Morgunblaðið - 06.10.1973, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
Kverrir Haraldsson listmálari við eitt verka sinna í Kjarvals-
stöðum. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M.
Sverrir
1 báðum
sölum
Kjarvals-
staða
Sýnir 233 verk
Sverrir Haraidsson listmálari
opnar sýningu í báðum sölum
Kjarvalsstaða í dag og sýnir þar
233 myndir og önnur verk. Sýn-
ingin spannar 30 ára listmálun-
arferi! Sverris, allt frá þvf að
hann 12 ára gamall málaði nátt-
Urumyndir f Vestmannaeyjum
og til þess, er þessi yfirgrips-
mikla sýning er opnuð. Mikill
hluti myndanna hefur aldrei
verið 5 málverkasýningum
Sverris áður, en enginn fslenzk-
ur málari hefur haldið eins
viðamikla yf irlitssýningu.
Sýningin verður opnuð í dag
kl. 18 í Kjarvalsstöðum og verð-
ur opin til sunnudagsins 28.
okt. Sýningartfmi er kl. 14-23
laugardaga og sunnudaga og 16-
23 alla virka daga nema nánu-
daga, en þá er Iokað.
Sýningin verður opnuð í dag
kl. 18 í Kjarvalsstöðum og verð-
ur opin til sunnudagsins 28.
okt. Sýningartimi er kl. 14-23
laugardaga og sunnudaga og lfl'-
23 alla virka daga nema'mánu-
daga, en þá er lokað.
Sýningin heitir Myndir 1942-
73. Flest málverkin eru í einka-
eign, en þó eru 10 málverk til
sölu.
Undirbúningur að sýning-
unni hefur staðið f eitt ár, og
hafa Knútur Bruun og Garðar
Gíslason haft veg og vanda af
undirbúningi ásamt listamann-
inum sjálfum og vinum hans.
Stór og glæsileg sýningarskrá
hefur verið gefin út í tilefni
sýningarinnar, og í henni eru
m.a. 7 litmyndir og 25 svarthvít-
ar myndir af verkum Sverris.
Málverkin á sýningunni eru
fengin vfða að. Sýningin er
þannig úr garði gerð, að henni
er ætlað að sýna helztu
þróunarstig á ferli Sverris, þar
með helztu breytingar, sem orð-
ið hafa á málverkum hans á
þessu tímabili., og er sýningin
því hengd upp í nokkurri tíma-
röð. I öðrum salnum, þ.e.
Kjarvalssal, eru elztu myndirn-
ar, þær sýna feril Sverris, frá
því að hann hóf að mála í Vest-
mannaeyjum og hafa ekki verið
á sýningu áður, ennfremur eru
þar myndir og málverk, frá því
að hann var í Handíða- og
myndlistarskólanum, allmargar
myndir frá sýningunni 1952,
málverk frá Parísarárum
Sverris, þegar hann málaði
geometriskar myndir: málverk
frá því tímabili, þegar Sverrir
málaði með sprautu, og síðan
fyrstu málverk Sverris frá þe-
im tíma, þegar hann sleppir
sprautunni og fer að mála með
pensli á nýjan leik og skiptir
jafnframt um stfl og fer að ma-
la figurativar landslagsmyndir.
I stærri salnum að Kjarvals-
stöðum eru myndir Sverris frá
þvf á árunum 1966 í Casa Nova
og sömuleiðis frá sýningunni
1969 á sama stað. Ennfremur
eru þar málverk, sem Sverrir
hefur málað frá því að hann
hélt þessa síðustu sýningu sfna
og allt fram til dagsins í dag, en
þau málverk hafa hvergi verið
sýnd áður. Þannig er þessari
sýningu að nokkru leyti komið
fyrir i tímaröð, til þess að
áhorfendur geti frekar áttað sig
á þróunarferli listamannsins.
Olafur varaforseti
borgarstjórnar
Markús Örn kosinn í borgarráð
Ólafur B. Thors
Markús Örn Antonsson
A fundi borgarstjórnar á
fimmtudaginn var kosið f em-
bætti þau, er Kristján J. Gunnars-
son hefur gegnt, en hann lætur af
störfum I borgarstjórn og tekur
við starfi fræðslustjóra f Reykja-
vfk.
I stað Kristjáns var Markús
Öm Antonsson kosinn i borgar-
ráð, og varamaður var kosin
Sigurlaug Bjarnadóttir. Kristján
var einnig 2. varaforseti borgar-
stjórnar, og var Ólafur B. Thors
kosinn íþá stöðu.
í stað Kristjáns var Áslaug
Friðriksdóttir kjörin f fræðsluráð
og jafnframt Baldvin Tryggvason,
en hann kemur í stað Þóris
Einarsson, sem óskað hafði lausn-
ar.
Fyrirlestur
Danskur ljósmyndari, Johan H.
Piepgrass, sem hlotið hefur styrk
frá Statens Kunstfond til ljós-
myndunar hér á landi, heldur
fyrirlestur í Norræna húsinu n.k.
þriðjudag, um starfsemi dönsku
lýðháskólanna nú á dögum, og
þau áhrif er danskur ljósmyndari
verður fyrir, er hann kemur til
tslands í fyrsta skipti. Sýnir hann
einnig litskuggamyndir máli sínu
til skýringar.
Johan Piepgrass er kunnur ljós-
myndari í Danmörku og hefur
hann allvíða haldið ljósmynda-
sýningar, og einnig hafa komið út
bækur með myndum eftir hann
og má t.d. nefna eina þeirra
Kontrast-Kontrast, sem hefur að
geyma myndir frá íslandi.
Gunnar og Lúðvik
á stúdentafundi
Flokksformenn
á„beinu línunni,,
HLJÓÐVARPIÐ mun í þingbyrj-
un útvarpa fimm þáttum af
„Beinni Ifnu“, þar sem formenn
stjórnmálaflokkanna munu svara
spurningum hlustenda um stefnu
og störf flokkanna á Alþingi f
vetur. Fyrsti þátturinn verður
miðvikudaginn 10. okt., er þing
kemur saman, næstu tveir þættir
11. og 12. okt. og loks tveir þættir
f næstu viku á ef tir, 17. og 18. okt.
1 viðtali við Mbl. í gær sagði
Einar Karl Haraldsson, annar um-
sjónarmaður þáttanna, að þetta
væri gert í tilraunaskyni. „Það
hefur oft verið talað um það, að
þunglamalegt form væri á út-
varpsumræðum úr þinginu, þær
væru kappræðukenndar og fólk
fengi lítið út úr þeim. Þessi til-
raun er engin opinber breyting á
meðferð útvarpsins á þingumræð-
um, heldur er þetta hugmynd frá
okkur sjálfum, sem hugsanlega
gæti orðið til að hressa upp á
þingumræðurnar."
Dýrum pelsi stolið
Ung stúlka varð fyrir því að
glata fatageymsluspjaldi sxnu í
Veitingahúsinu við Lækjarteig á
laugardagskvöldið. Sá, sem fann
spjaldið — eða stal — fékk af-
hentan nýjan kanínupels
stúlkunnar og hvarf með hann á
braut. Pelsinn er hvítur með
svörtum flekkjum. Þeir, sem
kynnu að vita um hvarf hans eða
hvar hann er nú að finna, eru
beðnir að láta lögregluna vita.
Einar sagði, að talið hefði verið
heppilegast að hafa þættina með
sem skemmstu millibili; of langt
væri að láta 1/2 mánuð lfða milli
þess, að formenn flokkanna svör-
uðu spurningum hlustenda.
Akveðið hefur verið, að Gylfi Þ.
Gíslason, formaður Alþýðuflokks-
ins, sitji fyrir svörum í fyrsta
þættinum, á miðvikudagskvöld,
en kvöldið eftir kemur fram
Ragnar Arnalds, formaður Al-
þýðubandalagsins, og á föstudags-
kvöld Hannibal Valdimarsson,
formaður SFV. Síðan kemur að
Sjálfstæðisflokknum og Fram-
sóknarflokknum í næstu viku á
eftir.
50 króna meðal-
verð í Þýzkalandi
Verð á ísfiski er mjög gott í
Þýzkalandi þessa dagana, og fara
íslenzku togararnir ekki varhluta
af bví. Oftast nær hefur meðal-
verðið verið frá 45—55 kr., sem
teljast verður einstaklega gott.
Skuttogarinn Karlsefni seldi í
Bremerhaven í gær 133,4 lestir
fyrir 194.700 mörk. Meðalverðið
var 50.46 kr. Úranus seldi í
Cuxhaven í fyrradag 99.7 lestir
fyrir 105 þús. mörk.
í dag á skuttogarinn Bjarni
Benediktsson svo að selja í Ost-
ende í Belgíjj.
„Umfram áætlun”
— Fjöldi þeirra nemenda, sem
stunda nám við barnaskólann í
Vestmannaeyjum, er mun meiri
en gert var ráð fyrir í síðasta
mánuði, sagði Magnús Magnússon
bæjarstjóri í viðtali við Morgun-
blaðið í gær.
Hann sagði, að upphaflega
hefði ekki verið gert ráð fyrir, að
skipta þyrfti bekkjadeildunum,
en nú væri svo komið að skipta
þyrfti öllum bekkjardeildum við
barnaskólann nema einni, og
sýndi þetta dæmi, hve ör fólks
f jölgunin væri f Eyjum.
100 bækur á uppboði
Knútur Bruun heldur 16. list-
munauppboð sitt 8. október n.k.
og verður það haldið f Atthagasal
Hótel Sögu, og hefst klukkan 17.
Þetta er fyrsta uppboðið á þessu
hausti, en á uppboðinu verða
seldar 100 bækur.
Áætlað er að halda þrjú bóka-
uppboð fyrir áramót og önnur
þrjú eftir áramót, þannig að þá
fækkar uppboðunum úr 8 í 6 á
vetri.
Á uppboðinu á mánudaginn
verður margt merkra bóka og rit-
verka selt, en helzlu flokkarnir
eru: Staða- og héraðsrit, leikrit,
ljóð, trúmálarit, ferðabækur og
landfræðirit, þjóðsögur og þjóð-
leg fræði, tímarit og fornritaút-
gáfur og fræðirit.
Enn meðvitundarlaus
ÞRIGGJA ðra drengurinn, sem
varð fyrir bfl f Breiðholtinu á
mánudagskvöldið, er enn meðvit-
undarlaus, en þó heldur léttara
en í upphafi, að sögn lækna.
Stúdentafélag Háskóla tslands
boðar til almenns borgarafundar
um lanhelgismálið. Fundurinn
fer fram f Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 7. október kl. 2.
Frummælendur á fundinum
verða Lúðvfk Jósepsson, sjávarúf-
vegsráðherra og dr. Gunnar
Thoroddsen formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Fundarstjóri verður Jón
Sigurðsson.
Gunnar Thoroddsen
Þetta mun vera fyrsti borgara-
fundurinn um landhelgismálið,
sem haldinn er sfðan landhelgin
var færð út f 50 mflur og þar sem
frummælendur eru fufltrúar mis-
munandi sjónarmiða um, hvernig
beri að haga meðferð þess máls
nú og f framtíðinni.
Að loknurn ræðum framsögu-
manna verða almennar umræður.
Lúðvfk Jósepsson
Sjálfboðalíða vantar í nýja Sjálfstæðishúsið
Sjálfboðaliða vantar til starfa við byggingu nýja Sjálfstæðishússins
í dag kl. 13.—18.00. Mikill fjöldi sjálfboðaliða kom til starfa sl.
laugardag og gekk vinnan vel. Nú bfða stærri verkefni og er því
nauðsynlegt, að sjálfstæðismenn, bæði karlar og konur, leggi hönd
á plóginn f dag. Mætið kl. 13.00.