Morgunblaðið - 18.04.1973, Side 25
MORGÖNBLAÐIÐ, MIÐViKUDAGUiR 18, APRÍL 1973
25
Ég hefði frekar viljað ffiilltiska, en Branda bflrðar
þá alltaf.
naiiðsynl«ft að maðurinn — SAMI kjóll í þinni staerð
taki iyfið í köldu vatni. er ekki SAMI kjóliinn.
. stjörnu
. JEANE DIXON
ítrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
I>ú hrldKr þig viA vwlskipti, og það stj-Tkir aðstöðu þína mikið
að vrra ckki oí rnihið á ferli opinberlega.
Nautið, 2«. april — 20. maí.
er ekki n«s :*ð trej sta alltaf á Guð ®s gæfuna þótt það
gefist prýíilpga í dag-
Tviburaríiir, 21. maí — 20. júni
I»ú verður að lotíy.ja eitthvað á þig s.iáifur. Sumar tálmanir eru
ekki spunn ir af eðiileprum orsökum, cg það er þitt að yfirstíga þær.
Krabbinn, 21. júni — 22. júU.
Mild oloaskijdi en tímabær, binda enda á persónulesar deilur.
Ljónið, 23. júii — 22. ágúst.
Ef félk miaskilnr þig, skaltu lofa þvt að taka þátt I verkum
þíiium um stund.
Mærin, 23. ágúst — 22. september.
Því einfaldari leiðir sem þú velur, því betra fyrir sjálfan þig.
Vogin, 23. septentber — 22. október.
l*ú verður að gera hjálparmönnum þinum viðvart í tæka tíð.
l*ú verð tímannm vei með þvi að hygia að einkamálum þfnum.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Markmið er ekki það sama og leiðir. Þetta liefurðu vnnandi hug-
fast.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
I*ú finnur ný.ra fjáröflunarleið, livort sem það er eitthvað frá-
frábrugðið starfi þínu eða ekki.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Kröfur þínar eru óraunhjefar i þetta sinn, en með smábreytins-
um geturðu fengið flest af því sem þú girnist.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
I»ú drífur þig í fjáröflunarstarfsemi. I*ví færri sem þátt taka í
henni. því meira ávinnst.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Guðfinna Guðna-
dóttir — Minning
Fædd 1. nóvember 1888.
Dáin 13. api íi 1973.
Undir Múlanum í Patreksfirði
stendur litið hús, Bergstaðir, í
daglegu tali nefnt Björgin.
Þetta litla hús er innsta húsið í
þorpinu, en ber hátt og sézt vel
af hafi. Þar bjó hún amma okk-
ar, sem verður til moldar borin
I dag.
Okkur langar til að minnast
hennar nokkrum orðum; ekki
til að hlaða á hana lofi, heldur
til að þakka henni, því að í
þessu litla húsi áttum við ung-
ir svo góðar stundir.
Hún amma okkar á sér eng-
an minnisvarða í titlum, orðum
eða öðru heimsglysi. En hún átti
manngæzku og trú á Guð sinn,
létta lund og mikla rausn.
Hún hét Guðfinna Guðnadótt-
ir og var fædd á Eyrarbakka
1. nóvember 1888. Foreldrar
hennar voru Guðni Jónsson og
Kristán Jónsdótstir. ISfíu ára göm-
ul missti hún móður sína og fór
þá í fóstur til hjónanna Guð-
mundar Sigmundssonar og Guð-
ríðar, konu hans. Minntist hún
þeirra ávallt með miklum hlý-
hug og virðingu. Með ömmu okk
ar og dóttur þeirra hjóna, frú
Lilju, konu Ástráðs Jónssonar,
fyrrv. verkstjóra hjá Eimskip,
var mikil vinátta, en frú Lilja
lézt fyrir nokkrum árum. Ein al
systir ömmu er nú á iífi, Mar-
grét.
Amma fór snemma að vinna
fyrir sér, eins og þá var titt.
Leiðir hennar lágu síðan vestur
á Firði, en hún giftist árið
1917 Bjama Bjarnasyni söðla-
smið, ættuðum úr Dalasýslu og
stofnsettu þau sitt heimili á Pat-
reksfirði og bjuggu þar til árs-
ins 1954, er þau fluttust til
Reykjavíkur. Bjarni, afi okkar,
andaðist árið 1958.
Saga ömmu okkar og^afa er á
ytra borði í litlu frabrugðin
sögu margra annarra: nægju-
semi, þar sem lífið gekk sinn
gang og tíminn var ekki talinn
í minútum, en allt blessaðist.
Börn þeirra komust upp og
fóru að heiman og eftir voru
gömlu hjónin á Björgunum,
hluti af þeirri viðkunnanlegu
mynd, sem Patreksfjörður var
— Og kannski er. Okkur fannst
ungum, að þau hefðu alltaf ver-
ið þarna og myndu alltaf verða
þarna. En allt breytist.
Börn þeirra Guðfinnu og
Bjarna, er upp komust, eru: Guð
mundur Ingi, vélstjóri, kvæntur
Sigríði Guðmundsdóttur. Ing-
veldur, gift Einar Thoroddsen
skipstjóra. Kjartan, pipulagn-
ingameistari, kvæntur Rögnu
Pálsdó'ttur. Laufey, gift Einari
Eml Bjömssyni dýralækni
Ragna, gift Ólafi G. Einarssyini
alþingismanni. Einn son misstu
þau ungan: Guðmund Inga.
Amma harmaði þann son sirui
alla tið.
Amma átti áður eina dóttur,
Svövu, sem giftist Pétri Wfl-
helm Jensen stórkaupmanni, etn
hann er nú látinn. Bjarni afi
gekk Svövu í föðurstað, og var
mjög kært með þeim. Auk þess
ólst upp á heimilinu sonur afa,
Bjarni vélstjóri. Þannig ólust
upp á heimili þeirra sjö böm.
Og síðan komu barnabömin til
lengri og skemmri dvalar.
Um miðjan aldur fór Bjarna,
afa okkar, að daprast sýn, og
var hann orðinn nær alblind-
ur, áður en böm hans komust
upp. Hann stundaði allt að einu
smiðar, og var sótzt eftir grip-
um hans. Meðan hann var á
Patreksfirði fundu fáir, að þar
færi blindur maður. Amma og
þau bæði voru alltaf létt í lund,
smá kímin, en lögðu öllum gott
til. Gestkvæmt var á heimili
þeirra, þótt fjarri stæði öðrum
húsum. Þau voru ekki rík, en
ekki heldur fátæk, og liitil efni
dugðu til mikillar rausnar. Láf
þeirra var, eins og náttúran hef
ur líkast til ætlazt til: að allir
hefðu nóg, en enginn of litið.
Þessi nútímauppfinning, stress,
kann að hafa borizt til Patreks-
fjarðar, meðan þau bjuggu þar,
en aldrei varð vart við það inn-
an girðingar á Bergstöðum.
Blinda afa hafði auðvitað
sína erfiðleika i för með sér fyr-
ir þau bæði, en amma léý það
lítt eða aldrei á sér finna. Hjá
þeim var þvi gott að vera, og
okkur þótti ekkert sumar nema
við kæmumst vestur.
Nú eru þau bæði farin. En á
minninguna meriar æ, hún er
skír og tær, eins og hafið á fögr
um sumardegi.
Við þökkum ykkuf fyrir allt.
Óii og Þórir.
— Minning
Guðrún
Framhald af bls. 22
því milli heimila okkar var tíð-
ur samgangur og góð vinátta.
Á þeim árum og til fullorðins-
ára minna eru mér í minni marg
ar ánægjustundir á hennar heim
ili, sem óþarft er að rifja upp
hér. En þess vil ég geta að mín
fyrstu búskaparár, eða rúman
áratug bjó ég í húsi þeirra
hjóna Guðrúnar og Eyjólfs. Á
þeim árum fann ég bezt hvern
mann hún hafði að geyma.
Margt var þá frábrugðið þvi,
sem nú er, og menn urðu að
sætta sig við minna en það, sem
nú þykir sjálfsagt. Það var þvi
þá ekki síður en nú og ávallt,
mikils virði að umgangast gott
fólk. Fólk, sem skynjaði fleira
en þetta dagiega amstur, sem
grár hversdagsleikinn er, fólk
sem tileinkar sér fremur það
ánægjulega í lífinu, en það, sem
miður fer, fólk sem breiddi frem
ur yfir bresti annarra, heldur
en mikla þá, slik var Guðrún.
Þótt Guðrún hefði jafnan stórt
heimili og þar af leiðandi mikið
að gera, tók hún ávallt á móti
fólki, hvernig sem á stóð, með
þeim léttleik og hlýju, sem þeir
einir geta, er hafa af einhverju
að taka hið innra.
Oft ræddi ég við Guðrúnu og
bar þá jafnan margt á góma,
stundum lét hún þá hugann
reika til æskuáranna, eða löngu
liðinna atvika og færðist þá
bros yfir andlit hennar, bros
löngu liðinna stunda, sem ljúft
var að minnast. Guðrún var
mjög söngelsk, hún hafði fal-
lega rödd og yndi af söng, hún
var meðlimur í kvennakórnum
„Erlur“ er hér starfaði um skeið
fyrir mörgum árum, undir
stjórn Friðriks Bjarnasonar tón
skálds og minntist þess stundum
með mikilli ánægju. Það var því
ekki að undra, þótt í vina hóp,
við ýmis tækifæri væri sungið
af hjartans list á hennar heim-
ili. En þótt tónlistin væri ríkur
þáttur í hennar huga, átti hún
fleiri áhugamál, eitt þeirra voru
slysavarnamálí'n, hún var virk-
■ur þátttakandi i slysaivarna-
deild kvenna hér í Firðinum og
hafði mikinn áhuga á þeim mál-
um.
Guðrún var trúuð, hún trúði
því að til væri annað líf og
taldi sig hafa vissu fyrir því.
Hún kvaddi því þennan heim í
þeirri vissu, að þar myndi hún
hitta horfna ástvini.
Þessar línur eru hugsaðar,
sem kveðja til samferðamanns,
sem reyndist mér, konu minni
og börnum sannur viinur í raiun
og sannleika. Hún á þvi mitt
þakklæti og virðingu. Hennar
nánustu sendi ég samúðarkveðj-
ur.
Aðalsteinn Þörðarson.
Verkfakar
Pocklain-grafa á hjólum í góðu standi er til sölu.
Leiga án vélstjóra kæmi til greina.
Upplýsingar í símum 1142 og 1393, Keflavík.
Hans og Créta auglýsir
Angórapeysur, stærðir 0—12. Ódýrar kakí-smekk-
buxur. Páskakjólar á telpurnar.
Ýmsar eldri vörur á hálfvirði.
HANS OG GRÉTA, Laugavegi 32.
F járfestingarfélag
jr
Islands ht.
Aðalfundur Fjárfestingarfélags fslands hf. fyrir árið
1972 verður haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal (hliðar-
sal) miðvikudaginn
25. apríl nk. kl. 16:30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir í
skrifstofu Fjárfestingarfélagsins að Klapparstig 26£
þrjá síðustu virka daga fyrir fundardag og til hádegis
á fundardegi, 25. apríl.
STiÓRNJN.