Morgunblaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1973 AGAN Eliszabet Ferrars: Safníds i dautfann eriek og Paul gengu löturhægt eftir veginum, eins og menn, sem höfðu um margt að tala á leið- inni. Jafnvel eftir að þeir voru komnir inn, héldu þeir áfram að hvíslast á í forstofunni. En svo kom Paul einn inn í stofuna. — Því miður höfum við hvorki fundið hana né neina bendingu um, hvað af henni hefur orðið, sagði hann. — Við höfum leitað i garðinum og í skúrunum, og við fórum í hlöðuna og spurðum Brian, hvort hann hefði séð nokkuð til hennar. En allt árangurslaust. Roderick ætl- ar að fara eitthvað í sima til þess að fá að vita, hvort hún hefur komið í íbúðina sína I I.ondon, eða hvort vinkon- ur hennar hafa orðið hennar nokkuð varar. Og ef svo er ekki, og Roderick verður einskis vís ari, þá ætlum við að kalla á lög- regluna. Hann gekk að aminum og hlýj aði sér á höndunum. Frammi í ganginum hringdi síminn og Roderick svaraði I hann. Jane hljóp til dyr- anna, en áttaði sig svo og sett- ist niður. — Þér eruð svo góður við okk ur, sagði hún við Paul. — Mér þykir fyrir þvi að gera ykkur svona hræðilega mikið ónæði. — Blessað barn, mér þykir bara verst að geta ekki hjálp- að ykkur eitthvað meira, sagði Paul. — Ég vil ekkert vera að leyna þvi fyrir yður — en það lítur helzt út fyrir, að veslings konan hafi orðið fyrir árás af einhverjum — og annað hvort slasazt mikið og verið flutt burt eða i bezta falli komizt burt sjálf, en svo gefizt upp. Því að Smurbrauðstofan BJÖRNINN SMURBRAUÐ - KAFFIBRAUÐ - COCTAIL- SNITTUR - SAMLOKUR - NESTISPAKKAR. HEITUR MATUR ALLAN DAGINN. Smurbrauðsstofan BJÖRNINN, Njálgsötu 49 — Simi 15105. hafi hún ekki slasazt alvarlega, ætti einhver að hafa frétt af henni. Hún hefði áreiðanlega komið til okkar, eða til Brians eða einhvers í þorpinu. — Kannski hefur hún misst minnið, sagði Jane. Hún hafði ekki augun af hurðinni og var sýnilega að reyna að hlusta eft- ir því, sem Roderic tautaði í sím ann, en hlustaði alls ekki á Paul. — Þessi indæla kona, tautaði Paul og starði í eldinn. — Svo gáfuð og heppin og samt svo eðlileg og ósplllt. Hún hefði ekki getað verið betri við ókk- ur en hún var, þegar hún flutt- ist hingað. Og síðan alltaf svo gestrisin og viðkunnanleg að hitta hana. Við lifum í hræðileg um heimi, og hann virðist fara slversnandi. Eða hefur hann kannski alltaf verið svona slæm ur? Er ástandið raunverulega nokkuð verra, eða er þetta bara af því, hvernig við lítum á það? Aftur heyrðist í símanum frammi. Roderick var að reyna eitt númerið enn. Hann var búinn að reyna þau mörg áður en hann kom inn aft- ur. Andlitið á honum var alveg sviplaust, eins og á manni, sem hefur orðið fyrir taugaáfalli. Þegar Jane stökk upp og hljóp til hans, tók hann fast utan um hana. — Ég hringdi í íbúðina og fékk ekkert svar. Ég reyndi hjá Crosby-hjónunum sem búa í kjallaranum. Þau hafa ekkert séð til hennar síðan á föstudags kvöld, þegar þau komu upp til að fá eitt glas með okkur. En þau hafa lykil að íbúðinni henn ar, af því að þau líta eftir henni fyrir hana, þegar hún er fjar- verandi, og þau lofuðu að fara upp og gá, hvort þess sæjust nokkur merki að hún hefði kom ið heim. Og meðan þau voru að því, hringdi ég til föðurbróður míns. Hann vissi heldur ekki neitt. Hann sagðist hafa komið hér í gærkvöldi og ekki séð merki þess, að neinn væri í hús- inu, svo að hann hefði gefizt upp við svo búið og farið heim aftur. Svo hringdi ég í Tom Waterfield — ritstjóra World- wide — ef vefa kynni, að Mar- got hefði haft samband við hann, en hann sagðist ekkert hafa heyrt frá henni, síðan hún kom aftur frá Genf. Svo hringdi ég aftur í Crosbyhjónin. . . Roderick sleppti takinu af Jane og kom lengra inn i stof- una, en svo greip hann allt í einu í stólbak, settist snöggt niður og greip höndunum fyrir andlitið. Eftir andartak leit hann aft- ur á Jane. — Afsakið — en mér datt ekki í hug, að við ættum að komast í annað eins í dag, sagði hann. Hún settist á stólbríkina hjá honum og dró höfuðið hans að sér. — Liklega hafa Crosbyhjón- in ekkert fundið í íbúðinní hennar? sagði Paul. — Nei, sagði Roderick. — Frú Crosby sagði, að íbúðin hefði verið alveg jafn snyrtileg og ungfrú Dalziel skilur alltaf við hana — rúmið umbúið og allt þess háttar. Og þau hafa enga hugmynd um, hvenær velvakandi í þýóingu Páls Skúlasonar. hún hefur farið, af því að þau fara bæði út til vinnu á laugar- dagsmorgnum, og venjulega áð- ur en Margot er einu sinni kom- in á fætur. En þau halda að hún hafi farið fyrir hádegisverð artíma, þvi að þau minnast þess ekki að hafa heyrt neitt til hennar, eftir að þau komu heim aftur, en það gera þau venju- lega, ef hún er heima. — Svo að þá leitum við til lögreglunnar, er það ekki? sagði Paul. — Jú, við verðum vist að gera það. — Jane. . . Roderick greip aðra hönd hennar. — Hvað finnst þér? En ef ekkert reyn- ist nú vera að, þá held ég að Margot sleppi sér algjörlega við okkur. Hún iðaði og var eitthvað óró leg. — Ég er alltaf að segja þér, elskan mín, að hún verður aldrei vond — aldrei illkvitt- in. — En ef einhver eðlileg skýr- ing er nú á þessu öllu og hún sér, að við höfum þyrlað upp ryki að óþörfu. . . Hann þagn- Velvakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. • ÞjóðhátfS „Velvakandi, Mér finnst rétt að þetta bréf í riti Gísla Sigurbjörnssonar í Heimilispóstinum, — heimilis- blaði fyrir vistfólk og starfs- fólk á Grund komi fyrir fleiri augu í þessum umræðum, sem nú eru um þjóðhátíðina 1974 — Kona í Vesturbæ. „Ellefu hundruð ára afmælis Islandsbyggðar á að verða minnzt á næsta ári, m.a. með þjóðhátíð á Þingvöllum. Er starfandi hátíðarnefnd, sem þegar hefur unnið mikið starf og margar og miklar ráðagerð- ir eru á döfinni. — Alþingis- hátiðin á Þingvöllum sumarið 1930 fór í alla staði vel fram og var þjóðinni til sóma, en nú eru aðrir tímar og eru því margir haldnir nokkrum kvíða um, hvemig þjóðhátíð á Þing- völlum yrði í framkvæmd á næsta vori. Hafa skólastjórar þegar vakið athygli þjóðarinn- ar á þessu og gert samþykktir þar um. Ráða þeir frá því að halda slíka fjöldasamkomu á Þingvöllum. Hjúkrunarfélag Is lands hefur einnig gert um mál ið svipaða samþykkt og bent á, að verja ætti þeim fjármunum, sem til þjóðhátíðarinnar yrði varið, en er verulegt fé að sjálf sögðu, til hjálpar fólkinu í Vest mannaeyjum. Þjóðhátíðin 1974 ætti að vera haldin hátíðleg í borg og bæ og hverju byggðarlagi í land- inu, en á Þingvöllum heldur AJ þingi hátíðarfund og minnist þessara merku tímamóta i sögu þjóðarinnar. Frú Elín Pálmadóttir blaða- maður hefur komið fram með gagnmerka tillögu í sambandi við þjóðhátíðarárið. — Bendir hún á, að hver og einn ætti að íhuga, hvað get ég gefið land- inu mínu í afmælisgjöf, hvað get ég á mig lagt til þess að sýna í verki að ég er Islending- ur. — Grein frú Elinar er efnis lega á þessa leið og á hún þakk ir skildar fyrir ágæta hugmynd — en við skulum vera þess minnug, að hugmynd verður að framkvæma — til þess að hún komi að gagni. Á sínum tíma munum við á okkar stofnunum reyna að fara eftir þessari hugmynd og er ég sannfærður um að ef einstakl- ingar, fyrirtæki, félög, bæjar- og sveitarfélög — allir lands- menn — fara að athuga mál- ið, — hvað getum við gert fyr- ir þjóðina okkar — hver á af- mælisgjöfin okkar að vera, — þá verður margt og mikið gert iandi og þjóð til heilla þjóðhá- tíðarárið." 0 Norpað við hornið Góðkunningi Velvakanda (hann á sína eins og lögregl- an) kom að máli við hann og sagði, að sú saga flygi nú um bæinn að nú stæðu húsmæður sums staðar við mjólkurbúðar- horn og bæðu fólk um að verzla fyrir sig um leið og þeir keyptu sjálfir drykkinn dýrð- lega. Góðkunninginn sagði gleði- legt til þess að vita, að nú væru það ekki bara ótótlegir viðskiptavinir í Ríkinu, sem ekki fengju afgreiðslu þar, sem stunduðu slíka viðskiptahætti. Það skal tekið fram, að það er ætlazt til þess að hlegið sé að því, sem stendur hér að of- 0 Nafngjöf gjallhrúgu Helgi Ómar Sveinsson skrif- ar: „Það hefur farið þannig fyr- ir mér, eins og mörgum öðrum, að ég uni því ekki, að hér á Islandi skuli finnast nafnlaust landslag, sem þar á ofan er dag lega í fréttum. Örnefnanefnd hefur þagað um málið, en orð- ið hefur verið gefið okkur al- menningi. Hér getur mína skoðun. Þar sem þetta eldgos er ein- stæður atburður í sögu okkar, verður að gera töluverðar kröf ur til nafngiftar f jallsins. Nafnið ætti að einhverju leyti að minna á þann óskunda, sem eldfjallið olli með uppvexti sínum í útjaðri athafnabæjar. Æskilegt væri, að nafnið sé stutt og lipurt í framburði, auk þess að vera hverjum manni auðskilið. Óþarfi er að leita á náðir fornbókmennta í þessari nafnleit, til þess hefur atburð- urinn of mikil áhrif á samtíð- ina. — Að þessum formála lokn um vil ég leiða fram nafnhetju mína, Usla. Þetta einstæða orð USLI, uppfyllir öll framansett an, ef einhverjum hefur dottið í hug að móðgast! skilyrði. Það fer einnig mjög vel í samsetningum, svo sem Uslafell, Uslagos, Uslahraun o. s.frv. Auk þess hefur orðið usli einnig merkinguna eldur eða heit aska, sem hér á sömu- leiðis vel við. Ég vil að síðustu óska þess, að Örnefnanefnd gefi sem fyrst úrskurð í þessu máli, til þess að Eyjamenn þekki þó bölvald sinn með nafni. Helgi Ómar Sveinsson, Leirubakka 8, Reykjavik.“ [f§ Aukið viðskiptin — Auglýsið — ÍP Bezta auglýsingablaðið Útboð Tilboð óskast í hita-, hreinlætis- og neyzluvatns- lagnir í fjölbýlishúsið Skarðshlíð 22, 24, 26 og 28, Akureyri. Sömuleiðis óskað eftir tilboðum í ofna í nefnd hús, einnig óskað eftir tilboðum í tvöfalt einangrunargler í sama fjölbýlishús. Tilboðsgögn verða afhent hjá Frey Ofeigssyni, Birkilundi 5, Akureyri, gegn 2 þús. kr. skilatrygg- ingu og skal skila tilboðum til hans. Frestur til að skila tilboðum er til 9. apríi 1973. Stjórn Verkamannabústaða, Akureyri. Vélsmíði — Rennismíði Við tökum að okkur hvers konar verkefni í járn- 1 26560 iðnaði, framkvæmd af úrvals fagmönnum búnum full- Höfum kaupe-ndur komnum vélakosti. að 3—6 lesta opnum bát. Framleiðum fiskvinnsluvélar og tæki. 9—85 lesta bátar tiil sölu, Smíðum allskonar stansa og mót. tilibúnir á veiðar. Planslípum stóra og smáa stansa og vélahluti. n kvttld og helgarslmi 30156 Getum bætt við nokkrum verkefnum. STÁLVINNSLAN H.F., AÐALSKIPASALAN Súðarvogi 44—46 — Sími 36750. B AUSTURSTRÆTI 14 4 hæb slmi 26560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.