Morgunblaðið - 13.06.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1973
Kappreiöar Fáks;
Góð keppni, vont veður
A MANUDAGINN, annan í
hvítasunnu, fóru fram hinar
árlegu kappreiðar Fáks á
skeiðvelli félajfsins á Víðivöll-
um. Þátttaka var mjög góð, en
um 90 hestar komu fram í 8
keppnisgreinum. Hestarnir
voru þeir beztu, sem fyrirfinn
ast „sunnan heiðar“; frá Kefla
vík, Hafnarfirði, Rangárvalla
sýslu auk reykvísku gæðing-
anna.
Veðurguðirnir voru ekki til
litssamir þennan dag frekar
en oft áður, þvi veður var
bæði kalt og hvasst. Áhorf-
endur voru þvi færri en búast
hefði mátt við, eða rétt um
eifct þúsund. Árangur og hraði
mótsins var þó góður, þrátt
fyrir veðrið, og má þakka
það þeirri bætfcu aðstöðu, sem
orðið hefur á velli félagsims
s. s. dómpallinum. Keppt var
um möng verðlaun og urðu
úrslit mótsins þessi:
A. flokkur. Alhliða gæðing-
ar: 1. Eyrar Rauður, 10 vetra,
einkunm 8,66, eigahdi Halldór
Eiríksson, knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson. 2. Hörður,
brúnn 7 vetra, einkunn 8,26,
eig. Ragnar Tómasson, knapi
Jóhann Þorsteinsson. 3.
Dreyri, rauður, 8 vetra, eink-
unn 8,10, eig. Matthildur Harð
ardóttir, knapi Sigurbjöm
Bárðarson. Keppt var um far-
andbikar, sem gefinn var af
þeim Þorgeiri Danáelssyni og
Daníe! Þórarinssyni.
B. flokkur, klárhestar með
tölti: 1. Sómi, leirljós, 8 vetra,
einkunn 8,46, eig. og knapi
Halldór Sigurðsson. 2. Asi,
brúnn 14 vetra, einkunn 8,36,
eig. og knapi Hinrik Ragnars-
son. 3.—4. Gustur, brúnn, 6
vetra, einkunn 8,26, eig. Hall-
dór Sigurðsson, knapi Þórdís
Jónsdóttir, sem jafnframt
hlaut knapaverðlaunin, sem
gefin voru af Guðmundi
Björnssyni, gullsmið. 3.—4.
Krummi, brúnn, 9 vetra, eink-
unn 8,26, eig. Stefanía Flosa-
dóttir, knapi Erling Sigurðs-
son.
250 metra skeið: 1. Óðirnn,
fcími 25,4 sek., eig. og knapi
Þorgeir Jónsson, Gufunesi.
Þorgeir er á áttræðisaldri og
sigraði Randver, sem var
næsta ósigrandi í fyrra, en
einungis sjónarmunur var á
milli þeirra. 2. Randver, 25,4
sek., eig. Jón'ína Hliðar, knapi
Reynir Aðalsteinsson. 3. Máni,
25,6 sek., eig. Sigurbjöm Ei-
riksson, knapi Sigurður Sæ-
mundsson.
250 metra unghrossahlaup:
1. Óðinn, 20,0 sek., eig. Hörð-
ur G. Albertsson, knapi Sigur
bjöm Bárðarson, en hann er
mjög mikiM hestamaður og
góður knapi. 2. Lómur, 20,2
sek., eig. Ebba Arnórsdóttir,
knapi Aðalsteinn Aðalsteins-
son. 3. Hómer, 20,6 sek., eig.
Kristjáh Guðmundsson, knapi
Kristján Kristjánsson.
350 metra stökk: 1. Hrímnir,
26,4 sek., eig. Matthildur Harð
ardóttir, knapi Sigurbjörn
Bárðarson. 2. Bjarni, 27,2 sek.,
eig. og knapi Simon Grétars-
son. 3. Svipur, 28,2 sek., eig
Guðfinnur Gíslason, knapi
Guðmundur Friðriksson.
800 metra stökk: 1. Ljúfur,
65,2 sek., eig. Sigurður og
Gásli, Vindási, knapi Guð-
mundur Pétursson. 2. Brúnn,
65,2 sek., eig. Sigurður Sigur
þórsson, Hvotoreppi, knapi
Einar Halldórsson. 3. Storm-
ur, 66,0 sek., eig. og knapi
Oddur Oddsson.
1 800 metra stökkinu var
keppt um Þytsbikarinn, sem
gefinn var af Sveini K. Sveins
syni.
Hápunktur keppninnar var
1500 metra stökkið, en þá
dróst sigurvegarinn, Gráni
aftur úr á miðri leið, er hann
vildi fara í aðra átt en ætlun-
in var. Var hann kominn 15—
20 metra á eftir hinum hest-
unum, þegar hann tók við sér
affcur og dró óðfluga á þá.
Mátti vart á milli sjá, hvor
yrði á undan í mark, Gráni
eða Lýsingur, en úrslit urðu
þessi: 1. Gráni, 2.17,3 mln. eig.
Gisli Þorsteinsson, Vindási,
knapi Guðmundur Pétursson.
2. Lýsingur, 2.17,5 min., eig.
Baldur Oddssön, knapi Oddur
Oddsson. 3. Kópur, 2.23,3 min.,
eig. og knapi Gunnar Ragnars
son.
1500 metra kerruakstur: 1.
Kommi, 3.16,0 mín., eig.
Kommafélagið í Borgarnesi,
knapi Einar Karelsson. 2.
Frændi, 3.47,5 mín., eig. og
knapi Gísli Guðmundsson. I
þessari grein var keppt um
bi'kar, sem gefinn vair af Matt
hiasi M. Gunnlaugssyni.
Rangæingar voru sigursæl
iir i keppninni, því þeir áttu
Grána i 1500 metra hlaupinu
og jafnframt 1. og 2. hest í
800 metra hlaupinu.
Dregið var í happdrætti fé-
lagsins og komu upp þessi
vinningsnúmer: 1. vinningur:
leirljós gæðingur á númer 844.
2. vinningur: ferð ti'l Mallorca
fyrir tvo á númer 3164.
Frá 1500 metra stökkinu. Lengst til vinstri á myndinni er
Gráni, sem var tvimælalaust bezti hesturinn í greininni.
Ahorfendur voru fáir og norpuðu í kuldanum. — Ljósm. Sv.
Þorm.
Kótilettuveizla 1
kvöldsól á Nesinu
Á frumstæðii útigrilli voru matreiddar kótilettur og annað
góðgæti, sem auðvitað bragðaðist langtum betur en hjá
mömmii! — Ljósm. — sh.
á „Albertsvöku“
HVÍTASUNNAN er orðin
mi-kil ferðahelgi og þá ekki
sízt í augum unglinganna,
sem þyrpast úr borg og bæ
til útiskemmtana eða úti-
veru á fjölmörgum stöðum.
Hinir, sem heíma sitja, hafa
oftast við lítið að vera og í
þeirra augum er þessi helgi
lítt skemimitileg. En börn og
unglingar á Seltjarnamesi,
sem ekki fóru í ferðalag um
helgina, þurftu ekki að
kvarta yfir aðgerðaleysi; þau
gátu tekið þátt í „Alberts-
vöku“ hinmi fyrstu, sem
haldin var á grasbala vestast
á nesinu.
Það var björgunarsveit
SVFÍ á Selftjamamesi, sem
Allbert nefnist, undir forystu
Þóris Gunnarssonar og fé-
lagar í slysavarnadeildixini
Bjama Pálssyni, undir for-
jnstu Snæbjörns Ásgeirssonar,
sem stóðu fyrir vökunmi. Á
grasbalanum reisti unga fólk-
ið tjöld sín og hafðiist þar
vi'ð um helgina, rétt eins og
í útilegu, og skemimti sér
síðan við leilk og glens frá
miorgni til kvölds.
f líitiHli kvog var komið
upp frumstæðum útigrillum:
Tvær sunduirskomar olíu-
tunnur voru fylltar viðarkol-
um og síðan lagt vímet ofan
á og þar var hægt að grilla
um hvítasunnuna
hvaða rétt sem var á auðveld
an hátt. Á laugardagskvöldið
var efnt til miíkiMiar útiveizlu
í kvöldsólinni; lambakótilett-
ur i hundraðataii voru grill-
aðar og bomar fram á
pappadiskum og mieð þeim
voru borðaðar kartöflur, sem
griliaðar höfðu verið í ál-
pappír, og með var drukkinn
appelsínusafi, sem hafði ver-
ið blandaður í stóran plast-
kút. Unga fólkinu leizt í
fyrstu eklkert of ve'l á þessa
oiíutuinnumatreiðsilu, en eftir
að Þórir og Snæbjörn höfðu
bragðað á fyrstu kótilettun-
um í reynsluskyni og smjatt-
að stórum, var unga fólkið
óhræ'tit við að smiakka. Lét
það mjög vel af og flestir
borðuðu helmingi fleiri kóti-
lefctur en þeir héldu að þeir
gætu. Alllmargir foreldrar
kcwniu- í hei'msókin og fengu
að njóta veizluréttanna með
börnum sínum.
Á sunnudag var unga fóilk-
inu boðið í siglingu á gúm-
báti um Selitjöm og þar kom
einnig björgunarbátur SVFÍ,
Gísli J. Johnsen, og sýndi
notkun blysa og rakettna við
björgun.
Á sunnudagskvöJdið var
aftur kvaifct upp í grillltuinin-
umuim, unga fólki'ð griEaði
sinn eigin mat; sumir komju
með kótilettuir, aðrir læris-
snei'ðar, pylsupakka og jafin-
vel nýveiddan humar í skel.
Á kvöí'diin vair m.a. dansað
eftir tón'list úr disikóteki og
ýmisliagt an.nað var sér til
gamans gert.
Þei'r Þórir Gunnarsson og
Snæbjörn Ásgeirsson sögðu í
viðtalí við Mbl., að í heild
hefði þessi „Albertsvaka"
heppnazt veíl, þrátt fyrir það,
að veður hefði oftast verið
fremiur kalt. Þátttaka hefði
verið allgóð, en e.t.v. vaeri
réttara að halda slfka vöku á
öðrum tíma en um bvíta-
sumnuna; þá fengist meirl
þátttaka. Þeir kváðust vilja
nota þetta tæfcifæri til að
þalkka Rotairy- og Kiwanis-
klúbbunum á Seltjamarnesi,
sem hefðu veitlt fjárstuðning
tii þeissarar vöku, sem ann-
ars hefði eldki verið fram-
kvæmanleg.
Böm og umglingar fóm í siglingu á Seltjörn í stórum gúmbáti,
sem mun vera einn sá fyrsti, sem keyptur var til landsins á
sinum tíma.