar Suður-
Afríku, fliutt í sérstöku stjóm
málanefnd allsherjarþings S.
þ. 1. nóvember 1972:
Með þvi að greiða atkvseði
með öllum ályktunartillö'g'un-
um, sem fyrir nefndina voru
lagðar, vildi íslenzka sendi-
nefndin láta I ljós stuðnimg
simm við aðgerðir, sem miða
að því að skapa þrýstimg gagm
vart Suður-Afríku svo að þ&ð
ríki láti af aðskilmaðarstefnu
sinni.
Ekki má líta á samþykki
sendinefndarinnar á hinni end
urskoðuðu ályktunartillögu
nr. A/SPC/L.243 sem sam-
þyikki á öllum efnisatriðum
og tilmælum, sem í henni fel-
ast.
Islenzka sendinefndin verð-
ur, með tilliti til virðingar fyr
ir m&rkmiðum og grundvallar
reglum stofnskrár S.þ. og
vegina raunhæfra möguleika,
að lýsa yfir nokkrum fyrir-
vörum.
Þrátt fyrir samúð mieð kúg-
uðum ibúum Suður-Afríku,
getur íslenzka sendánefndin
ekki samþykkt valdbeitingu,
né heldur er sendinefndin
sannfærð um að æski'legt sé
að slíta öllum samskiptum
við Suður-Afrítou. (We are
not afole to endorse the prím-
ciple of the possible use of
force, although we have the
deepest sympathy with the
desparate plight of the op-
pressed people of South
Africá. Furthermore, we have
doubts as to the wisdom of
disoontinuing all forms of
contact with South Africa).
Samkv. fundargerð
nr. A/SPC/SR. 828
íbúð í Huinarfirði
Hefi kaupanda að 4ra — 5 herbergja íbúð í Norður-
bænum í Hafnarfirði. íbúðin má vera í smíðum. Góð
útborgun.
GARÐAR GARÐARSSON, lögfræðingur,
Tjarnargötu 3, Keflavík,
simi 92-1733, heimasími 40046.
Stálgrindarskemma
til leigu
Á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs er til leigu stál-
grindarskemma. Flatarmál 1600 ferm. Lofthæð
8 metrar. Færanlegur krani, sem lyftir 6000 kg hvar
sem er í húsinu.
Upplýsingar í síma 81080.
Hufnurfjörður ■ Hufnurfjörður
Fimleikaæfingar hefjast mánudaginn 8. janúar nk.
Telpnaflokkar, unglingaflokkar og frúarflokkar.
Sömu æfingadagar og fyrir áramót.
Innritun í íþróttahúsi Lækjarskóla eftir kl. 5 mánu-
dag, sími 51385.
FIMLEIKAFÉLAGIÐ BJÖRK.
OrSsending frá Judodeild Ármanns.
Vegna fjölda beiðna hefst nú kennsla í barnaflokkum
drengja og stúlkna 7 til 10 ára.
Upplýsingar í dag og næstu daga eftir kl. 13.
JUDODEILO ÁRMANNS,
Ármúla 32, sími 83295.
Ú tgerðarmenn
>
m/s Garðar RE. 9 sem er 179 lesta stálskip er til sölu.
Kraftblökk fylgir, veiðarfæri til línu-, neta- og tog-
veiða geta fylgt eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 34349 og 30505.
Til sölu
er fortjald (notað) úr gulu silkidamaski.
Upplýsingar í skrifstofunni.
HÁSKÓLABÍÓ.
Notuð bókhaldsvél
i góðu lagi óskast
til kaups
SiMAR 19290 OG 16568.
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Rangárvallasýsla
3ja kvölda spilakeppni Sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu
lýkur að Hellu föstudaginn 12. janúar nk. og hefst kl. 21.30.
GUIMIMAR THORODDSEIM. alþingismaður
flytur ávarp.
GUÐIVIAR og BRAGI leika fyrir dartsi.
Munið heildarverðlaunin.
SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN
I RANGÁRVALLASÝSLU.