Morgunblaðið - 01.06.1973, Side 4

Morgunblaðið - 01.06.1973, Side 4
/• Ht TT-> « r«T1T* -1 TT"V'TSTT 1 /~ITO Óvænt kvöldganga Nixons: Heilsaði ungmennum í Lækjargötu — og þótti bíiamergöin mikil í miöborginni MINNSTU tnunaði að nmferð- aröngþveiti yrði í miðborginni um miðnætti á miðvikudags- kvöld, og gangandi og akandi vegfarendur ráku upp stór augu, þegar þeir mættu skyndi- lega Nixon Bandaríkjaforseta þar & götu ásamt tveimur ís- Ienzkum Iögregluþjónum og fá- elnum öryggisvörðum. Forset- inn lék á als oddi, heilsaði gangandi fólld með handabandi og velfaði til fólksins í bílun- um, sem óku hjá. Kvöldganga forsetans stóð í um hálfa klukkustund en hefði vafalaust staðið lengur, ef öryggisverðir hans hefðu ekki tekið af skar- US og nánast leitt hann heim að bandaríska sendiráðinu aft- ur. Mun það vera mjög fátítt, að Nixnn Bandaríkjaforseti fari slíkar kvöldgöngur í erlendum borgum, þegar hann er á ferða lagi — hvað þá heima í Was- hington, þar sem hann „fer svo varla miUi húsa, að hann fljúgi ekki í þyrlu“, eins og einn bandarísku blaðamannanna sagði. Islenzku lögregluþjónartnir, sem fóru þessa kvöldigömgu með Bandaríkjaforseta, voru þeir Magnús Einarsson, varð- stjóri í Reykjavík og Tómas Jónson, varðstjóri frá Selfossi. Morgunblaðið náði tali af þeirn báðum og spurði nánar um ferð ir forsetans. „Ég var á vakt í bakhúsi sendiráðsins ásamt öryggisvörð um forsetans, þegar öryggis- vörðurinn við aðaldyr sendi- ráðsins hringdi til okkar og sagði að forsetinn væri kominn út á götu," sagði Tómas. „Við stukkum þegar út — ég og yfir maður gæzlusveitar Bandaríkja forseta oig þegar við komum út á götuna var Nixon þar fyrir ásamt Magnúsi Einarssyni." „Já, þetta varð einkar ánægjuleg kvöldganiga," sagði Magnús. „Við lögðum leið okk- ar niður með Frikirkjunni og gengum niður að Tjöm. Hann skoðaði svolítið fuglalífið og lét þau orð falla að sér þætti friðsælt." „Forsetinn talaði við okfcur um góða veðrið og spurði Ofck- ur um eitt og annað sem fyrir augu bar — húsin sem við gengum framihjá og ýmislegt um þjóðarhag," sagði Tómas. „Hann spurði dkkur hvort Reykjavik væri eikki stærsta borgin á íslandi og hversu margir íbúar hennar væru. Homum þótti andrúmsloftið tært og hreinit en gerði eíkki miikið úr kuldanum. Annars var forsetinn mjög persónulegur 1 viðræðum sínum við okkur, á heimilissýninguna í Laugardal vegna tímaskorts. Þú hefur 3 daga. m HEIMIUB73 spurði Okkur um hagi Okkar sjálfra og um fjölslkyldur olkk- ar. Ég gat frætit hann um það, að þetta væri í fjórða sinn, sem ég annaðist einhvers konar ör- yggisgæziu í sambandi við hainn — fyrst þegar hann kom hingað sem varaforseti 1956 og síðar tvisvar sinnum hjá Sam- einiuðu þjóðunium í New Yortk, þar sem ég storfaði um tíma." heir Tómas og Magnús sögðu að þegar þeir hefðu verið komnir á Lækjargötu og á móts við KoMihúsið gegnt Menntaskólanum hafi forset- inn og fyl'gdarlið hans mætt fyrstu gangandi vegfarendun- um. „Þetta var hópur af ung- mennum, og forsetinn stöðvaði þau, heilsaði þeim með handa- bandi og tók þau taii. Spurði hann um aldur þeirra og hvort þau væru í skólum og sitthvað fleira. Síðan var göngunni haldið áfram eftir Lækjargöt- unni, og þar var talsvert af fóílki á gangi. Bandaríkjafor- seti kastaði kveðju á alla og heilsaði fjölda fóHks með handabandi. Einnig veifaði hann til allra sem óku um í bilum. Fólk var hýrt á svl'p og tók forsetanum nær undantekningariaust vel — virtist vera bæði undrandi og ánægt að hitta hann þarna á kvöldgöngu. Einnig lá við að umferðaröngþveiti myndaðist á þeim stöðum, þar sem hann fór um, svo mifcið var öku- mönnum bifreiðanna í mun að sjá hann.“ Þegar kom að Bemhöftstorfu spurði forsetinn hvaða bygging ar væru þar, og Magnús greindi honum eilítið frá þeim styrr sem um húsin hefur staðið. For setinn réð algjörtega ferðdnni, og tók nú stefnuna upp Banka- stræti. „í upphafi kvöldgöng- unnar vorum við aðedns fjórir ásamt forsetanum," segiir Tóm- as, „ég, Magnús og tveir ör- yggisverðir, en eftir því sem við gengum tengur, smáfjölgaði I hópnum, fleiri öryggisverðir bættust vdð og eins lögregluþjón ar, þannig að þetta var orðinn talsverður hópur sem gekk með forsetanum áður en heim kom.“ Nixon og fylgdariið hans hélt áfram upp Laugaveginn, en þegar kom að Smiðjustig voru það öryggisverðimir sem tóku af skarið og beygðu þar inn, enda voru þeir teknir að óttast talsvert um heiil for- setans — hann hafði þá gengið alltengi og þeir hafa vafaiaust taiið að tekið væri að kvisast út að hann væri á ferð i mið- borginni. Bn áður en hann hélt af Lauigaveginum, hafði hann orð á því að sér þætti skritið hversu mikið af umgmennum væru á ferli, þegar svo áliðið vætri kvölds og hvers vegna það væri ekki farið heim að sofa. Fékk hann þau svör, að frídagur væri framundan og fóik vildi því vafaiaust njóta kvöldsins i ríkum mæli. Eins lýsti forsetinn yfir undrun sinni með það hversu ótrútega mikið væri af bílumn á götum borgarinnar. Af Smiðjustignum hélt for- setinn ásamt fylgdariiði sinu niður á Bergstaðastræti og það an áfram miður á Laufásveginn að handaríska sendiráðtnu. Lék Nixon á als oddi eftir göngu- ferðina, og þegar hann kvaddi ísienzku lögreglumennina tvo, afhenti hann þeim skyrtu- hnappa með innsigli Banda- rikjaforseta, og voru þeir i öskju þar sem á er tetrað nafn Nixons með hans eigim rithönd. Að vísu dálítið nefþykkur Af) Ioknum seinni fundinum með Pompidou hélt Nixon til bústaðar bandaríska sendi- herrans við Laufásveg og dvaldist þar i rúniar tvær kliikkiistundir, en hélt síðan um kl. 19.40 af stað til for- setaveizlunnar á Bessastöðum. Talsverður hópur fólks stóð við báða enda hins lokaða kafla Laufásvegarins, er Nix- on kom og fór, en Nixon brá ekki út af áætlun, svo að heit ið gæti, og menn sáu því sára lítið af homum; rétt í gegnum bílrúðu, er hann ók hjá, og siðan kannski eitt augnabik, er hann gekk inn í húsið, en fjömennt lið örygigisvarða og lögreglu skyggði á hann að mestu. Þó gat hann ekki stitlt sig um að ganga yfir Lauflás- veginn, er hann átti að fara inn í bíl sinn til að halda til Bessastaða, þvi að í glugga húss'ns á móti sendiráðinu, var öldruð kona, Guðrún Jónsdóttir, og hjá henni frú Steimumn Hermannsdóttir, sem býr í húsinu nr. 10 við Laufásveg, og tvö börn henn- ar. Nixon heilsaði öllum fjór- um og spurði Guðrúnu, hvort hún væri amima bamanna, en hún kvað nei við. Daginn áð- ur hafði Nixon veifað til hennar, er hann sá hana í igluigiganum, en nú lét hann það ekki nægja. Við hringdum í hana nokkru síðar og spurðum hana hvernig henni hefði lltizt á Nixon. — Alveg ljómandi vel. Hann var alveg eins og ég hafði átt von á, að vísu dálítið nefþykk ur, en annars bara eins og al- múgafólk, og mjög almenni- legur, eins og fólkið í banda- riska sendiráðinu, sem er al- veg yndislegt fólk. Guðrún, sem er 78 ára, hef uir búið í þessu húsi, Laufás- vegi 20, í 24 áir og þetrta var ekki i fyrsta skipti, sem eitt- hvert umstamg var á götunni fyrir utain. Áður hafa mót- mælaaðgerðir beinzt að sendi ráðinu og hefur þá gengið á ýmsu, Guðrún var ómyrk í máli um þetta: — Það var alveg viðbjóð- ur, hvemig sfcríiilinn lét hér í eina tíð, sfcvetti málninigu á húsið og reyndi að eyðiteggja. Ég var nú svo ákveðin í edtt skiptið, að ég fór upp á stol og lé<t vaða úr vatnsfötu yfir lýðinin út um gluggann. Undanfama daga hefur mik ið lið lögregluþjóna og örygg isvarða verið við hús hennar og í nágrenninu, en ekki kann Guðrún þvi illa: — Mér finmst það alveg ynd islegt, því að það mátti ekfci láta lýðinn koma hingað á ný til að eyðiteggja. Þeir sögðu það líka við mig lögregluþjón amir, þegar ég spurði þá, hvort nú yrðu ekki brotnar all ar rúður í húsunum hér: Ned, nú ætlum við að reyna að passa að slíkt gerist efcki. Og það hafa þeir svo sannariega gert. — o — Þessar tvær stundir, sem Nixon dvaldist í bústaðnum eftir seinni fundinn með Pompidou, bar ekki á neinum tilraunum til mótmælaaðgerða eða óláta. Lögreglan tók þó í sána vörzlu fjóra piita, sem höfðu ítrefcað ögrað henni með því að reyna með ýmsu móti að kornast inn á lokaða svæðið við sendiherrabústað- inn. Allir aðrir, sem komu að lokaða svæðinu, létu sér nœgja að doka við um stimd og horfa á áJengdar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.