Morgunblaðið - 08.03.1973, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.03.1973, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1973 1 fluginu veit maður aldrei, hverju maður á von á, sagði Margrét Christensen. frinn •Tohn Cowan sagðist ekki kviða fyrir að hefja starf. Flugfreyjustarfið hefur löngum freistað ungra stúikna. Árlega auglýsa flug félögin hér eftir nýjum flug- freyjum og yfirleitt berast þeim f jöldi umsókna, sem erf itt er að velja iir. Flugfélag fslands hefur frá árinu 1958 haft árleg nám skeið fyrir væntanlegar flug- freyjur. Að þessu sinni voru 17 stúlkur valdar af 90, sem um starfið sóttu, til að sækja námskeið félagsins, er þegar er hafið. Loftleiðir h.f. ráða aftur á móti mun fleiri flugfreyjur til sín á hverju vori. f ár er áætlað að halda 3 námskeið, og á fyrsta námskeiðinu eru nú 23 umsækjendur, þar af 3 karlmenn. Alls munu um 200 flug- freyjur starfa hjá Loftleiðum h.f. í sumar, en mun færri hjá Flugfélagi íslands, þ.e. um 70. Það er nauðsynlegt að læra ýmis burðartök til björgunar á fólld, m.a. lendartak, eins og verið er að gera hér í hjálp í viðlögum, sagði Jón Oddgeir um leið óg ein stúlkan brá ann- arri á bak sér. (Ljósmyndir Kr. Ben.). Af hverju ætti þetta starf ekki að henta karlmönnum, sagðl Haraldur Líndal. Félagi hans Mekkinó, sá ekkert þvi til fyrir- stöðu. Cr tima hjá -Tóni Stefánssyni hjá Flugfélaginu. — Þið vit- ið að þið eigið ekki að sitja i sömu sætunum, þegar slys ber að höndum, sagði Jón og b enti á likanið á töflunni. Að sögn Kristínar Snæ- hólm, yfirflugfreyju Flugfé- lags íslands, er það skilyrði hjá félaginu, að þær stúlkur, sem ráðnar eru, séu ógiftar oig hafi ekki um heiimiili að hugsa. — Það vill oft reyn- ast erfitt að samræma flug- freyjustarfið heimilisstörfun- um, og oft geta komið upp árekstrar í því sambandi. En það er aftur á móti regla hjá okkur að segja stúlkunum okkar ekki upp, þótt þær gangi í hjónaband, því þá hafa þær fengið reynslu af starfinu og geta ákveðið, hvað þeim hentar bezt, sagði Kristín. Önnur skilyrði hjá Flugfé- laginu fyrir ráðningu, er að hafa náð 19 ára aldri og hafa tilskilda menntun, vera 165—174 sm á hæð oig að liílk- amsþyngd svari til hæðar, og svo er einnig mikið lagt upp úr vimgjaimilegiu vilðmóti. Námskeið Flugfélags ís- lands stendur í 5—6 vikur og fer kennsla fram frá kl. 6—8 á hverju kvöldi og frá kl. 4—2 á laugardögum. Við litum inn á námskeið Flugfélagsins eitt kvöldið fyr ir skömmu. Við lentum í tíma hjá Jóni Stefánssyni, sem kennir stúlkunum um neyðar útbúnað vélanna og hvemig þeim ber að bregðast við, þegar óhapp ber að höndum. Á veggjum voru teikning- ar af vélum og búnaði þeirra og á kennsluborðinu stóð vél arlíkan. Jón var einmitt að útskýna fyriir stúllkumium, hvað bæri að gera við rnaga- lendingu, og við sáum, að stúlkumar fylgdust gaum- gæfilega með öllu því, sem ketnmamnm sagðd. Létt andrúmsloft var á með al stúlknanna og voru þær sannarlega glaðlegar og vimigjarinlieigar í viðimóiti. Stúlkurnar 17 eru flestar í skóla, en þó fannst þeim það ómaksins vert að leggja á sig 6 vikna strembið nám- skeilð, þeigar um svo sikemmti- tegit stiarf væri að ræða. Við spurðum eina stúlkuna Margréti Christensen, nem- anda i 4. bekk i MT, hverja helztu kosti hún teldi starf- ið hafa upp á að bjóða. Hún kvað starfið bjóða upp á mik inn fjölbreytileika og vissu- lega þætti henni gaman að kynnast fólki en helzta kost- inn taldi hún vera óregluleg- an vinnutíma. — Ég hef unn- ið sem læknaritari, og þó að mér hafi á vissan hátt líkað starfið, þá var ég orðin þreytt á að vinna jafn mikið frá degi til dags, Ég átti aldrei vom á neinu óvæntu, en i fluginu á maður von á öllu, sagði Kristín. Stúlkurnar kváðust flestar búast við, að utanlandsflugið væri dálítið strembið, vegna þess hve mikil sala er um borð í vélunum. Og aðspurð- ar kváðust stúlkumar ekki vera ánægðar með búninga fé lagsins og töldu það mikinn ókost að geta ekki verið í buxum í vinnunni. En svona smámuni voru stúlkurnar ekki að setja fyrir sig, því allar hlökkuiðiu ógn til að hefja starfið, sem líiklagia verð ur eiiiruhverm tima á tíimabilliiniu frá 1. aipriii till 1. maí. Loftleiðir h.f. auglýstu að þessu sinni eftir karlmönnum til þjónustustarfa um borð í vélum sínum. Það hefur færzt mjög í vöxit erliemdils, að flugfélög ráði til sín karl- menn í ,,flugfreyjustarf“, og margir eru meira segja komn ir á þá skoðun, að starfið henti karlmönnum mun betur en kvenmönnum. En aðrir vilja ekki samþykkja þetta, og berjast fyrir þeirri kenn- ingu, að flugfreyja eigi að vera falleg og íturvaxin kona með undurblítt bros. Á 1. námskeiði Loftleiða h.f. eru 3 karlmenn, 1 íslend ingur, 1 íri og 1 Kanada- maður. John Gaffiken Cowan frá Irlandi er 22ja ára gamall og stundar íslenzku í Háskóla ís lands. Hann sagðist fyrst og fremst hafa sótt uim starfið vegna þess, að hann væri peningaþurfi. — En systir mín er flugfreyja hjá BOAC og hún hvatti mig eindregið til að sækja um starfið, sagði John. Og ekki sé ég eftir þvi. — Af hverju ekki? sagði Mekkinó Mekkinósson frá Kanada, aðspurður um, hvort honum fyndist það eðlilegt, að karlmenn tækju að sér Framhald á bls. 21. Japanskri stúlkn, sem stundar guðfræði i Háskóla Islands, er kennt hvað gera skaJ, ef stendur í smábami.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.