Morgunblaðið - 19.07.1973, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1973
12
Erlendur Jónsson
skrifar um
BÓKMENNTIR
Simenon í sumarleyfi
GEORGES SIMENON:
TAUGASTRlÐIÐ. 164 bls.
SKUGGAR FORTÍBARINNAR.
144 bls.
AB. Júní 1973.
SIMENON er klassískur. Og
þessi útgáfa AB á tveim sagna
hans er út aí fyriir sig merkilegt
framtak, slíkum hæfandi. Ódýr-
ar bækur í vasaútgáfu — það
er ekki hægt hér, hsafa menn
sagt; til þess þarf markað eins
og með miMjónaþjóðum. Nú ger-
iir AB þessa tilraun, prentar
meiira að segja verðið á kápuna,
rétt eins og íslenzk króna sé ein-
hvers virði likt og i gamla daga.
Gjaíabækur eru þetta ekki sam-
kvæmt hugmyndum fólks um
slika hluti. Sem hilluskraut
henta þær ekki heldur. Og því
er ekki um að ræða að hafa af
þeim nema ein not: að lesa þær.
„Takið bókina með í sumar-
leyfið,“ heyrist stundum aug-
lýst. Og útkoma þessara ber ein-
miitt upp á þann tíma. Tekst þá
tilraunin? Með því verður fróð-
legt að fylgjast.
Báðar hafa sögur þessar kom
ið út á íslenzku áður, en munu
nú löngu horfnar af markaði.
Þetta eru reyfarar í þess orðs
eiginlegustu merking; enginn
teljandi sóðaskapur, engin út-
málun á morðfýsn eða manndráp
um sem sporti, heldur dul, laun-
ung, leit að hinu óþekkta, ástríða
til að upplýsa leyndarmái. Glæp
ur er að vísu kveikjan, en ekki
sem aðalmarkmið, heldur ein-
ungiis til að koma sögunnii af
stað. Maigret lögreglufulltrúi,
stórstjama Simenons, vinnur tíð
ast einn, og þannig verður þetta
að talsverðu leyti saga af hon-
um sem persónu. Og verður ekki
að telja hann næstmesta leyni-
Georges Simenon.
lögreglumann sakamálabók-
menntanna — næstan á eftir
Sherloek Holmes? Að kænsku
jafnast hann tæplega á við
SherJock, eir latari og mannlegri.
Sheriock er vísindalegur og bygg
ir á rökum, og það gerir Maiigret
að nokkru leyti líba, en einnig
í töluverðum mæli á heppni og
slembilukku. Arthur Conan
Doyle (höfundur Sherlock Holm-
es sagnanna) var meistari að
skapa dul. Það er Simenon líka,
þó hann jafnist ekki á við hann
að því ]fiytinu. Stundum hefur
Siimienon tilburði að hefja verk
sitt, gera úr þvd eitthvað annað
og meira en skemmtisögu, leggja
því til aukagildi. Þeir tilburðir
virðast mér ekki lyfta sögurn
hans nema síður sé, aðeins velgja
upp í þeim barnaiega tilfinndnga
semi, sem ekki á heima í saka-
málasögum. Þannig sýnast mér
tilfinningar og hugremningar
Maigrets í niðurlagi Skugga for
tíðarinnar allt of flatneskjulega
útlistaðir. Vel hefði mátt gefa
til kynna, hvernig honum var inn
anbrjósts, án þess að útmála
það þannig allt of berum orð-
um. AJlt um það er Maigret yfir
leitt viðfelldinn karl, góður ná-
ungi, og veit ekki meira af per-
sónu sinni en svo, að maður verð
ur ekki leiður á honum, þó hann
ganigi aftur i bðk eftir bók.
Blómaskeið reyfaranis sem
skapandi listar er nú Jiðið. Þetta
afsprengi hinnar rómantísku niítj
ándu aidar hefur orðið hart úti
í gráum veruleik nútfmans, svo
höfundar finna sig vart í þvi
lenigur að nota skuggahverfi stór
borganna sem sögusvið íyrlr svo
rósnauðar bókmennitir. Megnið
af sakamálabókmenntunum, jafn
vel meðan þær vonu og hétu,
var auðvitað rusl. Sumt ætllar
þó að verða sígilt ,þar á meðal
Simenom.
Þó sögur þessar séu vSst orðn
ar fjörutiu ára gamlar, er ekki
hægt að segja, að svið þeirra sé
orðið tiltakanlega rykfallið. Þær
gerast i borgum, sem voru þá
þeigar komnar á svipað stig og
borgir eru nú: með síma, bílum,
hraða og aragrúa fólks. Að því
leytinu vaari fátt því till fyrir-
stöðu, að hliðstæður þeiirra gætu
gerzt í raunveruleikanum — í
dag.
Önnur sagan, Skuggar forttð
arinnar, er sögð þýdd af Maju
Baldvims, en þýðanda hinnar,
Taugastriðsins, er ekbi getið. Is
lenzku textamir eru svona sæmi
legir, prófarkalestur sömuleiðis,
þar eð tæpast munu gerðar krötf
ur tU, að baakur af þessu tagi
séu fullkomlega hreinsaðar af
prentvillum. Brot og útlit hentar
hvort tveggja til sttns brúks, og
verðinu, 350 krónum „með sölu-
skatti“ er víst ekki hægt að
stilJa meira í hóf í þeirri griimmd
ardýrtið, sem hér gelsar ár og
sið. Hér er sem sagt boðið upp
á nokkuð góða og í það mimmsta
ódýra skemmtun.
fó/enna
daiKa
3 máltíðir úr einni ýsu
Tökum mjaðmirnar fyrir
Þessar tvær aefingar, sem sýndar eru á myndunum, þykja hreint
afbragð til að ná smávegis af mjöðmunum. En auðvitað þarf
að gera æfingarnar reglulega og í nokkuð langan tíma, áður ea
vænta má árangurs.
Lárviðarlauf
VERÐ á matvörum hefur verið
mikið til umræðu undanfarið.
Undrar það vtst engan, þar sem
verð á öllum matvörum fer sí-
hækkandi. Húsmæður í Svíþjóð
hafa látið mjög tiil sín heyra
varðandi þetta mái, og gæti það
verið okkur íslenzkum húsmæðr
um til umhugsunar, hvað þær
hafa tiJ málanna að leggja. Þær
hafa reynt að fá lækkaðar ýmsar
fæðuteg. en segja jafnframt rétti
lega, að við húsmæðumar verð-
um sjálfar að reyna að lækka út
gjöldin við matarkaupin. Þetta
er að sjálfsögðu mikið vanda-
mál, þar sem allt fer sífellt hækk
andi. Það kostar pen'nga að
kaupa matvöru í stórum skömmt
um, frystikistur eru dýrar, og
þeir, sem mest þurfa á því að
halda, hafa hvorki tíma né pen-
hiiga til skipuleggja og leggja út
fyrir stórum skömmtum af kjöti,
fiski og öðru því, sem í frystikist
um er geymt, og sem er hag-
kvæmast fyrir heimilin.
Ein sænsk húsmóðir segir frá
því, hvernig hún býr til þrjár
máltíðir úr einni ýsu, og þar sem
kílóið af ýsunni kostar, þegar
þetta er skrifað, kr. 58,00, er
þetta sennilega ódýrasta hráefn
ið, sem við eigum völ á hér á
landi.
Hér koma svo uppskriftirnar
frá sænsku húsmóðurinni:
SOÐINN FISKUR MEÐ
EGGJASÓSU
Ýsa, sem vegur um það bil 1 '4
kg er skorin í sneiðar, soðin í
saltvatni, pipar og lárviðarlaufi
og laiukur soðinn með. Soðið síað,
og 3—4 dl af soðinu bakað upp
með 1 % matsk. hveiti. Sósan
bragðbætt með tveimur harð-
soðnum, smáttskomum eggjum
sem bætt er út í. Stærstu stykk
in sett á fat, borin fram með
soðnum kartöflum og sósunni.
EGGJAKAKA MEÐ
FISKJAFNINGI
1 þennan rétt er notaður af-
gangurinn af ýsunni, roð og bein
tek'n burt. Sósa búin til eins og
i fyrstu uppskriftinni og fiskbit
arnir settir út í hana. Þeytið
saman 4 egg, 4 dl mjólk og 4
matsk. hveiti. Bræðið 4 matsk. af
smjörl. á pönnu, hellið eggjahrær
unni í og bakið, og hellið þá fisk
j.afninignum á, steirsel'ju stráð
yfir.
FISKISÚPA MEÐ
SOÐNUM EGGJUM
Notið i súpuna það sem eftir
er af fisksoðinu og sjóðið. Ef það
er of sterkt, bætið þá mjólk eða
rjóma saman við. Ofurlitið hveiti
hrist saman við vatn, hellið
út í súpuna svo að hún verði að
e'ns þykkari. Dálítill tómatkraft
ur eða tómasósa sett út í til þess
að súpan fái fallegri lit. Berið
súpuna fram í diskum með tveim
ur harðsoðnum eggjahelmingum
fyrir hvern, einnig er borið fram
brauð, smjör og ostur. Þetta er
einfaldur réltur en eftir því sem
hin sænska húsmóðir segir,
mjög vinsæll hjá ungum og öldn-
um.
LÁRVIÐARLAUFIÐ, sem við
notum til að bragðbæta með ýms
an mat, er sem kunnugt er lauf
af hinum sígræna lárviði, sem
upprunninn er í Austurlöndum
nær og Miðjarðarhafslöndum.
Það er lu'ka ræktað í suðurhluta
Bandaríkjanna.
í Gr kklandi hefur lárviðurinn
sem þar vex upp í allt að 50 feta
hæð, verið í miklum metum allt
síðan í fomöld, var nokkurs kon
ar helgisögn í grísku lífi og goða
fræði. Lárviðarsveigur var látinn
á höfuð sigurvegaranna í Olym-
piuleikunum til foma, það voru
sigurlaunin, sem þeir hlutu, og
Seifur var krýndur lárviðarsveig
ásamt öðrum goðum, og keisar
ar og hetjur hins foma Rómarrík
is nutu einnig þessa heiðurs.
Skáld og aðrir andans memn voru
eininig krýndir Iiárviðarsveig, og
þaðan kemur orðið „baccalaure-
ate“ eða „bachelor" sem háskóla
gráða.
Hof Appollós stóð í lárviðar-
lundi, og gyðja véfréttarinnar í
Delphi muWi lárviðarlauif i
munni sér áður en hún sagði spá
dóma sína. Þegar Daphne var
veitt eftirför af Apollo, var henni
bjargað með því að breyta henni
í lárviðartré. Grískar höggmynd
ir af Daphne, þar sem hún er
sýnd að hálfu leyti stúlka og að
hálfu leyti tré hafa orðið til
vegna þessarar sagnar.
Lárviiðarlauí eru venjulega
notuð þurrkuð og eitt lauf mulið
getur nægt til að bragðbæta mat
inn. Frakkar gætu áreiðamlega
ekki matbúið, ef þeir hefðu ekki
lárviðarlauf, en það er aðaluppl-
staðan í hinum eilífa „bouquet
gami“, sem notaður er í allflest
an mat þeirra, í öðrum Miðjarð
arhafslöndum er lárviðarlauf
næstum eins mikilvæigt í matar
gerðina.
Við ættum sjálfsagt erfitt með
að vera án lárviðarlaufs og
bragðsins af þvi í marineraðri
sild, simásteik og fiiskisúpu svo
eitthvað sé nefnt.
Er mælt með því að bæta
lárviðarlaufi í t.d. allan mat,
sem tómatar eru I, pottarétti með
nautakjöti, kjúklinigum o. ÍL,
rétti úr rækjum og humrd og i
ýmsar kraftsúpur.
Hraunteigur
Falleg 2ja herb. íbúð á 1. hæð, um 60 ferm., með
30 ferm. geymsluhúsnæði. Ibúðin er laus strax.
Verð 1800 þús. ÍJtborgun milljón.
EIGNAVAL,
símar 33510, 85650 og 85740.
•BILIIM0I1USTM1 HHFnnRFMOI*
NÝ BlLAÞJÓNUSTA OQ
AÐ EYRARTRÖÐ 6. JS'
GÓÐ VERKFÆRA- OG XJ|
ÝMIS VARAHLUTA- TJ
ÞJÓNUSTA.
ÞVOTTUR - BÓNUN 2'
LÁTIÐ okkur þvo
OG BÓNA BlLINN, FLJÓT
OG GÓÐ ÞJÓNUSTA.
PANTIÐ TMA I SÍMA.
53290. 53
BÍLRÞJÓnUSTRII*
Hafnarfirói, Eyrartröó ó