Morgunblaðið - 06.10.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.10.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973. 3 Góðar horfur með verðlag minkaskinna Rætt við tvo starfsmenn Hudson Bay-fyrirtækisins um stöðu íslenzkrar minkaræktar TVEIR starfsmenn Hudson Bay- fyrirtækisins í London, sem er stór aðili í sölu minkaskinna, voru fyrir skömmu á Islandi til að kynna sér ástand og horfur ís- lenzkrar minkaræktar og til að halda fræðslunámskeið með starfsmönnum minkabúa. Dvöld- ust þeir hér á landi í rúma viku og skoðuðu flest minkabú á landinu. Þá efndu þeir til námskeiðs í pelsun og meðferð skinna og leið- beindu um framkvæmd heilsu- farsprófana á dýrunum. Annar þeirra, Barrie Phipps, skinna- flokkunarmaður, hafði I fyrra leiðbeint minkaræktendum um skinnaflokkun og Jack Higgins, tækniráðunautur, hafði einnig heimsótt búin þá og kynnt sér rekstur þeirra. Jack sagði i viðtali við Mbl. á dögunum, að minkaræktinni hér hefði farið talsvert fram á þessu eina ári, einkum vegna flokkunar dýranna i nóvember i fyrra og vegna aukinnar þekkingar starfs- manna búanna, en þeir hafa sl. ár notið sérfræðilegrar upplýsinga- þjónustu fyrirtækisins. „Vissulega stóð Island öðrum löndum að baki við upphaf minkaræktarinnar og enn vantar nokkuð á, að íslenzk minkarækt standi jafnfætis erlendri," sagði Jack. „Nokkuð skortir á nægilega þekkingu minkaræktendanna hér á starfinu, en þeir læra mjög hratt, sem sannast af útkomu síð- asta árs, en þá tókst gotið allvel. Það styður kenninguna um, að íslendingar séu að nálgast aðra á þessu sviði." Er þeir Barrie og Jack voru spurðir um helztu veikleika is- lenzkrar minkaræktar og helzta styrkleika, töldu þeir þessi atriði upp: 0 Ætistilbúningur er ófullkom- inn. Þarf nauðsynlega að setja meira fé í uppbyggingu „eldhúsa" við búin. Barrie Phipps, Jack Higgins og Skúli Skúlason, umboðsmaður Hudson Bay-fyrirtækisins á tslandi. (Ljósm. Mbl. Brynjólfur.) • Minkaræktendur hafa til- hneigingu til að troða of mörgum minkum í rýmið, sem fyrir hendi er, og þyrfti því að auka húsnæði búanna. 0 Minkaræktendurnir eru hins vegar mjög áhugasamir og sérlega fúsir að læra um greinina. 0 Hér á landi er að fá nægt úrval af góðri fæðu handa mink- unum. Þeir Barrie og Jack bentu á, að íslenzkir framleiðendur næðu nú þegar meðalskinnafjölda úr hverju goti, en möguleikar væru á að auka enn framleiðsluna. Með meira forvali á dýrum í búunum ættu skinnagæðin að fara batn- andi og ættu tslendingar því að einbeita sér að þessum þætti og að auka framleiðsluna. Höfðu þeir í heimsókn sinni kynnt starfsmönnum búanna þær að- ferðir, sem hægt er að nota til að flokka úr veik dýr á haustin. í lok viðtalsins sagði Jack Higgins: „Ég vil endurtaka hvatningu mína til minkaræktendanna. Þeir eru á réttri leið, en þó vantar meiri fjárfestingu í búunum, einkum hvað snertir eldhúsin. Markaður fyrir minkaskinn er nú á allgóðu stigi og tilfinnanlegur skortur á skinnum. Það verða því litlar birgðir til fyrir næsta sölu- tfmabil og því góðar horfur með verðlag." Langur biðlisti í bækl- unarlækningadeildinni Tuttugu viðlagasjóðshús hafa verið f byggíngu á Höfn f Hornafirði f sumar. Hinn 1. október sfðastliðinn voru afhent 19 hús og hafa þegar flutzt inn f þau 14 til 15 f jölskyldur. — Ljósm.: E.J. Það er ennþá sum- ar í Neskaupstað „Jú það er rétt, að á einu og hálfu ári, sem deildin hefurstarf- að, hefur biðlisti vaxið svo mikið þrátt fyrir háa tfðni aðgerða, að segja má að deildin sé orðin of Iítil,“ sagði dr. Stefán Haralds- son, yfirlæknir bæklunar- lækningadeildar Landspítalans, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann til að fá upplýsingar um málefni deild- arinnar. Bæklunarlækninga- deildin hefur nú yfir 33 sjúkra- rúmum að ráða f tveimur deild- um, og sagði Stefán, að gerðar væru um 20 aðgerðir á viku, sem er hámark miðað við aðstæður eins og þær eru nú, og að meðai- legutfmi væri einnig stuttur, eða rúmir 24 dagar á hvern sjúkling. Þrátt fyrir þetta þarf fólk, sem ekki er með mjög bráða bækl- unarsjúkdóma eða alvarlega slas- að nú, að bíða f meir en tvö ár til að komast að. Á bæklanalækningadeildinni er gert að sköddunum og sjúkdóm- um á útlimum og í baki (þ.e. stoð- og hreyfikerfi lfkamans). Sagði Stefán Haraídsson, að ástæðan fyrir þessari auknu aðsókn í slík- ar deildir væri einkum tvíþætt. Síðustu tvo áratugi hefði orðið mikil þensla á bæklunarlækn- ingum, — annars vegar í verk- sviði þeirra og hins vegar f þeim iækningaaðferðum, sem unnt er að bjóða upp á. Þenslan á verk- sviðinu er rakin til þeirrar stað- reyndar að meðalaldur þjóð- félagsbegnanna í dag fer stöðugt hækkandi, hlutfall gamals fólks verður stærra. Þetta leiðir til hærri tíðni slitsjúkdóma ýmiss konar, elli beinabrota, blóðrásar- truflana o.fl. Einnig skiptir aukin iðnvæðing, þéttbýli og umferð miklu máli í þessum efnum, því að afleiðing þessa er m.a. aukin tíðni atvinnusjúkdóma og slysa. Þenslan í lækningaaðferðunum felst t.d. í þeim möguleikum, sem skapast hafa við tilkomu full- komnari gerviliða, nýrra með- ferða á beinbrotum o.l. „Og þessi þróun er alls ekki stöðvuð,“ sagði Stefán, „heldur. erum við í henni miðri. Þörfin fyrir aukið sjúkrarými fyrir svona sjúklinga fer hraðvaxandi." Ekki taldi hann ástæðu til að kvarta sérstaklega yfir þeim erfiðleikum sem stöfuðu af of litlu sjúkrarými, þar eð i flestum deildum væri um biðlista að ræða, þó ef til vill væri hann tiltölulega langur í bæklunardeildinni. Og Framhald á bls. 18. Einstök veðurblfða hefur verið f Neskaupstað að undanförnu, og hefur hitinn mest komizt nokkuð yfir tuttugu stig. Svona hefur veðrið verið dag eftir dag, og f dag er hitinn orðinn um 18 stig, sagði Ásgir Lárusson, fréttaritari Morgunbfaðsins, þegar við ræddum við hann f gær. Hann sagði, að lognið væri það mikið, að ekki blakti hár á höfði, og gróðurinn væri eins og að sumarlagi. Reynitré eru t.d. al- græn enn og fífiar eru út- sprungnir f görðum. Afli handfærabáta hefur verið góður siðustu daga, en þeir fara nú margir að hætta róðrum. Skuttogarinn Bjartur er að fara f söluferð til Þýzkalands og verður um leið tekinn í þurrkvf og botn- hreinsaður. Mannekla í Neskaupstað er nú gífurleg, og eiga fiskvinnslu- siöðvarnar i vandræðum með að fá nog fólk til starfa. Sömu sögu er að segja úr byggingar- iðnaðinum, þar vantar fjölda manna. Það eina sem virðist vanta til Neskaupstaðar um þessar mundir, eru fleiri hendur. Þrjú vöruflutningaskip voru í Neskaupstað f gær, ýmist að losa eða Iesta. Heyrnar- mælinga- tæki koma á veitinga- staði Óhæfilegur hávaði getur skert heyrn þeirra, sem við hann búa, svo sem sést á skýrslum um heyrnarmæling- ar heyrnardeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar. Hjá borgarlæknisembættinu er nú verið að vinna að þvi, að koma f veg fyrir slíka heyrnarskaða af völdum hljómsveita á skemmtistöðum, með þvf að se- tja reglur um hámarkshávaða, sem leyfður er. I þvf sambandi eru áform um að útvega fyrir veitingamenn handhæg og hagkvæm heyrnarmælinga- tæki, svo þeir geti fylgzt með hávaða á skemmtistöðunum. Væri þá unnt að beita sektum, ef farið er yfir hávaðamarkið. Nú eru slík tæki fáanleg, ódýr og örugg, að þvi er Skúli John- sen, aðstoðarborgarlæknir, tjáði Mbl. sem Ieitaði frétta hjá honum af þessu. — Ef við ætlum að setja regl- ur um hámarkshávaða, þá verðum við að geta haft eftirlit með að þeim sé hlítt, sagði hann. Og til þess þarf að vera hægt að beita viðurlögum ef út af er brugðið. En til þess verða veitingamenn aftur að eiga kost á að geta fylgzt með þvf sjálfir, að hávaði sé innan ákveðinna marka og haft stjórn á hljómsveitunum að þessu leyti, sagði Skúli. — Nú höfum við fundið handhæg, bandarísk tæki, sem eru nægilega örugg til að þau nýtist veitingamönnum eða eigendum staðanna, og svo ódýr, kosta 12 þús kr„ að hægt er að ætlast til að fíeir kaupi þau. En síðan mundum við fylgjast með því með stökum mælingum að þetta sé gert og væri þá hægt að beita viðurlög- um, ef út af væri brugðið. Sagði Skúli, að málið væri í undirbúningi og að ekki hefðu enn verið settar reglur um hámarkshávaða, en þær byggð- ust á því, að hægt væri að fylgja þeim eftir, sem nú virð- ist ætla að verða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.