Morgunblaðið - 18.04.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1973 14444^25555 mimin BILALEIGA- HVEFISGOTU 103 14444 ** 25555 Í L i t.r.U. A A um mmm, ® 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 ........ - BÍLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 SAMVINNU* BANKINN SKIPAUTGCRB RIKISINS Ms. Herjólfur tii Vestfjarðahafna þriðjudaginn eftir páska, viðkomur á norður- leið. Vörumóttaka í dag. Frídagar Háskólaborgarar, kennarar — 2000 vilja skipta — láta heimili sín i frídagaskiptum. Umboð fyrir alla Evrópu. Hafið sam- band við INTERNATIONAL HOME EXCHANGE SERVICES Fack 1033, 371 01 Karlskrona, Sweden. . nucivsinonR <SÍ^-o224an STAKSTEINAR ÆSI fórnað á altari heimskunnar Málgragn Bresnéfs á íslandi skýrir frá því í gær með fögnuði, að óþjóðliolliiin öfl- um vinstri manna hafi tek- izt að eyðUeggja starfsemi ÆSf. Æskulýðssaniband ís- lands hefur nú um nokkurt skeið verið heildarsamtök æskulýðssamtaka á fslandi og grundvöHurinn undir starfsemi þess er, að flokks- pólitískum málum sé ekki blandað samnn við starf .,ess. Kn nú hafa vinstri meun ákveðið að hverfa frá |x‘ssaii braut. Meginverkefni ÆSf á nú að vera að koma herntnn úr landi og berjast fyrir úrsögn landsins úr NATO. Æsku- lýðssamband fslands er þaun- ig orðið eins konar útibú frá Brúsastaðahreyfingunni, — fylgihnöttur kommúnista í baráttu þeirra fyrir að ein- angra fsland frá frændrikj- um þess. Lýðræðissinnar geta að mörgu leyti sjálfir sér um kennt, hvernig samtök eins og ÆSf falla í hendur komm- únista. Andvaraleysi gagn- vart kommúnistum hefur ver- ið allt of áberandi og lýðræð- issinnar hafa jafnvel haft samráð við þessa óþjóðhollu menn um mikilsverð mál. Þetta hafa kommúnistar not- fært sér og jafnframt leikið á strengi hégómagirndarinn- ar í istöðulausum „forystu- mönnurn" ungra framsóknar- manna og jafnaðarmanna. Það er raunar táknrænt fyrir sem ungTa jafnaðar- manna er i, að það er full- trúi þeirra, sem tekur að sér að leiða Æskuiýðssamband íslands til slátrunar. Kalda stríðinu lokið? Sjálfsagt eru ungir jafnað- armenn fjarska ánægðir yfir því afreki sinu að fórna ÆSf á altari eigin hégómagirndar. Þeir halda það sjálfsagt, að með þessari fórnarathöfn hafi þeir sýnt það og sannað, að þeir séu frjálslyndir menntamenn, sem ekki þjáist af kvillurn frá tímum kalda stríðsins. Og í glasaglaumn- um, þegar skálað var fyrir hinum nýja formanni, hefur sjálfsagt gleymzt að minnast á örlög þeirra jafnaðarmanna fyrir austan tjald, sem með sakleysi skáluðu með leiðtog- um kommúnista, — hurfu síðan af leiksviði sögunnar i kyrrþey, — vonsviknir menn i fangabúðum. Eða ætli hinn nýkjörni for- maður ÆSf hafi leitt hugann að örlögum þeirra kristnu söfnuða í Rauða-Kína, sem þurrkaðir voru út í menning- arbyltingunni á sama hátt og nasistar drápu Gyðinga í seinni heimssfyr jöldinni Ætll formaðurinn hafi leitt hug- ann að örlögum þeii-ra milijóna jafnaðarmanna í kommúnistaríkjunum, sem eru í faiígabúðum fyrir það eitt að hafa sjálfstæða liugs- un? Því er stundum haldið fram af liinum sjálfskipuðu fulitrúuni frjáislyndis á fs- landi, að kalda stríðið sé lið- ið. Ef það er rétt hjá þeim, þá er það fyrst og fremst að þakka árvekni Vesturveld- anna og samstöðu lýðræðis- þjóðanna. Friðun Atlantshafs ins fyrir herjum kommúnista hefur tryggt öryggi þessara þjóða. Það er þess vegna, sem allar Norðurlandaþjóð- irnar líta með ugg tU þess, ef fslendingar reka herinn úr landi. Þær þjóðir, sem voru undir járnhæl þjóðernissósí- alista í seinni heimsstyrjöld- inni óttast hinn byltingarsinn aða sósialisma Brésnefs ekki síður en hálfbróður hans frá styrjaldarárunum. þá sérkennilegu stöðu, Samband CJr spurt og svaraÓ Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. GRINDAVfKURVEGURINN Helgi Th. Andersen spyr: „Hvenær er fyrirhugað að hefja framkvæmdir við Grindavíkurveginn, þannig að á hann verði lagt varan- legt slitlag? Er ekki hægt að halda uppi betra viðhaldi við veginn, þar til þessar fram- kvæmdir hefjast, sérstaklega með tilliti til þess, hversu illa fiskurinn fer, þegar nauð synlegt reynist að aka hon- um í vinnslustöðvar ut- an Grindavíkur?“ Sigurður Jóhannsson, vega málastjóri, svarar: „1. í vegaáætlun yfirstand andi árs eru veittar 58,6 m. kr. til endurbyggingar Grindavíkurvegar með var- anlegu slitlagi. Verk þetta verður boðið út næstu daga, og er í útboði miðað við, að væntanlegur verktaki ljúki lagningu vegarins með varan legu slitlagi fyrir áramót. 2. Árið 1972 var meðalárs- umferð um Grindavíkurveg 640 bílar á dag, og af þeirri umferð voru 15 vörubifreið ar. Það er tæknilega mjög erfitt að halda við malarvegi með svo mikilli umferð og ekki hvað sízt í mikilli um- hleypingatið eins og verið hefur í vetur. Reynt hefur verið að halda vegin- um við eins og frekast er unnt, en að árangurinn skuli eigi vera betri en oft vill verða, sannar aðeins, að tíma bært var fyrir löngu að setja fast slitlag á veginn.“ VATNSLEYSI f BREIÐHOLTI Gylfi Hallvarðsson, Torfu- felli 27, spyr: „Til Vatnsveitu Reykjavík ur. Hvað veldur þessu tíða vatnsleysi hér í Breiðholti? Stafar það af bilunum eða er það tekið af af ásettu ráði? Ef svo er, af hverju er fólk- ið ekki látið vita með fyrir- vara? Það hefur oft komið fyrir, að ekki sé hægt að elda matinn á réttum tima vegna -þess að vatnið hefur farið af.“ Þórhallur Th. Sigurðsson, vatnsveitustjóri, svarar: „Það kemur mér mjög á óvart, að þessi spurning skuli berast nú. Skiljanlegt hefði verið, ef hún hefði borizt í janúar, því að fram til þess tíma var nokkuð um vatns- leysi í Breiðholti, af ýmsum ástæðum. En síðan þá hafa þau mál verið í lagi, að því er ég bezt veit. Það virðist heldur ekki vera um að ræða vatnsleysi í þessu ákveðna húsi, því að starfsmað- ur vatnsveitunnar fór á stað inn og ræddi við þrjár kon- ur, sem búa í húsinu, en þær sögðust ekki á neinn hátt þurfa að kvarta yfir vatninu; það mál hefði ver- ið í lagi frá því í janúar.“ HREINLÆTISKRÖFUR VIÐ MAT V ÆL AFR AMLEIÐSLU Ragnhildur Konráðsson, Þingholtsstræti 21, spyr: „Er matvælaframleiðsla fyr ir Islendinga háð öðrum hreinlætiskröfum en fyrir út lendinga? Skýringar: Ég horfði á sjónvarpsþátt um daginn, sem Gestur Þorgrímsson var með, og þar var fólkið í frystihús unum ekki með skýlur yfir hárinu." Fiskmat rikisins, svarar: „Kröfur um hreinlæti i fisk iðnaði eru samkvæmt ís- lenzkri reglugerð og enginn munur gerður þar á, hvort framleitt er fyrir innanlands markað eða til útflutnings. 1 reglugerðinni er kveðið svo á um, að klæðnaður verka- fólks, sem vinnur við snyrtr ingu, vigtun eða innpökkun á fiski, skuli vera hvít- ir sloppar og konur skuli bera hvíta höfuðkappa." Þá hefur Heilbrigðiseftir- lit ríkisins veitt þær upplýs- ingar, að í handbók fyrir frystihúsin um hreinlæti og hollustuhætti, sem út var gef in 1970, sé einnig fjallað um klæðnað og höfuðbúnað starfsfólks. Þar eru settar fram tillögur, sem ganga lengra en reglugerðin, en eru hins vegar ekki bind- andi. Þar segir: „Kvenfólk og siðhærðir karlmenn noti hárnet eða höfuðslæðu, sem hylur allt hárið. Þetta starfs fólk noti ekki kappa eða höf uðband." MARGFALDAR 1111 MARSFALDAR MMWiI MARSFALDAR Bií IHMll Poppstjörnur eru flest- ar mjög líflegar í framkomu og ekki síður í tali, enda eru blaðamenn jafnan óðfúsir að birta eftir þeim allt mögu- legt, sem hrýtur af vöruin þeirra. Við birtum hér á eft- ir nokkur brot úr viðtölum við fræga menn, sem birzt hafa í Melody Maker að und anförnu: STEVIE WINWOOD um þátttöku sína í hljómleikun- um með Erift. Clapton í Lond- on í janúar: „Já, það var virkilega ánægjulegt. Það var heilmik ið um ónauðsynlegar æfing- ar á undan! Ja, ekki ónauð- synlegar, en ég kunni flest lögin. Pete Townshend hringdi í mig og bað mig um að hjálpa til og ég sagðist mundu koma niður eftir á æf inguna á fyrsta degi. En svo gerði ég það ekld. Pete hringdi aftur og varð all- þungur: „Jæja, ætlarðu að hjálpa til eða ekki?" — Svo ég fór — og það var stór- kostlegt." DAVID CASSIDY er spurð ur, hvaða hlið á sigurgöngu sinni hann vildi helzt losna við: „Tímann strax á eftir h'jóm leikum. Hann dregur úr mér allan mátt og er mjög nið- urdrepandi. Þetta er eins kon ar sorgarsaga, ef maður hug leiðir það. Þetta er höfuð- uðverkur poppstjörnunnar, geri ég ráð fyrir. Hvort sem á í lilut ég eða einhver ann- ar. Maður nær hámarki í æsingnum — skyndi- lega eru þarna tíu þúsund manns og þeir eru á suðu- punkti og maður hefur þá al veg undir sinni stjórn og þetta er eins og móðursýki og maður er gjör- samlega umvafinn þessu. Og síðan, allt í einu, er manni hent í aftursætið á Toyota og brennt með mann í burtu á tuttugu mínútum og mað- ur er læstur inni í einhverju litlu skítahóteli, sem er al- gjörlega á afviknum stað. Og maður er aleinn.“ ALAN OSMOND, einn Os- mond-bræðranna og þar með bróðir Donnys, ræðir um Mormóna-trúna, en þeir bræð ur eru allir þeii-rar trúar. Hún bannar áfengisneyzlu, einnig kókdrykkju og margt annað er talið syndsamlegt: „Auðvitað hef ég gengið i gegmmi spilavíti og séð fjár- hættuspil. Við vitum vel, að allt þetta er gert. Ég bragð- aði á kóki einu sinni af mis- gáningi og fannst það eigin- lega ekki gott hvort sem var. Við trúum, að ef við drekk- um svoleiðis nokkuð, þó að það myndi ekki drepa okkur, þá gætum við verið þetta miklu betri ef við gerðum það ekki. Þetta eru nútíma- leg ti'úarbrögð og við trúum því, að þau hafi hjálpað okk ur heiimikið í Ufi okkar. Þau eru ekki frábrugðin öðr um trúarbrögðuin að því er róttækni snertir og við bara trúuin því, að líkamar okk- ar séu mikilvægir, og flest af bönnunum snerta heilsuna.“ >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.