Morgunblaðið - 01.09.1973, Blaðsíða 10
io
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1973
í DAG er liðið eitt ár frá því,
að íslendingar færðu út fisk-
veiðilögsögu sina úr 12 sjómtl-
um í 50. Þetta ár, hefur verið
ár margvíslegra átaka á fiski
miðunum kringum landið.
Brezkir og v-þýzkir togarar
hafa fiskað innan nýju tak-
markanna allan þennan tíma
og nú eru brezku togararnir
vemdaðir af flota hennar há-
tignar, að auki hafa þeir sér
tifl fulltiinigis nokkra dráttar-
báta og aðstoðarskip. Hafa
þessi skip stöðugt áreitt ís-
lenzku varðskipin og með
þeim afleiðingum að einn ísl.
sjómaður hefur beðið bana. Þvi
miður hafa islenzkir fjölmiðlar
ekki átt of greíðan aðgang að
íslenzku varðskipunum, þrátt
fyrir að ráðamenn segi ann-
að, og hefur það nánast ver-
ið hendimg að þeir hafi fenig-
ið að fylgjast með aðgerðum
varðskipanna. En myndir hafa
samt verið teknar, og þá sér-
staklega frá flugvélum, og
stundum frá fiskiskipum. At-
burðirnir á miðunum haifa ver
ið margir þennan tíma, og
minnisstæðast þegar Ægir
reyndi að taka togarann Ever-
ton norður af Grímsey í byrj-
un júní. Þá vakti það einnig
mikla athygli þegar blaðafull-
trúi rikisstjórnarinnar sagði
eftir forsætisráðherra að Ár-
vakur væri því sem næst sokk
inn, er þeir Nixon og Pompi-
dou ræddust við, en svo nokkr
um mínútum síðar kiippti Ár-
vakur á víra brezks togara. En
hvernig, sem þessi mál standa
nú, þá er það trú allra Is-
lendinga, að við vinnum þetta
Maímánuður var viðburðaríkasti mánuðurinn. Brezku sjómennirnir gáfust upp 16. maí og sigldu áleiðis til Englands. Skip
stjórar togaranna sögðust aldrei fara inn fyrir 50 milurnar aftur, nema undir vernd flota hennar hátignar. Brezka ríkisstjórn
in lét undan kröfum togarasjómanna og laugardagsmorguninn 19. mai voru brezkar freigátur komnar að íslandsströnd-
um. Togararnir komu til baka og hófu veiðar á ný, undir vernd byssukjaftanna. Myndin var tekin um borð í hval- og varð-
skipinu Tý, er einn brezku togaranna var á leið út úr ísienzkri landhelgi.
sem fyrri stríð við
stríð,
Breta.
Núna á ársafmæli 50 sjó-
mílna fiskveiðilögsögunnar
fannst okkur ekki úr vegi, að
birta nokkrar myndir, sem
teknar hafa verið á þessu tíma
bili og af hinum ýmsu atvik-
um, sem átt hafa sér stað í
þorskastríðinu. Ekki ætti að
þurfa að rifja þessa atburði
upp frekar, svo mik'ð sem
þeir hafa ver'ð til umræðu.
-/ /
*** 1
:
— —
WsZKíii*
Strax við útfærslu landhelginn ar byrjaði taugastríð á miðun-
um og þá sérstaklega eftir að islenzku varðskipin byrjuðti að
klippa vörptirnar aftan úr togurunum. — Samningafundir á
millt isienzku, brezku og v-þýzku ríkisstjórnarinnar voru
haldnir af 'og til í vetur og allt fram á þennan dag, en án
árangurs. Á þessum myndttm sjáum við samninganefnd
Breta
Föstudaginn 2. júní á meðan þeir Nixon og Pompidou, ræddu saman 5 Reykjavík, unikringdu
brezkir dráttarbátar og togarar varðskipið Árvakur suður af Hvalbak. Dráttarbátnum Irish-
nian tókst nokkrum sinnum að sigla á Árvakur, og stórskemmdi skipið. Þessi atburður frétt-
ist fljótt til Reykjavíkur og blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar tilkynnti nokkur htmdruð erlend-
um blaðamönnum, sem hér voru þá, að Árvakur væri að sökkva. I!n Árvakursmenn voru
ekki á því, að láta skip sitt sökkva (sjá minni myndina), því nokkrum mínútum síðar klipptu
Árvakursmenn á víra eins togarans.
Stærðarmunur brezku freigátanna og íslenzku varðskipanna er mikill. Hér er ein brezka 1
gátan á siglingu og stjórnborðsmegin við hana er Þör.