Morgunblaðið - 01.06.1973, Page 2

Morgunblaðið - 01.06.1973, Page 2
2 MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1973 Rog-ers utanríkisráðherra kemnr tíl fundar. — Ekki f ækkun heraf la Framtiald af bls. 1. fyrir sér örstutta stuind, baðaða í rafmagnisljósinu brosandi og uppstíttta, rétt eiins og þeir væru á ieiksviði. Nixon lét ýmis orð faHa um það hversu margir ljós myndarar hefðu áhuga á þeim, en ilW; var að heyra til hans vegna suðs og smella i myndavél unutn. Fund&herbergi forsetanna var búið eirts og setustofa með þrem ur setgrúppum. Þar hafði verið komið fyrir þremur rósóttum góifteppum, öðrum megin í her- berginu var gult sófasett með upphleyptu plussáklæði, hinum megin, þar sem forsetamir sett wt, voru stólar með grænu á- klæði og þar hjá nokkrir borð- stwfustólar, sem túlkar þeirra settust á. 1 miðjunni voru nokkr ir rauðklæddir stólar. Borð voru ýmist eiinföld og slétt harðviðar- borð eða útskorin og póleruð. Öðrum megin í herberginu voru ljós gluggatjöld, hinum megin gul „Þarna sjáið þér —“ í örtröðinni, þegar síðasti Ijósmyndarahópurinn ruddist út úr fumdaherberginu rakst blaða- kona Mbl. á Dr. Henry Kiss- inger, sem var á leið inn til fundar við forsetana, — og spurði hann sem snöggvast, hvort hann gerði ráð fyrir því, að ísland hefði hlutverki að gegna innan hins nýja Atlants- hafssáttonála sem haran hefði sett fram hugmyndir um fyrir skömmu. Hann hikaði rétt and- artak en svaraði svo játandi. — Mikilvægu hlutverki? árétt- aði blaðakonan spurninguna og Dr. Kissinger svaraði aftur ját- andi en bætti svo strax við „Látið mig ekkl segja meira, blaðakonur koma mér alltaf í vanch'æði". Loforð um hið gagn- stseða dugði skamimit, því nú var kominn öryggisvörður, sem baðst afsökuinar kurteislega en hátt og ákveðið og vísaði Kiss- inger áfram. Hann yppti öxlum hlæjandi og sagði „Þarna sjáið þér . . .“ Dr. Henry A. Kisssinger er maður heldur lágvaxinn, með dökkt, liðað hár og dálítið sérkennileg en hýrleg augu. Brosið fjörlegt og mátti sjá, þrátt fyrir þykk gleraugun, að það náði allt til augnakrókanna. Fas hans all't benti tiil þess, að Excellent! sagði Pompidou um dvölina á íslandi Síðdegis í gær var röðin komin að Pompidou forseta að koma á undan Nixon á fundarstaðinn á Kjarvalsstöð um. Og meðan hann beið svo- litla stund fyrir utan, tók hann að spjalla við frétta- menan, sem þar stóðu. Þeir spurðu hvernig hon-um likaði á Islandi. — Excellent!, svar- aði Pompidou um hæl og brosti. Þama voru margir ljós- myndarar. Þar á meðal einn frá Time. Þegar Pompidou heyrði það, kvaðst hann einu sinni hafa verið á forsíðu þess rits og ekki verið ánægður með útkomuna. En hann vildi gjaman komast þangað aftur samt. Næsti ljósmyndari reyndist vera frá Paris Match. Við það sagði forsetinn bara: — Uff! eins og hrollur færi um hann. En vel fór samt á með for- seta Frakklands og ljósmynd- uru.num þama í sólinni, og ræddu þeir um myndavéiar. Pompidou kvaðst alltaf verða hálf hræddur þegar hann sæi mikil apparöt. Sjálfur hefði hann alltaf hald ð að Kodak- Instamatik væri bezta mynda vél í heimi. En slíka vél ætti hann sjálfur. Þá var hann spurður hvað væri mikilvægast á ráðstefn- unni. — Allt, svaraði forset- inn —- þetta eru mjög opinská ar og góðar umræður. hann hefði hið mesta gaman af ötlu þessu tilstandi, enda sögðu blaðamenin Hvíta húisisins, sem, gerþefckja dr. Kissinger, að hann væri hinn mætasti maður, jafnan vinsamlegur í viðmóti, fjömgur, fyndinn og bráiðsnjall. Þegar dyrnar höfðu lokazt á hæla Kissingers, stilltu tveir öryggisverðir, annar bandarísk- uir, hinn franskur, sér upp fyrir framan þær. Sýndist uppstillinig þeirra dálítið einkennandi fyrir störf öryggisvarða á þessuim fundi, það gat engum dulizt, að Bandaríkj amaðurinm væri ör- yggisvöróur, en að óreyndu hefði rnátit ætla, að sá franski væri einhver tilfallaindi náungi, sem ætti þarna svo sem ekikert erindi, stæði bara þama af til- viljum. Ekki var viðlit að fá að nálgast verðina eftir þetta og blaðamönnum ölluim skákað á sinn stað. Fréttir af viðræðum forsetanna Nixon Bandaríkjaforseti hafði virzt glaðuir í bragði, þegar hann kom út úr „íslenzlka Hvíta húsinu“ eins og einn öryggis- vörðurinn kalllaði bandaríska sendiráðið — uim klutokan 10.05 í gærmorgun. Strax og forset- inn hafði stigið upp í bifreiðina, var ekið af stað undir öflugri lögregluvernd. Nokfour hópur fóltos hafði safnazt saman við gatnamót Laufásvegar og Stoot- húsvegar, og veifaði forsetinn til fólksins, þegar hann ók hjá. Mjög öflugur öryggisvörður er um bandaríska sendi- ráðið, og fá engir að fara inn á Laufásveginn milli Skothús- vegar og Skálhol tsvegar nema íbúar í húsum á svæðinu, lög- regla og bandarískir starfs- menn. Blaðamenn, ljósmyndarar og notokur mannsöfnuður annar beið forsetans við Kjarvalsstaði, þegar bilalest forsetans renndi þar að. Forsetinn var hinn kát- asti að sjá, hann veifaði létti- lega, þegar hann gekk upp að húsinu þar sem hann beið stumdarkom eftir Frakklandsfor- seta. Þegar fumdir voru hafnir í Kjarvalsstöðum var fátt fyrir flesta blaðamennina að gera anmað en bíða einhverra frétta frá blaðafulltrúum beggja aðila og þeim blaðamönnum Hvíta hússins, sem fengu öðru hverju að vera stundarkom inni hjá for setumium. Samkvæmt sérstöku samikomulagi milli þeirra og for- setans skiptast þeir á um að vera í námunda við hann öðru hverju eða með honum og síðan verða þeir að fara að segja hinum hvað gerðist. Mátti heyra á tali blaðamannanna bandarísku, að þe'r væru undrandi á þvi, að slík skipan skyldi ekki á höfð milli frönsku blaðamannanna og forseta þeirra. Einn blaðamanna Hvíta húsa- ins, Frank Cormier, upplýsti til dæmis strx eftir að fundir hóf- ust, að Nixon forseti hefði snætt lak á miðvikudagskvöldið og saigði frá miðnæturgöngu hóuns. Sömuleiðis upplýsti Cormier, að forsetinn hefði rætt við dr. Kiss- inger i khikkustund í gærmorg- un, áður en fundirnir hófust á Kjarvalsstöðum. Klukkan 10.30 skýrðu tveir aðrir blaðamenn frá broti af viö- ræðum forsetanna. Pompidou hafði sagt Nixon, að hann ætlaði til Kína í haust og Nixon svar- aði: „Nú, það er hálfa leið um- hverifs hnöttinn." Síðan hefðu þeir farið að bera saman aldur sinn og Nixon þá reynt að segja á frönsku, hvað hann væri gam- all . . . soixante . . .“ en gefizt upp og sagt á ensku að hann yrði 61. árs í janúar n.k. Áður hafði Nixon haldið því fram, að þeir væru jafnaldrar, en Pompidou svaraði: „Nei, ég er dálítið eldri.“ Því andmælti Nixon en Pompidou sat fast við sinn keip, „jú, ég held ég sé ári eldri ... og hann reyndist hafa betur í þessari viðureign. Heyra mátti á bandarSsiku blaðamönnunium að ferðin hefði a. m. k. til þessa vorið ein hin þægilegasta sem Nixon, forseti, hefði lengi tekizt á hendur. Þeir sögðu að það væri mesta ný- næmi að sjá hann aka um í bif- reið svona afsilappaðan og jafn- vel fara út og taka í hendur fóltos. „Hann fer alltaf um í þyrlu, sögðu þeir, það liggur við að hann fari í þyriu yfir götuna frá Hvita húsinu í Washington og það er meiriháttar frétt ef hann sést þar akandi." Viðræðumar í gærmorgun stóðu næstum tolukkutíma leng- ur en ráð var fyrir gert, eða þar til kl. 12.53. Blaðamannafundur Ziegiers Laust eftir kl. 13 skýrði Ron- ald Zieigler, blaðafultrúi Nixons blaðamönnum stuttlega frá ganigi viðræðnanna um morgun- inn, á fundi í fréttadeild Hvíta hússins á Hótel LofUeiðum. Hann sagði, að forsetarnir hefðu rætt almennt um samskipti þjóða heims og ýmis alþjóðamál. Sömuleiðis hefðu þeir rætt urn framtíð Atlantshafsbandalags- ins og þær samræður verið eink- ar gagnlegar og uppbyggilegar. Hann sagði, að Pompidou, for- seti, hefði lagt áherzlu á nauð- talað uim Mið-Austurlönd og Indó-Kína og utanrikisráðherra- fund Atlantshafsbandalagsina, sem væntanlegur er í Kaup- mannahöín um miðjan júní. Loks sagði hann frá fundi fjár málaráðherranna George Shultz og Valery Giscard d’Estaings, sem að mestu leyti hefði fjallað um igjaldeyrismálin og skipan þeirra og einnig verið komið inn á viðskipti ríkjanna, sem vafa- laust yrðu rædd ýtarlegar á sið- ari fundunum. Upplýsti Zieglier og, að hann vænti þess, að hugmyndir Bandaríkjaforseta yrðu ræddar á síðdegisfundinum, sem æt'ti að hefjast klukkan þrjú, þegar foir- setarnir hefðu snætt hádegis- verð og hvilt sig lítiishá'Btar. Blaðamönnum þótibu upplýs- ingar Zieglers af morgunfund- inum heldur rýrar og reyndu að krefja hann frekari sagna, en árangurslaust. Þó upplýsti hann til viðbótar, að forsetinn og dr. Kissinger hefðu talað saman I noklkrar minútur í bifreið for- setans á leiðinni frá fundinum. Sörmuleiðis kvaðst Ziegler voti- ast til þess að geta gefið þeim nánari upplýsingar eftir síðdeg- isfundinum, en þá kom dr. Henry Kissimger fram á blaðamanna- fundi, þegar til kom svo sem, frá er skýrt annars staðar i blaði.nu í dag. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Ziegler sem snöggvast að Michel Johert, utanríkisráðher ra Frakka, (t.h.) kemur ásamt fylgdarmanni sínum til fundarinsá Kjarvalsstöðum. syn þess að hafa áfram banda- rískt herlið í Evrópu og varað við einhliða ákvörðun Banda- ríkjastjórnar um að draga úr herstyrk sínum þar. Bandaríkja- forseti hefði fullvissað Pompidou um, að hann hefði ekkert slíkt í hyggju. Ziegler sagði, að dr. Kissinger hefði verið viðstaddur nær allan fund forsetanna. Þá skýrði Ziegl er frá fundi utanríkisráðherr- anna, William Rogers og Michel Joberts, og sagði, að þeir hefðu blaðamannafundinum loknurn og spurði, hvort nokkuð hefði verið á fsland minnzt í við- ræðum forsetanna um morg- uninn. Hann kvað það ekki hafa verið nema hvað þeir hefðu verið ánægðir með viðtökurnar og aðbúnað allan. Aðspurður, hvort þeir hefðu átt erfitt mieð svefn vegna tíimamismunar og birtu, svaraði Ziegler, að það hefði verið minna vandamál en vænta hefði máfit, þeir hefðu hvíizt vel og væri mjög ánægðir. Nixon beðinn um varðskip fSLENZKIR ráðlierrar hafa skorað á Nixon forseta að taka fram fyrir hendurnar á ríkisst.jórn sinni, sem nýlega neitaði að fallast á ósk fs- lendinga um að fá keypt eða leigt bandarískt varðskip, að því er segir í frétt frá Arthur L. Gavslion, fréttamanni Associated Press fréttastof- unnar, sem staddur er i Reykjavík. Hefur Gavshon það eftir opinberum heimildum að Nixon hafi vi-rzt undrandi þegar Ólafur Jóharunessoin forsætisráðherra miinntist á neitun baindariskiu stjómar- imnar í viðræðum við forset- ann á miðvikudagskvöld. Sagði forsætisráðherra við það tækifæri að það hefði valdið íslendinguim vonbrigð- um að stórveidi á borð við Bandaríkin gæti ekki séð af einu varðskipi til fslamds.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.