Morgunblaðið - 18.04.1973, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.04.1973, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1973 Jóhann Hafstein: Meirihluti landhelgismálanefndar vill íhuga hvort ekki beri að mæta í Haag — forsætisráðherra og utanríkisráðherra vilja ræða og skoða þetta atriði vandlega. Umræðurnar á Alþingi um skýrslu utanríkisráðherra UTANRÍKISRAÐHERRA, Einar Ágústsson, flutti Sam- einuðu þingi skýrslu sína um utanríkismál í gær. Urðu all- miklar umræður um skýrsl- una, en einkum urðu hörð orðaskipti milli Hannibals Valdimarssonar, félagsmála- ráðherra, og Bjarna Guðna- sonar vegna þeirrar skoðun- ar ráðherrans, að íslending- um beri réttur og skylda til að senda málsvara til Alþjóða dómstólsins í Haag. í ræðu Jóhanns Hafstein kom fram, að Iandhelgis- nefnd hefur nýlega komið saman og tekið þetta mál fyr- ir, og á þeim fundi kom fram, að meirihluti nefndarmanna teldi, að íhuga bæri mjög vandlega, hvort ekki bæri að senda málsvara til Haag. Þá sagði Jóhann, að fram hefði komið í nefndinni hjá utan- ríkisráðherra og forsætis- ráðherra, að ítarlega þyrfti að ræða og skoða málin, áð- ur en ísland tæki endanlega ákvörðún um, hvort málsvari yrði sendur eða ekki. Utanríkisráðherra ræddi í upp hafi almennt um þróun alþjóða- mála. Sagði ráðherrann, að ekki væri mikið um viðræðurnar i Vín arborg, um niðurskurð herafla, að segja, þvl fyrstu tveir mán- uðir þeirra hefðu farið í þóf um fundarsköp. Ráðherrann sagði, að undir- búningur fyrir öryggismála- ráðstefnu Evrópu ætti enn langt í land, en þótt endanlegt sam- komulag um dagskrá ráðstefn- unnar hefði enn ekki náðst, þá lægi nokkuð ljóst fyrir að hún myndi í stórum dráttum fjalla um eftirfarandi fjög- ur megin dagskráratriði: 1. Öryggismál, þ. á m. grundvall- arreglur varðandi samskipti ríkja 2. Samvinnu á sviði viðskipta-, efnahags-, vísinda-, tækni-, menningar- og umhverfismála 3. Mannleg samskipti, aukin samskipti á sviði menntunar- ; og upplýsingastarfsemi 4. Ráðgefandi nefnd til að fjalla um málefni viðkomandi öryggi og samvinnu. Þá fagnaði utanríkisráðherra því, að vopnahlé skyldi nást í Viet Nam, þótt hann lýsti áhyggj um sínum vegna þeirra árekstra, sem þar hefðu orðið að undan- förnu. Þvi næst vék hann að Kóreumálinu og sagði þá m.a. að tsland myndi innan táðar koma á stjómmálasambandi við Norð- ur-Kóreu, en slíkt samband hefðum við nú þegar við Suður- Kóreu. Þá fjallaði utanrikisráðherra nókkuð um þau mái á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, sem Is lendingar hefðu haft sig í frammi í. Kom fram í ræðu hans, að ts- lendingar hefðu lagt fram á fundi undirbúningsnefnd- ar Hafréttarráðstefnunnar til- lögu hinn fimmta apríl, sem hljóðaði svo: „Lögsaga strandríkja yfir auð- lindum á hafsvæðum utan land- helgi þeirra. Strandríki er heimilt að ákveða ytri mörk lögsögu og yf- irráða yfir auðlindum á hafsvæð um utan landhelgi þess. Ytri mörk svæðisíns skulu ákveðin innan sanngjamrar fjar lægðar með hliðsjón af land- fræðilegum, jarðfræðilegum, vist fræðilegum, efnahagslegum og öðrum aðstæðum á staðnum, sem máli skipta og skulu ekki ná lengra en 200 sjómílur.“ Skoðanaskipti um hlutverk Evrópuráðsins eftir stækkun Efnahagsbandalagsins hefðu nú staðið all lengi, sagði ráð- herrann, og menn ekki á eitt sáttir um það. Island hefði lát- ið í ljós þá skoðun sína, að Evrópuráðið ætti að halda áfram að vera vettvangur lýðræðis- ríkjanna í Evrópu fyrir frjáls skoðanaskipti á jafnréttisgrund velli. Þá sagði Einar Ágústsson, að hann hefði þegið boð um að flytja erindi um landhelgismái- ið á Ráðgjafaþingi Evrópuráðs- ins 17. maí n.k. Þá fjallaði ráð- herrann um Efnahagsbandalag- ið og einkum þó þann fyrirvara, sem Efnahagsbandalagið hefði haft um fríðindi fyrir sjávaraf- urðir, vegna land'helgismálsins, og sagði hann ekki útséð um hvernig færi um beitingu hans, þó hann væri ekki bjartsýnn á, að fyrirvaranum yrði ekki beitt. Þá sagði ráðherrann: Fríverzlunarsamtök Evrópu (EFTA) halda áfram starfsemi sinni með þátttöku 7 landa, Austurríkis, Finnlands, fslands, Portúgals, Noregs, Sviss og Svi- þjóðar. EFTA hefur ennþá mikla þýðingu fyrir viðskipti þessara landa, en einnig fyrir samskipti landanna við Efnahagsbandalag ið. Samkvæmt tillögu fslands fer nú fram athugun á því innan EFTA, hvort hægt sé að ná sam- komulagi um, að frtverzlunin nái til fleiri sjávarafurða en hún hefur gert hingað til. Enn sem komið er er of snemmt að spá nokkru um niðurstöður þessar- ar athugunar. í lok skýrslunnar ræddi utan- ríkisráðherra um landhelgismál- ið og vamarmálin' og rakti fyrst í nokkrum orðum deilurnar við Breta og Vestur-Þjóðverja. Ráð- herrann sagði: Nýlega hafa farið fram í Reykjavik viðræður við emb- ættismenn frá báðum þess- um rtkjum og er ráðgert, að ráð- henraviðræður fari fram við Breta i byrjun næsta mánaðar. Er það von mln, að málin þok- ist þá í átt til bráðabirgðasam- komulags, sem tryggi réttmæta hagsmuni íslands og aðlögunar- timabii fyrir fiskimenn þessara þjóða. Aðrar þjóðir hafa í reynd virt hina nýju íslenzku fiskveiðilög- sögu og við tvær þjóðir Belga og Fsereyinga hafa verið gerð- ir samningar um heimild til tak- markaðra veiða innan fiskveiði- takmarkanna. Um málshöfðun Breta og Þjóðverja fyrir Alþjóðadóm- stólnum vil ég aðeins taka fram, að sú ákvörðun íslands að mæta ekki fyrir dómstólnum var rök- rétt afleiðing af þeirri ályktun Alþingis frá 15, febrúar 1972, að vegna breyttra aðstæðna geti samningarnir við þessi ríki frá 1961 ekki lengur átt við og ís- lendingar séu því ekki bundnir af ákvæðum þeirra. Varðandi málsmeðferð, er dómstóllinn í lok þessa árs tekur fyrir efnis- atriðin, virðist mér augljóst, að íslendingar geta ekki átt úrslit í slíku lífshagsmunamáli sinu undir erlendu dómsvaldi, og að það sé því rökrétt og eðlilegt, að Island eigi ekki fulltrúa við þennan málarekstur fremur en hingað til. Það er von mín, að samstaða þjóðarinnar um framkvæmd þessara mála geti haldizt. Eins og ég hef áður skýrt Al- þingi frá hefur um nokkurt skeið verið unnið að könnun og upplýsingasöfnun varðandi vamarmálin. Meðal annars ligg- ur fyrir álit Atlantshafsbanda- lagsins um hernaðarlegt mikil- vægi íslands, sem kynnt hefur verið utanríkismálanefnd Al- þingis. Vamarmálin hafa einnig ver- ið nokkuð ítarlega rædd við bandarísk stjómvöld. í maímán- uði í fyrra, er Rogers, utanrik- isráðherra Bandaríkjanna, var hér í Reykjavik var frá báð- um hliðum gerð grein fyrir sjón- armiðum til málsins. f janúar s.l. fór ég til Was- hington og ræddi þá við banda- riska utanríkisráðherrann og embættismenn úr bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Fóru þar fram gagnleg skoðanaskipti, en niðurstaða viðræðnanna var sú, að athuga þyrfti nánar ýmis atriði til þess, að heildarmynd- in lægi fyrir. Það er ásetningur minn, að endanleg ákvörðun rik isstjórnarinnar geti bjjggzt á sem fullkomnustum upplýs- ingum, en það fer ekkert á milli mála, að það er algerlega á valdi islenzku ríkisstjómarinn- ar, hver sú endanlega ákvörð- un verður og hvenær hún verð- Stjórnarfrumvarp um hell- brigðisþjónustu var afgreitt við þriðju umræðu frá efri deild aftur til neðri deildar s.I. laugardag. Svo sem kunnugt er, urðu ýmsar breytingar á heilbrigðisþjónustu frumvarp- inu við afgreiðslu í neðri deild. Töldu ýmsir, að þær breytingar gætu orðið til þess, að frumvarpið yrði ekki að lögum á þessu þingi. Engu að síður var frumvarpinu hrað- að í gegnum efri deild, en þar voru einnig bornar fram all margar tillögur um breyting- ar. Var þar bæði um að ræða breytingatillögur, sem felldar höfðu verið í neðri deild, og einnig nýjar breytingatillögur. Tvær tillögur sem neðri deild hafði fellt voru sam- þykktar í efri deild. Voru það tillögur fiá Magnúsi Jónssyni o.fl. um heilsugæzlustöð á Kópaskeri, og tillaga frá Ás- geiri Bjarnasyni, Þorvaldi ur tekin. Ákvörðun ríkisstjóm- arinnar um endurskoðun varn- arsamningsins verðuír því vænt- anlega tekin bráðlega. Samstarfið við utanrikismála- nefnd hefur verið með ágætum á þvi þingi, sem nú er að ljúka og vil ég þakka það. Hafa sam- ráð utanríkisráðuneytisins við nefndina farið vaxandi og er það að mánu áliti til mikilla bóta. Fundir nefndarinnar frá ársbyrjun 1972 hafa verið 25 og hef ég mætt á flestum þeirra og reynt að gera nefndinni grein fyrir helztu utanríkismálum sem á dagskrá hafa verið hverju sinni. Jóhann Hafstcin sagði að ylli nokkrum vonbrigðum, sem segði i skýrslu utanríkisráðherra að all mikið bæri á milli um kröfur rikja til landhelgi. Ráð- herrann sagði að hámark virt- ist vera 12 rnilna landhelgi og 200 mílna efnahagslögsaga, en fslendingar hefðu ætíð byggt stefnu sína og málstað á land- grunnslögunum frá 1948 og mið- að við landgrunnið og hafsvæð- ið yfir því. Jóhann sagðist taka heiishugar undir það sem ráð- herrann hefði sagt um viðræður við Breta og Vestur-Þjöðverja um réttmætt aðlögunartíma- bil þessara þjóða. Jóhann Hafstein sagði að hinn 13. apríl hefði landhelgis- nefndin komið saman að sinni beiðni. Á fundinum hefði verið rætt um, hvort senda bæri mál- svara til Haag og hefðu verið skiptar skoðanir um það í nefnd inni, en meirihluti nefndarinnar var þó á því, að vandlega bæri að íhuga hvort ekki væri rétt að senda þangað málflytjendur. Ég vek athygli á því, að forsæt- isráðherra og utanríkisráðherra Garðari Kristjánssyni og Bjarna Guðbjörnssyni um að heilsugæzlustöð eitt í Suður- og Vesturlandshéraði yrði breytt í heilsugæzlustöð tvö. f raun þýðir sú breyting að tveir læknar hið fæsta skuli vera í heilsugæzlustöðinni i stað eins. — Tillaga Magnúsar Jónssonar o.fl. var samþykkt með 11 atkvæðum gegn 6, en tillaga Ásgeirs Bjarnasonar o.fl. var samþykkt með 10 at- kvæðum gegn 8. Þá var til- laga frá Auði Auðuns og Eggert G. Þorsteinssyni um, að ekki væri útilokað, að geð deildir væru við heilsugæzlu- stöðvar, samþykkt með 9 at- kvæðum gegn 7. Aðrar breytingatillögur voru felldar. Þær voru m.a. um heilsugæzlustöð I. á Skaga strönd, sem Þorvaldur Garð- ar Kristjánssor. bar fram, en hún var felld með 10 atkvæð- um gegn 6 en hafði áður ver sögðu i nefndinni, að við ættum eftir að fjalla mikið um þetta mál áður en ákvörðun yrði tekin. Það er náttúrlega rangt að tala um Alþjóðadómstólinn, sem erlent dómsvald, þetta er alþjóð- legt dómsvald — dómstóll Sam- einuðu þjóðanna. Sjálfuæ forsæt isráðherrann sagði af skynsemi og rökvisi 14. nóvember 1960: „. . . vissulega er það svo, að smáþjóð verður að varast það að ganga svo langt, að hún geti ekki alltaf verið við þvi búin að leggja mál sín undir úrlausn alþjóðadómstóls, því að sannleik urinn er sá, að smáþjóð á ekki annars staðar frekar skjóls að vænta heldur en hjá alþjóðasam- tökum og alþjóðastofnunum, af því að hún hefur ekki valdið til að fylgja eftir sínum ákvörðun- um eins og stórveldin. Og þess vegna hefði, að rnínu viti, hvert eitt spor i þessu máli átt að vera þannig undirbúið, að við hefð- um verið við því búnir að leggja það undir úrlausn alþjóða- dómstóls." Það getur haft úrslitaáhrif á hvenær dómur fellur, ef við send um menn til Haag, og m.a. gæt- um við haft aðstöðu til þess að fresta dómsuppkvaðningu fram yfir Hafréttarráðstefnuna. Ég legg áherzlu á, að vand- lega verði athugað hvernig hags munum okkar verði bezt borg- ið. Vegna landhelgismálsins vil ég leyfa mér nú, fyrir hönd Sjálf- stæðisflokksins, að taka fram eftirfarandi: Ef ríkisstjórninni tekst ekki að ná bráðabirgðasamkomulagi i fiskveiðideilunni við Breta og Vestur-Þjóðverja, svo sem hún í efri deild ið felld í neðri deild með 19 atkvæðum gegn 18. Breytingatillaga frá Ragn- ari Arnalds o.fl. um að heimilt yrði að :áða lækna og annað starfslið að heilsugæzlustöðv- um, þó það hefði búsetu og starfssvið utan stöðvanna, felld með 9 atkv. gegn 7. Breytingatillaga frá Þorvaldi Garðari Kristjánssyni um heilsugæzlustöð á Bíldudal var felld með 11 atkvæðum gegn 5. Svo sem fyrr segir, þá var heilbrigðisþjónustufrumvarpið endursent neðri deild eftir þessar breytingar, og ef neðri deild samþykkir það ekki ó- breytt, þá ganga deildirnar saman i eina deild og afgreiða frumvarpið. Fullvíst er talið, að ef svo tekst til, þá sé frumvarpið úr sögunni á þessu þingi. Dagar heilbrigðisþj ón- ustufrumvarpið uppi? Breytingartillögur samþykktar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.