Morgunblaðið - 31.07.1973, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.07.1973, Blaðsíða 21
MORGUNRLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1973 21 Sólveig Ó. Árnadóttir frá Búðardal - Minning Fædd 9. ágúst 1889. Dáin 19. júlí 1973. „Þó að margt hafi breytzt sSðan byggð var reist geta börnín þó treyst sinni íslenzku móður. Hennar auðmjúka dyggð, hennar eilifa tryggð eru íslenzku byggðamna helgasti gróður“. D. St. Hún Sólveig var móðir og hús- freyja, sem tilheyrði liðinni tið löngu áður en hin taumlausa krafa fæddist á Islandi. Hún var hin auðmjúka, bæn- rækna, undirgefna möðir í kot- imu. Konan, sem sagt hefur ver- ið um : „Hún titrar iinnst í vitund minni fátæk föl og slltin sem frumþáttur míns vökudraums um nýjan, betri heim“. Þannig varð hún börnum sín- um og vinum, sem muna hana í eigin bæjardyrum. En þá ekki siður hin gestrisna húsfreyja, sem gefið gat síðasta bitann með brosi. „Með gestrisninnar einlægri saðning gaf hún svöngum og svalaði hinum þyrstu af nœsta Mtlum föngum.“ Og við barnaupp eldið kom enginn utanaðlærður lœrdómur til greina, heidur sú speki „gamaldagsguðrækni" bæn rækninnar sem: „Á versin sin þau minnti og vermdi kalda fætur, en vakti sjálf og prjónaði fram á miðjar næt- ur.“ Það er því varla að búast við, að sl’ikt hlutverk yrði „hátt skrif- að“ nú á dögum. En heilagt var það samt, og meira en svo að sagt verði í örfáum orðum. Heimilið eða húsið, sem hún átti lengst heimili í Búðardal, var reist á eyðimel utan þorps- ins, vatnsiaust og graslaust þeg- ar þau komu. En véltækt tún og vöiiur fríður, þegar þau fóru, nefnt Fagrihvammur og finnst mörgum, að enn sé þar sólskins- blettur. „Þar dró oft skúr fyrir sólu," segir hún sjálf, „er sorgin gisti. En ljómi Drottins lýsti vota hvarma, bætir hún við.“ „1 bænum okkar var alltaf starf að af lífi og sál, þótt vinnutím- iinn væri oft Langur. Stundum var lítið á borðurn, en blessun Guðs var ekki á þrotum.“ Sólveig Ólafía Arnadóttir var fædd 9. ágúst 1889 að Stað á Reykjanesi, Reykhólasveit. For- eldrar hennar voru Ámi Jónsson, ættaður norðan úr Sikagafirði og Siigríður Bjarnadóttir, ættuð ut- an undan Jökli, eins og sagt var fyrir vestan í gamla daga. Þau voru umkomulaus vinnu- hjú, segir prestsþj ónust ubökin. Og pabba sinn missti hún aðeins sjö ára að aldri. En ólst upp á hraikningi með móður sinni í Reykhólasveitinni, en lengst á Skerðingsstöðum hjá Guðrúnu Andrésdóttur, ljósmóður. Sólveig giftiist 11. april 1917, Bjarna Magnúsisyni ættuðum úr Laxáixialnum 5 DaLasýsiiu. Þau hófu búskap að Litlanesi í Múla- sveit, en fluttust þaðan suður í Daii og bjuggu Iengst í Búðar- dai eins og áður er sagt. Þau eignuðust 10 böm og eru átta af þeim á ISfi. En tvibura miisistu þau í frumbemsku. Einn son Árna að nafini Jónsson átti Sólveig með unnusta, sem hún miissti, áður en hún giftist. Árni dó í aldursblóma og það var henni þungur harmur. Börn hennar öll og barnaböm eru dugnaðarfólk, sem ásamt tengdabörnum starfar sem góð- ir þegnar, bæði á sjó og Landi á breiðu sviði samfélagsins. Um eátt em þau ávalit sam- mála, en það er ást og virðlng gagnvart móður sinni. Veit ég að þau öil vilja unwefja hana af ástúð, hvert eftir sinni skap- gerð. En hún minntist jafnan með mestu þakklæti þeirrar nær- gætni og umhyggju, sem þau. nutu gömlu hjónin hjá dóttur sinni Sigriði, sem nú er látin og Kriistjáni Einarssyni kirkjuverði og smið í Skipasundi 60 og fjöl- skyldu hans. Og satt að segja var naumast hægt að nostra betur við litla íbúð, heldur en þessii listfengi smiður gerði við húsnæðið í húsi sínu banda görnlu hjónunum. Hann var þar sem oftar líkt og tákn og fuLltrúi þeirrar hugð- ar og hjartahlýju, sem böm hennar og tengdaböm vildu um- vefja hana. En tii Kristjáns og Sigríðar fluttust þau Bjarnii og Sólveig frá Búðardial. Seinast dvaldi hún sjúk á Hrafnistu. Sólveiig gladdist mjög yfir góðum fréttum af bömum og ömmubörnum. Fátt var henni meiri fögnuður en kveðja og bréf frá dóttursyni í Suðuriöndum, sem er þar góður fuUbgúi sinnar þjóðar og þrem dóttursonum, sem eru sjómenn i Skagerak. Sólveig var alla tið bam bæn- arinnar. Engri konu hef ég kyninzt, sem fremur bað með eig- in orðum, en henni. Samt var hún uppspretta óteljandi versa og bænarljóða af annarra vör- um. Hún var biíð i viðmóti og þó hreinsikiilin og hnyttin í orði, af- hugaði margt af spaklegri reynslu og hlýrri góðvild, hag- mælt vei, einkum á andleg ljóð. Við siinn Drottin sagði hún meðal annars: „Ég opna hliðið míns hjarta þér, minn herra Jesú, ó, bú hjá mér, að fái helgað mig hönd þín sterk og heilagt unnið þar náðarverk". Þannig var Sólveig auðmjúk, trygg og góð. Ég man hana sem gestriisna húsfreyju i Búðardal sem stolta ömmu, sem harmandi, en trúaða móður, en bezt sem biðjandi konu í rökkri Lokaðra augna i kirkju sinni, safinaðar- heimilinu okkar, þar sem fjöl- skyldan í Skipasundi 60 hefur gengið um garða í mörg ár. Og síðustu orðin sem hún hvíslaði, þegar hönd hennar klappaði á hönd mér eims og föLnað laufblað frá Liðnu sumri undir haust í andblæ dauðans voru á þessa leið: „Á hæðum ég á eiirin svo ástríkan vin af elsku sem fyrir mig dó. Og þá ég af vettikimdum vanmegna styn, hann veitir mér huggun og fró“. Um leið og ég þakka af hrærð um huga samfylgd þina Sólveig mín og bið öllum þínum bless- unar Guðs, vil ég ljúka þessum fátæklegu kveðjuorðum með hendingum sama Ljóðsins, sem ég hóf þau með: „Hennar fóm, hennar ást hennar afl til að þjást sfca'l í annálum sjást, verða kyns'tofnsims hróður. Oft mælir hún féútt, talar friðandi og lágt. Hiinn fómandii máttur er hljóður”. Árelíns Níelsson. tfoóiuba Stærstir í heimi á sviði rafeinda- og kjarnorkutækni. Nú sending af vörum frá TOSHIBA, JAPAN. 12” sjónvarpstæki, 220 og 12 volt i rauðu og hvitu. Verð kr. 17.630,00. 14” sjónvarpstæki, 220 volt í rauðu eða hvítu. SB-300 stereo-magnari, 2x20. w. Sinns við 40 hm. SB-404 4 rása magnari, 4x15 w sinus. Tónsvið 10-55.000 Hzl +0 - 3 dB. ^oófuba TOSHIBA ...ln Touch with Tomorrow Stereo cassettu upptöku- og SENDUM I PÓSKRÖFU. afspilunartæki. Umboðsmenn: Einar Farestveit & co. hf., raftækjaverzlun, Bergstaðastræti 10 A, sími 16995. (Heildverzlun, simi 21565). MALLORKA, verð frá kr. 15.000.— 15 dagar beint þotuflug, hótel oq fullt fæði fyrir kr. 20.400.— Nokkur saeti laus í aukaferðum 7. og 21. ágúst. 5., og 26. september, 10. okt. Uoppantað í allar aðrar ferðir. Meðal annars pláss á hinu glæsilega baðstrandaibóteli El Cid. COSTA DEL SOL 15 dagar, verð frá kr. 17.900.— Beint þotuflug og dvöl í góðum íbúðum við ströndina í Torremolinos. Einnig hægt að velja um dvöl á glæsilegum hótelum meðal annars Aloha Playa á Costa del Sol á beztu bað- ströndinni í TorremoKnos. Flugferðir og dvöl með fullu fæði kr. 31.700.— Þriggja stjömu hótel í Torremotinos, flugferðir og fullt fæði í tvær vikur Nokkur sæti laus 7. og 21 ágúst og 4. september. Stærstu launþegasamtok landsins Alþýðusamband Islands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa valið ■ Sunnuferðir fyrir felagsfolk sitt og það telium við meðmæli sem segja sex! sunna BANKASTMETi 7 SiMAR 1640012070 ’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.