Morgunblaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 31
MORGUtNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28: MARZ 1973
31
Fram þoldi ekki
taugaspennuna
Á sunnudag'skvöldið léku
Breiðaiilik og Fram i íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði og svo fóru
leikar að Breiðablik sigraði
með einu marki, leiknum lauk
12:11. Breiðablik átti nú einn
sinn bezta leik á keppnistima-
bilinu og kom það Framliðinu
illa, þvi Framstúlkurnar voru
ekki i essinu sínu. Fram hafði
forystu 11:10 er um 10 mínútur
voru tii leiksloka, en siðustu
mínúturnar virtist sem liðið
kiknaði undan taugaálaginu og
Blikastúlkurnar skoruðu tvö sið
ystu 5:4 og liðið leiddi lengst
áf. Fram hefði ekki þurft að
missa bæði stigin í þessum leik,
því Amþrúður, sem annars var
bezt í liði Fram misnotaði víti á
síðustu minútunum. Mikil bar
átta var í leiknum, enda áttust
þarna við lið sem heyr harðvít-
uga baráttu fyrir lifi sínu í
deildinni og hins vegar lið sem
á stóra möguleika á Islands-
meistaratitli. Ekki er ósennilegt
að ætla að Framstúlkurnar hafi
ætlað sér of mikið og því hafi
farið sem fór.
Myndin er úr leik Breiðabliks ogFram i fyrri umferðinni og þá
vann Fram stórt, 17:11. Á sunnudaginn snerist dæmið við og þá
vann Breiðablik 12:11.
ustu mörkin.
Það er þó varla rétt að segja
að Breiðabliksstúlkurnar hafi
skorað tvö síðustu mörkin, Alda
Helgadóttir sá um að gera þau
og var hún sem fyrr potturinn
og pannan í leik liðsins og mark
hæst með 5 mörk. Fram reyndi
í upphafi að taka Öldu úr um-
ferð en þá losnaði um Arndísi
sem skoraði nokkur mörk í byrj
uninni.
1 hálfleik hafði Breiðablik for
Víkingur gaf
Valannaðstigið
Víkingsstúlkurnar hafa gert
íslandsmeisturum Vals lifið leitt
í vetur, en Víkingur vann fyrri
leik liðanna 10:9 og á simnudag-
inn gerðu liðin jafntefli 6:6 og
mega Valsstúlkurnar prísa sig
sælar með þau úrslit. Valur á þó
enn ntikla niöguleika á sigri í
mótinu, en til þess verða þær
líka að vinna alla þá leiki sem
þær eiga eftir að leika betur en
móti Víkingi, — miklu betur.
Víkingur skoraði fjögur
fyrstu mörk leiksins á sunnu-
daginn og það var ekki fyrr en
á 23. mínútu leiksins að Jóna
E)óra skoraði fyrsta mark Vals.
Á þessum tima var Valsliðið
mjög óheppið með skot, en
óheppni segir ekki allt, því leik
ur liðsins var einnig mjög léleg-
ur á þessum kafla.
1 seinni hálfleiknum tóku Vals
stúlkumar við sér og með
Björgu Jónsdóttur í fylkingar-
brjósti tókst þeim að jafna 4:4,
þegar 8 minútur voru af
hálfleiknum. Víkingur náði
tveggja marka forystu 6:4 en þá
tók Björg Jónsdóttir aftur til
sinna ráða og skoraði tvö síð-
ustu mörk leiksins og bjargaði
þar með öðru stiginu fyrir lið
sitt.
Vikingur var með boltann þeg
ar tæp mínúta var til leiksloka,
staðan 6:5 og sigurinn virtist
blasa við liðinu, en misheppnað
skot úr vonlitlu færi kom í veg
fyrir Vikingssiigur. Þórdis Magn-
úsdóttir lék srtórt hlutverk í
marki Víkings i þessum leik og
varði mjög vel. Halldóra og Guð
rún Helgadóttir eru kjölfestan I
vamarleik Vikingsstúlknanna,
en í sóknarleiknum voru Guðrún
Hauksdóttir og Jónina atkvæða-
mestar.
Valsliðið átti ekki góðan dag
á móti Víkingi og t.d. sáust þær
Svala og Björg Guðmundsdóttir
ekki allan leikinn. Björg Jóns-
dóttir er sú eina í liði Vals sem
á hrós skilið fyrir frammistöðu
sina í leiknum.
Mörk Vals: Björg J. 4, Jóna
Dóra 1 og Svala 1.
Mörk Víkings: Jónina 2, Guð-
rún Hauksdóttir, Guðrún Helga-
dóttir, Agnes og Jónína 1 hver.
áij.
Erla tekin úr umferð
og- KR hlaut að sigra
í fyrri leik Víkings og Vals skorafti .lóna Dóra lagle.gt mark úr
liorninu. A siinnudaginn skoraði hún fyrsta tuark Vals á móti
Víkingi, en leiknum lauk meft jafntefli, 6:6
Fyrsta landsliðið
— í körfuknattleik kvenna
SNEMMA i næsta mánuði leikur
ísland sina fyrstu landsleiki í
kvennakörfubolta. Þá fer fram í
Osló Norðurlandamót i körfu-
knattleik fyrr konur (Polar
Cup) og í fyrsta skipti er Is-
land meðal þáttakenda. Fyrsta
landslið Islands í körf ubolta
kvenna hefur verið valiið, og
skipa það eftirtaldar stúlkur:
Friðný Jóhannesdóttir, Þór
Guðný Jónsdóttir, Þór
Anna Gréta Halldórsdóttir, Þór
Þóra Þóroddsdóttir, Þór
Guðrún Ólafsdóttir, ÍR
Ásta Garðarsdóttir, Ir
Oíiga Bjamadóttir, iR
Lína Gunnarsdóttir, ÍR
Þóra Ragnarsdóttir, ÍR
María Erla Geirsdóttir, UMFS
Linda Jónsdóttir, KR
Emilía Sigurðardóttir, KR
Liðið hefur æft vel að undan-
förnu undir stjórn hins kunna
þjáJfara, E nars Ólafssonar, en
hann va.'di liðið ásamt Guttormi
Óiaíssyni, sem mun fara með lið
inu út og stjórna því þar.
Það er bezt að gera sér það
ijóst strax, að búast má við þvi
að liðið fái slæma útreið í ieikj-
um sínum í þessari keppni. Vit-
að er, að Danir a.m.k. eru mjög
sterkir í kvennakörfubolta, og
einnig Svíar. — En einhvern
tíma hlýtur að koma að þvi að
við sendum lið ti'l keppni í
kvennaflokki, og þær stúlkur
sem skipa þetta lið hafa allar
unnið til þess að skipa okkar
fyrsta landslið.
Þótt þær sæki ekki sigra i
þessari ferð, þá læra þær sjátf-
sagt eitt og annað af því að sjá
hin liðin og reyna sig í keppni
gegn þeim. Mbl. mun skýra nán-
ar frá ferð stúliknanna síðar.
— ffk.
Það er ýmist of eða van í leik [
Ármannsliðsins i 1. deild
kvenna. I.iðið leiknr annan dag
inn eins og íslenzk kvennalið
gera bezt, en hinn daginn er leik
ur þess svo skrykkjóttur að von
um sigur er tæpast fyrir hendi.
Sunniidagurinn siðasti var einn
af þessum slæmu dögum hjá Ár- !
manni og því fór sem fór, liðið
hlaut að tapa fyrir KR.
Það var þó ekki mikill munur
á liðunum í þessum leik og það
var jafnt á hverri einustu tölu
nema á þeim síðustu. KR skor-'
aði tvö síðustu mörk leiksins og
þær Hjördís og Jónína tryggðu
liði sinu sigur 12:10. 1 hálfleik
var staðan 5:5.
Það sem fyrst og fremst
færði KR ingum þennan sigur
var viljinn sem bar KR-stúlk-
urnar hálfa leið og svo það að
Erla Sverrisdóttir, sem verið hef
ur sannkölluð prímadonna i leik
Ármanns í vetur, var tekin úr
umferð frá upphafi. Emilia hafði
hlutverk fylgdarmannsins með
höndum og stóð mjög vel
í • stykkimu. Hjördis Sigur-
jónsdóttir hefur verið aðal-
manneskjan hjá KR í vetur, en
að þessu sinni var hún meidd
og var litið inn á. Sigþrúður
Helga tók þá hlutverk hennar
og stóð sig vel, og svo virðist
sem Hjördís og Helga geti ekki
báðar verið inn á í einu, báðar
þurfa þær mikið athafnasvæði og
hefur Helga fallið i skugga Hjör
disar seinni part vetrar.
I Ármannsliðinu var engin til
að taka við aðalhlutverkinu og
allar virtust stúlkurnar bíða eft
ir að Erla tæki á ný við stjórn-
inni.
Mörk KR: Helga 4, Hjördís 4
(3 víti), Soffía, Emilía, Jónína
og Hansína 1 hver.
Mörk Ármanns: Erla 4 (3 víti),
Guðrún 4, Auður og Katrín 1
hvor.
• A SpAni skipa eftirtalin lið
l'fstu sætin í 1. deildar keppn-
inni: Barcelona 36, Espanol 34,
Real Madrid 32, At Madrid 32,
Malasra 26, Zaragrozza 26, Real
Sociedad 24.
• I Aufitturriki haia eftirtalin
lift forystu í 1. dcildar kepiminni:
Rapil Wien 22, ASK, VVacker,
[nnsbruck og Admira Wacker
hafa öll 21 stigr.
• Í Grikklandi eru eftirtalin
li<V í forystu í 1. deildar keppninni
i knattspyrnu: Paok or Pirius 62
4tigr, Panathinaikos 56, Panahaiki
V4, AEK 51.
• Tékkóslóvakia sigrraói Pólland
8:1 í landsleik i ísliokki sem
frám fór í Warszawa um holg-
ina.
AÐALFUNDUR handkniatrtJeiks-
deildar ÍR verður haldinn á Hót-
el Esju í kvöld og hefsit M. 20:30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundar
störf.
Víkingur
AÐALFUNDUR knattspyrmi-
félagsins Vikings verður haldinn
á Hórtel Esju í kvöld Og hefsrt: kl.
20. Fundairefni: Venjuleg aðal-
fundarstönf.
Margur maðurinn segir við
sjálfan sig og jafnvel aðra:
það
kemur
alðrei
eeitt
fyrir
mig
Þetta eru staðlausir stafir,
því áföllin geta hent
hvern sem er,hvar sem er.
Það er raunsæi að tryggja.
Hikið ekki — Hringið strau
ALMENNAR
TRYGGINGARS
Pósthússtræti 9, sími 17700