Morgunblaðið - 06.01.1973, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1973
m Hffngl eflir midncetti
M.G.EBERHART
— Já, Cal. En ég held hann
hafi þarfnazt mln.
Cal skellti niður bollanum
snög’gt. — Þú ættir að hætta að
tala um, að Pétur þ&rfnist þtn.
— Já, en hann gerir það.
— Hann er fullorðinn maður
og getur séð sér borgið.
Þú varst rétt áðan að segja,
að þú værir að reyna að samna,
að hann hefði ekki myrt Fioru.
— Það er allt annað, Jenny.
En eitt vil ég segja í viðbót. Pét-
ur vissi heimilisfang þitt og
hann vissi, að þú hafðir r.tvinnu.
Mér skilst, að þú hafir heyrt frá
honum nýlega?
— Já.
Svipurinn á Cal varð kulda-
legur og fjarrænn. Eftir andar-
tak sagði hann: — Ég skil. Los-
aðu þig þá við öll bréf frá hon-
um.
— Ég hef engin bréf frá hon-
um. Kc.nnski eitt eða tvö kort,
sem fylgdu gjöf.
— Gjöf?
— Já, blómum eða þess háttar
smávegis, eins og vindlingamunn
stykki, eða inniskóm, af því að
ég sagði honum, að ég yrði
þreytt í fótunum, af þvi að sitja
fyrir. Eða ...
— Enga skartgripi? spurði
Cal kuldalega.
— Nei, vitanlega enga skart-
gripi.
— Það væri nefnilega hægt að
rekja það. Þú skrifaðir þá eng-
in bréf. Þá hefurðu líklega bara
talað við hann í sima.
— Já, það gerði ég.
— Oft?
— Nei . . . það er að segja
. . . nei.
— Hringdi hann til þín eða
þú til hans? spurði Cal vægðar-
laust.
Hann hringdi til min.
Stöku sinnum, en ekki
reglulega.
— Hittirðu hann?
— Nei, aldrei nokkum tíma.
-— Hvers vegna ekki?
—- Af þvi að ég vildi það ekki.
Æ, hættu þessum spurningum,
Cal.
Já, með ánægju. Sannast
að segja get ég ekki hugsað mér
leiðinlegra samtal. Og farðu
ekki að segja mér, að konur séu
svona. Hanga við simann og bíða
þess, að hann hringi til þín —
loía honum að hringja til þín og
hafa ekki kjark til að leggja
simann á, og segja honum að
fara f jandans til...
-— Þú mátt ekki halda, að ég
hafi ekki sagt allt þetta við
sjálfa mig. Jenny roðnaði.
— En konur eru nú svona! Reið
in dofnaði aftur, og hún sagði
vandræðalega: — Ég get ekki
að mér gert.
— Allt í lagi. Sleppum þvi.
Þjónninn hellti aftur í kaffi-
bollana og leit með áhyggjusvip
framan í Cal og með meðaumk-
un á Jenny, rétt eins og hún
væri að bíða lægri hlut í deil-
unni, hver sem sú deila kynni
að vera, — og það var Mka mála
sannast, að hún beið lægra hlut.
Cal bauð henni vindling. Eft-
ir stundarkom sagði hann: —-
Hversu oft eyðir þú fimm döl-
um?
— Hvað?
— Þú heyrðir til mín. Hve oft?
— Hve oft ég eyði fimm döl-
um? Of oft. En hvað ertu að
fara?
í þýðingu
Páis Skúlasonar.
— Ég á við í járnbrautir, sagði
Cal tmdirfurðulega. Einn dalur
af hverjum fimm, sem þú eyðir,
fer í fargjöld. Vissirðu það?
Nei, og mér er Mka
sama ...
— Það ætti þér ekki að vera.
Og engum öðrum heldur. Jám-
brautimar eru æðar landsins . . .
— Þú ert eð reyna að slá út
í aðra sálma. Þú verður að skilja
þetta með simahringingamar.
-— Ég skil það fullvel, þakka
þér fyrir. En hvað járnbrautir
snertir ...
— Ég vil ekki hlusta, heldur
útskýra . . . Hann hélt áfe-am
að tala og hún hlustaði, þvert
gegn vilja sínum. Járnbrautir
voru Ameriku nauðsynlegar. Sú
var tíðin, að þær voru svörtu
sauðirnir í iðnaðinum —- fyrir
einni öld þegar hneykslis-
mál vegna jarðakaupa voru í
fullum gangi. En nú eru
þær orðnar hetjur og lifsnauð-
synlegar. Járnbrautimar .. .
— Æ, hættu þessu, Cal! æpti
hún í örvæntingu.
—- Ertu búinn með kaffið?
spurði hann kurteislega. — við
þurfum að ræða dálitið. Við get
um ekki setið hérna stirð og
þegjandi.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja annan áfanga veiðihúss
úr timbri við Víðidalsá.
Otboðsgagna má vitja hjá Óskari B. Teitssynk Víði-
dalstungu A-Hún, sími um Víðigerði eða hjá Sverri
Sigfússyni, sími 21240 og 38398 Reykjavík gegn 2000
kr. skilatryggingu. Frestur til að skila tilboðum er
til 24. janúar 1973.
3ja herb. íbúð við Hrounbæ
Til sölu 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hraunbæ.
Vönduð íbúð með fullfrágenginni sameign úti sem
inni, laus 15. maí n.k.
Upplýsingar veitir Jónatan Sveinsson, lögfr.,
sími 830.58.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 írá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
• Svar við bréfi
„vagnstjóra“
„Vagnstjóri“ fyllir í gær
dálka þina, Velvakandi góður,
með ýmiss konar aðfinnslum
í garð löggæzlu og Umferðar-
ráðs. Virðist sem undirrót
þeirra skrifa sé könnun sú,
sem lögreglustjóraembættið í
Reykjavík hefur tekið upp, þ.e.
könnun á þekkingu á umferðar
reglum hjá þeim ökumönnum,
sem viðriðnir hafa verið um-
ferðarslys eða staðnir að alvar-
legum brotum í umíerðinni.
Harma ber, að gagnrýni komi
úr röðum atvinnubifreiða-
stjóra, sér i lagi frá vagnstjór-
uim SVR, en mikill meirihluti
þeirra ekur ár eftir ár án telj-
andi óhappa. Þannig hafa t.d.
aðeins 8 af 140 vagnstjórum
SVR verið boðaðir til viðtals
og áðurnefndrar könnunar. All
ir að einum undanskildum hafa
náð tilskildu lágmarki í fyrstu
eða annarri tilraun og þvi
leyst sig frá frekari aðgerðum
og ekki verið án ökuréttinda í
meira en 2—3 daga. Strax og
nokkur reynsla var fengin af
þessari tilraun var lögð
áherzla á að kynna málið sem
itarlegast i öllum fjölmiðlum
og ná þannig sem fyrst því al-
menna aðhaldi, sem er megin-
tilgangur aðgerðarinnar. Ekki
er ætlunin að þreyta blaðadeil-
ur um tilraun þessa, því reynsl
an ein getur skorið úr um gildi
hennar.
• Skýrar lagaheúnildir
Vagnstjórinn beinir gagn-
rýni sinni einkum að eftirfar-
andi atriðum, sem nauðsynlegt
þykir þó að gera athugasemdir
við:
1. Að lagaheimldir séu hæpn-
ar.
2. Að menn séu sviptir ökurétt
indurn.
3. Að fjöldi óhappa sé einn lát-
inn ráða án tillits til sakar.
Skýrar heimildir eru fyrir
aðgerð þessari í 27. grein usn-
ferðarlaga og 48. grein reglu-
gerðar urn ökukennslu, próf
ökumanna o. fl. Þannig segir i
48. grein reglugerðarinnar:
„Lögreglustjóri getur hvenær
sem er, afturkaMað ökuskir-
teini, ef skírteinishafi fullnæg-
ir ekki lengur skilyrðum til að
öðlast það.“
• Ekki ökuleyfissvipting
Þeir ökumenn, sem boðaðir
hafa verið til fyrrnefndrar
könnunar hafa fellt á sig grun
um vanþekkingu á umferðar-
reglum. Könnunin er því mæli-
tæki til að staðfesta þann
grnn eða hnekkja honum. Velt-
ur það á árangri ökumanna í
þessari könnun hvort til frek-
ari úrræða þurfi að grípa.
Vafalaust má um það deila
hversu mörg og/eða alvarleg
umtferðarlagabrot þarf til að
undirbyggja slíkan grun. Eins
og komið hefur fram í Mbl.
hefur sá háttur verið upp tek-
inn, að ökumenn þurfa nú
ekki að gangast undir könnun
í fyrsta viðtali. Þeim er gefinn
kostur á bráðabirgðaskírteimi
þann tíma, sem nægja á þeim
til rækilegs undirbúnings og
einnig boðin, svo sem verið hef
ir frá upphafi, ókeypis tilsögn.
Þegar ökumbður hins vegar
verður uppvís að verulegri van
þekkingu er augljóst að gera
verður viðkomandi að þreyta
ökupróf hjá Bifreiðaeftirliti
ríkisins. Sviptingu ökuleyfis er
því alls ekki beitt, enda megin-
munur á sviptingu ökuleyfis
og afturköllun ökuskírteinis,
vegna vanþekkingar á grund-
vallaratriðum umferðarreglna.
• 70% ökumanna reynast
hæfir
Um 70% ökumanna, sem boð
aðir hafa verið tii könnunar á
þekkingu á umferðarreglum
hafa náð þar tilskildum ár-
angri í fyrstu eða annarri til-
raun og því yfirleitt ekki verið
án ökuréttinda nema 2—3 daga.
Menn eru boðaðir til könnunar
samkvæmt ökuferilsskrá lög-
reglustjóraembættisins en að
baki hverrar færslu í henni er
lögregluskýrsla um viðkom-
andi brot eða umferðarslys.
Þorri umferðarlagabrota er af-
greiddur með sátt hjá lögreglu
stjóraembætti og færist því
ekki á sakaskrá. Þannig þurfa
ekki að vera bein tengsl milli
sakaskrár og umferðaróhappa
viðkomandi ökumanns. Óvið-
eigandi er að ræða í þessu sam
bandi alls óskyld mál eins og
sjúkrahúsvist manna, en þar
sem fullyrt var, að einn vagn-
stjóri SVR hefði verið sviptur
iaunum í beinu framhaldi af
könnun skal tekið fram að
samkvæmt upplýsingum launa
deildar Reykjavíkurborgar hef
ur umræddur verið óslitið á
launaskrá.
f þeirri von, að friður náist
um þessa tilraun og almenning-
ur sýni henni skilning skal enn
áréttað, að hún er alls óskyld
meðferð mála þeirra manna,
sem vaida alvarlegum umferð-
arslysum eða fremja ítrekað
meiriháttar umferðarlaga-
brot. Um mál þeirra er fjallað
með öðrum hætti þ.e. eftir at-
vikum með bókuðum aðvörun
um eða sviptingu ökuréttinda
auk sekta. Áðurnefnd könnun
er því væg aðferð af hálfu lög
gæzlu og uimferðaryfirvalda til
að stuðia að bættri umferðar-
menningu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Umferðardeild lögregl unnar,
4. janúar 1973.
Sturla Þórðarson,
fulltrúi lögreglustjóra.
• Hávaðasamar hljóm-
sveitir
Stella Karlsdóttir, Bergstaða
stræti 34A hringdi. Bað hún
um, að komið væri á framfæri
tilmælum til forráðamanna
Veitingahússins að Lækjarteig
2, urn að a.m.k. ein þriggja
hljómsveita, sem leika fyrir
dansi í húsinu væri látin leika
Iægra en nú er. Stella sagði,
að ekki væri nokkur leið fyrir
gesti veitingahússins að tala
saman fyrir hávaða frá hljóm-
sveitunum og yrði mikil bót á
því ef ein þeirra drægi úr há-
vaðanum, en þeir, sem vildu
gætu þá verið þar sem þær há-
værari væru.
NOTAÐI
VÖRU- EÐA VÖRUFLUTNINGA-
BÍLLINN
SEM ÞÉR LEITIÐ AÐ
FÆST I GLADSAXE.
HRINGIÐ I 01-916211 EÐA
SKRIFIÐ 0 G FAIÐ VERÐIÐ
®MERCEDES
i Gladsaxe
BOHNSTEDT—PETERSEN GLADSAXE A/S
DYNAMOVEJ 7. 2730 HERLEV, KBHAVN,
DANMARK.
Bronco
Til sölu Bronco '68. Mjög góður bill. 8 cyl. Sport.
Upplýsingar í síma 83320—21.
Skákseríur til sölu
Til sölu er af sérstökum ástæðum nokkrar tölusettar
skákeinvígisseríur (gull-, silfur- og koparpeningar í
fallegum öskjum). Upphaflegt verð kr. 14.000,00.
Tilboð merkt: ,,Skák 238 — 1972“ óskast sent Mbl.