Morgunblaðið - 05.10.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1973.
23
Þrír þjófnað-
ir upplýstir
UPPLVSTIR hafa verið tveir
þjófnaðir úr húsum á Seltjarnar-
nesi og þjófnaður frá lækni f
Reykjavík. Tveir menn, nálægt
þrftugu, og 17 ára stúlka voru að
verki á Selt jarnarnesinu og annar
mannanna framdi þjófnaðinn hjá
lækninum.
Þjófnaðirnir á Nesinu voru
framdir fyrir um hálfum mánuði
síðan. Var farið inn í tvær mann-
lausar íbúðir og í annarri stolið
um 6.500 kr. f peningum, en í
hinni stolið 4 áfengisflöskum
gjaldeyri að andvirði milli 40 og
50 þús. kr. og einhverri upphæð í
íslenzkum peningum. Annar
mannanna fór inn f húsin á báð-
um stöðum, en vill ekki kannast
við að hafa stolið öllu þessu. Hann
var þá undir áhrifum af lyfjum:
sem hann hafði fundið i einni af
þremur töskum, sem hann stal frá
lækninum, og hafði sprautað í sig.
Hann hefur verið úrskurðaður í
allt að 60 daga gæzluvarðhald
vegna síbrota. Hann hafði nýlega
verið látinn laus af Litla-Hrauni.
Þá hefur annar kunningi hans
verið úrskurðaður í allt að 30
daga gæzluvarðhald, en þrir
tveir eru grunaðir um fleiri inn-
brot.
Ein síldarsala
EINN bátur seldi sfld f
Hirtshals f Danmörku á miðviku-
dag, Skarðsvfk, 206 kassa, fyrir
236 þús. fsl. kr.
Barnavagni
stolið
BARNAVAGNI var stolið frá
húsinu Sólheimum 40 á þriðju-
dag. Hefur kona sú, sem vagninn
átti, komið að máli við biaðið og
óskað að benda fólki f hverfinu á,
að slfku geti það átt von á, og eins
að benda foreldrum á, að fylgjast
með þvf, hvort börn þeirra séu að
stússa með barnavagn.
Reglusöm kona
með stálpað barn, óskar eftir húsnæði hjá k.arlmanni
gegn húshjálp eftir samkomulagi.
Tilb. óskast send afgr. Mbl. sem fyrst merkt: „680"
Ný sending peysur.
Ur velúr:
jakkar, peysur, kjólar, mussur.
Mjó leðurbelti, margir litir.
Tízkuverzlunin Josefina Laugavegi 62
Verzlun hinnar vandlátu.
Sími 15920
Verzlunin opnar 31. ágúst.
Snyrtivörur h.f.
Erum fluttir í Sundaborg
Opnum laugardaginn 6. okt. ad Klettagördum 9
SÍMAR 11020 - 11021
AÐALFUNDUR
Félags Snæfellinga og Hnappdæla ! Reykjavík, verður
haldinn fimmtudaginn 11. október 1973 ! Tjarnarbúð
uppi kl. 8.30.
Venjuleg aðalfundarstörf og einnig velja nýjan formann
fyrir félagið.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Jll HÚSIÐ
3. HÆÐ:
Húsgagnadeild
Hér fást húsgögnin í skrifstofuna og borðstofuna, enn-
fremur símaborð í geysimiklu úrvali, skatthol, kommóður
og margt fleira.
OPIÐ TIL KL. 10
. 111JÓN LOFTSSON HF
Be* Hringbraut 121 10 600
ELECTROUIX
^^RF 85/15 B
Sænskt Stál — Sænsk Gæði.
Rúmar 285 lítra, þar af 40 lítra frystihólf.
Hæð 1 50 cm. Dýpt 60 cm. Breidd 60 cm.
Verð aðeins kr. 37.600
OPIÐ TIL KL. 10
yömnarkaðurifln hf.
JÁrmúla 1 A. Sími 86112, Reykjavík.