Morgunblaðið - 13.06.1973, Side 12
12
IVÍOjKCzUíNíxJ, v uvui>/a.uUiC 13>. JUJNX 19T3
Veðráttan ekki til
verulegra vandræða
enn sem komið er, segir Halldór
Pálsson, búnaðarmálastjóri
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum fyrir skömmu 1- gar Mánafoss kom þangað rneð moksturs-
tæki til þess að auka afköstin í öskuhreinsuninni, en nú er búið að hreinsa 25% af öskunni í
bænum. Mánafoss sig'lili án nokkiirra vandkvæða inn í höfnina, enda er hún fær öllum ís-
lenzkum skipum.
Borgarst j óri:
Nýtt frystihús B.Ú.R.
kostar yfir 300 millj. kr.
VORIÐ hefur að þessu sinni ver-
ið óvenju kalt, og er það mál
fróðra manna, að svo kalt vor
hafi ekki verið á Iandinu síðan
1946. Gras hefur lítið sprottið,
og enginn nýgræðingur er kom-
inn ; fjalilendi og úthaga. Kýr
eru víðast hvar ennþá inni, og
má þakka góðu heyjasumri í
fyrra, að ekki er farið að bera
á heyskorti hjá bændum. Verst
er ástandið á Norðausturlandi,
en þar hefur undanfarna daga
tíðum verið alhvit jörð. Þessar
upplýsingar fékk Morgunblaðið
hjá Halldóri Pálssyni, búnaðar-
málastjóra, í gær en hann
kvaðst jafnframt vera vongóður
um að brátt færi að horfa til
betri vegar, — sumarið gæti
jafnvel orðið ágætis heyjasumar
bara ef veðurguðirnir færu að
breyta um stefnu.
„Það getur verið stutt í góða
veðrið,“ sagði Halldór, „og þar
sein klaki er litill sem emginn í
jðrðu eftir þennan milda vetur,
er gróðurinn fljótur að taka við
sér. Ef hins vegar hefði verið
mi'kill klaki í jörðu er hætt við
að um uppskerubrest hefði orð-
ið að ræða.“
Halldór sagði, að þeir fáu hlý-
viðrisdagar, sem komið hefðu i
vor, hefðu gert mikið gagn, og
gert það að verkum að víðast
væri einhver gróður kominn á
láglendi. Hins vegar væri það
staðreynd, að gras sprytti ekki
við minni hita en 5 gráður. Þvi
væri alls ekkert farið að spretta
til fjalila, og haglendi Mtið á lág-
RÍKISST.IÓRNIR íslands og
Þýzkalands hafa komið sér sam-
an um að halda viðræður um
landhelgismálið í Reykjavík og
hefjast þær hinn 29. júní næst-
komandi. Viðræðurnar verða á
ráðherragriindvelli. Vestur-
inniEm
Happ-
drætti
Háskólans
ÞRIÐJUDAGINN 12. júní var
dregið í 6. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
4.300 vinningar að fjárhæð
27.820.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, fjórir
milljón króna vinningar, kom
á númer 13128. Voru þeir allir
seldir í umboði Frímanns Frí-
mannssonar í Hafnarhúsinu.
Einn eigandi þessa miða átti
röð af miðum og fær því báða
aukavinningana.
200.000 krónur komu á númer
3572. Tveir miðar af þessu núm-
eri voru seldir hjá Amdísi Þor-
valdsdóttur á Vesturgötu 10. Sá
þriðji í umboðinu á Neskaup-
stað, og sá fjórði í Verzluninni
NESKJÖR Nesvegi 33.
lendi. Beendur hefðu þvi víðast
hvar ærnar ennþá heima við í
túnurn, a. m. k. tvilemburnar.
Þar sem ám hefði verið hleypt
í hagann, sagði Haliidór, að jafn-
vel mætti búast við að einhver
kyrkingur kæmi i lömb, einikum
væri hætta á því norðanlands.
Hann kvaðst eklki hafa haft
fregnir af lambasköðum í bein-
um tengslum við veðráttuna, en
vafalítið hefði hún þó haft ein-
hvem lambadauða í för með
sér.
Þar sem búfénaður er nú á
gjöf allt að heilum mánuði leng-
ur en í meðalári hefur það í för
mieð sér aukinn kostnað fyrir
bændur hvað varðar kjamfóður-
gjöf. Halldór sagði hins vagar,
að þar sem hey hefðu verið
mikil frá síðasta sumri, þá
hefðu bændur fremur sparað
kjamfóðurgjöf si. vetur, þannig
að þessi aukning kostnaðar
kæmi til með að jafnast niður
ef tek ð væri tillit til þess.
Enigin spretta er heldur komin
í garðávexti og grænfóður, og
verður það því mun seinna til en
á venjulegu sumri.
„Þessi veðrátta hefur enn efcki
orðið til neinna verulegra vand-
ræða,“ sagði Hai.ldór. „Hún kem-
ur til með að valda bændastétt-
inni einhverjum aufcnum útgjöld-
um, — en við þvh er aBtaf að
búast í landbúnaðinum hér.
Undir venjulegum kringum-
stæðum ætti sláttur nú að vera
hafinn eða um það bil að hefj-
ast.“
þýzka sendinefndin verður und-
ir forsæti dr. Apel, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bonn-stjórnarinn-
ar.
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, sagði í viðtali við Mbl. í
gær að íslenzka sendinefndin
myndi sem áður bjóða Þjóðverj-
unum allfrjálsar veiðar utan 30
mílna frá grunniínupunktum.
Aðspurður um það, hvort hann
væri vongóður um samkomulag,
sagði E nar Ágústsson: „Ég vil
hvorki segja já né nei með það.
Mér finnst að þýzka ríkisstjóm-
in hafi sýnt áhuga á að koma
þessum samtölum á og þess
vegna hlýt ég að vona það að
þessar tillögur okkar hafi hlotið
e'nhvern hljómgrunn."
ENN er haldið áfram rannsókn
á fíkniefnamáli því, sem upp
kom fyrir þrem vikum, og að
sögn Ásgeirs Friðjónssonar, setts
fíkniefnadómara, sem stjómar
rannsókn málsins, virðist nú
Ijós að mestu leyti þáttur sex að-
almannanna i málinu, þeirra, sem
stóðu fyrir innflutningi og
dreifingu fíkniefnanna, hass og
heróíns í ágóðaskyni. Hassmagn-
ið, sem vitað er u’m í þessu máli,
er talsvert á fimmta kíló og mál-
ið því eitt hið stærsta, sem komið
hefur upp hér á landi.
Viðtakendur hassins skipta
tugum og eru margir þeirra í
hópi varnarliðsmanna á Keflavík
urflugvelli. Alls hafa 10 manns
setið í varðhaidi vegna þessa
í SVARI Birgis ísleifs Gunnars-
sonar, borgarstjóra við fyrir-
spurn frá Björgvin Guðmunds-
syni (A) um byggingu nýs hrað
frystihúss fyrir BÚR á Granda-
garði kom fram, að gerð hefur
verið kostnaðaráætlun í grófum
dráttum fyrir slíkt hús og hljóð-
ar hún upp á 315 milljónir kr.
Þá greindi borgarstjóri og frá
þvi að nú hefur verið lokið við
tlllögugerð um nýtingu vestur
hafnarinnar í Reykjavik.
Birgir Isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri: Nokkru áður en
Björgvin Guðmundsson bar fram
tillögu sina um byggingu nýs
hraðfrystihúss fyrlr BÚR, en
það var 2. nóvember 1972, höfðu
orðið miklar umræður um það
mál í útgerðarráði. Tillögu Björg
vins var siðan á sínum tíma vis-
að til útgerðarráðs og borgar-
ráðs. í útgerðarráði urðu nokkr-
ar frekari umræður um málið
en litlar i borgarráði enda þótti
það á allan hátt eðlilegra, að út-
gerðarráð mótaði stefnuna S
þessu máli. Og sendi útgerðar-
ráð m.a. verkfræðing til Noregs
til þess að kynna sér hús af
máls, en þeir hafa nú allir verið
látnir lausir. — Ásgeir sagði, að
enn væri óljós þáttur heróíns'ns
í þessu máli og því lítið hægt um
þá hlið að segja. Fíkniefnið hef-
ur allt komið til landsins frá
Kaupmannahöfn, mest með flug
farþegum eða með skipverjum á
millilandaskipum, en einnig að
hluta i pósti. Þeir sex menn, sem
stóðu fyrir innflutningnum og
dreifingunni unnu ekki saman,
en þræðir þeirra liggja saman
með ýmsum hætti, að sögn Ás-
geirs. Sumir þeirra hafa komið
áður við sögu í fíkniefnamálum,
og hafa síðan hlotið ákæru eða
dóm fyrir. Hafa þeir þvi haldið
áfram iðju sinni, eftir að upp
hafði komizt um þá áðu.r.
þeirri gerð, er hér kom til greina
að reisa. Þá hefur og verið gerð
teikning af þessu húsi og kostn-
aðaráætlun sem hljóðar upp á
315 mililjónir króna fyrir húsið
fullbyggt.
Það er einnig rétt að skýra
frá þvi hér og nú, að í hafnar-
stjórn hafa orðið miklar umræð
ur um nýtingu vestur hafnarinn-
ar sem fiskihafnar, og í dag voru
iagðar fram áætlanir þar að lút-
andi. Þessar áætlanir munu nú
á næstunni verða kynntar þeim
sem þarna eiga hagsmuna að
gæta.
Ennfremur er rétt að taka
fram, að Framkvæmdastofnun
ríkisins hefur um skeið haft upp
byggingu hraðfrystiiðnaðarins í
athugun í þeim tilgangi að
tryggja hagkvæma og rétta fjár-
festingu í þeim iðnaði og hefur
BÚR kynnt sin sjónarmið í þess-
um mál’im þar.
En ég hygg að í sambandi við
byggiingu nýs frystihúss fyrir
BÚR, sem í sjálfu sér er ekki
25 ÁRA ganiall niaður var hand-
tekinn' á Akureyri á sunnudags-
kvöld, grunaður um þjófnað á
bankabók með um 200 þús. kr.
innstæðu á föstudag. Við yfir-
heyrslu játaði hann verknaðinn
og hefur hann verið úrskurðað-
ur í gæzluvarðhald í allt að 14
daga á meðan rannsókn málsins
fer fram.
Hann hafði aðfaramótt föstu-
dags stolið 10 þús. kr. úr íbúð í
Reykjavík, og um morguminn
stal hann bánkabók úr annarri
íbúð. Tók hann út úr henni um
100 þús. kr. og li-fði siiðan hátt
næstu daga. Á laugardag tók
hann sér far tiil Ákureyrar með
Ifiigubii, hélt síðan áfram til Mý-
vatns í sunnudag og kom síðan
nema gott eitt um að segja, muni
fjármálin algerlega koma í veg
fyrir að framkvæmdir geti haf-
izt á næstunni. En Bæjarútgerð-
in hefur nú farið fram á lán að
upphæð 90 milljónir frá borgar-
sjóði til þess að standa straum
af kaupum á hinum nýju skut-
togurum og meðan Bæjarút-
gerðim er þannig stödd tel ég, að
óhuigsandi sé, að hún geti ráðizt
í framkvæmdir fyrir hundruð
miiljóna.
Björgvin Guðmundsson (A)
þakkaði borgarstjóra svör hans
en kvaðst harma, að ekki hefði
verið unnið meira að þessu máli
þvi vissulega bæri brýna nauð-
syn til þess að BÚR hefði á að
skipa fuilkomnu frystihúsi til
þess að vinna í afla þeirra tog-
ara sem hún ætti og mundi eign-
ast.
Hins vegar sagðist hann geta
tekið undir það með borgarstjóra
að fjárhagsmálin mundu verða
þessum framkvæmdum þyngst í
sfcauti.
aftur til Akureyrar um kvöidið.
Átti hann þá aðeins nokkur þús-
und krónur eftir. Hann var í
haldi á Akureyri fram til þriðju-
dagsmorguns, að flugveður gaf,
en þá var hann sendur til Reykja
víkur og situr nú í varðhaldi.
Hann hefur áður komið við sögu
hjá lögreglunni vegna afbrota.
Annarri bankabók var stolið
úr íbúð í Reykjavik aðfararnótt
sunnudags. Hafði hún um 247
þús. kr. innstæðu, en strax í
gærmorgun var reikningnum lok
að í bankanum og á ekki að vera
hægt að ná úr henni fé. Þjófur-
inn tók einnig um 30 þús. kr. á-
visun og um 6 þús. kr. i pening-
um. Málið er í rannsókn.
Landhelgismálið;
Viðræður við í»jóð-
verja 29. júní
Hassmagnið var tals
vert á fimmta kíló
— í fíkniefnamálinu, sem upp
kom fyrir þremur vikum
Stal bankabók og
eyddi 100 þús. kr.
Annarri bankabók með 247
þús. króna innstæðu stolið