Morgunblaðið - 08.03.1973, Side 17

Morgunblaðið - 08.03.1973, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1973 17 Samkeppnisaðstaða íslend- mun Nýtanlegt vatnsafl minnkar vegna umhverfissjónarmiða inga um orkuverð ÞAÐ er einkenni á uppbyggingu orkuframleiðslukerfisins, að hún á sér stað í stórum áföngum. — Meginákvarðanir i þessum efn- um eru því teknar á nokkurra ára fresti, og gefur hver nýr á- fangi tilefni til að meta stefn- una í orkumálum að nýju í ljósi breyttra aðstæðna og með líklega framtiðarþróun þjóðarbúskapar- ins í huga. Islendingar eru nú einmitt komnir á áfangastað í orkumál- um. Búrfellsvirkjun var að fullu lokið á sl. ári, og aðeins vantar herzlumun, að einnig sé nú lokið gerð miðlunarmannvirkja við Þórisvatn og lagningu annarrar háspennulínu frá Búrfelli til Reykjavíkur. Með þessum á- fanga lætur nærri, að framleiðslu geta raforkuvera hér á landi hafi þrefaldazt, og með álbræðslunni hefur stórfelldur, nýr, orkufrek ur iðnaður komið til sögunnar. Nú er þegar svo komið, að lang- mestur hluti framleiðslugetu Búr fellsvirkjunar verður nýttur á þessu ári, en fullnýtingu virkjun arinnar verður náð veturinn 1975 —1976. Framundan er nú annar stór áfangi i orkuframleiðslu, bygg- ing Sigölduvirkjunar í Tungnaá. Undirbúningi Sigölduvirkjunar er nú mjög lanigt komið. Útboðs- gögn voru send út seint á síðasta ári og verða tilboð opnuð í þess- um og næsta mánuði, og er í þeim gert ráð fyrir, að fyrsta vél virkjunarinnar hefji framleiðslu á miðju ári 1976. Unnið hefur ver ið að undanförnu að öflun láns- fjár til virkjunarinnar, og eru nú góðar horfur á því, að Alþjóða- bankinn muni taka verulegan þátt í fjármögnun hennar. Loka ákvarðanir um þessa miklu fram kvæmd eru því skammt undan, og hefur því verið lögð mikil vinna i það að meta hagkvæmni hennar og hlutverk í islenzkri orkuframleiðslu. Hefur þetta gef ið tilefni til margvíslegra athug- ana varðandi líklega þróun orku framleiðsiu í framtíðinni, markað fyrir raforku, uppbyggingu orku- freks iðnaðar og fleira. Athuiganir á þjóðhagslegri arð gjöf Sigölduvirkjunar hafa mið- azt við tvo kosti, sem um er að velja' Fyrri kosturinn er sá, að virkjunin þjóni aðeins þeim markaði, sem nú er fyrir í landinu, þ.e.a.s. aukinni orku- þörf á orkuveitusvæði Lands virkjunar og á Norðurlandi, eftir að háspennulína hefði verið lögð yfir hálendið, auk 20 MW stækkunar kerjaskála II í álbræðslunni. í síðari kostinum er reikn- að með því, að auk núverandi markaðs komi til nýr, orku- frekur iðnaður, er taki allt að 400 millj. kílówattstundir. Þessar athuganir hafa leitt í Ijós, að jafnvel án nýs orkufreks iðnaðar megi telja Sigölduvirkj- un hagkvæmustu leið til orkuöfl unar hér á landi á næstu árum. Engu að síður yrði fjármögnun virkjunarinnar og rekstur fyrstu árin erfiðleikum bundin, ef ekki fengist meiri markaður fyrir ork una. Sé hins vegar hægt að ná viðunandi samningum um frek- ari stóriðju, mundi það stórlega létta rekstur virkjunarinnar og auka arðgjöf hennar. Hefur þvi mjög verið unnið að því að und anförnu á vegum iðnaðarráðu- neytisins að kanna, hvaða orku- frekur iðnaður mundi verða hag kvæmastur hér á landi, og hvort unnt yrði að koma slíkum iðnaði á fót um það leyti, sem Sigöldu- virkjun tekur til starfa, en það er ráðgert sumarið 1976. Þessar at- huganir hafa verið í höndum við ræðunefndar um orkufrekan iðn- að, og tel ég óhætt að fullyrða, að horfur í þessum efnum séu mjög jákvæðar þótt enn sé ekki komið að lokasamningum við neinn þeirra aðila, sem við hefur verið rætt. Verði ráðizt í nýjan, orkufrek- an iðnað, kailar það hins vegar á mun örari þróun orkukerfisins í framtíðinni. Sigölduvirkjun mun þá endast nokkrum árum skem- ur, svo að búast má við þvi, að ný stórvirkjun þurfi að vera full gerð ekki síðar en árið 1979 eða 1980. Auk þess er varla álitlegt að byrja á nýjum iðnaði, nema möguleikar séu til stækkunar til tölulega fljótlega. Hér er því um að velja, hvort eigi að halda á- fram þeirri öru þróun raforku framleiðslunnar, sem hófst með byggingu Búrfellsvirkjunar sam- fara þróun orkufreks iðnaðar, eða staldra nú við og láta okk- ur nægja að fullnægja orkuþörf þess markaðs, sem þegar er fyr ir hendi í landinu. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, hve gífurleg breyting hefur orðið í orkumálum alls staðar í heiminum undanfarin eitt til tvö ár. Gjörbylting hefur orðið á skoðunum manna varð- andi iíklega þróun orkuverðs og orkujafnvægis í framtíðinni. Full ástæða er þvi til þess fyrir okkur íslendinga að reyna að gera okk- ur grein fyrir því, hvar við stönd- um í þessu efni, áður en þessi nýi áfangi hefst í raforkuframleiðslu og iðnþróun hér á landi. Og það er einmitt tilgangur þessa er- indis að leggja nokkuð af mörk- um til þessa mats. Ég rnun þá fyrst fara nokkrum orðum um orkuþróun erlendis og áhrif hennar á samkeppnisað- stöðu í orkufrekum iðnaði. Síðan mun ég snúa mér að því að meta möguleikana til raforku- framleiðslu hér á landi og bera þá saman við orkumarkaðinn með og án nýrrar stóriðju. ORKUÞRÓUN ERUENDIS OG SAMKEPPNISAOSTAÐA ÍSLENDINGA Mjög mikil breyting hefur orð ið á allra síðustu árum á þróun orkumála og hugmyndurr. manna um orkuverðlag í framtíðinni. Fyrir aðeins örfáum árum voru flestir sérfræðingar sammála um það, að framleiðslukostnaður raf orku mundi standa í stað eða jafnvel fara lækkandi næstu einn til tvo áratugi. Byggðust þessar skoðanir ekki sízt á því, að mikil bjartsýni ríkti þá um það, að framleiðslukostnaður raforku í kjarnorkuverum myndi fara jafnt og þétt lækkandi. Þetta hefur þó farið á annan veg. Hin ar miklu áætlanir stórþjóðanna um byggingu kjarnorkuvera hafa ekki komizt í framkvæmd, nema að nokkru leyti, og orkan reynzt -mun dýrari en við var búizt. Þetta hefur aftur valdið því, að meginhluti raforku iðn- aðarþjóðanna mun um langt skeið vera framleiddur i kola- og Fyrri hluti erindis, sem Jóhannes Nordal flutti um nýtingu vatnsafls og' stefnuna í orkumálum olíukyntum aflstöðvum, sem greiða þurfa síhækkandi verð fyr ir eldsneyti. Ein skýringin á þessum breyttu viðhorfum liggur I því, að spár um tæknilegar framfar- ir í byggingu kjarnorkuvera hafa ekki rætzt. Hafa þessar stöðvar reynzt bæði dýrari í stofnkostn aði og rekstri en við hafði verið búizt. Einnig virðist þróunin til nýrrar og fullkomnari gerðar kjarnorkuvera hafa tekið mun lengri tíma en ætlað var. Önnur veigamikil orsök hækk- andi orkukostnaðar liggur i hin um gerbreyttu viðhorfum al- mennings alls staðar í heiminum í umhverfismálum. Kröfur um eyðingu mengunar frá eldsneytis stöðvum hafa aukið verulega á framleiðslukostnað og á það eftir að koma enn betur í ljós á næstu árum, þar sem nýjar reglur eru enn ekki nema að litlu leyti komnar i framkvæmd. Þessi við horf hafa þó haft ennþá meiri áhrif á kjarnorkuverin, og hafa mengunarvarnir aukið mjög stofnkostnað þeirra. Einnig er nú orðið mjög erfitt að finna nýjum kjarnorkuverum stað, sem almenningur getur sam- þykkt, og hefur bygging margra kjarnorkuvera tafizt árum saman af þeim sökum. Hefur þetta jafn vel leitt til þess, að beinn orku- skortur vofir nú yfir víða í þétt býlustu hlutum heimsins, t.d. austurhluta Bandarikjanna. — Vissulega er ennþá mikið af ó- nýttri vatnsorku í heiminum, en mikill hluti hennar er í þróunar löndunum, þar sem stjórnmála- legar og efnahagslegar ástæður hamla nýtingu hennar til stór- iðju. Á þeim svæðum heimsins, sem helzt keppa við Island í þessu efni, virðast aðstæður nú breytast ört. Til dæmis um það má taka Noreg og norðvestur- hluta Bandaríkjanna. Norðmenn hafa haft stefnu sína I orkumálum og stóriðju mjög tii endurskoðunar að und- anförnu. Hafa verið gerðar nýjar yfirlitsáætlanir um nýtingu vatns orku og eftirspurn eftir raforku. I orkuframleiðsluspánum hefur verið tekið tillit til þess, að um- hverfissjónarmið hljóti að ráða miklu meira í framtíðinni um staðsetningu orkuvera og nýt- ingu vatnsorku. Hafa því fyrri hugmyndir um nýtanlega vatns- orku í landiuu verið færðar veru- lega niður. í meginatriiðum hafa þessiair aithuganiir leitt til þeirrar niðursitöðu, að vatnsorka geti ekki fulllnægt orkuþörfum Nor- egs nisma u.þ.b. 10 ár emin.þá. Fyr- ir miðjan næsta áratug m.uni því þurfa að byggja sitórar eldsmieyt- is- eða kjarnorkustöðvar í Noregi. í saimtengingu við Svíþjóð og Danmörku munu Norðmenn hins vegar fá betri nýtimgu á vatms- orku siinni og víðari markað. Með hliðsjón af þessari þróun er nú talið víst, að Norðmenn muni ekki á næstu árum sernja um byggimgu neiinna nýrra stór- iðjuvera, nema alveg sérsitakar ástæður séu fyrir heindi. Stóriðju- ver, sem þegar eru fyriir í liamd- inu, ættu þó enn að geta fengið nokkra orku til stækkunar, en jafnvel þeir möguleikar verða tvímælalaust úr söguinm.i í lok þessa áratugar. Jafnframt hafa Norðmenn i hyggju hækkun á raforkuverði í nýjuim stóriðju- samninigum, en ákverðanir um það hafa enn ekki verið tekmar. Þetta þýðir í reynd, að Norð- menin mumiu ekki verða raiunveru legir keppendur ísilendinga um staðsetimmgu nýrra, orkufrekra iðjuvera, nema örfá ár til viö- bótar. Á vesturströnd Bandaríkjanna í rikjunum Oregon og Washing- ton hefur einnig verið hægt að fá raforku til stóriðju á mjög hagstæðu verði fram til þessa. Megimhluti þessarar orku fæs.t úr virkjunum við fljótið Colum- bi'a og þverár þess. Nú er fyrir- sjáan.legt, að nýtanleg vatnsorka á þessu svæði mun'i ganga til þurrðiar innan fárra ára. Auk þess hefur þetta svæði nú verið tenigt miklum háspenniulínum við þéttbýiili landsihl'uta sunnar með vesturströnd'iinni, sem greitt geta muin hærra verð fyrir raforku. Þess er því ekki langt. að bíða, að þetta svæði hætti að vera sá keppinautur um orkufrekan iðn- að, sem það hefur verið siíðustu áratugina. Hafa raforkuyfirvölid á þessu svæði þegair tiiikyn.nt um 25% hækkun raforkuverðs í nýj- uim, löngurn siaimmvnigum, og er búizt viö frekari hækkunum inn- an fárra ára. Þegar á það er litið, að Noreg- ur og Bamdarikin hafa verið þau lönd, sem fyrintæki, sem áhuga | hafa hsift á stóriðju hér á landi, hafa einkum haft til samanburð- ar, ætti að vera óhætt að segja, að samkeppnisstaða ísleindinga um orkuverð hlýtur að fara batn andi á næstu árum. Þótt fjar- lægð írá mörkuðum og aukinn fl'utimmigsikostniaðiur komi hér að nokka-u á móti, ætti aðstaða okk- ar í orkufrekum iðnaði í heild engu að síður að batrjp, sérlega eftir að við föru-m einmig að njóta h'aigs af þeim saimininigum, sem nú hafa verið staðifesitiir milli Is- lands og Efnialhaigsibandaiagsins. Hafa viðræður við erlernd fyrir- tæki í þessum gireinum að und- anförnu rennt S'toðum undir þessar skoðianir. . Sé þessi skoðiun rétt, er þá næsit að ræða um orkufram- lei'ðsiliu hér á land'i og hvaða svig- rúm við höfum til aukinnar orku sölu td'l stóriðju. ÁÆTLANIR UM RAFORKUÖFLUN A ÍSLANDI Talið hefur verið, að íslenzk fallvötn búi yfir orku, sem nemi stærðargráðunni 35 þús. millj. kílówattstunda í ársframleiðslu, eða 35 tera'wattstundir á ári. Af þessairi orku mun lík'lega hag- kvæmit að beizia um 28 terawatt- stundiir, ef einigöngu er litið á framleiðslukos'tnað. Um heliming- ur þess'arar orku er á vatinasvæði Þjórsár og Hvitár. Gerðatr hafa veirið á siðustu tveimur áratug- um þrjár yfMiitsiáætlainir um notkun vatnsorku á þessu svæði. Síöastia og raunihæfasita áætlunin er gerð af Sigurði Thoroddsen, en hemni var lokið árið 1967. Samkvæmt henni er nýtamlegt vaitnsafl á þesisu svæði 13—14 terawattstundir á ári. Því miður getuir enigiin þessara áætlainia lenigur talizt fuilkomlega rauinhæf. Hinn mikli og vaxandi áhugi á náttúruvernd og um- hverfismál'um hefur borizt til Is- lands og þegar haft áhrif á af- stöðu manna til virkjunarfram- kvæmda, svo sem dæmin sanina. Er enigum blöðum um það að fletta, að taika verður áætlanir um nýtanlega vatnsorku i land- iniu tiil gaigngerðrar endurskoðun- ar, þar sem fullt og eðiMegt tillit verði tekið til verndumair nátitúru- verðmæta. Hefur Landsvirkjum miikinn áhuga á gerð endurskoð- aði-air áætlunar aif þessu tagi fyr- ir Þjórsár- og Hvitársvæðið í samráði við orkumálastjóra. Verður þá einnig að taka tillit til ýmissa fleiri vandamála, sem mönnium eru nú ljósari en áður, t. d. nauðsynjar þess að dreifa mannvirkjum, svo að dregið verði úr þeim tjónum, sem orðið gætu hverju si.nira af völdum náttúru- hiaimfam, svo sem jarðelda og landskjálfta. Vil ég þó ekki fara frekar út I þá sálma hér. Það er vitaskuld ekki unnt að gera sér á þessu stigi nægilega vel rökstudda grein fyrir þvi, hversu mikið nýtamiegt vatnsafil hér á landi mundi minn'ka, ef tek- ið er tillit til umhverfi-ssjónar- mjða á eðlilegain hátt. Líklegt er, að fyrirætlamir um gerð miðluiv armamnvirkja, sem sökkva stór- Framhald á bls. 20 , Frá fundi Sambands íslenzkra rafveitna. .lóhannes Nordal situr þriðji frá vinstri. Jakob Gíslason, fyrrv. orkumálastjóri, í ræðustóli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.