Morgunblaðið - 23.01.1973, Síða 10

Morgunblaðið - 23.01.1973, Síða 10
m ^ i j ' \ i > j lO MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1973 Lifandis ósköp er gaman að hafa lifað svona lengi Halldóra með ritvélina sína á hnjánum. Véiin er safngripur, 40 ára g-iimul og stafirnir falla aftur á blaðið eins og sjá má. En á þessa vel skrifar Halldóra enn greinar í blöð og sendibréf í aliar áttir. um að ég ætti að skrifa ævisögoi — segir Halldóra B j arnadóttir, sem nú er á hundraðasta aldursári Hvað hún er nett og falleg, var fyrsta hugsunin, þegar ég kom inn til Halldóru Bjarnadótt ur. Ekki hafði mér dottið það í hug fyrirfram um konu á hundr aðasta aldursári. Hýrlegt bros færist yfir andlitið, þegar hún hefur áttað sig á komumanni. Síðan ijómar það af áliuga, þeg- ar hún fer að ræða áhugamál sín og spyrja um menn og mál- efni. Herbergin hennar í Héraðs- hælinu á Blönduósi bera held- ur ekld vott um að þar búi iðju laus manneskja. Kringum Hall- dóru eru skjalamöppur, fornir niunir og sýnishorn af gamalli handavinnu. Þar má sjá dýrmæt ar bækiu-, eins og Passíusálm- ana frá 1858, gefna Halldóru í tannfé, sálmabók frá 1886 í al- skinni og með gyllingu, áletraða af Benedikt Gröndal, gefna henni í fermingargjöf af Kat- rinu, konu Jóns Árnasonar, svo- kallaða Ferðabók, keypta 1933, Nýja testamentið og sálmana o. s.frv. Ritvélin, sem þjónað hef- ur Halldóru vel í 40 ár, stend ur þarna enn til reiðu, þegar eig andinn vill setjast á legubekk- ixm og vippa henni í kjötuna Hl að skrifa bréf eða grein i blað. Bitvélin er hreinasti safn- gripur. Og það er fleira gamalt og merkilegt þarna inni. Enda er Halldóra að skrásetja inn- bú sitt, sem hún segir að ráð- gert sé að fari, að henni lát- inni, í listasafn, sem Blönduós- ingar eru að koma upp hjá sér. A einum stað er sýnishom af ofnu, köflóttu svuntuefni, í kassa yfir 100 ára gamlir hand gerðir silfurhnappar, baldíerað- ur rammi er þarna, og pjatla af svörtu peysufatavaðmáli, sem unnið var á Grænavatni í Mývatnssveit 1920—30. En svo þunnt og lipurt vaðmál hefur Halldóra reynt að fá framleitt á íslandi í íslenzka þjóðbúning- inn og reynir enn. Það er mik- ið áhugamál hennar. Nei, ekki dugar að fara að telja upp góða mimi þarna. Það er efni í heila greln. Og þegar við höfðum kom Izt að samkomulagi við Hall- dóru um viðtal, tók hún fram að það ættl að vera stutt. — Þú skrifar of langt, góða mín, sagði hún. En hvernig á ég að skrifa stutt samtal nm 100 ára ævi? Og það ævi, sem hefur verið full af starfsorku og þéttsetin verkefn um alveg fram á síðasta ár. Upp eldismál þjóðarinnar í skólunum og á heimllunum hafa ætíð setið þar í fyrirrúmi. Og enn skrifar Halldóra greinar i blöð nú síðast í „Heima er bezt“, eft ir að Hlín hætti göngu sinni eftir 50 ára útkomu. Ferðalög tU Akureyrar vegna útgáfu- starfseminnar og greinaskrifa hætti Halldóra ekki við fyrr en i fyrrasumar. 1 sumar kom í heimsókn til hennar áttræð systir hennar frá Ameríku. I>á brugðu þær sér fram í Vatnsdal. — Ég lét þá bara útvega okkur bíl héma, sagði HaBdóra, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Systumar komu að Ási, þar sem Halldóra er fædd 14. október 1873 og þar sem föðurætt hennar hefur bú- ið. En til 9 ára aldurs er hún alin upp á Hofi, sjálfri land- námsjörðinni. Faðir hennar Bjami Jónasson, var af merk- um bændaættum úr Vatnsdal. En móðir hennar, Björg Jóns- dóttir var frá Háagerði á Skaga strönd, en alin upp hjá Stein- unni móðursystur sinni, móður Jóns Árnasonar, þjóðsagna- ritara. Og til hans fóru þær mæðgur, Björg og Halldóra, þeg ar foreldrar hennar skildu. Þá var Halldóra á niunda ári. En faðir hennar fór til Vesturheims kvæntist þar og átti 3 dætur. Það var sú yngsta þeirra, sem heimsótti Haldóru i sumar. — Móðir mfa var sterk kona og sjálfstæð í'skoðunum, sagði Halldóra, þegar talið barst að brottför mæðgnanna úr Vatns- dalnum og förinni suður á land með skipi frá Skagaströnd. — Framtíð einkabarnsins var henn ar hjartans mál og ég veit að það var min vegna að hún fór. Reykjavík hafði hún kynnzt nokkuð veturinn 1970—71, er hún var hjá Jóni Árnasyni og Katrínu frá Hrappsey. Jón var þá umsjónarmaður Latínuskól- ans. Hann og móðir min voru systrabörn og uppeldissystkini. Þennan vetur saumaði móðdr mín skautbúninginn sinn, sem ég á og hefi altaf notað. — Bjó Jón Ámason enn í Lat ínuskólanum, þegar þið mæðg- umar komuð suður til Reykja- víkur? — Nei, þau hjónin voru kom- in í nýja húsið. Alltaf var fullt af gestum hjá þeim. Og ég var allltaf í sendiferðum þar. Ein- hvem tima varð Jóni Ámasyni að orði. „Ég verð bráðum hengd ur fyrir skuldir." Og það var furða hvað hann gat, þvi hann var orðinn svo heilsulaus. Hann var búinn að vera í Skot- landi, þar sem honum var skip- að að ganga úti á hverjum degi og borða ákveðið fæði. En hann vann alttaf. Lífið hjá Jóni frænda var skemmtilegt og þar var mikið af bókum. Svo var Þorvaldur Thoroddsen, fóstur- sonur þeirra, þama. Hann var í skrifstofuxmi. Það var eini stað- urinn, sem var upphitaður. Það var nú ekki verið að hita öll herbergin, eins og þú veizt. Við mæðgumar bjugguim í kjallar- anum þessi 2--3 ár, sem við vor- um þar. Svo keypti móðir mín hús í nágrenninu, í Skálholts- koti og fór að stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. — Auðvitað, hún var kona á bezta aldri, 41 árs. Þetta var 1885. — Hvað gerði hún? — Hún tók á móti gestum og leigði út. Oft tók hún á móti gestum af sjúkrahúsum, m.a. ýmsum merkismönnum. Á þvi lifðum við. Ég var nlu ára þeg- ar við fórum suður með skipi frá Skagaströnd. Ég hafði ein- mitt verið að segja frá þeirri ferð á prenti, þegar þeir fóru að tala og úr því varð heil bók, sem hann Vilhjálmur S. Vilhjálms son skráði. Ég sagði nú, að þeir gætu bara farið í Hlín. Þar væri al’l't, sem ég hefði að segja. — Þú giftist aldrei sjálf, Hall dóra? Hvemig stóð á því á svo langri ævi? — Ég sé ekki eftir því. Mér finnst nefnilega að lifið hafi ver ið fjarska gott eins og það var. Skilnaður foreldra minna hefur vafalaust líka haft sín áihrif. Ég sá mikið eftir föður minuim. Óð- alsbóndinn í Noregi? hváir hún og hliær við. — Jú, hann var sá eini, sem hefði korniið til að ég ætti. En ég sé ekki eftir þvi. Það hefði ekkert verið skemmtilegt að eiga börn I ósköpunuim í Noregi þá. — Já, þú varst í Noregi, þeg- ar frelsisbaráfcta Norðmanna stóð sem hæst. Af hverju fórstu þang að í kennaraskóla? — Já, þá var mikið beðið og mikið vakað i Noregi, þegar stríðið vofði yfir, eins og ein- hver góður maður sagði. En ég fór til Noregs af því að það var ekki hægt að fara í kennara- skóla hér og ég hafði kennt í nokkur ár úti í sveitunum. Mamma seldi húsið sitt og jarð- arpart, sem hún átti, og ég fór utan með Vestu. Mamma vildi allt leggja í söliurnar til að ég kæmist til niáims. Á Vesfcu voru fjörugir stúdentar. Hann Knút- ur og sex aðrir. Ég lék á gítar og við sungum mikið. Knútur var Knud Ziemsen siðar borg- arstjóri og hinir sex Halldór Júliusson síðar sýslumaður, Skúli Halldórsson, síðar læfcn- ir, Ámi Þorvaldsson, siðar kennferi á Akureyri, Guðmund- ur Björnsson, síðar sýsluimað- ur, Guðmundur Finnbogason, siðar landsbókavörður, allt þjóðkunnir menn og síðar for- ustumenn þjóðar sinnar. — Þú varst svo í Noregi I 3 ár og sást marga af mesfcu and ans mönnum Noregs? — Já, ég sá til dæmis Grieg, sem var pínulítill maður með brúsandi hár. Og Ibsen, sem var stuttur og digur og óásjálegur. Hann stóð alltaf á sama stað á sama tima og stillti klukkuna sína. — Ég stóð í snjónum upp í hné og hlustaði á ræðuna hans á 70 ára afmæii hans. Mér fannst ekkert til hennar koma fyrr en daginn eftir, þegar ég sá hana á prenti. Eftir að Halldóra kom frá Nor egi, fór hún að kenna við bama skólann í Reykjavík, en fékfk þar bara tíimakennslu. Mig minn ir að borgaðir hafi verið 35 aur- ar á tímann og ég hafði móð- ur mína, segir hún, Eirlkur Briem ráðlagði mér að sækja um fasta stöðu og 500 kr. árslaun. En ég fókk það ekki. Það var rétt af þeirn, því þarna voru fleiri kennarar fyrir. Þá fór ég tii Noregs og fékk góða kenn- arastöðu í Moss, þar sem ég var í 11 ár segir Halldóra. Móðir mín var hjá mér. Svo var mér boðin skólastjórastaða við barnaskólann á Akureyri. Ég hafði alltaf ætlað mér að kenna á íslandi. Það vom nógir kenn- arar í Noregi. — Og þangað komstu með alls konar nýjungar í kennstu- hátfcum, — kennarafundi og for eldrafundi og fOieira? — Já, ég varð landsfræg af skóskiptunum. Ég lét nefnilega nemendur skipta um skó í skól- anuni og það líkaði ekki ölilum. En kennt var allan daginn og ekkert þrifið á mi'líli. Kennurun um bauð ég heim til mín á laugardagskvöldum. Mamrna gaf kaffi og allir komu með sama brauðið með sér. Við rædd um málin og ég hélt oft heita fyrirlestra um ýmislegt, því ég hafði séð margt í kennslumálum úti. Kennarafundirnir voru bet- ur heppnaðir en foreldrafundirn- ir. — Svo var það handavinn- an. Margir voru á móti henni, fannst að slíkt ættu börnin að Iiæra heima hjá sér. En merki- legust voru námskeiði.n í handa vinnu fyrir eldri stúlkur, sem við komum upp og voru svo vel sótt. Ég var í 10 ár við barna- skolann á Akureyri og var ósköp ánægð með þann tíma. Þar voru samhentir kennarar og Guðlaugur sýslumaður var for- maður skólanefndar, ágæbur maður. — Eftir þessi 10 ár fór ég til Reykjavikur að kenna í Kenn- araskólanum. Það er eitt það sfcemmtilegasta starf, sem ég hef haft, heldur Halldóra áfram. Mér þótti svo gaman að mega kenna kennurunum, af því að þeir fara út um aHt land og það er svo áhrifarikt. Ég kenndi handavinnuna og þótti mest giaman að kenna karlmönniun- um af þvi þeir voru svo óvanir. Þegar ég byrjaði sagði ég: „Nú ætla ég að kenna ykfcur alÆt sem ég kann. Svo set ég upp að þið kenmið mér öil eitfchvað." Og það gerðu þau, Þeta urðu ailt stórveldi í kennarastétt síðar. Það voru miiklir vinir mínir. En þegar landsýningin mikla í heim ilisiðnaði á þjóðiháitíðinnd 1930, kom á dagskrá þá hæfcti ég I Kenna ra s kólanum til að sinna henna. — Þá varst þú búin að fara með heiimilissýninigar um allt, meira að segja til Ameríku. — Hvernig stóð á því að þú byrj- aðir á þvi? Og hver kostaði þessi ferðalög milii kvenfélaig- anna í landinu með sýningar? Ekki þú sjáltf? — Þetta kom svona af sjálfu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.