Morgunblaðið - 31.07.1973, Blaðsíða 14
14
MORGÖNí-LAÐIÐ — ÞRItíJUDAGUR 31. JÚLÍ1973
„Af stað burt
i fjarlægð“
EFTIR nokkra daga fer 1
hönd einhver mesta útiveru-
og umferðarhelgi ársins. Þús-
undir ferðamanna leggja þá
leið sina út á þjóðvegina og
halda til hinna fjölmörgu og
fögru staða islenzkrar nátt-
úru. Margir leita kyrrðarinn-
ar á öræfum, aðrir þreyta
kapp við sporðhvatan fisk í
ám og vötnum. Hinir verða
þó fleiri, sem halda til mann-
fagnaða á skipulögðum móta-
svæðum, þar sem fómfúst
sjál'fboðastarf hefur verið
innt af hendi í lengri tíma,
bæði á nóttu sem degi, til
þess að búa sem bezt í hag-
inn fyrir þá, er þangað leita.
Hvert svo sem leiðir kunna
að liggja er margs að gæta
og að möru að hyggja.
„Fæstir kunrna sig heiman
í góðu veðri að búa“ er stað-
reynd, sem allir ættu að festa
sér vel í minni. Ferðaáætlun
og undirbúningur er upphaf
ferðarii.nar, og hvernig slíkt
tekst, er forsenda þess, að
farsæd ferðalok hljótist.
Margir eru þeir, sem núna
leggja upp í sína fyrstu úti-
leguferð, og eiga því margt
óreynt og ólært. Þá er áreið-
anlega stór hópur ferðalanga,
sem hefur í hyggju að kanna
nýjar leiðir um áður óþekkt
landssvæði. Þeirra bezta
veganesti er að leita ráða
hinna reyndari um hagkvæm-
an klæðnað og öruggan út-
búnað. Stðareyndin er sú, að
„oft skipast veður skjótt í
lofti", og afleiðingarnar hafa,
því miður, orðið allt of oft
hinar örlagarikustu. Útbúnað-
ur má hvorki íþyngja eða
verða til trafala og óþæginda
í fjallaferðum og á öræfaleið-
um. Haldið hópinn og fylgizt
náið með ferðum hvers ann-
ars. Leggið þeim lið, er mið-
ur mega sín.
Ef ferðaáætlun er breytt,
önnur leið valin og dvölin
framiengd frá því, sem í upp-
hafi var ákveðið, þá komið
boðum um það til þeirra, er
heima bíða. Það er sjálfsögð
tillitssemi og nærgætni, sem
ávalit á að sýna vinum og
venzlamönnum. Slík viðbrögð
eru þakksamlega þegin og
koma í veg fyrir óþarfa
áhyggjur og eftirgrennslanir.
Þegar komið er á áfanga-
stað, er tjaldið heimili ferða-
mannsins og tjaldstæðið garð-
urinn hans. Gangið því um aí
stakri prýði minnug þess, að
„umgengni lýsir innri rnanni".
Að undanfömu hefur verið
haft á orði, bæði í ræðu og
rt:, hvað umgengni ferða-
manna hafi hraikað, og ekki
að ástæðulausu. Frá mörgum
hinna fegurstu staða eru
sagðar miður fagrar sögur
um sóðaskap í umgengni,
spjöll á gróðri jarðar og
skemmdarverk á ýmsum
hlutum. Hér þarf átak, sam-
stöðu og samhug alls fjöld-
ans um hirðusemi og vand-
virkni. Allur trassaskapur og
hirðuleysi er augljós slysa-
valdur, hvar svo sem er.
Sétstakrar aðgæzlu er þörf
í meðferð gastækja meðan á
útilegunni stendur. Því mið-
ur hafa allt of mörg óhöpp
hent, sem rekja má til þekk-
irgarleysis og vankunnáttu
um meðferð og notkun slíks
búnaðar. Tjaldbrunar hafa
oft á tíðum skilið eftir sig
mikil og djúp sár. Hafið hug-
fast, að öll gerviefni eru afar
eldfim. Farið þvi ávallt var-
lega með eldinn, hvort heldur
er inni í tjöldunum eða utan
þeirra. Sofnið aldrei út frá
logandi eldi. Sumri er tekið
Verið
varkár
varizt
slysin
að halla og siðsumarrökkrið
sezt snemma að. Hafið hand-
hægar liuktir meðferðis ti! að
lýsa ykkur inni í tjöldunum,
þegar gengið er til náða.
Slysavarnafélag ísdands ósik-
ar öllú ferðafólki góðrar
feröar, ánægjulegrar útivistar
og ágætrar heimkomu
Hannes Þ. Hafstein.
Innilegar þakkir til allra þeirra er heiðruðu mig á 70 ára af-
mælisdegi mínum, 22, júlí, með heimsóknum, gjöfum og heilla-
skeytum. — Guð blessi ykkur öll.
Jóhann Baldvinsson,
Inniiegt þakklæti vil ég færa
ölium þeim, sem glöddu mig
með gjöfurn, skeytum og
heimisóknum á áttræðisaf-
mæli mínu þann 20. júllí sl.
Guð blessi ykkur um alla
framtíð óskar
Skagaströnd.
Guðtnundur Guðmundsson,
Nesvegi 39.
Tryggió líf yðar
og framtíð
fjölskyldunnar
Allir þeir, sem annt er um fjárhagslegt öryggi fjölskyldu
sinnar, líftryggja sig hjá Sjóvá.
Nú er hægt aó velja milli fjögurra tegunda af áhættu-
líftryggingum á STÖRLÆKKUÐUM iögjöldum.
Athugiö aö allt að 19.200 króna iögjald er frádráttarbært
til skatts.
Hafiö samband við aðalskrifstofuna eða næsta umboðsmann
og leitiö nánari upplýsinga.
SJÓVÁ
INGOLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK
UMBOÐSMENN UM LANO ALLT
Glerslípun & Speglagerð
TILKYNIMA. OPNUM AFTUR EFTIR SUMARFRÍ MIÐVIKU-
DAGINN 1. AGÚST.
. STORR ,
GLERSLÍPUN & SPEGLAGERÐ HF„
Klapparstíg 16.
Hafnarfjörður
Til sölu 4—5 herb. íbúð um 115 ferm. á neðri hæð
í tvíbý-lishúsi við Öldutún. Sérhiti og sérinngangur.
Verð um kr. 3 millj. Útborgun um kr. 2 millj.
ARNI GUNNLAUGSSON, HRL.,
Austurgötu 10, Hafnarfirði.
Sími 50764.
LÖGFRÆÐIÞJONUSTA —
FASTEIGNASALA
TIL SÖLU:
Við Kársnesbraut
Lítið timburhús, hæð og ris, samtals 4 herb. í góðu standi.
Verð 2,5 m. Skiptanleg útb. 1500 þ.
Við Hraunteig
Efri hæð um 120 fm. 5 herb., nýlega standsett. Friðsæll
staður, gróinn trjágarður. Verð 4,3 m. Skiptanleg útb. 2,7 m.
Vrð Reynihvamm
Jarðhæð um 80 fm, 3 herb. í nýlegu húsi. Bílskúr. Verð 2,5
m. Skiptanleg útb. 1500 þ.
Við Öldutún
Jarðhæð, um 117 fm. 5 herb. íbúð í góðu standi. Verð 3 m.
Skiptanleg útb. 2 m.
Á Patreksfirði
Jarðhæð. um 140 fm. 4 herb. íbúð í steinhúsi. Verð 2 m.
Skiptanleg útb. 1 m.
Urval af sumarbústöðum
í Vatnsendalandi. Verð 650—900 þ. Útb. eftir samkomulagi.
Spildur undir sumarbúsfaði
við Krókatjörn, Silungatjörn og í landi Miðdals í Mosfells-
sveit. Verð 95 þ. til 600 þ.
Heildverzlun
í mörgum arðvænlegum viðskiptasamböndum. Verð 1,5 m.
Útb. eftir samkomulagi.
Stefón Hirst hdl.
Borgartúni 29, sími 22320