Morgunblaðið - 13.06.1973, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1973
® 22-0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BOBGABTÚW 29
CAR RENTAL TDAIICTI
BÍLALEIGA TRAUSTI
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
SKODA EYÐIR MINNA.
Shod n
le/gan
AUÐBREKKU 44.- 46.
SÍMI 42600.
Hiisnæði óskast
Tvö fundarherb. um 40—60 fm,
eitt afgrei'ðsluberb., 30 fm, tvær
skrifst., 12 fm á leigu. VirrsamI.
sendrð nöfn og síman-r. til afgr.
Mbl. merkt HMI 7886 fyrir 18.
þ. m.
Hugheilar þakkir og kveðjur
sendi ég þeim einstaklinguni,
samtökum og stofnunum,
sem minntust mín vinsam-
Iega i orðum og gerðum á
sjötugsafmæli mínu.
Ég leggr ekki I að telja upp
nöfn, en get þó ekki orða
bundizt um hina einstöku
ræktarsemi Laugamanna.
iLeifur Ásgeirsson.
STAKSTEINAR
„Guð láti
gott á vita“
I siðustu viku var tilkynnt
í fréttatíma sjónvarpsins, að
framveg-is yrði þar getið um
frumsamdar bækur og rit-
verk, sem berast knnna sjón
varpinu og hafa iistrænt eða
fræðiiegt gildi. Óiafur Jóns-
son skrifar um þessa ný-
breytni í dagblaðið Vísi sl.
föstudag og segir m.a.:
„Þetta mál var áður reynt
að leysa í haust með sérstök-
um fréttaþætti um nýjar
bækur, sem manni utan sjón
varps, Eiríki Hreini Finnboga
syni borgarbókaverði, var fal
ið að annast. En nú hefur sem
sé verið ákveðið að flytja bóka
fréttirnar inn í fréttatímann
sjálfan — samkvæmt reglum,
sem fréttastofunni hafa verið
settar, að sögn sjónvarpsfrétt
arinnar í fyrrakvöld.
f þessum fréttum á að geta
um frumsamdar íslenzkar
bækur og ritverk sem berast
kunna sjónvarpinu og teijast
hafa listrænt og/eða fræði-
legt gildi til að bera, segir þar.
Ennfremur má géta um meiri
háttar erlend ritverk sem
þýdd séu á íslenzku. En ekki
leyfist að segja frá blöðum,
tímaritum eða bæklingtim —
hvers sem merkisrit af þeirri
gerð elga að gjalda i frétta-
flutningnum.
Ekki er fréttastofu sjón-
varpsins falið að annast sjáif
þennan fréttaflutning heidur
fenginn sérstakur ráðunautur
um val bóka til umgetningar:
Stefán .lúlíusson, bókafulltrúi
ríkisins og útvarpsráðsmaður.
Ber að senda bækurnar til
hans og hann sendir áfram til
sjónvarpsins þær bækur sem
hann mæiir með að getið sé
nrrr, sagði ennfremur í hinni
undtirfurðulegu sjónvarps-
frétt. Spurði nokkur: hvað á
að verða um hinar? Eða hvað
skyldi hafa gert það brýnt að
leysa þennan vanda einmitt nú
i vor, þegar fáar sem engar
bækur koma út. Og þó: Ai-
menna bókafélagið, Mál og
menning hafa gefið út bækur
í vor. Og skammt er síðan út
kom hjá Helgafelli islenzk
listasaga.
En að svo mæltu var birt
hin fyrsta frétt sem sjónvarp
inu hefur borizt með þessum
hætti. Þar var sagt frá nýút
kominni Ijóðabók, Eestinni til
Lundar, eftir Njörð P. Njarð-
vík, formann útvarpsráðs.
Þannig verða fréttir til. Guð
láti gott á vita!“
Ber er hver að
baki nema . . .
Dagblaðið Þjóðviljinn gerir
um þessar mundir itrekaðar
tilraunir til þess að verja
þenslustefnu ríkisstjórnarinn-
ar. í forystugrein blaðsins sl.
laugardag er þvi til að mynda
haldið fram, að kaupmáttur
launa hafi hækkað um 20—
30% á valdaferli núverandi
ríkisstjórnar. Blaðið segir
ennfremur, að hér sé ekki um
neinar heimatilbúnar tölur fri
Þjóðviljanum að ræða. —
Skýrsla forseta Aiþýðusam-
bands fslands á síðasta þingi
sambandsins færi sönnur í
þessar tölur.
Alþýðusambandsþingið var
haldið í vetrarbyrjun. En hvað
hefur Björn Jónsson um þetta
að segja i sumarbyrjun, tæp-
um mánuði áður en tilkyimt
er, að hann mtini senn taka
sæti Hannibals í ríkisstjórn-
inni? í viðtali við Morgunblað
ið 1. maí sl. sagðt Bjöm Jóns
son forseti Alþýðusambands
íslands, að ekki væru neinar
horfur á, að fyrirheit ríkis-
stjómarinnar um 20% kaup-
máttaraukningu á tveimur ár
um myndi standast.
Þjóðviljinn getur auðvitað
hvað sem þessari yfirlýsingu,
líðiir, haldið áfram að vitna i
gamiar ræður Björns Jónsson
ar máli sínu til stuðnings þvi
að: ber er hver að baki nema
sér bróður eigi!
Popp-skýrslan
WISHBONE ASH
FORTtÐ: Bassaleikarinn
Martin Turner og trommu-
leikarinn Steve Upton voru
liðsmenn útkjálkahljómsveit-
arinnar Empty Vessels, sem
kom til London 1969 og fékk
til liðs við sig tvo gítarieik-
ara, Andy Powell og Ted
Turner. Þeir beittu samleik
gítaranna tveggja á mjög
áheyrilegan hátt og unnu sér
almenningsfylgi í smáklúbb-
um — og í fyrra kusu aðdá-
endur þeirra stóru plötu
hijómsveitarinnar „Argus“
sem plötu ársins í kosningum
Melody Maker.
NÚTÍÐ: Fjórða hljómleika-
ferð þeirra um Bandaríkin
stendur yfir og að þessu
sinni erti þeir í fyrsta skipti
aðalnúmerið — ofar Canned-
Heat, se*n segir talsvert um
uppgang þeirra.
FRAMTÍÐ: Erfitt að ímynda
sér, að þeir geti náð veru-
lega miklu hærra, jafnvel
þótt þeir séu ein af þeim
skýru, hröðu, hæfileikamiklu
enskii hljómsveitum, sem
Bandaríkjamönnum eru gvo
mjög að skapi. Fiillur þroski
gæti gert stöðu þeirra skýr-
ari. Fjórða stóra platan
þearra og stórhljómleikaferð
um Bretland í sttmar mnnu
verða mæiikvarðinn á, hvort
umbúðalaus tónlist eán sér
nægir.
Bannið Alice!
Brezkur þingmaður hefur
snúið sér til brezka innanríkis
ráðherrans með ósk um, að
Alice Cooper verði bannað að
koma inn í Bretland. Þingmað
urinn hefur lýst sviðsfram-
komu Alice sem áróðri fyrir
fangabúðamenningu og sak-
að hann um tilraunir til að
kenna „börnum okkar að
leita sjálfsmyndar sinnar í
hatri en ekki ást“. Þingmaður-
inn sagði, að Alice væri ame-
riskur innflutningur, sem
hann væri sannfærður um að
foreldrar, kennarar og félags-
málafulltrúar gætu vel komizt
af án. — Þá hefur menningar
vitinn Mary Whitehouse æskt
þess sama af ráðherranum,
en hún hefur áður með slíku
kvabbi m. a. komið því til
leiðar, að hannað var að leika
lag Chuck Berrys „My Ding-
a-ling“ í BBC, þar sem það
væri of klámfengið.
Mútur og kynsvall
Ástralska söngtríóið New
World hefur verið dregið fyr
ir rétt í London, ákært fyrir
falsanir og svik. Eiga liðs-
menn þess og umboðsaðilar
að hafa falsað undirskriftir á
póstkortum, sem síðan voru
send til sjónvarpsstöðvar sem
atkvæði í vinsældakjöri iista-
manna. Hafði tríóið árið 1969
komið fram í þættin-
um „Opportunity Knocks",
sem er hæfileikakeppni og
ráða atkvæði áhorfenda úr-
slitum um verðlaunaveiting-
ar.
Handtökuskipanir á hend-
ur tríóinu voru iagðar fram
samtímis handtökuskipunum
vegna máis þess, sem komið
hefur upp í sambandi við mút
ur til plötusnúða BBC, en trí-
óið kemur þó ekkert við sögu
í því máli. Þess er rétt að geta
i þessu sambandi að tríóið
New World hefur komið
nokkrum plötum upp í topp
20 í Bretlanði og víðar, þ. á
m. Tom Tom Turnaround,
Rose Garden og Cara Cara, og
er þvi allþekkt.
En það er af hinu mútumál
inu að segja, að meðal þeirra,
sem dregnir hafa verið fyrir
rétt, er 35 ára gamall maður,
sem hefur starfað hjá BBC-
sjónvarpinu sem upptöku-
stjórnandi poppþáttar. Hann
var ákærður fyrir að hafa
tekið við 25 pundum og notið
þjónustu vændiskonu fyrir
að láta flytja lagið „Black
skinned blue eyed boys“ með
Equais i þættinum.
Krikket-lög
Knattspyrnulið brezk liafa
gert það gott með plötum sín
um á undanförntim árum og
hafa íþróttamenn í öðrum
greinum ekki komizt lijá þvi
að taka eftir þessu — og
gróðanum, sem fyllt hefur
vasa knattspyrnumannanna.
Því ætti það ekki að koma á
óvart, þótt fregnir berist nú
um, að héraðskrikketlið York
sliire hafi í hyggju að syngja
tvö lög inn á plötu nú á næst
unni. Hverju megum við bú-
ast við hér á landi, þegar ís-
lenzkir iþróttamenn fara að
syngja?
Aðalfundur
Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda verður
haldinn í Tjarnarbúð fimmtudaginn 14. þ. m. kl. 10
f. h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Sölusambands isl. fiskframleiðenda.
Fiskiskip til sölu
270 lesta loðnuskip (ný mæling), byggt 1967.
200 lesta skip, byggt 1964.
50 og 30 lesta nýlegir stálbátar.
22 lesta nýr eikarbátur með rafknúnum færa-
rúllum, bogspili og línuspili.
FISKISKIP, Austurstræti 14, 3. hæð.
Sími 22475. Heimasími 13742.
H afnarfjörður
Til sölu hæð og jarðhæð á fallegum stað í bænum.
Á hæðinni eru tvær samliggjandi stofur, hjónaher-
bergi, eldhús, búr og bað. Góðar svalir. Á jarðhæð
þrjú svefnherbergi, geymslur og þvottahús. — Vel
ræktuð og falleg lóð.
íbúðin getur verið laus mjög fljótlega.
SALA OG SAMNINGAR,
Tjarnarstíg 2,
símar 23636 og 14654.